Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020 um sem þú tókst eins og þau væru þín eigin bræðrabörn. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Ég votta elsku Haraldi, Stein- þóru, Valla, Vigdísi og Kolbeini mína dýpstu samúð. Megi allar fallegu minningarnar sem þið eig- ið ylja ykkur og fylgja um ókomna tíð. Björg Bjarnadóttitr. Elsku Dolla mín. Takk fyrir allt!!! Þetta voru síð- ustu orðin sem þú hvíslaðir að mér einum sólarhring áður en stóra kallið kom. Ég var ekki viðbúinn en mikið þykir mér óendanlega vænt um að hafa fengið að knúsa þig þarna í síðasta skipti. Þú varst svo mikil hetja að ég trúði því ekki að þessi stund myndi renna upp þó innst inni vissi ég kannski betur. En margar hetjur kveðja allt of snemma og þú er svo sannarlega í þeim hópi, elsku Dolla. Þú varst hrókur alls fagnaðar. Þú hélst hópum saman, þú varst sameiningartákn, þú varst elskuð af okkur öllum og það er stórt skarð höggvið í vinahópinn okkar enda varst það oftar en ekki þú sem sameinaðir okkur enda gera leiðtogar það. Elsku Dolla, þú varst svo mikill vinur minn og mikið á ég eftir að sakna þín. Þú og Halli hélduð utan um mig þegar ég þurfti á því að halda og pössuðuð upp á mig. Steik, rauðvín og golf í sjónvarp- inu helgi eftir helgi var ekki til- tökumál. Þú talaðir oft um okkur sem strákana þína og mikið þótti mér vænt um það. Ég er svo sorgmæddur að skrifa þessar línur á sama tíma og ég er þakklátur að hafa fengið að vera þáttakandi í þínu lífi, elsku Dolla. Elsku Halli, Steinþóra, Valli, Vigdís og Kolbeinn. Missir ykkar er mikill. Þið vitið jafnvel og ég að Dolla vill að þið „rockið“ áfram og haldið minningu hennar hátt á lofti. Takk fyrir allt, elsku Dolla. Sigurður Olsen. Í dag kveðjum við Dollu frænku með söknuði og tár í aug- um en einnig minnumst við flottr- ar konu sem fór alltof fljótt. Hún var ekki tilbúin í þetta ferðalag og vildi meiri tíma en vissi þó hvað hún átti í höggi við. Hún háði þá baráttu af æðruleysi, hugrekki og vilja til að sigra. Dolla frænka hef- ur alltaf verið til í mínum huga og fyrstu minningarnar um hana eru frá Reykholti. Dolla var yngst fjögurra systkina og þar að auki eina stelpan í genginu. „Algjör dúlla“ eins og mamma mín, föðursystir hennar, minntist á þegar við töluðum um hana dag- inn sem hún dó. Dolla var 10 árum eldri en ég og þegar maður er yngri þá er aldursmunurinn mikill en með árunum varð hann enginn. Frænkuhópurinn frá föður- leggnum varð náinn og með ár- unum hittumst við reglulega og áttum góðar stundir saman. Hafnarfjarðarsystur voru oft með í þeim hittingi. Minnist ég sér- staklega tveggja ferða sem við fórum saman í. Önnur þeirra var ferðin til Englands sem farin var til Dóru frænku. Í þá ferð fórum við frænkur ásamt mæðrum okk- ar allra. Áttum við þar ótrúlega dýrmætan tíma saman ungar sem eldri. Yngri sváfu á vindsængum í stofunni, mikið var hlegið, talað og notið lífsins. Ég sit og skoða mynd sem tekin var af okkur öll- um saman í þeirri ferð og eru skörðin í henni orðin nokkur. Lífsins gangur og örlögin blandast saman í eitt. Hin ferðin, og var sú ekki síður dýrmæt, er ferð okkar frænkna og Hafnar- fjarðarsystra í Reykholtsdalinn. Þar gistum við heila helgi og nut- um samvistanna. Rifjaðar voru upp góðar minningar frá veru okkar þar og erum við allar svo stoltar af þessum dal og tengslum okkar við hann. Það sem gerði þessa ferð sérstaklega minnis- stæða var að Dolla hafði nýlega fengið sína greiningu og vissi hvað var fram undan. Þrátt fyrir það fórum við saman í þessa ferð og nutum samverunnar. Má segja að það hafi endurspeglað baráttu Dollu allt til síðasta dags. Trúin á lífið, að halda áfram að njóta þess og þess sem það hafði upp á að bjóða. Þessi ferð var okkur öllum dýrmæt. Dolla eignaðist Stein- þóru sína, augastein lífs síns, og hitti svo Harald sinn, ástina og klettinn í lífi sínu, og giftist hon- um. Áttu þau ætíð fallegt og ást- ríkt samband. Barnabörnin eru tvö, Vigdís og Kolbeinn. Ætíð voru þau umvafin ást og umhyggju frá ömmu Dollu og afa Haraldi. Mörgu hefur Dolla áork- að í sínu lífi og átti þar körfubolt- inn stóran þátt, var hún vinmörg og fjölskyldan stór. Langt mál yrði að telja allt upp hér en minn- ing hennar mun alltaf lifa í hjarta mér. Ég er stolt yfir að hafa átt þig sem frænku og góða fyrirmynd. Hafðu það sem allra best í sum- arlandinu góða og ég veit að þar verður tekið vel á móti þér, mín kæra frænka. Elsku Haraldur, Steinþóra og fjölskylda og ætt- ingjar, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Það geri ég fyrir hönd mína og minnar fjölskyldu allrar. Lokaprófið Muna skaltu fullt og fast á ferð um lífsins kjalveg: Á endanum þú útskrifast alveg. (Þórarinn Eldjárn) Þín frænka, Svandís og fjölskylda. Gæfa er hugtak sem fólk skil- greinir á mismunandi hátt. Í okk- ar huga er gæfa eitthvað sem markar líf þitt á jákvæðan og góð- an hátt og hægt er að vera þakk- látur fyrir. Það að líf okkar Dollu varð samofið var okkar gæfa. Fyrir allt með Dollu erum við óendanlega þakklát. Dolla var heilsteypt, heiðarleg, stálminnug, ástrík og traust. Því kynntumst við í gegnum áratuga samstarf okkar þar sem sönn vinátta, ferðalög, vinafagnaðir og sam- heldni bæði í gleði og sorgum ein- kenndi árin. Dolla var skemmti- leg og það geislaði af henni hvert sem hún fór. Skilningur okkar á gildi fjölskyldunnar var hinn sami. Fjölskyldan gengur fyrir. Ást hennar á Haraldi, Steinþóru, Valla, Vigdísi og Kolbeini var henni allt. Við söknum Dollu sárt. Hún býr í hjörtum okkar. Ásgeir og Kristín. Í dag kveðjum við hinstu kveðju í Hallgrímskirkju kæra frænku og vinkonu, Kolbrúnu Jónsdóttir, eða Dollu eins og hún var kölluð í fjölskyldunni. Dolla var fædd og uppalin í Reykholti og fyrstu minningar mínar um hana tengjast staðnum þar sem stór hluti móðurfjölskyldu minn- ar bjó. Reykholt bernsku minnar er enn sveipað ævintýraljóma og er ástæða þess að stórum hluta Dolla, eldri bræður hennar Rúkki, Valdi og Dúdi, auk for- eldra þeirra, Nonna og Dóru. Heimili þeirra var mannmargt og yfirleitt voru fleiri í heimili en nánasta fjölskylda, auk þess sem fjölskylda og vinir komu oft í heimsókn og gistu. Heimilislífið einkenndist af gleði, kærleika og samkennd, mikið var spjallað í matar- og kaffitímum og þá var hlustað á skoðanir allra, frá þeim yngstu til þeirra elstu. Ég var svo lánsöm að fá að dvelja hjá þeim á sumrin frá sex til sextán ára ald- urs og þar lærði ég ekki bara að passa börn og vinna heimilis- og sveitastörf, heldur tók ég einnig fyrstu skrefin í íþróttum undir dyggri leiðsögn Dollu og bræðra hennar. Alltaf voru þau tilbúin að leiðbeina og fara með okkur yngri krakkana í Reykholti á frjáls- íþrótta- og sundmót, bæði innan og utan Borgarfjarðar. Við Dolla vorum yfirleitt her- bergisfélagar í sveitinni og þó hún væri rúmum þremur árum eldri þá leyfði hún litlu frænku oftast að skottast með, hvort sem farið var í reiðtúr, í sundlaugina, í íþróttasalinn, á Eyrina eða í heim- sóknir um sveitina. Þarna var grunnurinn lagður að náinni vin- áttu sem hefur verið mér svo óendanlega dýrmæt alla tíð. Þeg- ar Dolla kom til Reykjavíkur í framhaldsskóla bjó hún fyrsta ár- ið hjá okkur í Hjallalandinu. Hún var vinmörg og við systurnar vor- um ákaflega forvitnar um félagslíf hennar. Þegar ég nálgaðist tví- tugsaldurinn urðum við enn nán- ari vinkonur og ég kynntist vinum hennar og hún mínum. Ég man ekki eftir tilverunni án þess að Dolla hafi verið mikilvæg- ur hluti hennar og alltaf var hún til staðar fyrir mig og mína. Nú þegar komið er að kveðjustund þá koma fram í hugann svo margar dýrmætar minningar. Að vera viðstödd fæðingu Steinþóru var einstakt kraftaverk. Að kynnast Haraldi, ástinni í lífi Dollu og sálu- félaga, og fá að njóta samvista við þau hjón og gestrisni var einstakt. Að upplifa það hvað hjónin nutu ömmu- og afahlutverksins gagn- vart augasteinunum, Vigdísi og Kolbeini, var einstakt. Lífsviðhorf Dollu og Haraldar, kærleikur þeirra og samstaða endurspeglaðist í því hvernig þau tókust á við veikindi Dollu. Þau mættu þeim með ótrúlegu hug- rekki, bjartsýni og æðruleysi. Þau voru hvort um sig kletturinn í lífi hins og voru sammála um að njóta líðandi stundar. Dolla kvartaði aldrei þrátt fyrir langa baráttu við krabbamein og þótt hún væri oft veikburða þá hafði hún alltaf orku til að gefa af sér til annarra. Elsku Dolla, frænka, vinkona, „stóra systir“ og fyrirmynd. Ég kveð þig með söknuði og þakk- læti, þú munt lifa í hjarta mínu og huga alla tíð. Ég bið allar góðar vættir að passa upp á Harald, Steinþóru, Valgeir, Vigdísi, Kol- bein, bræður þína og fjölskyldur. Ólöf Ragna Ámundadóttir. Þá er Kolbrún farin í ferðalagið langa og ég sit hér eftir með brostið hjarta og tárin í augunum af eftirsjá eftir góðri og ljúfri vin- konu. Kolbrún var vinmörg og var mér alveg sérstaklega kær. Hún hafði lag á því að láta mér alltaf líða svo vel og hlustaði með áhuga á það sem ég var að ræða við hana um. Hún kom líka með svo góðar ábendingar um það sem ég leitaði til hennar með. Kolbrún var mikill fagurkeri, átti fallegt heimili og það var alltaf gaman að koma til hennar og Haraldar um jólin því hún var mikil jólakona. Jólaþorpið hennar var ævintýri út af fyrir sig því árlega bætti hún í það nýjum húsum, fólki, ljósastaurum, hólum og hæðum og það var svo spenn- andi að sjá hvernig það stækkaði og tók breytingum ár frá ári. Barnabarnið þeirra, hún Vigdís, beið eftir þorpinu og aðstoðaði ömmu sína við að setja það upp. Jólaboðið þeirra fyrir okkur vin- ina er dálítið lýsandi fyrir um- hyggjusemi og hlýju þeirra Kol- brúnar og Haraldar. Þá tóku þau á móti okkur með dýrindis veit- ingum sem þau höfðu nostrað við svo dögum skipti handa okkur og svo var alltaf eitthvað sem kom á óvart, þrautir sem við áttum að leysa, orðaleikir eða gátur. Það var alltaf svo æðislegt að koma til þeirra og engar ýkjur þegar ég segi að allt árið hafi ég hlakkað til þessa jólaboðs þar sem mikið var hlegið og rifjað upp árið sem var að líða. Við fórum alltaf saman í leikhúsið á veturna og þá fórum við líka út að borða og gerðum úr þessu notalega stund, spjölluðum og spáðum í stykkið sem við vor- um að fara að sjá. Kolbrún vildi gjarnan fá okkur með í golfferð sem vinirnir höfðu farið oft í. Við létum tilleiðast í apríl árið 2017 og skelltum okkur með Kolbrúnu, Halla og hópi þeim tengdum til Novo Sancti Petri á Spáni. Þessi ferð var yndisleg og ógleymanleg með þessu skemmtilega og góða fólki. Elsku Halli okkar, Steinþóra, Valli, Vigdís og Kolbeinn. Mikill er ykkar missir að sjá á eftir eig- inkonu, móður og ömmu sem elsk- aði ykkur svo mikið að allir tóku eftir. Megi Guð fylgja ykkur í gegnum þessa miklu sorg. Mikið var ég heppin að njóta vináttu þinnar. Rannveig Þórisdóttir. Hvíld Lygnt geymir vatnið leið mína yfir fjallið, felur hana rökkri og ró í nótt. Vær geymir svefninn söknuð minn í lautu, með degi rís hann aftur úr djúpsins ró. (Snorri Hjartarson) Elskuleg vinkona okkar, Kol- brún Jónsdóttir, hefur kvatt okk- ur, allt of snemma, eftir langa bar- áttu við krabbamein. Það er alltaf jafn erfitt að sætta sig við þegar kærir vinir kveðja og við höfum þá ekki lengur með okkur en minningin um kæra yndislega konu er okkur fararnesti fram á veginn. Við kynntumst Dollu þegar við byrjuðum saman í Fósturskóla Ís- lands haustið 1974 og áttum sam- leið þar fram til ársins 1977 þegar við útskrifuðumst sem fóstrur. Dolla var yngst í bekknum okkar, íþróttastelpa í smekkbuxum og íþróttaskóm sem keypti Morgun- blaðið á þriðjudögum til að lesa íþróttasíðurnar. Námið veittist henni létt og hún var virk í öllum okkar uppátækjum, hvort sem það var að taka þátt í skemmti- atriðum á árshátíð eða mótmæla reglum námslána. Alltaf tilbúin, alltaf jákvæð og brosandi. Dolla starfaði ekki lengi á vettvangi leikskólans en við sem unnum með henni þar minnumst hennar sem skemmtilegs og trausts sam- starfsmanns. Með jákvæðni og fagmennsku náði hún góðu sam- bandi við börn og foreldra en tók á málum af yfirvegun þegar á reyndi. Eftir 1983 hvarf Dolla til ann- arra starfa en hélt áfram tengslum við bekkjarsystur sínar. Með árunum myndaðist lítill vina- hópur sem við köllum Skólasystur 7́7. Traust og vinátta hefur alltaf einkennt þennan skemmtilega átta kvenna hóp, sem nú hefur misst tvo félaga, Heiðrún Sverr- isdóttir hvarf frá okkur fyrir tíu árum og nú kveðjum við Dollu. Eftir nokkur ár frá stofnun hópsins tókum við „strákana“ með og saman höfum við átt margar skemmtilegar stundir heima og heiman. Ferðir hvort sem er í sumarbústað eða erlendis þarfnast skipulags og auðvitað var það Dolla sem sá um það, stakk upp á sumarbústöðum, valdi hótel og veitingahús erlendis og alltaf mátti treysta á það val. Hún sá líka til þess að nægur og góður matur væri keyptur fyrir sumarbústaðaferðirnar því Dolla var sannarlega „gourmé“ kona. Þegar Dolla kynntist Haraldi sínum var það ekki spurning, þar var kominn hennar framtíðarlífs- förunautur. Fyrir okkur vini þeirra hefur það verið aðdáanlegt að fylgjast með sambandi þeirra, svo samhent sem þau voru við að lifa lífinu á sem bestan mögulegan hátt. Það er erfitt að trúa því að Dolla sé farin frá okkur, hún sem alltaf var hress og brosandi í gegnum öll sín veikindi og kvart- aði aldrei. Hún lét ekkert aftra sér frá að ferðast og njóta lífsins með Haraldi sínum. Þrátt fyrir veikindin var það hún sem hélt áfram að skipuleggja viðburði okkar og kalla okkur saman, hennar hlutur í að halda saman SJÁ SÍÐU 18 Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTINSSON, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 18. janúar, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. febrúar klukkan 11. Pétur Hrafn Sigurðsson Sigrún Jónsdóttir Guðm. R. Sigurðs. Kemp Gróa María Einarsdóttir Sigurður Hrafn Pétursson Svanhvít Sigurðardóttir Arnar Pétursson Jóna Þórey Pétursdóttir barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. janúar. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 5. febrúar klukkan 13. Friðjón Alfreðsson Halldóra Þórdís Friðjónsd. René Andersen Jón Arnar Friðjónsson Þórhallur H. Friðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRIR KRISTJÓNSSON skipstjóri, Fellasmára 4, Kópavogi, lést föstudaginn 31. janúar á hjúkrunarheimilinu Seltjörn. Inga Jóna Ólafsdóttir Helga Þórisdóttir Gísli Sveinbjörnsson Inga Þóra Þórisdóttir Guðmundur Helgason Guðný Þórisdóttir Egill Sveinbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ÁLFHEIÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR, Miðleiti 3, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 31. janúar. Útför hennar verður auglýst síðar. Páll Bjarnason Kristín Pálsdóttir Gunnar Þór Kjartansson Heiðrún Pálsdóttir Gestur Guðjónsson Bjarni Pálsson Unnur Ýr Kristjánsdóttir Þuríður Anna Pálsdóttir Kristján Frosti, Elva, Álfheiður, Auðunn Páll, Páll Theodór, Bragi Valur Ólína Sigurgeirsdóttir Klemens Sigurgeirsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR JÓNSSON frá Breiðdal, sem lést fimmtudaginn 23. janúar, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 13. Aðstandendur hins látna Ástkær móðir mín og amma, HAFDÍS UNA JÚLÍUSDÓTTIR, Nönnufelli 3, lést laugardaginn 25. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð í Landsbanka - 0137 - 26 - 102311 og kt. 2311755049 Guðrún Ásta Magnúsdóttir Nói Jóel Viktorsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.