Morgunblaðið - 04.02.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020
Hugsið ykkur að Hull City
myndi enda í sextánda sæti
ensku B-deildarinnar í fótbolta í
vor.
Myndi síðan skríða upp í úr-
valsdeildina vorið 2021 með því
að ná naumlega þriðja sætinu.
Yrði Englandsmeistari í fyrstu
tilraun sem nýliði vorið 2022 og
myndi leika 42 leiki án taps í úr-
valsdeildinni frá nóvember 2022
til desember 2023.
Hull City myndi síðan vinna
Meistaradeild Evrópu tvisvar í
röð, vorið 2023 og aftur 2024.
Er hann nú endanlega genginn
af göflunum – hugsa nú ein-
hverjir. En þetta hefur gerst.
Afrek Nottingham Forest á
árunum 1976 til 1980 var ná-
kvæmlega svona. Brian Clough
og Peter Taylor fóru með liðið úr
neðri hluta B-deildarinnar og
unnu með því enska meistara-
titilinn og í framhaldi af því
Evrópumeistaratitilinn í tvígang.
Í ljósi þess að Liverpool jafn-
aði afrek Forest síðasta laug-
ardag með því að leika sinn 42.
leik í röð úrvalsdeildinni án taps
er gaman að rifja upp þennan
magnaða árangur Nottingham
Forest.
Það var einmitt Liverpool sem
stöðvaði sigurgöngu Forest í
desember 1978.
Aðeins Arsenal hefur gert
betur og verið taplaust í 49 leikj-
um á árunum 2003 og 2004.
Þeir Clough og Taylor voru
nærri því búnir að leika sama
leik með Derby nokkrum árum
áður. Náðu enska meistaratitl-
inum 1972 en féllu út fyrir
Juventus í undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða vorið
eftir.
Væri þetta hægt í dag? Varla.
En mikið væri það gaman!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
mes á Damien Williams – þegar um
tvær mínútur voru eftir. Á skömmum
tíma höfðu Chiefs náð forystunni,
24:20.
Leikurinn var hinsvegar enn í
járnum, en á endanum náði sókn San
Francisco sér aldrei á stað í lokaleik-
hlutanum og Chiefs settu eitt loka-
snertimark þegar rúm mínúta var
eftir, 31:20.
Kansas City hafði snúið þessum
leik algerlega við með þremur snerti-
mörkum á lokamínútunum gegn
firnasterkri vörn San Francisco.
Chiefs í gang á réttum tíma
Í fyrsta leiknum í úrslitakeppninni
í ár lenti Kansas City undir 24 stigum
gegn Houston Texans, en setti svo 41
stig í röð á töfluna í sigri þar. Liðið
lenti svo tíu stigum undir gegn Ten-
nessee Titans í úrslitum Am-
eríkudeildarinnar, 7:17, en fór þá í
gang og setti 28 stig í röð í þeim leik
til að vinna enn auðveldlegar.
Í leiknum á sunnudag voru þeir
enn á ný undir tíu stigum en fóru enn
á ný í gang og innbyrtu sigurinn á
lokamínútunum.
Kannski ekki besta leiðin til að
vinna meistaratitilinn í NFL-
deildinni, því erfitt er fyrir lið að gera
slíkt í úrslitakeppninni. Þegar þang-
að er komið eru öll liðin með gott
varnarlið.
Það virkaði þó í þetta sinn og það
gerir sigur Chiefs svo minnisverðan.
Mahomes neitar að gefast upp
Lykillinn að úrslitunum í þessum
leik var að Patrick Mahomes neitaði
að gefast upp þótt í harðbakkann
hefði slegið. Hann hélt áfram að
reyna að finna leið gegn sterkri vörn
San Francisco og í lokin fann hann
leið til að koma liði sínu í endamarkið
hjá andstæðingnum.
„Við gáfumst aldrei upp og það gaf
okkur tækifæri í lokin í leiknum,“
sagði Mahomes á blaðamannafundi
eftir leikinn. „Við höfðum tröllatrú á
hver öðrum og það var hlutur sem
þjálfararnir höfðu lagt áherslu á allt
keppnistímabilið. Ég gerði nokkur
slæm mistök í leiknum, en samherjar
mínir studdu vel við mig og gáfu mér
sjálfstraustið í endanum á leiknum til
að klára hann.“
Kappinn var kosinn maður leiksins
og hann er einnig yngsti leikstjórn-
andi sigurliðs í sögu Ofurskálarleiks-
ins.
Sigur Kansas City var einnig sigur
fyrir þjálfara liðsins, Andy Reid.
Hann hefur verið aðalþjálfari í yfir
tvo áratugi og vann loksins sinn
fyrsta meistaratitil. Reid er afar vel
liðinn af öllum í NFL-deildinni. Hann
er klassapersóna og það eru margir í
ruðningsíþróttinni sem eru ánægðir
fyrir hans hönd.
Kansas City lék í fyrsta ofurskál-
arleiknum fyrir rúmri hálfri öld og
það hefur tekið liðið allan þann tíma
að komast þangað aftur og vinna tit-
ilinn. Bið sem er loks á enda hjá
áköfu stuðningsfólki liðsins í borg-
inni.
Við undir? Ekkert mál
Kansas City Chiefs vann fyrsta meistaratitil sinn með mögnuðum endaspretti
Enn einu sinni sneru Patrick Mahomes og félagar erfiðri stöðu sér í hag
AFP
Miami Frank Clark og leikstjórnandinn öflugi Patrick Mahomes fagna sigrinum á San Francisco 49ers.
OFURSKÁLIN
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Kansas City Chiefs vann fyrsta
meistaratitil sinn í NFL-ruðnings-
deildinni eftir enn einn leikinn í úr-
slitakeppninni í ár þar sem liðið
þurfti að vinna upp gott forskot and-
stæðinganna. Um miðjan lokaleik-
hlutann í Ofurskálarleiknum gegn
San Francisco 49ers í Miami í fyrri-
nótt leit út fyrir að liðið hefði loks
sett sig í of erfiða stöðu að yfirbuga,
en á síðustu mínútum leiksins fóru
bæði sóknar- og varnarlið Chiefs í
gang, á sama tíma og 49ers virtust
heillum horfnir.
Fyrir leikinn voru veðbankarnir
allir á bandi Kansas City – hug-
myndin víst sú að Patrick Mahomes,
leikstjórnandi Chiefs, myndi leika
lykilhlutverkið í leiknum. Liðið náði
10:3 forystu um miðjan fyrri hálfleik-
inn og hafði sókn San Francisco verið
haldið niðri fram að því. Hún fór
hinsvegar í gang á réttum tíma og
49ers náðu því að jafna fyrir hálfleik-
inn, 10:10, þegar Jimmy Garoppolo
sendi á Kyle Juszczyk, sem átti í
litlum erfiðleikum að jafna.
Eftir hálftíma hlé og skemmt-
anahald héldu 49ers áfram skora og
þeir náðu 20:10 forystu um miðjan
seinni hálfleikinn þegar Raheem
Mostert ruddi tuðrunni í mark.
Á þessum tímapunkti leiksins
hafði sókn Chiefs verið út að aka í
tæpa tvo klukkutíma – seinni part
fyrri hálfleiks, langi hálfleikurinn, og
svo fyrri part seinni hálfleiks. Það
var því nú eða aldrei fyrir Mahomes
og félaga að fara í gang.
Hlutirnir snúast við
Varnarmenn San Francisco kom-
ust inn í sendingu Mahomes í upphafi
fjórða leikhlutans og virtust hafa all-
an vind með sér í leiknum. Vörn
Chiefs náði þó að stöðva sókn San
Francisco og þegar um sex mínútur
voru eftir sendi Mahomes á Travis
Kelce í endamarkið, 20:17.
„Game on“ eins og þeir segja hér
vestra.
Þetta snertimark reyndist vendi-
punkturinn í leiknum því sókn 49ers
komst ekki af stað eftir þetta. Chiefs
fengu boltann fljótt og skoruðu fljót-
lega – í þetta sinn sending frá Maho-
Jón Erik Sigurðsson, 15 ára skíða-
maður úr Breiðabliki, vann í síð-
ustu viku til gullverðlauna á stóru
alþjóðlegu móti í Andorra, Trofeu
Borrufa, sem er eitt af þeim stærstu
sem haldið er á vegum Alþjóða-
skíðasambandsins á hverju ári í
þessum aldursflokki. Jón Erik sigr-
aði í svigi en varð auk þess fjórði í
alpatvíkeppni og níundi í risasvigi á
mótinu. Eini Íslendingurinn sem
áður hefur unnið unglingamót af
þessum toga erlendis er Jakob
Helgi Bjarnason sem vann svigmót
í Kanada árið 2010.
Jón Erik fékk gull
í svigi í Andorra
Ljósmynd/Sigurður Sveinn Nikulásson
Sigurvegari Jón Erik Sigurðsson
með verðlaunagripinn í Andorra.
Úrslitaeinvígi Skautafélags Ak-
ureyrar og liðs Reykjavíkur um Ís-
landsmeistaratitil kvenna í íshokkíi
hefst í kvöld. Akureyringar urðu
deildarmeistarar, fengu 25 stig
gegn 5 stigum Reykvíkinga í leikj-
um liðanna í vetur, og eiga því
fyrsta leikinn á heimavelli en hann
hefst klukkan 19.30. Liðin mætast
aftur í Egilshöllinni á fimmtudags-
kvöldið og ef til oddaleiks kemur
fer hann fram á Akureyri á sunnu-
daginn. SA hefur orðið meistari 13
ár í röð og í 18 ár af þeim 19 sem
keppt hefur verið um titilinn.
Fyrsti úrslitaleik-
urinn í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Íshokkí Akureyrarkonur eiga
meistaratitil að verja.
Finnur Atli
Magnússon lék
sinn fyrsta leik
með Vals-
mönnum þegar
liðið heimsótti
Njarðvík í úrvals-
deild karla í
körfuknattleik í
Njarðtaks-
gryfjuna í Njarð-
vík í sautjándu
umferð deildarinnar í gær. Finnur
hafði æft með Valsmönnum að und-
anförnu og sótti um félagaskipti frá
KR áður en félagaskiptaglugganum
var lokað á dögunum.
Finnur Atli átti fínan leik í Njarð-
vík, skoraði 6 stig, tók þrjú fráköst
og gaf tvær stoðsendingar á þeim
rúmu 24 mínútum sem hann lék.
Framherjinn, sem er 34 ára gamall,
hafði aðeins komið við sögu í einum
leik með KR á tímabilinu til þessa.
Hann á að baki 19 A-landsleiki
fyrir Ísland en hann varð Íslands-
meistari með KR á síðustu leiktíð.
Finnur Atli er uppalinn í Vestur-
bænum en lék með Haukum í Hafn-
arfirði á árunum 2015 til 2018 þar
sem hann varð meðal annars deild-
armeistari árið 2018. bjarnih@mbl.is
Valur fékk
meistara úr
Vesturbæ
Finnur Atli
Magnússon
Gísli Þorgeir Kristjánsson, leik-
maður Magdeburg í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik, spilar ekki
meira með liðinu á þessari leiktíð
vegna meiðsla sem hann varð fyrir í
leik gegn Þýskalandsmeisturum
Flensburg í deildinni um helgina en
þetta staðfesti Kristján Arason, faðir
Gísla, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Gísli meiddist á vinstri öxl í leikn-
um, þeirri sömu og hann meiddist á í
nóvember á síðasta ári, sem gerði
það að verkum að hann missti af EM
í Austurríki, Noregi og Svíþjóð með
íslenska karlalandsliðinu.
„Það var tekin ákvörðun um það
að Gísli myndi ekki fara í aðgerð
þegar hann meiðist í nóvember á síð-
asta ári. Hann lendir svo í þessum
meiðslum núna eftir mjög ljótt brot
og það hefur verið tekin ákvörðun
um það að hann muni fara í aðgerð.
Hann mun því ekki spila meira með
Magdeburg á þessari leiktíð,“ sagði
Kristján í samtali við Morgunblaðið.
Gísli gekk til liðs við Magdeburg
23. janúar síðastliðinn eftir tvö ár í
herbúðum Kiel. Samningur Gísla við
Magdeburg gildir út tímabilið 2021
og hann verður því í herbúðum
þýska liðsins á næstu leiktíð.
bjarnih@mbl.is
Gísli á leið í aðgerð og missir af restinni af tímabilinu
AFP
Lánlaus Gísli Þorgeir Kristjánsson
hefur verið óheppinn með meiðsli.