Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 32
Hljómsveitin Sons of Gíslason kem- ur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Í henni eru Frey- steinn Gíslason sem leikur á kontrabassa, Helgi R. Heiðarsson á saxófón, Hrafnkell Gauti Sigurðar- son á gítar og Óskar Kjartansson á trommur. Flutt verður tónlist eftir bassaleikarann Freystein í bland við djassstandarda. Sons of Gíslason djassa á Kex hosteli Njarðvík vann tíu stiga sigur gegn Val í úrvalsdeild karla í körfuknatt- leik, Dominos-deildinni, í Njarð- taksgryfjunni í Njarðvík í fram- lengdum leik í gær. Þá vann Stjarnan sinn þrettánda sigur í röð í deildinni gegn lánlausum Grind- víkingum í Garðabæ en Grindvík- ingar eiga það á hættu að missa af sæti í úrslitakeppninni í vor. »26 Njarðvík jók á vand- ræði Valsmanna Kansas City Chiefs vann fyrsta meistaratitil sinn í NFL-ruðnings- deildinni eftir enn einn leikinn í úrslitakeppn- inni í ár þar sem liðið þurfti að vinna upp gott forskot and- stæðinganna. Lykill- inn að úrslitunum í þessum leik var að leikstjórnandinn ungi Patrick Mahom- es neitaði að gefast upp þótt í harðbakk- ann hefði slegið. Gunnar Valgeirsson skrifar um úrslita- leikinn á íþrótta- síðum blaðsins í dag. »27 Patrick Mahomes neitaði að gefast upp Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vísindavefur Háskóla Íslands hefur verið spurður nær 73.000 spurninga frá því hann var opnaður fyrir tutt- ugu árum, um tíu spurningar á dag að meðtaltali. Í tilefni afmælisins birtist nýtt útlit á vefsíðunni í gær og á föstudag gengst hann fyrir málþingi um falsfréttir og vísindi. Reykjavík var útnefnd menning- arborg Evrópu 2000 og af því tilefni var eitt af verkefnum Háskóla Ís- lands að bjóða upp á vísindavef, sem forseti Íslands opnaði 29. jan- úar 2000. Til stóð að hann yrði opinn í mesta lagi út árið, en eftir- spurnin fór fram úr björtustu von- um og er farin að nálgast milljón gesti á ári. „Efnið var vinsælla en nokkurn hafði grunað og því var ákveðið að halda áfram,“ segir Jón Gunnar Þorsteinsson, bókmennta- fræðingur og aðalritstjóri vefjarins frá 2010, en hann var áður aðstoð- arritstjóri. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, var upp- hafsmaður vefjarins og aðalritstjóri frá byrjun og fram til sumarsins 2010. „Tilgangurinn var og er að opna Háskólann út á við eins mikið og hægt er og miðla vísindum til al- mennings,“ segir Jón Gunnar. Í byrjun töldu menn að nokkrar spurningar bærust á viku en raunin varð önnur. Jón Gunnar segir að fjöldi gesta hafi aukist ár frá ári og til dæmis hafi verið 26% aukning frá 2018 til 2019, þegar gestir voru 977 þúsund. Þá hafi innlit verið tæplega 2,4 milljónir og flettingar um 3,4 milljónir. „Þennan mikla vöxt má skýra á ýmsa vegu,“ segir hann og nefnir sérstaklega að eftir því sem vefurinn verði umfangs- meiri þeim mun fleiri spurningum geti hann svarað. „Líkurnar á því að fólk finni á Vísindavefnum það sem það er að leita að aukast jafnt og þétt.“ Ungt fólk áhugasamt Vísindavefurinn er einmitt það, svarar spurningum sem berast um vísindi. Jón Gunnar segir að yfir 800 manns séu í höfundaskránni og þar af langflestir vísindamenn við Háskóla Íslands. Höfundar séu líka meðal annars við aðra háskóla og fræðslustofnanir auk fræðimanna erlendis. „Við reynum að finna hæfasta fólkið til þess að svara hverju sinni,“ segir hann. Allir geta sent spurningar og með þessu móti er al- menningur í beinu sambandi við vís- indamennina. Jón Gunnar segir að mikið sé spurt um raunvísindi, hug- vísindi, íslenskt mál, eðlisfræði í daglegu lífi, jarðvísindi og fleira. „Dreifingin er mjög góð,“ segir hann og bætir við að metnaður flestra fræðimanna liggi meðal ann- ars í því að koma því sem þeir starfi við til almennings. „Það er sérstak- lega ánægjulegt að sjá hvað margt ungt fólk nýtir sér þessa þjónustu, sem sýnir að lifandi áhugi er á vísindum og sterkur grunnur fyrir framtíðina.“ Vísindavefurinn fékk upplyftingu í tilefni afmælisins. „Við ákváðum að gera vefinn aðgengilegri, meðal annars með nýrri uppsetningu og nýju letri,“ segir Jón Gunnar. Mál- þingið verður í Þjóðminjasafninu og hefst klukkan 15 á föstudag. Að lok- inni setningu Jóns Atla Benedikts- sonar, rektors HÍ, og ávarpi Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, flytja erindi þau Finnur Dellsén, Guðrún Hálfdánardóttir, Eiríkur Bergmann Einarsson, Erna Magn- úsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. Ljósmynd/HÍ/Kristinn Ingvarsson Vísindavefurinn Jón Gunnar Þorsteinsson hefur verið aðalritstjóri frá 2010 og fengið margar spurningar. Spurt og svarað í 20 ár  Vísindavefurinn tengir fræðimenn við almenning ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 35. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.