Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 2

Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ég fer á fjöll Ferðafélag Íslands • www.fi.is Prófsteinn á íslenska utanríkisþjónustu  Ráðherra telur setu Íslands í mannréttindaráði hafa heppnast vel  Líst vel á annað framboð síðar, en þverpólitísk sátt verður að ríkja  Eigum að einbeita okkur að þeim sviðum sem við erum sterkust á Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is „Það er samdóma álit erlendra fjöl- miðla og annarra að seta Íslands hafi heppnast mjög vel.“ Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra, en í dag verður gefin út skýrsla um setu Íslands í mannrétt- indaráði Sameinuðu þjóðanna, sem lauk um áramót. Aðdragandinn að framboði Ís- lands var um margt óvenjulegur. Bandaríkjastjórn sagði sig úr mann- réttindaráðinu sumarið 2018 og með því losnaði eitt sæti fyrir ríki úr hópi Vesturlanda (WEOG-hópnum). Úr varð að Ísland gaf kost á sér til setu út kjörtímabilið. Guðlaugur Þór segir að seta Ís- lands í ráðinu hafi verið próf- steinn á íslenska utanríkisþjón- ustu. „Áhersla okkar hefur frá fyrsta degi verið að líta til þeirra þjóða sem eru í mannréttindaráðinu,“ segir Guð- laugur og nefnir í því skyni sérstak- lega Sádi-Arabíu og Filippseyjar en bæði ríki sitja í umræddu ráði þrátt fyrir að liggja undir ámæli fyrir gróf mannréttindabrot heima fyrir. Ís- lensk stjórnvöld hafa haft frum- kvæði að ályktunum þar sem mann- réttindabrot Sádi-Araba voru fordæmd og samþykkt að hefja rannsókn á stríðinu gegn fíkniefnum á Filippseyjum. Guðlaugur segir að gott sé að hafa þennan vettvang þar sem hægt er að taka fyrir mál þeirra ríkja og þau hafa tækifæri til að svara fyrir sig. „Við höfum engan annan vettvang en þennan.“ Aðspurður telur Guðlaugur að barátta Íslendinga hafi skilað raun- verulegum árangri í baráttunni fyrir bættum mannréttindum. „Það er óumdeilt að seta okkar hafði áhrif. Við finnum að umfjöllun [í mannrétt- indaráðinu] setur pressu á ríki til að standa sig betur,“ segir Guðlaugur og nefnir sem dæmi að sjö af ellefum konum í Sádi-Arabíu sem hafi verið handteknar fyrir mótmæli séu nú lausar úr haldi. Telur annað framboð vænlegt Úr því að seta Íslendinga í ráðinu þótti heppnast vel, er ekki úr vegi að spyrja hvort Íslendingar ættu að gefa kost á sér til setu í öðrum ráð- um Sameinuðu þjóðanna. Aðspurður segir Guðlaugur Þór að Íslendingar eigi að leggja áherslu á þá mála- flokka þar sem Ísland stendur vel að vígi. Þar séu mannréttindi ofarlega á blaði. Því sé vænlegra fyrir Íslend- inga að gefa aftur kost á sér í mann- réttindaráðið en mörg önnur ráð, s.s. öryggisráðið, sem Íslendingar gáfu kost á sér í fyrir árin 2009-2010 án árangurs. Líkt og fram kemur í skýrslu utanríkisráðuneytisins hefur ákveð- ið samráð verið meðal Norðurlanda- þjóðanna um að þau skipti með sér framboði til setu í ráðinu. Danir sitja nú í ráðinu út næsta ár, en fyrir ligg- ur að Finnar munu gefa kost á sér til setu árin 2022-2024. Guðlaugur Þór er opinn fyrir því að Íslendingar gefi kost á sér til setu árin 2025-2027, en segir að forsenda þess sé að þver- pólitísk samstaða sé um framboðið á þingi. Guðlaugur Þór Þórðarson Maní Shahidi, sautján ára gömlum trans- dreng frá Íran, verður ekki vísað úr landi í dag ásamt fjöl- skyldu sinni líkt og til stóð. Stoðdeild ríkislög- reglustjóra tók þá ákvörðun í gærkvöldi vegna heilsufars Maní en hann hefur nú verið lagður inn á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna andlegrar vanheilsu. Mál Shahidis komst í hámæli um helgina og var brottvísun hans mótmælt í gær við dóms- málaráðuneytið og Alþingishúsið. „Ísland er fyrsti staðurinn sem ég hef komið til þar sem ég finn fyrir öryggistilfinningu sem nær alveg niður í dýpstu hjartarætur. Ég hitti fólk sem er óhrætt við að vera það sjálft og þá fann ég öryggið til að koma út sem transstrákur í fyrsta skipti,“ sagði Shahidi í samtali við mbl.is í gær. Maní ekki vísað úr landi Maní Shahidi  Lagður inn á BUGL vegna and- legrar vanheilsu Þessi káti hvutti spásseraði á mótum Banka- strætis og Lækjargötu þegar ljósmyndari Morg- unblaðsins veitti honum athygli. Eflaust naut hann þess að ekki hvessti jafnmikið á suðvestur- horninu í gær eftir óveðrið mikla sem skall á landinu á föstudaginn. Enn voru þó gular veður- viðvaranir í gildi á landinu norðan- og vestan- verðu, og mega íbúar á Vestfjörðum eiga von á áframhaldandi stormi eða hvassviðri í dag. Morgunblaðið/Eggert Hundi loks út sigandi eftir óveðrið Öllu skaplegra veður á höfuðborgarsvæðinu eftir storminn „Öll aðildarfélög eru búin að eiga í samtali við sína félagsmenn á undan- förnum vikum og niðurstaðan er mjög skýr um að það eigi að grípa til aðgerða til að þrýsta á um gerð kjarasamninga,“ segir Sonja Ýr Þor- bergsdóttir, formaður BSRB, í sam- tali við Morgunblaðið. Atkvæðagreiðsla um boðun verk- fallsaðgerða hjá allt að 18 þúsund fé- lagsmönnum BSRB hófst í dag og stendur fram á miðvikudag. Verk- fallsaðgerðir gætu hafist 9. mars og ótímabundið allsherjarverkfall 15. apríl náist samningar ekki fyrir þann tíma. Sonja segir að launaliðurinn hjá mörgum aðildarfélaga BSRB standi út af þar sem ekki hafi öllum borist tilboð sem eru í samræmi við lífs- kjarasamningana. „Svo er krafa okk- ar um jöfnun launa milli markaða al- farið eftir og þá er eftir að ræða og finna niðurstöðu varðandi áherslu orlofs,“ útskýrir Sonja og bætir við að hún sé ekki vongóð um að samn- ingar náist fyrir fyrirhugað verkfall. Sverrir Jónsson, formaður samn- inganefndar ríkisins, er öllu bjart- sýnni en Sonja. „Við höfum meðal annars verið að ræða vinnutíma- styttingu og í tilboði ríkisins er sam- bærilegur vinnutími og samið var um á almennum vinnumarkaði sl. vor. Launaliðurinn er alveg sam- bærilegur við lífskjarasamningana þar sem áhersla er á lægstu laun og að tryggja kaupmátt,“ segir Sverrir. Samninganefnd ríkisins fundar með Sameyki á morgun og BSRB síðar í vikunni. thor@mbl.is Skýr vilji til að þrýsta á um gerð kjarasamninga  Ótímabundið allsherjarverkfall gæti hafist 15. apríl Sonja Ýr Þorbergsdóttir Sverrir Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.