Morgunblaðið - 17.02.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 17.02.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 Bi ðf i ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a ð frá kr. 209.995 r JÓGAÁKRÍT – fáðumeira út úr fríinu Hreyfiferð 2. júní í 10 nætur Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna aaaaa irv a DVALIÐ Á ALOE BOUTIQUE & SUITES -meðAuði Bjarnadóttur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í þúsundir nýrra bíla á Íslandi er nú kominn árekstursskynjari sem í al- varlegum tilvikum, til dæmis þegar öryggisbelgur blæs út, gerir Neyðar- línu viðvart og sendir þangað fyrstu upplýsingar um stöðu mála. Búnaður þessi heitir eCall og þarf að vera í öll- um nýjum gerðum bíla skv. ákvörðun Evrópusambandsins. Þessi regla hef- ur gilt á Íslandi frá apríl 2018, og þýðir að ef bílaumboð setur nýja teg- und bíls af tiltekinni gerð á markað er þetta staðalbúnaður sem skylt er að hafa. Tíminn vinnur með þróun „Eftir áratug eða svo verður eCall komið í flesta bíla á Íslandi enda vinnur tíminn með þessari tækniþró- un. Allt miðar þetta að því að stytta viðbragðstíma ef lögregla, sjúkralið eða aðrir sem bjargir veita þurfa á vettvang,“ segir Tómas Gíslason sem er aðstoðarframkvæmdastjóri Neyð- arlínunnar. Kjarninn í virkni eCall er sá, að þegar árekstrarskynjarar bifreiðar virkjast er hringt með gagnauppkalli til Neyðarlínunnar sem fær upplýs- ingar um slysið, staðsetningu, tegund ökutækis og hraða og stefnu tækis í aðdraganda atviksins. Í framhaldinu opnast talsamband við neyðarvörð sem tekur stöðuna og reynir að ná tali af fólki. Jafnframt verður í fram- tíðinni hnappur í öllum bílum fyrir hraðval til Neyðarlínunnar, sem hægt verður að nota virkist skynj- arar ekki sjálfkrafa. Árekstrarvarinn nemur öll meiriháttar högg sem bíll- inn fær og sendir þá skilaboð, en ekki verði bíll fyrir minniháttar núningi, utaníkeyrslu eða slíkt. Þróun langt komin í Volvo, Toyota og Skoda „Tölvukerfi hvers nýs bíls í dag eru gjarnan með 40 til 50 víddum eða atriðum sem virkjast með ýmsu móti. Fjarskiptarás er svo í hverjum bíl sem gefur þetta beina samband við Neyðarlínuna. Þá kemur sér vel að í okkar dreifbýla landi er farsíma- kerfið orðið mjög þétt. Um 99% landsins eru í þekju farsímafyr- irtækjanna og aðeins stöku skugga- blettir eftir,“ segir Tómas sem hefur stýrt innleiðingu eCall á Íslandi. Hann hefur verið þar í góðu sam- starfi við til dæmis bílaumboðin, en þróun eCall-tækninnar er komin sér- staklega langt í Volvo, Toyota og Skoda. Kröfurnar nú taka einungis til þess að eCall sé í nýjum tegundum bíla á Íslandi. Bílaflotinn endurnýjast á 10-15 árum og því tugir þúsunda notaðra ökutækja í umferð, sem ekki eru með þennan búnað. Þá hafa verið gerðar breytingar í símstöð Neyðar- línunnar til að undirbúa virkjun eCall. Nýr búnaður hefur verið sett- ur upp og nýjar tengingar settar í samband. Þá hafa verið gerðar próf- anir og símtöl afgreidd alla leið á skjá neyðarvarða – sem sáu nákvæmlega hvar viðkomandi bíll var. Í þessu ferli komu í ljós nokkrir minniháttar hnökrar sem nú hafa verið lagfærðir. Reynslan er hvetjandi „Oft fara svona verkefni rólega af stað, en svo er eins og stífla bresti og þá gerast hlutirnir mjög fljótt. eCall hefur sannað gildi sitt víða í Evr- ópulöndum og flýtt fyrir því að bjarg- ir berist. Sú reynsla er hvetjandi. Hvað varðar svo regluverkið þá segja fjarskiptalög að allir eigi að geta haft hindranalaust samband við neyðar- svörun – og almennur skilningur er á því að eCall falli þar undir. Ef til vill þarf þó að styrkja rammann með breytingum á reglugerðum um gerð og búnað ökutækja,“ segir Tómas. eCall verður komið í flesta bíla eftir áratug  Bíll sendir boð til Neyðarlínunnar í alvarlegum atvikum Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferð Þegar nýjar gerðir eða tegundir bíla koma á markað þarf hinn nýi neyðarbúnaður að vera til staðar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tækni Styttir viðbragðstíma, segir Tómas Gíslason hjá Neyðarlínunni. Ríkissjóður greiddi á síðasta ári þolendum ofbeldisbrota út samtals 178.392.309 krónur í bætur vegna mála sem komu til afgreiðslu bótanefndar rík- isins. Um er að ræða töluverða hækkun á milli ára samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Þor- mari Halldórs- syni, ritara bótanefndar vegna þolenda afbrota. Má þess vænta að á þessu ári muni líka verða hækkun á bótagreiðslum miðað við árið á undan þó það liggi ekki endanlega fyrir. Sækja þarf um innan tveggja ára frá því brot var framið Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í seinustu viku hefur umsóknum um bætur til þolenda ofbeldisbrota sem berast bótanefndinni fjölgað mikið á seinustu árum. Bárust tæplega 500 umsóknir í fyrra, sem er um 60% fjölgun umsókna frá árunum 2015 og 2016. Oft getur liðið töluverður tími frá því að brot á sér stað og þar til bætur eru ákveðnar og greidd- ar út, yfirleitt ekki fyrr en að lok- inni rannsókn og dómsmeðferð. Sækja þarf um bætur innan tveggja ára frá því brot var framið en skv. upplýsingum Halldórs Þor- mars eru umsóknir oft sendar inn áður en niðurstaða í máli liggur fyrir, hvort sem bæturnar eru ákveðnar af dómstóli eða bóta- nefndinni og geta mál oft verið í ferli í eitt til þrjú ef t.d. lög- reglurannsókn stendur lengi yfir eða mál fer fyrir fleiri en eitt dóm- stig. Bæturnar eru greiddar fyrir lík- amstjón og miska þolenda ofbeld- isbrota og geta hæstar verið átta milljónir í hverju tilviki skv. lög- um. Á árinu 2018 voru þolendum greiddar 116 milljónir í bætur í alls 426 málum. omfr@mbl.is 178 milljónir í bætur til þolenda afbrota í fyrra  Búast má við hærri bótagreiðslum á þessu ári Halldór Þormar Halldórsson Þór Steinarsson thor@mbl.is „Stjórn Sambands íslenskra sveitarfé- laga hefur fjallað um málið og það er ljóst að ríkislögmaður þarf nú að fara yfir þessa kröfu og þar verður metið með hvaða hætti henni verður mætt. En það er auðvitað skilyrðislaus krafa sveitarfélaganna að mögulegar bóta- greiðslur verði ekki dregnar af fram- lögum til annarra sveitarfélaga.“ Þetta segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis og stjórnar- formaður SÍS, spurð um sex milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Í kröfugerð borgarinnar er vísað til dóms Hæstaréttar frá 14. maí 2019 í máli nr. 34/2018 þar sem Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að óheimilt hefði verið að fella niður jöfnunar- framlag til sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Telur Reykjavíkurborg, með þetta dómafordæmi að leiðarljósi, að borgin hafi verið útilokuð með ólögmætum hætti frá því að eiga möguleika á að hljóta tiltekin framlög úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga og krefur íslenska ríkið um kr. 5.860.817.432. Stjórn SÍS tók málið fyrir á fundi sínum í lok janúar og samþykkti bók- un um málið þar sem hún lagði „þunga áherslu á að óvissu verði eytt sem fyrst um ábyrgð ríkisins á bóta- greiðslum vegna dómsmála sem varða framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga“. Aldís segir þó ljóst að bíða þurfi nið- urstöðu ríkislögmanns en ef það fari svo að kröfugerð Reykjavíkurborgar verði samþykkt þá muni sveitarfélög- in ekki sætta sig við að bótagreiðsl- urnar skerði jöfnunargreiðslur til ann- arra sveitarfélaga heldur muni ríkið þurfa að leggja til aukið fjármagn. Málið er í umsagnarferli hjá ríkis- lögmanni og samkvæmt upplýsingum þaðan er óvíst um næstu skref og tímasetningar. Bjarni Jónsson, varaþingmaður VG og stjórnarmaður SÍS, sagði í samtali við Morgunblaðið um helgina að ef Jöfnunarsjóður þyrfti að greiða borg- inni sex milljarða þá myndi það setja samstarf sveitarfélaga á Íslandi í upp- nám. Þá myndu forsendur fyrir hlut- verki sjóðsins bresta sem og traust milli sveitarfélaga. Spurð um ummæli Bjarna segir Al- dís að sér finnist of djúpt í árinni tekið og að hún hafi tröllatrú á því að sveit- arstjórnarmenn skilji mikilvægi sam- vinnu og samstöðu. Hún telur hins vegar að ef krafa Reykjavíkurborgar nái fram að ganga þurfi að endurskoða „allan lagagrunn á bak við jöfnunar- sjóð“. Skynsemi og sanngirni að leiðarljósi „Við sveitarstjórnarmenn þurfum að líta í eigin barm og íhuga með hvaða hætti við viljum reka sveitar- félög á Íslandi. Viljum við að íbúar í þessu landi sitji að sama borði tekju- lega séð eins og nokkur er kostur eða ætlum við að skekkja þessa mynd enn frekar og taka peninga af sveitarfélög- um með veikan tekjugrunn. Ég vona svo sannarlega að fólk hafi skynsemi og sanngirni að leiðarljósi þegar fjallað er um þessi mál,“ segir Aldís að lokum. Heiða Björg Hilmisdóttir, stjórnar- maður SÍS og borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar, tekur ekki undir þau um- mæli Bjarna að ef krafa Reykjavíkur- borgar yrði samþykkt þá myndi það setja samstarf sveitarfélaga landsins í uppnám heldur hafi hæstaréttardóm- urinn frá 14. maí 2018 gert það. Því sé eðlilegt framhald málsins að Reykja- víkurborg sæki rétt sinn. Hún telur þess þörf að farið verði yfir það hvern- ig sé best að jafna stöðu sveitarfélaga til að veita góða lögbundna þjónustu. Hún tekur undir þá skoðun Aldísar að ríkið þurfi að leggja til aukið fjár- magn fari svo að krafa Reykjavíkur- borgar á hendur Jöfnunarsjóði verði samþykkt. Það þurfi að koma í veg fyrir að greiðslur til annarra sveitarfé- laga skerðist vegna dómsmála um framlög úr sjóðnum. „Mér finnst það eðlilegt og mér finnst það líka eðlilegt í því máli sem kom upp árið 2018. Það er verið að tala um að gera það upp núna úr sjóðnum en mér finnst það ósanngjarnt af því að með sjóðnum er verið að jafna stöðu sveitarfélaga til að veita þjónustu, til að mynda grunn- skólarekstur, og sá kostnaður minnk- ar ekkert þó að jöfnunarsjóður tapi dómsmáli.“ Ríkið leggi til aukið fjármagn  Sveitarfélög sætta sig ekki við skerðingu Heiða Björg Hilmisdóttir Aldís Hafsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.