Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 10

Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. „Vitaleiðin verður ný gátt inn á Suðurland og er skipulögð í því skyni að fjölga áhugaverðum áfangastöðum á svæðinu,“ segir Dagný H. Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands. Þar á bæ vinna nú sveitarfélög í samvinnu við ferðaþjónustuna á svæðinu og fleiri að því að móta nýja ferða- mannaleið frá Selvogi og aust- ur fyrir Stokks- eyri. Þarna á milli eru 45 kílómetr- ar en nafngiftin sem fyrr er tilgreind kemur til vegna Selvogs- og Knarrarósvita, sem eru sinn á hvorum enda leggsins. Þriðji vitinn er svo fyrir því sem næst miðri leið, á Hafnarnesi við Þorlákshöfn. Fjölga stöðum og dreifa álagi Að því er stefnt að Vitaleiðin verði opnuð snemma á sumri kom- anda, en undirbúningur þessa hef- ur staðið yfir um nokkurt skeið. Vinnan nýtur atfylgis Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Ferðamálastofu sem heldur úti og styrkir verkefnið Ferðamannaleið- ir, sem miðar að því að fjölga ferðamannastöðum og dreifa álagi um landið. „Vitaleiðin býður upp á þá skemmtilegu fjölbreytni að ferða- langar geta ekið hana eða nýtt sér strandlengjuna og þá göngustíga, sem búið er að gera meðfram sjón- um til að ganga leiðina eða jafnvel hjóla. Náttúrufar á þessum slóðum er fjölbreytt og margvísleg af- þreying í boði. Vitaleiðin getur því styrkt þá starfsemi sem þar er fyr- ir, hægt á ferðamönnum og verið góður valkostur fyrir þá sem vilja dvelja og upplifa landshlutann ut- an við fjölfarnari staði,“ segir Dagný. - Hún minnir jafnframt á að á Suðurlandi séu fyrir meðal annars tvær vinasælar ferða- mannaleiðir; Gullni hringurinn og Suðurströndin. Hin fyrri er um uppsveitir Árnessýslu – að Þing- völlum, Gullfossi og Geysi – en hin að Seljalandsfossi, í Reynisfjöru, Vík og Jökulsárlóni. Aldamótaþorp og útivistarparadís Meðal áhugaverðra staða á Vita- leiðinni eru til dæmis sjávarþorpin litlu, Eyrarbakki og Stokkseyri. Hús þar eru mörg reist á fyrstu áratugum 20. aldarinnar, bera svipmót þess tíma og eru að því leyti einskonar aldamótaþorp. Auk þeirra er Þorlákshöfn þar sem mikil uppbygging í afþreyingu hef- ur átt sér stað og er algjör útivis- taparadís. Þá eru nokkur söfn á þessari leið, góðar sundlaugar, veitingahús og fleira áhugavert að njóta og upplifa. „Vitaleiðin sem fær góðan hljómgrunn gæti til dæmis hentað fólki sem ferðast á eigin vegum eða er í litlum hópum. Fólk í ferða- þjónustu sér ýmsa möguleika í stöðunni og nefnir áhugaverða sögu svæðisins, náttúru, kyrrð, víðsýni, fjölbreytta afþreyingar- möguleika, veitingastaði og gisti- möguleika. Mínusarnir eru helst taldir vera að útskot vanti á vegi á svæðinu og að Óseyrarbrúin sé of þröng; en væntanlega verður bætt út úr því í fyllingu tímans – því Vitaleiðin er aðeins hluti af enn lengri leið sem hægt er að undir- búa til frekari kynningar og mark- aðssetningar í framtíðinni,“ segir Dagný. sbs@mbl.is Vitaleið við ströndina  Utan úr Selvogi og austur á Stokkseyri  Þrír vitar og vinsælir staðir  Náttúra, kyrrð, víðsýni og afþreying Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selvogviti Einn fjölmargra vita við suðurströndina og öðlast nú hlutverk sem kennimark á áhugaverðri og fallegri leið sem verður kynnt ferðafólki. Dagný Jóhannsdóttir Vitaleiðin Þorákshöfn Eyrarbakki Hveragerði Selfoss Stokkseyri Selvogsviti Hafnarnesviti Knarrarósviti Ko rt ag ru nn ur : O pe nS tr ee tM ap Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Korn var ræktað á tæplega 3 þúsund hekturum lands á síðasta ári, um 20% stærra landsvæði en á árinu á undan. Meginhluti aukningarinnar varð á Suðurlandi og eru 58% korn- akra landsins þar. Nú voru í fyrsta skipti greiddar bætur út á tjón vegna ágangs álfta og gæsa á ræktuðu landi og námu greiðslurnar nálægt 5 milljónum í heildina. Styrkir sem greiddir eru út á jarð- rækt samkvæmt búvörusamningum bænda sýna að mest er ræktað af grænfóðri og grasi (endurræktun). Endurræktun túna hefur aukist um 20% á milli ára. Kornrækt jókst um tæpa 500 hektara frá árinu á undan, eða um fimmtung. Það sýnir að bændur eru að fá aftur trú á kornrækt eftir sam- drátt í nokkur ár. Megnið af aukn- ingunni kemur af Suðurlandi, eða um 400 hektarar. Einnig varð nokk- ur aukning í Skagafirði og á Vest- urlandi. Það fer saman að þar sem aukning er í ræktun varð besta korn- uppskeran sl. haust, sums staðar metuppskera. Óvissara var með upp- skeru á austurhluta Norðurlands og á Austurlandi vegna næturfrosta. Akrarnir stækka gjarnan í kjölfar góðrar uppskeru og því má allt eins búast við frekari aukningu þegar sáð verður í kornakra á komandi vori. Auk jarðræktarstyrkja fá bændur hluta stuðnings síns samkvæmt bú- vörusamningum greiddan út á stærð túna, í formi svokallaðra land- greiðslna, í stað styrkja út á fram- leiddar afurðir. Bæta tjón vegna fugla Í núgildandi búvörusamningum er veitt heimild til að nota hluta af jarð- ræktarstyrkjum ríkisins til að greiða stuðning vegna ágangs álfta og gæsa á ræktarlöndum bænda. Fuglarnir hafa oft valdið miklum skemmdum á kornökrum. Nú reyndi á þetta ákvæði fyrir alvöru. Erfitt er að fá nákvæma sundurliðun en atvinnuvegaráðuneytið áætlar að greiðslurnar fyrir síðasta ár hafi numið tæpum 5 milljónum kr. Kornrækt eykst á Suðurlandi  Kornakrar landsins stækkuðu um 500 hektara í fyrra  5 milljónir greidd- ar í bætur vegna ágangs álfta og gæsa Jarðrækt og styrkir Jarðrækt 2018-2019, hektarar* Styrkir 2018-2019, m.kr. Kornrækt eftir héruðum, hektarar Heimild: Atvinnuvegaráðuneytið 2018 2019 Breyting Garðrækt 563 516 -47 -8% Gras (endurræktun) 3.143 3.768 625 20% Grænfóður 3.961 4.067 106 3% Korn 2.472 2.967 495 20% Olíujurtir 97 93 -4 -4% Samtals 10.236 11.412 1.176 11% 2018 2019 Jarðræktarstyrkir 380 396 Þar af vegna álfta/gæsa 5 Landgreiðslur 254 266 Samtals, m.kr. 634 662 Suðurland, 1.712 ha Eyjafjörður, 373 ha Vesturland, 284 ha Skagafjörður, 276 ha Húnaþing-Strandir, 164 ha Austurland, 88 ha S-Þingeyjarsýsla, 69 ha N-Þingeyjarsýsla, 1 ha Samtals 2.967 hektarar *Miðað við greiðslu jarðræktarstyrkja Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eyjafjöll Bleikir akrarnir við Þor- valdseyri slegnir síðasta haust. Ferskt og ófrosið nautakjöt frá Dan- mörku hefur verið tekið til sölu í verslunum Nettó. „Þetta er bara til- raunasending og var flutt inn fyrir einn ákveðinn aðila,“ sagði Jón Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri Ekr- unnar, sem flutti kjötið inn. „Það er búið að breyta allri löggjöfinni, sýna- töku og öðru slíku, í kringum þetta. Við vildum taka eina sendingu til þess að sjá hvernig þetta virkaði.“ Flutt voru inn 200 kíló af þremur vöruflokkum, nautalundum, ribeye- og porterhouse-steikum, samtals 600 kíló. Bæði Matvælastofnun (MAST) og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tóku sýni af vörunni sem verða rannsökuð. Stefán Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Samkaupum, segir í samtali við Morgunblaðið að innflutningnum sé ætlað að mæta mikilli eftirspurn. „Framboðið hefur á tímum verið ófyrirsjáanlegt þannig að það hefur verið erfitt að fá tilboð á innlendu nautakjöti, sérstaklega á sumrin. Við finnum þarna frábært kjöt frá frábærum framleiðanda,“ segir Stef- án. „Við erum nú reyndar bara að feta okkar fyrstu spor í þessu. Þetta eru ekki nema 600 kíló sem er mjög lítið magn og við ætlum að sjá hvern- ig þetta leggst í neytendur. Verðið er mjög gott,“ bætir hann við. Hann tekur fram að ekki standi til að flytja inn ferskt lambakjöt eða fersk egg enda hafi framboðsvand- inn einungis snúið að fersku nauta- kjöti. Danmörk er með viðbótartrygg- ingar vegna salmonellu líkt og Ís- land sem gerir flutning ferskra og ófrosinna matvæla á milli landanna einfaldari en ella. gudni@mbl.is, thor@mbl.is Ferskt og ófrosið nautakjöt komið í sölu  Samtals 600 kíló frá Danmörku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.