Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
17. febrúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.71 127.31 127.01
Sterlingspund 165.03 165.83 165.43
Kanadadalur 95.64 96.2 95.92
Dönsk króna 18.375 18.483 18.429
Norsk króna 13.676 13.756 13.716
Sænsk króna 13.067 13.143 13.105
Svissn. franki 129.09 129.81 129.45
Japanskt jen 1.153 1.1598 1.1564
SDR 173.2 174.24 173.72
Evra 137.32 138.08 137.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.9082
Hrávöruverð
Gull 1575.0 ($/únsa)
Ál 1701.0 ($/tonn) LME
Hráolía 56.41 ($/fatið) Brent
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að
stöðva flutninga notaðra peninga-
seðla á milli héraða og á milli þeirra
borga þar sem yfirstandandi kór-
ónuveirufaraldur hefur verið hvað
skæðastur. Seðlabanki Kína mun
hreinsa sértaklega seðla frá svæðum
þar sem smit hefur greinst, ýmist
með því að hita þá eða lýsa með út-
fjólubláu ljósi og síðan setja seðlana í
geymslu í tvær vikur áður en þeir
fara aftur í umferð.
Seðlar frá svæðum þar sem minni
hætta þykir á smiti munu fara í
geymslu í eina viku og hafa bankar
verið beðnir að halda seðlum frá
spítölum og matarmörkuðum að-
skildum frá öðrum seðlum í umferð.
Bloomberg greinir frá þessu og
hefur eftir fulltrúa seðlabankans að
600 milljarða júana virði af nýjum
seðlum verði beint til Hubei-héraðs
þar sem faraldurinn átti upptök sín.
Ekki er reiknað með að hreins-
unarverkefnið valdi almenningi
vanda vegna vöntunar á seðlum í
umferð en kínverskum neytendum
er mjög tamt að greiða fyrir vörur
og þjónustu með snjallsímaforritum
og eru það einkum eldri íbúar lands-
ins sem reiða sig á seðla. ai@mbl.is
Reuters
Vörn Seðlarnir verða lýstir eða hit-
aðir og svo settir í geymslu.
Kínverskir
seðlar fara
í hreinsun
tollastríðinu við Kína og búið að und-
irrita áfangasamning þess efnis. Er
skemmst að minnast þess að á fundi
Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í
janúar sagði Trump koma til greina
að hækka tolla á evrópskar bifreiðar
ef Þýskaland, Frakkland og Bret-
land verða ekki samstiga Bandaríkj-
unum í aðgerðum gegn Íran. Þá hafa
Bandaríkin hótað Frakklandi tollum
á franskan varning vegna fyrirhug-
aðra skatta á netrisa á borð við
Google og Facebook.
Hærri tollar bitna þó ekki aðeins á
evrópska flugvélaframleiðandanum
og hefur Airbus bent á að bandarísk
flugfélög glími í dag við skort á flug-
vélum. Í tilkynningu sem Airbus
sendi frá sér segir að þegar upp er
staðið verði það bandarísku flug-
félögin, og farþegar þeirra, sem
þurfi að borga nýja tollinn í formi
hærra kaupverðs og hærri fargjalda.
Þrengja að Comac í Kína
Samhliða deilunni við Evrópu
skoða ráðamenn í Bandaríkjunum
hvort stöðva megi sölu þotuhreyfla
frá GE til Kína þar sem þeir eru not-
aðir í nýju Comac C919 þotuna. Að
sögn WSJ óttast bandarísk stjórn-
völd að Kínverjar noti þá þotu-
hreyfla sem þeir kaupa til að vendi-
smíða (e. reverse engineer) og þróa
sína eigin. Gagnrýnendur telja lík-
legra að sölubanninu sé ætlað að
koma í veg fyrir að C919 þotan nái
útbreiðslu. Þotuhreyfill GE er sá eini
sem þróaður hefur verið fyrir C919
og myndi sölubann því í reynd stöðva
framleiðslu kínversku þotunnar.
Fram til þessa hafa aðeins sex C919
þotur verið smíðaðar en framleið-
andanum hafa borist 305 pantanir,
aðallega frá kínverskum flugfélögum
og flugvélaleigum.
Bandaríkin hækka tolla
á evrópskar flugvélar
AFP
Átök Frá jómfrúarflugi Boeing 777X fyrr á árinu. Deilur um ríkisstuðning við Airbus og Boeing hafa varað í hálfan
annan áratug og harðna til muna með nýju tollunum. Bandarísk flugfélög og ferðalangar sitja uppi með kostnaðinn.
Stálin stinn
» Eftir deilur sem varað hafa
í hálfan annan áratug lögðu
Bandaríkin 10% toll á Airbus-
vélar í október
» Nú hækkar tollurinn á
flugvélar Airbus úr 10% í
15%
» Evrópa gæti verið næst á
dagskrá nú þegar Trump hef-
ur sigrað Kína í tollastríði og
haft Kanada og Mexíkó undir
í fríverslunardeilum.
» Á sama tíma vill Banda-
ríkjastjórn stöðva sölu þotu-
hreyfla GE til kínverska flug-
vélaframleiðandans Comac.
Trump kann að vilja beina sjónum sínum að Evrópu nú þegar tollastríðið við
Kína er í rénun Ríkisstjórn Trumps hyggst stöðva sölu á þotuhreyflum til Kína
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu á
föstudag að tollar á Airbus-flugvél-
ar myndu hækka úr 10% í 15% frá
og með 18. mars næstkomandi.
Hækkunin tengist langvinnum
deilum Bandaríkjanna og Evrópu-
sambandsins um ríkisstuðning við
stóru flugvéla-
framleiðendurna
Boeing og Air-
bus.
Deilurnar hóf-
ust árið 2004
þegar Bandarík-
in gerðu fyrst at-
hugasemd við að
Airbus nyti rík-
isstuðnings í
formi lána frá
hinu opinbera og svaraði ESB með
því að kvarta yfir ríkisstuðningi
bandrískra stjórnvalda við Boeing.
Alþjóðaviðskiptastofnunin hóf tvær
aðskildar rannsóknir á flugvéla-
framleiðendunum árið 2005 og úr-
skurðaði árið 2010 að sú lánafyrir-
greiðsla sem ríki í Evrópu veittu
Airbus stangaðist á við reglur um
niðurgreiðslur á útflutningsvöru.
Ári síðar komst stofnunin að svip-
aðri niðurstöðu um stuðning banda-
rískra stjórnvalda við Boeing.
Tollar með blessun Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar
Þrátt fyrir þessa úrskurði tókst
ekki að leysa úr ágreiningi ESB og
Bandaríkjanna og hefur málið
velkst um í kæru- og úrskurðakerfi
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
síðan þá. Á síðasta ári ákvað stofn-
unin að Bandaríkjunum væri heim-
ilt að bregðast við ríkisstuðningi
ESB með því að hækka tolla á evr-
ópskan varning og varð úr að leggja
10% toll á Airbus-þotur auk 25%
tolls á ýmsar matar- og drykkjar-
vörur.
Að sögn Reuters kann útspil
Bandaríkjastjórnar í síðustu viku að
vera til marks um að Donald Trump
sé með Evrópu í sigtinu nú þegar
tekist hefur að höggva á hnútinn í
Donald Trump
Nýjar rannsóknir benda til að vinsældir skutlfyrirtækja á
borð við Uber og Lyft hafi valdið auknum umferðarþunga í
bandarískum stórborgum og hægt á umferðinni þar. Staf-
ar þetta m.a. af því að bætt aðgengi að skutli fær almenn-
ing til að vera meira á ferðinni, og borga fyrir skutl frekar
en að nota almenningssamgöngur eða fara fótgangandi á
milli staða. Þá er enginn farþegi í skutl-bílum 40% þess
tíma sem þeir eru í akstri og mikill meirihluti viðskiptavina
kýs að ferðast einn í bíl frekar en að deila fari með
ókunnugum.
Wall Street Journal birti á laugardag umfjöllun um
þennan vanda og vísar m.a. í nýlega rannsókn sem leiddi í
ljós að hægt hefði á bílaumferð í San Francisco frá 2010 til
2016 og að rekja megi 60% þeirrar þróunar til skutlbíla.
Virðast áhrifin mest í þéttbýlum stórborgum og leiddi
t.d. rannsókn í Toronto í ljós að skutlþjónustur hefðu ekki
haft nein áhrif á umferðarhraða þar. Er þéttni byggðar í
Toronto um það bil fjórðungur af þéttni San Francisco.
Uber og Lyft hafa brugðist við með því t.d. að beina við-
skiptavinum að öðrum samgöngumátum en skutli og veita
m.a. upplýsingar um almenningssamgöngur í snjallforrit-
um sínum auk þess að bjóða sums staðar upp á rafhlaupa-
hjól og reiðhjól til leigu. Þá segja fyrirtækin að þær rann-
sóknir sem tengja aukinn umferðarþunga við skutl gleymi
að taka með í reikninginn áhrif vaxandi umferðar vegna
heimsendingar vöru sem fólk pantar á netinu. ai@mbl.is
AFP
Eftirspurn Skutlfyrirtækin Uber og Lyft segja rann-
sóknirnar draga upp ranga mynd af þróuninni.
Skutlþjónustur þyngja umferð
Notendur fara fleiri ferðir
en ella og vilja helst ekki deila
skutl-bíl með ókunnugum
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla