Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Dauði NATO stórlega ýktur
Rætt um framtíð Atlantshafsbandalagsins á öryggisráðstefnunni í München
„Vestrið er að sigra,“ segir Mike Pompeo Áhersla lögð á einingu yfir hafið
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
„Það gleður mig að greina frá því
að dauði bandalagsins yfir Atlants-
hafið er stórlega ýktur,“ sagði utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, Mike
Pompeo, á hinni árlegu öryggisráð-
stefnu sem haldin var í München
yfir helgina.
Beindi hann athyglinni frá þeim
málum sem Bandaríkin og banda-
lagsþjóðir þeirra í Evrópu hefur
greint á um síðustu ár, svo sem
málefni Kína, Írans og alþjóðavið-
skipta.
Lagði hann þess í stað áherslu á
að skipan alþjóðamála samkvæmt
vestrænum gildum væri áfram best
til þess fallin að verja réttindi ein-
staklingsins og efnahagslega vel-
megun.
„Vestrið er að sigra og við erum
að sigra saman,“ bætti ráðherrann
við og svaraði þannig gagnrýni for-
seta Þýskalands, Frank-Walters
Steinmeier, sem á föstudag fullyrti
að Bandaríkin höfnuðu „jafnvel
hugmyndinni um alþjóðasamfélag“
og aðhefðust „á kostnað nágranna
sinna og bandamanna“.
Stefnubreyting stjórnvalda?
Í umfjöllun þýska ríkismiðilsins
Deutsche Welle segir að af ummæl-
um ráðherrans megi ráða vissa
stefnubreytingu. Pompeo reyni nú
að teygja sig yfir Atlantshafið til að
vekja að nýju bandalagsvilja Evr-
ópuþjóða, eftir að bandarísk stjórn-
völd hafi gert margt til að slökkva
þann vilja.
Framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, Jens Stoltenberg,
ítrekaði mikilvægi góðra tengsla
Bandaríkjanna og Evrópuríkja þeg-
ar hann ávarpaði ráðstefnuna á
laugardag.
„Allar tilraunir til að færa Evr-
ópu fjær Norður-Ameríku veikja
ekki aðeins böndin yfir Atlantshafið
heldur eiga þær einnig á hættu að
tvístra Evrópu,“ sagði Stoltenberg.
„Ég trúi ekki á Evrópu eina og sér.
Ég trúi á Evrópu og Ameríku sam-
an.“
Endurbóta þörf í NATO
Heiko Maas, utanríkisráðherra
Þýskalands, reyndi að gera lítið úr
mögulegri gjá á milli Evrópu og
Bandaríkjanna og lofaði gildi Atl-
antshafsbandalagsins, en sagði þó
ljóst að endurbóta væri þörf.
„Ég tel að það væru mistök að
beina Evrópu gegn Bandaríkjun-
um,“ sagði Maas í samtali við
Deutsche Welle.
„Við erum í öryggisbandalagi
sem virkar; NATO. En það þarfn-
ast endurbóta og við erum að ræða
þær núna. Við viljum byggja upp
evrópsku hlið bandalagsins og svo
það sé hægt þurfum við að ná sam-
stöðu í álfunni,“ sagði ráðherrann.
Kallaði hann að auki eftir því að
komið yrði á fót evrópsku öryggis-
og varnarbandalagi sem móta
myndi sterka, evrópska stoð undir
Atlantshafsbandalagið.
Nýjum tilfellum kórónuveirunnar
fækkaði í gær, þriðja daginn í röð. Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin varar
þó við því að ómögulegt sé að spá um
hvernig faraldurinn muni þróast.
Fyrsta dauðsfallið utan Asíu af
völdum veirunnar varð í Frakklandi
um helgina, en staðfest var í gær að
alls 1.665 manns eru látnir á megin-
landi Kína eftir að 142 til viðbótar lét-
ust. Fleiri en 68 þúsund hafa nú sýkst
af veirunni.
Biðja um frekari samvinnu
Sú staðreynd að nýjum tilfellum fer
fækkandi er til marks um það að
stjórnvöld í Kína hafa náð tökum á út-
breiðslu faraldursins, segir Mi Feng,
talsmaður kínverska heilbrigðisráðu-
neytisins. „Þegar má sjá áhrif for-
varna í mörgum landshlutum,“ sagði
hann á blaðamannafundi í gær.
Framkvæmdastjóri Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, Tedros
Adhanom Ghebreyesus, varar hins
vegar við því að ógerningur sé að spá
um hvaða stefnu faraldurinn muni
taka.
„Við biðjum allar ríkisstjórnir,
fyrirtæki og fréttamiðla að vinna með
okkur til að vara fólk við með réttum
hætti án þess að kynda undir múgæs-
ingi,“ sagði framkvæmdastjórinn á
öryggisráðstefnunni í München.
Alþjóðlegur hópur sérfræðinga á
vegum stofnunarinnar kom til Peking
um helgina til að starfa í sameiningu
með kínverskum kollegum sínum.
Ógerningur að spá um
hvert faraldurinn stefnir
Nýjum tilfellum kórónuveirunnar hefur fækkað síðustu daga
AFP
Kórónuveira Faraldurinn er óút-
reiknanlegur, segja yfirvöld.
Franska lögreglan yfirheyrði í gær
rússneskan aðgerðasinna og kærustu
hans vegna kynlífsmyndbands sem
lekið var á netið í síðustu viku og varð
til þess að stjórn-
málamaðurinn
Benjamin Gri-
veaux, samflokks-
maður Emm-
anuels Macrons
Frakklands-
forseta, dró fram-
boð sitt til borg-
arstjóraembættis
Parísar til baka.
Aðgerðasinn-
inn, Pjotr Pav-
lenskí, hafði áður opinberlega sagst
hafa lekið myndbandinu á verald-
arvefinn, en kosið verður í næsta
mánuði.
Pavlenskí hlaut hæli í Frakklandi
árið 2017 eftir nokkur róttæk mót-
mæli í Rússlandi og var handtekinn á
laugardag í tengslum við slagsmál
sem brutust út í nýársfögnuði. Í gær
beindi lögreglan hins vegar athygli
sinni að myndskeiðinu, sem sýnir
karlmann stunda sjálfsfróun ásamt
klúrum skilaboðum sem virðast send
til konu.
Griveaux, sem er giftur þriggja
barna faðir, hætti við framboðið í
kjölfar þess að myndskeiðið var birt á
vefnum. Þykja það nýmæli í Frakk-
landi, þar sem stjórnmálamenn hafa
til þessa reynt að gera lítið úr kynlífs-
hneykslum og sagt þau einkamál.
Yfirheyrð-
ur vegna
myndskeiðs
Pjotr
Pavlenskí
Kynlífshneyksli
í Frakklandi
Stjörnufræðingar hafa náð mynd-
um af stjörnunni Betelgás, einni
þeirri skærustu í vetrarbrautinni,
sem sýna að ljós hennar hefur dvín-
að undanafarna mánuði. Frá þessu
greindi stjörnustöð Evrópuríkja á
suðurhveli á föstudag.
Þessi dularfulla myrkvun hefur
vakið margar spurningar og velta
fræðingar því fyrir sér hvort hún
sé forleikur þess að stjarnan
springi.
Myndir af yfirborði stjörnunnar
þykja sýna að ekki aðeins sé hún að
dofna heldur virðist sem lögun
hennar sé einnig að breytast, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
stjörnustöðinni.
Betelgás gefur nú frá sér aðeins
um 36% af þeirri birtu sem alla
jafna berst frá henni, sem þýðir að
menn geta merkt breytinguna með
berum augum.
Dofnar yfir
Betelgás
Sýrlenskar sveitir uppreisnarmanna skjóta í átt
að sveitum ríkisstjórnarinnar í Idlib-héraði í
Norðvestur-Sýrlandi. Sveitir ríkisstjórnarinnar
náðu á sitt vald tólf þorpum og smábæjum í gær,
þar sem þær héldu áfram sókn sinni gegn síðasta
stóra vígi uppreisnarmanna.
Sóknin hófst í desembermánuði og hafa sveit-
irnar notið aðstoðar Rússa sem herjað hafa á
uppreisnarmenn með árásum úr lofti.
Skotið á sveitir ríkisstjórnarinnar
AFP
Sóknin gegn uppreisnarmönnum heldur áfram í Sýrlandi