Morgunblaðið - 17.02.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
HSRETTING.IS
547 0330
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
Hægt er að bóka tjónaskoðun hjá okkur á netinu
60 ára Magnús er
Akureyringur en býr í
Grafarvogi í Reykjavík.
Hann er trésmíða-
meistari að mennt frá
Iðnskólanum á Akur-
eyri og er umsjónar-
maður fasteigna Sjóvár
auk þess að vera tjónamatsmaður.
Maki: Jóhanna Sveinsdóttir, f. 1960,
tækniteiknari hjá Össuri.
Börn: Ingólfur, f. 1980, og Helga Maggý,
f. 1991. Börn Jóhönnu eru Sveinn Anton
Sveinsson, f. 1980, og Hlín Ólafsdóttir, f.
1986. Barnabörnin eru samtals sjö.
Foreldrar: Ingólfur Magnússon, f. 1928,
fv. vörubílstjóri, og Jenný Karlsdóttir, f.
1939, grunnskólakennari. Þau eru búsett
á Akureyri.
Magnús
Ingólfsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vilt helst ekki samþykkja eitt-
hvað bara af því að það er erfitt að breyt-
ast. Haltu fast á málum og láttu engan bil-
bug á þér finna.
20. apríl - 20. maí
Naut Það gengur ekki að þú hafir allt á
hornum þér, bæði við ástvini og vinnu-
félaga. Taktu að þér ábyrgðarstöðu og
heppnin verður með þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú bókstaflega ljómar þessa dag-
ana og vekur eftirtekt hvar sem þú kemur.
Sérstaða þín lífgar upp á andrúmsloftið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér hefur vegnað vel og mátt því
svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum
með þínum nánustu vinum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert hreinskiptinn að eðlisfari og
getur sagt hlutina afdráttarlaust. Dagurinn í
dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir
varðandi fjármál eða viðskipti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fyrirhyggja í fjármálum er nauðsyn-
leg þessa dagana. Taktu þér tíma til þess að
gera fortíðina upp og haltu svo lífinu
ótrauður áfram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu það ekki koma þér á óvart þótt
nágranni eða ættingi geri eitthvað ófyr-
irsjáanlegt í dag. Brynjaðu þig gegn utan-
aðkomandi áhrifum og taktu málin í þínar
hendur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur komið sér vel að
eiga trúnaðarvin sem getur deilt með þér
bæði gleði og sorg. Þér er óhætt að fara
eftir eðlisávísun þinni þegar þú afgreiðir
viðkvæmt einkamál í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Forðastu deilur við maka og ná-
komna í dag. Ef þú veist að þú getur ekki
unnið, getur þú allt eins gefið eftir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki hugfallast þótt sumar
hugmyndir þínar hljóti ekki strax framgang.
Leitaðu ekki langt yfir skammt heldur slak-
aðu á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að setjast niður og gera
þér grein fyrir þeim takmörkum sem þú
stefnir að. Varastu allt það sem gæti sett
stöðu þína í tvísýnu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur þörf fyrir að kafa til botns í
hlutunum. Einhver öfund gæti komið upp í
mannlegum samskiptum svo
Albertína flutti til Akureyrar árið
2014 og var verkefnastjóri atvinnu-
mála hjá Akureyrarbæ 2014–2016 og
framkvæmdastjóri EIMS 2016–2017,
sem er samstarfsverkefni sem snýr
að bættri nýtingu orkuauðlinda og
aukinni nýsköpun í orkumálum á
Norðurlandi eystra. „Það var ekki
staklega skapandi starf. Það var
sérstaklega skemmtilegt að fá þann
heiður að stýra Fjórðungssambandi
Vestfirðinga á sínum tíma og kynnast
öllum því frábæra fólki sem býr fyrir
vestan og sömuleiðis kynnast þeim
ólíku stöðum sem eru á Vest-
fjörðum.“
F
riðbjörg Elíasdóttir er
fædd 17. febrúar 1980 á
Ísafirði og ólst þar upp.
„Ég var mikið á Hest-
eyri í Jökulfjörðum á
sumrin og fer þangað enn eins mikið
og ég get.“ Hún æfði gönguskíði til 16
ára aldurs, en skíðamennskan er mik-
il í fjölskyldunni.
Albertína gekk í grunnskólann á
Ísafirði, tók tvö ár í Menntaskólanum
á Ísafirði og tvö ár við Mennta-
skólann við Hamrahlíð þaðan sem
hún útskrifaðist með stúdentspróf ár-
ið 2000. Hún lauk BA prófi í fé-
lagsfræði frá Háskóla Íslands árið
2005 og MSc gráðu frá sama skóla ár-
ið 2012. Hún lauk áttunda stigs prófi
á píanó frá Tónlistarskólanum á Ísa-
firði árið 2010 og nýtur þess enn að
spila á píanóið þegar tækifæri gefst.
Albertína var ráðgjafi og verk-
efnastjóri í barnavernd og fé-
lagsmálum hjá Skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar
2003–2005, forstöðumaður Gamla
apóteksins á Ísafirði, sem er upplýs-
inga- og menningarhús ungs fólks á
aldrinum 16-24 ára, 2004–2006 og
leiðsögumaður um Jökulfirði og
Hornstrandir í sumarleyfum frá
2004. Hún var verkefnastjóri hjá At-
vinnuþróunarfélagi Vestfirðinga
2006–2008 og rannsakandi í ferða-
málum hjá Rannsóknasetri Háskóla
Íslands í Bolungarvík 2008–2010. Al-
bertína var organisti í Dýrafirði, Ön-
undarfirði, Súgandafirði og Arnar-
firði í afleysingum 2008–2014. Hún
var verkefnastjóri og kennari hjá Há-
skólasetri Vestfjarða 2009–2015, bæj-
arfulltrúi í Ísafjarðarbæ 2010–2014,
forseti bæjarstjórnar 2011 og 2013,
fulltrúi í bæjarráði Ísafjarðarbæjar
2010–2014, formaður Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga 2010–2014, og
verkefnastjóri hjá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands á Ísafirði 2012–
2014.
„Það var virkilega skemmtilegt að
vinna hjá Háskólasetri Vestfjarða,
enda skemmtileg blanda af verk-
efnastjórn og kennslu en mér finnst
alltaf jafn gaman að kenna. Það sama
má segja um starf mitt hjá Nýsköp-
unarmiðstöð en þar stýrði ég Fa-
bLabinu á Ísafirði sem var sér-
einföld ákvörðun að flytja norður, en
á þeim tíma stóð ég á ákveðnum
krossgötum í lífinu og ákvað að það
væri tími til að breyta til. Ég sá
spennandi starf auglýst á Akureyri og
ákvað að slá til og hef svo sannarlega
ekki séð eftir því. Ólíkt því sem haldið
er fram þá taka Akureyringar vel á
móti fólki og hér er sérstaklega gott
að búa.“
Albertína hefur verið þingmaður
Samfylkingarinnar í Norðausturkjör-
dæmi frá árinu 2017. Hún er varafor-
maður atvinnuveganefndar Alþingis.
„Ég ætlaði nú ekki aftur í stjórnmál,
en þegar mér var boðið annað sætið á
lista Samfylkingarinnar í Norðaust-
urkjördæmi þá gat ég ekki skorist
undan. Það er heilmikill munur á því
að sitja í sveitarstjórn og á þingi, þó í
grunninn sé þetta auðvitað það sama
– að vinna að því að skapa sem best
samfélag fyrir okkur að búa í. Það
hafa verið alger forréttindi að starfa
bæði í sveitarstjórn og á þingi, en ég
er sérstaklega heppin með hvað ég er
í frábærum þingflokki en við vinnum
þétt og vel saman að þeim málum sem
við viljum stuðla að.“
Albertína hlaut hvatningarverð-
laun Forseta Íslands til ungra Íslend-
inga 1996. Helsta áhugamál Albertínu
er matargerð, en hún var með matar-
blogg í nokkur ár á vestfirdingurinn.-
blogspot.com. „Þetta byrjaði nú sem
hálfgert grín, en þróaðist smátt og
smátt í eitthvað meira þó ég hafi aldr-
ei tekið þetta alla leið. Mín hugleiðsla
á sér stað í eldhúsinu en það skemmti-
legasta þykir mér að bjóða skemmti-
legu fólki í mat, helst jafnvel fólki sem
þekkist ekki mikið og ná að skapa
skemmtilega stemningu og jafnvel
mynda ný vinatengsl yfir góðum
mat.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Albertínu er Dofri
Ólafsson, f. 6.3. 1980, rafvirki. For-
eldrar hans: Hjónin Ólafur Svan-
laugsson, f. 7.6. 1952, smiður á Ak-
ureyri, og Jóna Frímannsdóttir, f. 9.6.
1950, d. 16.1. 1999, leikskólakennari á
Akureyri.
Systkini Albertínu eru Þórunn
Anna Elíasdóttir, f. 16.10. 1985, sér-
fræðingur hjá Skattinum í Reykjavík,
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir alþingismaður - 40 ára
Parið Dofri og Albertína á 100 ára afmæli fullveldisins 2018.
Að skapa sem best samfélag
Þingmenn Þingflokkur Samfylkingarinnar mættur á Þingvelli.
50 ára María er Kefl-
víkingur en býr í Graf-
arvogi í Reykjavík.
Hún er löggiltur
læknaritari, er með
BS-gráðu í landfræði
og MS-gráðu í nátt-
úrulandfræði frá Há-
skóla Íslands. María er verkefnastjóri á
jarðvegsrannsóknastofu Landbúnaðar-
háskóla Íslands í Keldnaholti.
Maki: Vilhjálmur Kjartansson, f. 1966,
tæknimaður hjá Veðurstofu Íslands.
Börn: Fanney Halla, f. 2000, Védís Halla,
f. 2002, og Ásta Lovísa, f. 2006.
Foreldrar: Sóldís Björnsdóttir, f. 1944,
húsmóðir, og Svavar Geir Tjörvason, f.
1942, múrarameistari. Þau eru búsett í
Keflavík.
María
Svavarsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Eva Katrín fæddist
27. október 2019. Hún vó 4.040 g
og var 50 cm löng. Foreldrar hennar
eru Elna Albrechtsen og Viktor
Þór Georgsson.
Nýr borgari