Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020
Skíðamaðurinn Sturla Snær
Snorrason úr Ármanni tók þátt í Asíu-
bikarnum í Suður-Kóreu og náði sínum
besta árangri á ferlinum með því að
lenda í 15. sæti af 75 keppendum í
svigi. Fyrir árangurinn hlaut hann
26,99 FIS-stig og getur því átt von á
að stökkva nokkuð upp heimslistann.
Sturla keppti á alls fjórum mótum,
þremur svigmótum og einu í stórsvigi.
Hann hafnaði einnig í 29. sæti í svigi
og í 39. sæti í stórsvigi.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
skoraði sitt fimmta mark í jafn-
mörgum leikjum fyrir AC Mílan er liðið
vann 4:0-stórsigur á Tavagnacco á úti-
velli í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.
AC Mílan hefur unnið alla fimm leiki
sína síðan Berglind kom til félagsins
að láni frá Breiðabliki og er liðið nú
komið upp í annað sæti, þremur stig-
um frá toppliði Juventus.
Handknattleiksþjálfarinn Einar
Jónsson átti afar góðu gengi að fagna
þegar færeysku bikarhelginni lauk.
Einar gerði karla- og kvennalið H71 að
bikarmeisturum. Karlaliðið vann
23:18-sigur á Kyndli. Bikartitillinn var
sá fjórði í sögu félagsins. Í kvenna-
flokki hafði H71 betur gegn VÍF, 23:22,
og vann sinn fyrsta bikartitil í sögunni.
Báðum liðum gengur vel í deildinni í
Færeyjum. Karlaliðið er á toppnum
með 22 stig, sex stigum á undan
næstu liðum. Kvennaliðið er í þriðja
sæti, tveimur stigum frá toppnum.
Svíinn Armand Duplantis bætti á
laugardag eigið heimsmet í stangar-
stökki innanhúss, aðeins viku eftir að
hann setti það sjálfur á móti í Glasgow
í Skotlandi. Fyrir akkúrat viku sló
Duplantis met Frakkans Renaud La-
villenie frá 2014 þegar hann stökk 6,17
metra á móti í Torun í Póllandi. Hann
stökk nú 6,18 metra í Glasgow og fékk
30 þúsund dollara í verðlaunafé.
Alfreð Finnbogason var í annað
skipti í byrjunarliði Augsburg frá því
hann meiddist á öxl í landsleik Tyrk-
lands og Íslands í nóvember en lið
hans gerði þá jafntefli við Freiburg á
heimavelli, 1:1, í þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu. Alfreð hafði komið inná
sem varamaður í tveimur leikjum
Augsburg eftir áramót og spilað í 65
mínútur gegn Eintracht Frankfurt en
hann lék í 80 mínútur á laugardag.
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í
knattspyrnu, mætti einu sigursælasta
knattspyrnuliði Evrópu í
gær, þegar hann var í
byrjunarliði Brescia
gegn Juventus í Tór-
ínó í ítölsku A-
deildinni. Juventus
hafði betur 2:0 og fór í
efsta sætið. Birkir lék í
80 mínútur fyrir
Brescia.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – ÍBV.............................. 18
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hleðsluhöll: Selfoss – Afturelding ...... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Stykkish.: Snæfell – Skallagrímur...... 19.15
Ísafjörður: Vestri – Selfoss ................. 19.15
Enski boltinn á Símanum Sport
Chelsea – Manchester United ................. 20
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Karlalið Vals í handknattleik tryggði
sér sæti í átta liða úrslitum Áskor-
endabikars Evrópu um helgina með
því að leggja tyrkneska liðið Beykoz
að velli í tveimur leikjum sem báðir
voru leiknir í Istanbúl. Valur vann
fyrri leikinn 26:25 á laugardaginn og
svo 31:30 í gær og vann því einvígið
samanlagt 57:55.
Valsarar náðu fimm marka forystu
í báðum leikjunum en stórt og stæði-
legt lið Beykoz færði sig iðulega upp
á skaftið og gaf lítið eftir. Magnús Óli
Magnússon var drjúgur í fyrri leikn-
um, skoraði tíu mörk og þeir Agnar
Smári Jónsson og Ásgeir Snær Vign-
isson voru markahæstir í síðari leikn-
um, báðir með sex mörk, en liðið fékk
framlag frá flestum leikmönnum og
ljóst að allir voru að skila sínu. Þrátt
fyrir að spila vel lengst af voru Vals-
arar í hættu á að detta úr keppni
seint í viðureigninni í gær. Heima-
menn voru tveimur mörkum yfir þeg-
ar skammt var eftir en frábær loka-
kafli Valsara dugði þó til þar sem þeir
skoruðu fimm mörk gegn tveimur.
Ýmir Örn Gíslason var seldur til
þýska stórliðsins Rhein-Neckar Lö-
wen fyrr í mánuðinum og hornamað-
urinn Finnur Ingi Stefánsson er frá
vegna meiðsla. Þar missti liðið tvo
sterka burðarása og á enn eftir að
koma í ljós hver áhrifin af þeirra fjar-
veru verða til lengri tíma en þeir leik-
menn sem eftir eru sýndu mátt sinn
og megin í Tyrklandi um helgina.
Þetta kryddar tímabilið
„Þetta var mjög skemmtilegt en
líka gríðarlega erfitt, við þurftum að
hafa mjög mikið fyrir þessu. Þetta
var hörkulið, líkamlega sterkt og vel
þjálfað, þetta var erfið viðureign,“
sagði Snorri Steinn Guðjónsson,
þjálfari Vals, í samtali við Morgun-
blaðið eftir leikinn og bætti við að
Tyrkirnir hefðu jafnvel verið betri en
hann átti von á. „Við vorum komnir
með eitthvert myndefni en við tókum
því með fyrirvara og ef eitthvað er, þá
voru þeir töluvert sterkari en mynd-
efnið gaf til kynna, það verður að
segjast alveg eins og er. Auðvitað
gátum við myndað okkur einhverja
skoðun á þeim og vorum ágætlega
undirbúnir. Það er gríðarlega gott að
klára þetta, við þurftum að glíma við
alls konar hluti og þetta var mjög
sætt,“ sagði Snorri en Valsarar fengu
ekki upptökur af fyrri leiknum á þeim
tíma sem samið var um.
„Við fengum ekki upptökur úr fyrri
leiknum fyrr en klukkan eitt í dag.
Það var farið aðeins á bak við okkur
þar, þetta var annað en um var samið.
Það var óþægilegt að geta ekki greint
leikinn meir. Ég veit ekki hvort þetta
var viljandi eða hvað, við látum það
bara liggja á milli hluta. Við komumst
áfram og getum þess vegna hlegið að
þessu, við erum bara glaðir að vera
komnir áfram.“
Geta mætt gömlum fjendum
Dregið verður í átta liða úrslitin á
þriðjudaginn og geta Valsarar þar
mætt Halden frá Noregi, Victor frá
Rússlandi, Karvina og Dukla Prag
frá Tékklandi, AEK Aþenu frá
Grikklandi og CSM Búkarest og
Potaissa Turda frá Rúmeníu. Lið
Turda er auðvitað handbolta-
áhugamönnum og Völsurum vel
kunnugt. Rúmenarnir slógu Val úr
keppninni í undanúrslitum árið 2017 í
leik sem var „handknattleiksíþrótt-
inni til skammar“ að mati Morgun-
blaðsins en tékkneska dómaraparið
sem sinnti leiknum flautaði Valsmenn
úr leik. Valur á því harma að hefna,
fari svo að liðið geri sér aðra ferð til
Rúmeníu.
Valsarar unnu tvisvar í Istanbúl
Tyrkirnir voru stórir og stæðilegir Geta mætt gömlum óvini í Rúmeníu
Ljósmynd/Baldur Þorgilsson
Markahæstur Agnar Smári Jónsson skorar eitt af mörkum sínum í gær.
Lengjubikar karla og kvenna í
knattspyrnu hófst um helgina með
nokkrum leikjum. Kvennamegin
fór Breiðablik illa með bikarmeist-
ara Selfoss, 8:1, í Fífunni á meðan
Íslandsmeistarar Vals gerðu sér
góða ferð norður og lögðu Þór/KA
að velli, 4:0. Karlalið Vals var ekki í
vandræðum með Vestra á Hlíðar-
enda, vann 5:0, og Víkingur R. vann
Magna með sömu markatölu í Bog-
anum en þar mættust KA og Fylkir
einnig og skildu jöfn, 1:1. Nánar má
lesa um úrslitin í Lengjubikarnum á
mbl.is/sport.
Kröftug byrjun
meistaranna
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Einvígi Ída Marín Hermannsdóttir
og Hulda Ósk Jónsdóttir í leiknum.
Forskot Liverpool á toppi ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu er
orðið 25 stig eftir að liðið vann 1:0-
sigur á botnliði Norwich um
helgina. Senegalinn Sadio Mané
gerði sigurmarkið tíu mínútum fyr-
ir leikslok og hefur liðið frá Bítla-
borginni nú unnið 35 af síðustu 36
leikjum sínum. Lundúnaliðin Ars-
enal og Tottenham unnu svo bæði
mikilvæga sigra í baráttunni um
Evrópusæti. Tottenham marði ný-
liða Aston Villa, 3:2, og Arsenal fór
á flug og skellti Newcastle, 4:0, á
heimavelli sínum.
Forskot Liverpool
orðið 25 stig
AFP
Óstöðvandi Mark Sadio Mané hélt
sigurgöngu Liverpool áfram.
Eyjamenn hafa heldur betur látið
að sér kveða í Olís-deild karla á
þessu ári eftir að deildin fór aftur
af stað eftir EM-fríið. Í gær burst-
aði ÍBV topplið Hauka 36:28 í
Vestmannaeyjum. Fyrir vikið get-
ur Valur farið upp fyrir Hauka og
Afturelding getur farið upp að hlið
Hauka. Valsmenn sinntu Evrópu-
keppninni um helgina eins og sjá
má hér að ofan á síðunni en liðið
leikur fyrir vikið á miðvikudaginn
gegn Fjölni á heimavelli. Aftureld-
ing fer á Selfoss í kvöld en liðið á
sem sagt leik til góða á Hauka.
Eftir eins marks tap í drama-
tískum spennuleik gegn Val í Eyj-
um í lok janúar hafa Eyjamenn nú
unnið þrjá leiki í röð. Ekki er hægt
að segja að það hafi verið auðveld-
ustu leikirnir sem finnast en liðið
hefur unnið Selfoss og Aftureld-
ingu á útivelli og nú Hauka heima.
ÍBV er í 7. sæti með 20 stig og
virðist líklegt til að klifra ofar í
töflunni fyrir úrslitakeppnina.
Lesa má um viðureignina á
mbl.is/sport/handbolti eins og við-
ureign FH og ÍR í Kaplakrika í
gærkvöldi þar sem FH vann
öruggan sigur 39:28.
Leikmenn HK eru ekki dauðir
úr öllum æðum en þeir unnu úti-
sigur á Fram 30:29. Með sigrinum
fór HK upp fyrir Fjölni og er í
næstneðsta sæti. Er liðið fimm
stigum á eftir KA sem er í 10. sæti
og sex á eftir Fram sem er í 9.
sæti.
Stjarnan heldur áfram að safna
stigum og nú er ekki útlit fyrir
annað en að liðið komist í úr-
slitakeppnina. Stjarnan vann KA
32:25 og eru Garðbæingar í 8. sæti
með 17 stig. sport@mbl.is
Þriðji sigur ÍBV í röð
kom gegn Haukum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Í Eyjum Adam Haukur sækir og
Fannar Friðgeirs er til varnar.
Stjarnan vann magnaðan sigur á
KA/Þór í Olís-deild kvenna í hand-
knattleik í Garðabænum á laugar-
daginn 24:23 eftir mikla dramatík.
Sólveig Lára Kjærnested skoraði
sigurmark Stjörnunnar úr víti eftir
að leiktíminn rann út og einungis
vítakastið var eftir.
Stjarnan náði góðum endaspretti
og sneri þá erfiðri stöðu í sigur en
Akureyringar voru til að mynda yf-
ir í stöðunni 19:15 í síðari hálfleik.
Sólveig Lára var markahæst hjá
Stjörnunni með níu mörk og
Martha Hermannsdóttir skoraði
annað eins fyrir KA/Þór.
Stjarnan er í þriðja sæti deild-
arinnar með 19 stig og KA/Þór í
sjötta sæti með tólf stig.
HK gefur lítið eftir þrátt fyrir
skakkaföll og er í 4. sætinu eftir
eins marks sigur á Haukum 25:24 í
Kórnum. Sigurinn var mikilvægur
því Haukar eru nú fjórum stigum á
eftir HK. Díana Kristín Sigmars-
dóttir skoraði 10 mörk fyrir HK en
Karen Helga Díönudóttir skoraði 7
fyrir Hauka. sport@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Markahæst Sólveig Lára Kjærnested kom mjög við sögu hjá Stjörnunni.
Stjarnan sneri erfiðri
stöðu í sigur