Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 29

Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI  Rás 2  FBL BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN ÓSKARSVERÐLAUN4 BESTA MYNDINm.a. ÓSKARSVERÐLAUN2 BESTA FRUMSAMDA TÓNLISTm.a. HILDUR GUÐNADÓTTIR » Umfangsmikil sýning á verkum eftir hinnheimskunna bandaríska myndlistarmann Sol LeWitt (1928-2007) var opnuð í Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi á fimmtudagskvöldið var. LeWitt var einn helsti fulltrúi mínimalismans og konsepts í listasögunni. Um tuttugu manns unnu að uppsetningu verkanna í rúman mánuð, eftir ná- kvæmri uppskrift og teikningum listamannsins. Sýning með verkum Sols LeWitt opnuð í Hafnarhúsinu Margbrotin Um fimmtán sjálfboðaliðar unnu að uppsetningu verkanna í mánuð. Lukkuleg Hjálmar Sveinsson og safnstjórinn Ólöf K. Sigurðardóttir. Listunnandinn Ármann Reynisson var mættur á opnun og skoðaði verkin. Morgunblaðið/Eggert Veggmyndir Birkir Karlsson og Aldís Snorradóttir fyrir framan teikningu. Áhugasamir Listamennirnir Erling Klingenberg og Guðjón Ketilsson. Kanadíski leikarinn og grínistinn Rick Moranis snýr brátt aftur á hvíta tjaldið eftir 23 ára fjarveru og leikur í gamanmyndinni Shrunk sem mun vera svokölluð endurræs- ing, „reboot“ á ensku, á gaman- myndinni Honey, I shrunk the kids eða Elskan, ég minnkaði börnin, frá árinu 1989. Moranis naut mikilla vinsælda á níunda og tíunda áratugnum þegar hann lék í fyrrnefndri gamanmynd, framhaldi hennar og tveimur Ghostbusters-myndum. Þá lék hann einnig í kvikmyndaútgáfu söng- leikjarins Litla hryllingsbúðin og grínmyndinni Spaceballs. Hann hætti kvikmyndaleik árið 1997 en hefur nú ákveðið að snúa aftur. Ástæðan fyrir því að hann hætti að leika var andlát eiginkonu hans, Ann Belsky, árið 1991 og sagði Moranis í viðtali við Guardian árið 2013 að honum hefði reynst of erf- itt að hugsa um börn þeirra hjóna og sinna leikarastarfinu sem fól í sér langa fjarveru og mikil ferða- lög. Síðasta kvikmyndin sem hann lék í var sú þriðja í minnkunar- syrpunni, Honey, We Shrunk Our- selves. Moranis mun sem fyrr leika upp- finningamanninn Wayne Szalinski í Shrunk og Josh Gad mun leika son hans sem einnig er uppfinninga- maður. Moranis snýr aftur Fyndinn Rick Moranis í Spaceballs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.