Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 32

Morgunblaðið - 17.02.2020, Page 32
Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t il kvölds Söngkonan Rebekka Blöndal kemur fram með hljómsveit á djasskvöldi Kex hostels annað kvöld kl. 20.30. Rebekka mun flytja nokkra vel valda standarda. Með henni leika Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Kex hostel er á Skúlagötu 28 í Reykjavík. Rebekka og hljómsveit á djasskvöldi Kex MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valsmenn eru komnir í átta liða úr- slit Áskorendabikars Evrópu í hand- knattleik eftir að hafa slegið út sterkt lið Beykoz frá Tyrklandi. Báð- ar viðureignirnar voru leiknar í Ist- anbúl um helgina og höfðu Valsarar betur eftir mikinn hamagang og baráttu en Tyrkirnir þóttu nokkuð grófir. »27 Valsarar sýndu mátt sinn í Tyrklandi ÍÞRÓTTIR MENNING Garðbæingar fögnuðu öðrum bikarmeistaratitlinum í röð þegar Stjarnan sigraði Grindavík 89:75 í úrslitaleik Geysisbikars karla í körfuknattleik á laugardaginn. Leikstjórn- andinn Ægir Þór Stein- arsson var valinn mað- ur leiksins af KKÍ en hann gaf 14 stoðsend- ingar á samherja sína í leikn- um. Ægir varð bikar- meistari í þriðja sinn með tveimur fé- lögum og fyrirliðinn Hlynur Bæringsson vann keppnina í fjórða sinn. »26 Annað árið í röð hjá Garðbæingum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fiskverslunin Hafbjörg var opnuð í Hjallabrekku í Kópavogi fyrir fjórum vikum og hafa viðtökur verið góðar. „Við ákváðum að fara rólega af stað, einbeita okkur að fiskborðinu, gera það 100% og okkur hefur verið vel tekið,“ segir Aðalbjörn Jónsson. Hann er annar eigandi verslunar- innar, en hinn er Eiríkur Auðunn Auðunsson, móðurbróðir hans. Aðalbjörn segir að þeir frændur hafi rætt um að fara út í svona rekst- ur saman í mörg ár, en ekki stigið skrefið fyrr en þeim bauðst húsnæðið í Hjallabrekku. „Skilyrði fyrir því að fara út í rekstur saman var að vera engum háðir, geta verið með eldhús og vinnslu á sama stað og þetta hús- næði uppfyllti kröfurnar. Því var bara að hrökkva eða stökkva og við ákváðum að kýla á þetta.“ Húsið var byggt sem verslunar- húsnæði. Þar var lengi verslunin Brekkuval og síðast 10-11. Þeir fengu aðstöðuna afhenta í sumarbyrjun í fyrra og hófust þá handa við nauðsyn- legar breytingar. „Við gerðum allt sjálfir sem við gátum gert en fengum iðnaðarmenn í annað,“ segir Aðal- björn. „Við reiknuðum með fjögurra mánaða framkvæmdatíma en hann varð um sex mánuðir.“ Klæða þurfti veggi, laga loft, setja milliveggi, brjóta upp gólf, flísaleggja og fleira. „Ekkert niðurfall var í húsinu en nú eru þau um tuttugu,“ bendir hann á. Miklu úrvali af ferskum fiski og fiskréttum er haganlega komið fyrir í fiskborðinu og til stendur að bjóða upp á heitan mat í hádeginu innan skamms. „Við ákváðum að einbeita okkur að fiskhlutanum í byrjun og gera hann vel,“ útskýrir Aðalbjörn. Frændurnir hafa mikla reynslu á þessu sviði. Aðalbjörn er menntaður kjötiðnaðarmaður, hefur unnið við framleiðslu, sölu og markaðsmál í yf- ir 20 ár og var síðast sölu- og mark- aðsstjóri hjá Matfugli í Mosfellsbæ. Eiríkur er matsveinn og hefur starf- að í yfir 30 ár í fiskiðnaði og fisk- verslun, hefur rekið margar versl- anir, síðast Kjöt- og fiskbúð Austurlands á Egilsstöðum. Eigend- urnir fengu Arnar Þór Elísson til liðs við sig, en undanfarin 14 ár hefur hann unnið í Fiskbúðinni Sundlauga- vegi. Handunnið gæðahráefni „Margar fiskverslanir eru háðar öðrum varðandi hráefni en það vild- um við alls ekki,“ áréttar Aðalbjörn. Hann segir lykilatriði að geta keypt fiskinn á markaði og unnið hráefnið sjálfir. „Verðstýringin verður betri með þessum hætti og við getum leyft okkur að vera með verðið í lægri kantinum vegna þess að við vinnum hráefnið sjálfir. Handunnið gæða- hráefni án véla skiptir öllu máli.“ Morgunblaðið/RAX Hafbjörg Fisksalarnir frá vinstri: Eiríkur Auðunn Auðunsson, Aðalbjörn Jónsson og Arnar Þór Elísson. Frændur í fisksölunni  Aftur líf í verslunarhúsnæðinu í Hjallabrekku í Kópavogi Aðgerð Eiríkur með ferskar lúður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.