Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. 12. mars 2020 Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum. 6. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. a. Tillaga stjórnar sem lýtur að breytingu á 4. gr. í tengslum við tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár. b. Tillaga stjórnar sem lýtur að breytingu á 2. og 3. mgr. 18. gr. í tengslum við störf tilnefningarnefndar. 7. Tillögur tilnefningarnefndar um breytingar á starfsreglum nefndarinnar. 8. Kosning stjórnar félagsins. 9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. a. Ekki liggur fyrir tillaga um kosningu endurskoðanda þar sem KPMG ehf. var kjörið endurskoðandi til fimm ára á aðalfundi 2018. 10. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd. 11. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar. 12. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 13. Önnur mál, löglega upp borin. Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 2. mars 2020. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið stjorn@sjova.is. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vef félagsins, www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/. Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurðar um annað. Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjöri til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er nánar á um stjórnarkjör í samþykktum félagsins en kosið er eftir hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin á ákvæðum samþykkta um hlutfall kynja í stjórn félagsins. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Rafræn umboð má senda á veffangið stjorn@sjova.is. Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað. Sérstök tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við sam- þykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kosin sem varamenn. Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. laugardaginn 7. mars 2020 kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar er mælst til þess að framboð til stjórnar berist nefndinni skemmst tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 27. febrúar 2020. Framboð skulu berast á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 10. mars 2020. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova. is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/ að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund. Tilkynningum um framboð til tilnefningarnefndar félagsins skal skilað fyrir kl. 15:00 laugardaginn 7. mars 2020 á netfangið stjorn@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til tilnefningarnefndar verða birtar á vefsvæði félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða birt á vefsvæði félagsinswww.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/ og liggja frammi á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14:30 á aðalfundardag og fengið fundargögn afhent. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku. Tilnefningarnefnd leggur til að Kristín Edwald hrl. verði kosin fundarstjóri. Reykjavík 18. febrúar 2020. Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. Sjóvá 440 2000 sjova.is Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, fimmtudaginn 12. mars 2020 og hefst kl. 15:00. Eitt íslenskt skip, Hoffell SU, hefur undanfarið verið tilbúið til kol- munnaveiða á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi. Vonskuveður hefur verið á þessum slóðum og ekkert verið hægt að athafna sig á miðun- um. Fjögur skip voru í gær á leiðinni á þessi mið, Venus NS, Víkingur AK, Jón Kjartansson SU og Guðrún Þor- kelsdóttir SU. Eitt rannsóknaskip og fimm upp- sjávarskip mæla nú loðnu frá Dhorn- banka og austur með Norðurlandi í samstarfi Hafrannsóknastofnunar og útgerða uppsjávarskipa. Líklegt er að leiðangurinn verði langt kom- inn í vikulokin og þá verði einhverjar fréttir af árangri. Leiðangursstjóri er Birkir Bárðarson fiskifræðingur. Fram hefur komið að í leiðangri í byrjun mánaðarins hafi mælst um 250 þúsund tonn af loðnu, en gróf- lega áætlað þurfi að minnsta kosti 150 þúsund tonn að mælast til við- bótar svo veiðikvóti verði gefinn út. aij@mbl.is Vonskuveður á kolmunnaslóð Hoffell Vonast er eftir veðurglugga í dag á miðunum vestur af Írlandi. „Hann er enn í óvissu gagnvart stjórnvöldum um hvort honum verði vísað úr landi á meðan mál hans er til meðferðar. Hins vegar hefur frestur verið veittur til 24. febrúar um að leggja fram frekari gögn í málinu,“ segir Claudie Asho- nie Wilson, lögmaður Maní Shahidi, 17 ára transpilts frá Íran. Honum og fjölskyldu hans hefur verið synj- að um alþjóðlega vernd á Íslandi. Maní dvelur nú á barna- og ung- lingageðdeild Landspítalans vegna slæmrar andlegrar heilsu og hafa læknar þar lagst gegn því að hon- um verði vísað úr landi. Þeir hafa gefið út ný vottorð sem segja að hann sé enn í meðferð hjá þeim og „að það sé óforsvaranlegt að senda hann úr landi á meðan hann er enn í meðferð,“ segir Claudie. Hún útskýrir að þetta þýði að þó hann verði útskrifaður, sem ekki er vitað hvenær verði, er gert ráð fyr- ir að meðferð hans haldi áfram hér á landi eftir útskrift af spítalanum. Biskup og vígslubiskupar senda frá sér yfirlýsingu Biskup Íslands og vígslu- biskuparnir á Hólum og í Skálholti sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þeir hvetja dómsmálaráðherra til að koma í veg fyrir að Maní Sha- hidi og fjölskyldu hans verði vísað úr landi. Biskuparnir biðja um að fjölskyldan fái varanlegt dval- arleyfi hér á landi. „Fjölskyldan er kristinnar trúar og hefur sótt þjónustu kirkjunnar í Breiðholtskirkju fyrir innflytj- endur og hælisleitendur, sem sr. Toshiki Toma, prestur innflytj- enda, sinnir. Vitað er að pilturinn, sem er barn að aldri, er ekki öruggur í fæðingarlandi sínu sök- um kyngervis hans,“ segir m.a. í yf- irlýsingunni. Hópur fólks kom sam- an í gær og mótmælti brottvísuninni og afhenti við dóms- málaráðuneyti undirskriftalista með tæplega 8.000 undirskriftum þar sem því er mótmælt að drengn- um og fjölskyldu hans hefur verið synjað um alþjóðlega vernd á Ís- landi. Enn er óvissa um brottvísun  Frestur vegna Maní til 24. febrúar Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Mótmæli Foreldrar Maní og hópur mótmælenda við Stjórnarráðið. Rétt fyrir klukkan fjögur í gær barst lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu tilkynning um að kona í annarlegu ástandi hefði stolið bif- reið við Sundahöfn. Lögreglan brást fljótt við, var konunni veitt eftirför uns náðist að stöðva för hennar í Lækjargötu, nærri Von- arstræti. Konan var handtekin og flutt á lögreglustöð. Lögregla segir mildi þykja að ekki hafi hlotist slys af, enda hafi konan virt fáar ef nokkr- ar umferðarreglur á leið sinni. Hún ók m.a. gegn rauðu ljósi og litlu mátti muna að bíll hennar lenti í árekstri við önnur ökutæki meðan á glæfraakstrinum stóð. Eftirför frá Sundahöfn í Lækjargötu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.