Morgunblaðið - 20.02.2020, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Kringlan | s: 577-7040 | loccitane.is
Immortelle Reset næturserumið var innblásið af ferskri morgunbirtu
Provence, sem endurspeglast í kröftugri blöndu náttúrulegra innihaldsefna.
Immortelle ilmkjarnaolían leynist inni í örsmáum gylltum hylkjunum sem
fljóta um í serumi úr kryddmæru. Serumið hjálpar húðinni að endurnæra
og jafna sig eftir hraðan og upptekinn lífstíl nútímans.
Litarhaftið fær greinilega ÚTHVÍLT og LJÓMANDI útlit.
VAKNAÐU MEÐ
ÚTHVÍLDA HÚÐ
UNGLEGT OG LJÓMANDI ÚTLIT
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði
fagnar 10 ára afmæli um þessar
mundir. Af því tilefni er efnt til tón-
leika í Miðgarði í
Skagafirði á
konudaginn,
sunnudaginn 23.
febrúar, kl. 15.
Kaffiveitingar
verða á veislu-
hlaðborði að
loknum tónleik-
unum.
Sóldísir ætla
ekki að láta þar
við sitja á afmæl-
isárinu. Fyrstu helgina í mars halda
þær suður yfir heiðar. Tónleikar
verða í Langholtskirkju laugardag-
inn 7. mars næstkomandi kl. 16 og
daginn eftir hefja þær upp raust
sína í Vinaminni á Akranesi kl. 15. Í
vor er svo ætlunin að halda tónleika
á Skagaströnd.
Syngja við Gardavatnið
Fastur liður í starfi kórsins
undanfarin ár hafa verið tónleikar á
Sauðárkróki í Sæluviku Skagfirð-
inga, auk heimsóknar á Heilbrigðis-
stofnunina á Sauðárkróki.
Á afmælisári verður ekki vikið
frá þessari hefð en hápunktur árs-
ins verður án efa ferð til Ítalíu í
byrjun júní þar sem dvalið verður
við Gardavatnið og sungið á tveim-
ur stöðum. Þaðan liggur leiðin til
Stuttgart í Þýskalandi en þar er
stjórnandi kórsins, Helga Rós
Indriðadóttir óperusöngkona, vel
kunnug eftir að hafa sungið í óperu-
húsi borgarinnar í mörg ár.
Undirleikari Sóldísa er Rögn-
valdur Valbergsson. Einsöngvarar
á tónleikunum framundan verða
Helga Rós, Íris Olga Lúðvíksdóttir
og Ólöf Ólafsdóttir. Á dagskránni
verða ný lög auk eldri laga úr söng-
starfinu.
Meðal efnis er nýtt lag eftir
Eddu Björk Jónsdóttur. Lagið er
hluti af útskriftarverkefni Eddu úr
Listaháskólanum og er samið við
ljóð Ólínu Andrésdóttur, Til Kven-
réttindafélagsins.
Helga Rós hefur stjórnað fjöl-
mörgum kórum gegnum tíðina. Auk
Sóldísa má m.a. nefna Karlakórinn
Heimi í Skagafirði. Spurð hvort ein-
hver munur sé á að stjórna karla-
kór eða kvennakór segir Helga Rós
að óneitanlega sé liturinn á rödd-
unum annar. „Annars eru allir alltaf
að leggja sig fram um að gera sitt
besta og njóta þessara töfra sem
kórsöngur býður upp á, að finna sig
í samhljómnum og framkalla um
leið fegurðina og þessi mögnuðu
áhrif sem felast í tónlistinni, sem
áheyrandinn fær síðan að upplifa,“
segir Helga Rós við Morgunblaðið.
Frá tvítugu til áttræðs
Ítarlega er fjallað um kórinn í
héraðsfréttablaðinu Feyki, sem
kom út í gær. Þar er m.a. fjallað um
tilurð kórsins. Stofnendur voru
Drífa Árnadóttir á Uppsölum í
Blönduhlíð, frænka hennar, Sigur-
laug Maronsdóttir á Sauðárkróki og
nágrannakonan Íris Olga Lúðvíks-
dóttir í Flatatungu. Þær hafa setið í
stjórn Sóldísar frá upphafi og að
sjálfsögðu sungið í kórnum. Kór-
félagar eru hátt í 60 talsins, frá tví-
tugu til áttræðs. Stjórnandi fyrstu
fimm árin var Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir en síðan tók Helga Rós
við tónsprotanum.
Í Feyki er m.a. birt þessi ágæta
vísa eftir einn kórfélagann, Kristínu
F. Jóhannesdóttur á Tyrfings-
stöðum:
Lævi þrungið loftið tel,
lítt þó mælist hagnaður.
Sóldísirnar syngja vel
og söngstjórinn er magnaður.
Söngur skagfirskra sóldísa í áratug
Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði fagnar 10 ára afmæli Tónleikar á konudaginn í Miðgarði
Syngja sunnan heiða fyrstu helgina í mars Afmælisferð til Ítalíu og Þýskalands í sumar
Kvennakór Sóldísir í Skagafirði ásamt stjórnanda sínum, Helgu Rós Indriðadóttur, og undirleikara, Rögnvaldi Val-
bergssyni. Kórinn verður á faraldsfæti næstu vikur og mánuði í tilefni 10 ára afmælisins og hvergi slegið slöku við.
Helga Rós
Indriðadóttir
Í ár verða ratsjáreftirlitskerfin hér
á landi uppfærð og er verkefnið að
mestu fjármagnað af Mannvirkja-
sjóði Atlantshafsbandalagsins.
Þetta kemur fram í frétt á heima-
síðu Landhelgisgæslunnar.
Til að tryggja að eftirlit með
loftrýminu sé órofið flutti kan-
adíski flugherinn færanlegan
ratsjárbúnað hingað til lands.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli og 30 liðsmenn kanadísku
sveitarinnar hafa undanfarnar vik-
ur unnið að uppsetningu búnaðar-
ins, sem er á Miðnesheiði.
„Framlag Kanada er þýðingar-
mikið og endurspeglar mikilvægt
samstarf þjóðanna, samstöðu að-
ildarríkja Atlantshafsbandalagsins
og mikilvægi þess fyrir banda-
lagið,“ segir í fréttinni.
Afar brýnt sé að á Íslandi sé
virkt loftrýmiseftirlit alla daga
ársins. Ratsjárstöð kanadíska flug-
hersins tryggi að svo verði áfram
meðan unnið er að uppfærslunni.
Landhelgisgæslan sé þakklát
kanadísku flugsveitinni fyrir fram-
lag hennar til verkefnisins.
sisi@mbl.is
Setja upp
færanlega
ratsjá
Ljósmynd/Kanadíski flugherinn
Ratsjáin Kanadamenn og starfs-
menn Gæslunnar við uppsetningu.