Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Fátt er meira krefjandi enforeldrahlutverkið. Van-svefta og oft á tíðum íhormónarússi eftir með-
göngu og fæðingu tökum við ábyrgð
á ósjálfbjarga lítilli manneskju allan
sólarhringinn og reynum okkar
besta til að halda henni á lífi og
koma til þroska meðan við setjum
okkar eigin þarfir í annað sæti. Litla
manneskjan er afar viðkvæm en hef-
ur á sama tíma takmarkaða getu til
að tjá sig. Hún grætur því eða öskr-
ar til skiptis ef eitthvað er að þar til
foreldrarnir giska á hvað gæti
hjálpað. Slíkt getur eðlilega reynt á
þolrifin og vandasamt að sýna bæði
skapstillingu og ástúð þegar foreldri
liggur við bugun vegna örmögnunar
og vanmáttarkenndar. Á sama tíma
má segja að hjartað stækki um heilt
númer með tilurð afkvæmisins með
tilheyrandi hamingju, ást og um-
hyggju.
Leiksýningin Mæður í vandaðri
leikstjórn Álfrúnar Örnólfsdóttur
sem sýnd er í Iðnó um þessar mund-
ir setur fókus á allar þær flóknu til-
finningar sem fylgja því að takast á
við móðurhlutverkið – hlutverk sem
lýkur í raun aldrei heldur breytist
aðeins eftir því sem börnin stækka
og fullorðnast. Um er að ræða leikrit
eftir Önnu Bro, Juliu Lahme, Mette
Marie Lei Lange og Christinu
Sederqvist sem frumsýnt var í
Folketeatret í Kaupmannahöfn fyrir
rétt tæpum tveimur árum. Íslenski
leikhópurinn hefur lagað verkið tölu-
vert að sínum reynsluheimi og sam-
félagi, sem er til mikilla bóta. Megin-
persónur verksins eru fjórar
nýbakaðar mæður, Fífa (Aðalbjörg
Árnadóttir), Júlí (Kristín Péturs-
dóttir), Móa (Lilja Nótt Þórarins-
dóttir) og Andrea (María Heba Þor-
kelsdóttir), sem kynnast í mæðra-
eftirliti og er ráðlagt að skiptast á
reynslusögum og ræða bæði það
sem gengur vel og illa í nýja hlut-
verkinu. Á milli funda bregða leik-
konurnar sér léttilega í önnur
smærri hlutverk, sem fjölgar rödd-
um í flórunni, en sýningin minnir á
stundum á uppistand eða mósaík.
Mæðurnar fjórar sem eru í for-
grunni búa við ólíkar fjölskyldu-
aðstæður og glíma við mismunandi
áskoranir í samskiptum sínum við
afkvæmið og maka, þegar slíkur er
fyrir hendi. Sprenghlægilegt var til
dæmis að fylgjast með samtali Fífu
og Móu á líkamsræktarstöðinni þar
sem kynlíf eftir fæðingu var til um-
fjöllunar og hvernig Fífa upplifði lík-
ama sinn sem sameign heimilisfólks.
Leiknar útfærslur hópsins á svefn-
lausri nótt annars vegar og anna-
sömum kvöldmatartíma hins vegar,
þar sem þögul móðir reynir bara að
lifa kvöldið af með aðstoð súkkulaðis
og hvítvíns, voru dásamlegar.
Mæður fjallar um allt sem þig
langaði að vita um tímann og tilfinn-
ingarnar sem fylgja fæðingu og
fyrstu mánuðunum í lífi barns. En
sýningin fjallar líka um allt sem þú
vissir ekki að gagnlegt gæti verið að
vita. Hvern hefði til dæmis grunað
fyrir fram að meltingarstarfsemi
ungbarna gæti orðið aðalatriði í lífi
foreldra vikum og jafnvel mánuðum
saman? Hér er fjallað um allt frá
glasafrjóvgun til gyllinæðar með við-
komu í svefnklámi, öllum goðsögn-
unum um móðurhlutverkið, óttanum
við að missa barnið sitt, einmana-
leika móður sem dvelur ein heima
með ungt barn, brjóstagjöf, ást, um-
hyggju, þakklæti, bókum um barna-
uppeldi, skilnaði, þvagleka, hversu
tíminn getur orðið afstæður og liðið
bæði svo hratt þegar horft er á
þroska nýs einstaklings og hægt
þegar svefnvana móðir telur niður
mínúturnar þar til næst er hægt að
leggja sig.
Leikhópurinn nálgast efniviðinn
af virðingu, kærleika og ekki síst
húmor. Sjónræn umgjörð öll og
hljóðmynd styður vel við umfjöll-
unarefnið. Leikstjórinn vinnur
skemmtilega með líkamann og
rytma þegar hún fléttar ýmis hreyfi-
mynstur inn í leikinn. Afar vel er
unnið með persónueinkenni
kvennanna og hlustun hópsins er af-
bragð, hvort heldur er í samleik eða
til að bregðast við hljóðum úr ung-
börnum sem fylgdu foreldrum sín-
um á sýninguna. Uppfærslan hefur
verið sýnd ýmist að degi til eða
kvöldi, sem auðveldar nýbökuðum
foreldrum að bregða sér á 75 mín-
útna langa sýningu með nýja barnið.
Aðalbjörg Árnadóttir, Kristín
Pétursdóttir, Lilja Nótt Þórarins-
dóttir og María Heba Þorkelsdóttir
fá sérstakt hrós fyrir afbragðs fram-
sögn, því þrátt fyrir nokkurn fjölda
ungbarna í salnum sem létu reglu-
lega heyra í sér heyrðist hvert ein-
asta orð á sviðinu. Allar stökkva þær
milli ólíkra hlutverka eins og fiskar í
vatni og leiða áhorfendur í gegnum
allan tilfinningaskalann. Það hallar
ekki á neina þó að Aðalbjörg fái sér-
stakt hrós fyrir framúrskarandi
kómískar tímasetningar.
Mæður er frábær sýning sem öll
ættu að sjá, jafnt mæður sem feður.
Við sem gengið höfum í gegnum það
ferli að ganga með og fæða barn get-
um notið þess að hlæja og gráta með
persónum verksins þegar fæðingar-
orlofstíminn er rifjaður upp með öll-
um sínum svefnlausu nóttum,
brjóstagjöf, barnamauki og kúka-
bleyjum. Þau sem ekki hafa per-
sónulega reynslu af foreldrahlut-
verkinu geta fengið ómetanlega
innsýn í þennan reynsluheim sem er
allt í senn hrikalega erfiður og krefj-
andi en líka dásamlegur og gefandi.
Dásamlegur óður til mæðra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Húmor „Leikhópurinn nálgast efniviðinn af virðingu, kærleika og ekki síst
húmor,“ segir í leikdómi um sýninguna Mæður sem sýnd er í Iðnó.
Iðnó
Mæður bbbbm
Eftir Önnu Bro, Juliu Lahme, Mette
Marie Lei Lange, Christinu Sederqvist
og íslenska leikhópinn. Íslensk þýðing:
Kristín Björg Guðmundsdóttir. Leik-
stjórn: Álfrún Örnólfsdóttir. Leikmynd
og búningar: Hildur Selma Sigurberts-
dóttir. Tónlist og hljóð: Steinunn Jóns-
dóttir og Þormóður Dagsson. Lýsing:
Jóhann Bjarni Pálmason. Leikarar: Aðal-
björg Árnadóttir, Kristín Pétursdóttir,
Lilja Nótt Þórarinsdóttir og María Heba
Þorkelsdóttir. Leikhópurinn Pinklar
frumsýndi í Iðnó 9. febrúar 2020 kl. 17,
en rýnt í 2. sýningu á sama stað þriðju-
daginn 11. febrúar 2020 kl. 13.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Síðumúli 13
577 5500
108 Reykjavík
www.atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
TIL LEIGU
TIL LEIGU
TIL LEIGU
TIL LEIGU
ÁRMÚLI 40
AUSTURSTRÖND 5
LAMBHAGAVEGUR 13
SMIÐSHÖFÐI 11
Til leigu nýtt 214 fm
atvinnuhúsnæði með
góðri lofthæð og
stórri innkeyrsluhurð
með rafmagnsopnun,
3,8 metra há. Miklir
möguleikar.
Til leigu 390 fm
iðnaðar- og lager-
húsnæði. Lofthæðin
er 8metrar og stór
innkeyrsluhurðmeð
rafmagnsopnun.
Til leigu 218 fm
verslunarhúsnæði
meðmiklum sýnileika
frá götu, góð lofthæð.
Bílastæði fyrir beint
fyrir utan. Húsnæðið
er ekki vsk skylt hús-
næði.
Til leigu 479,5 fm
verslunar- og lager-
húsnæði á jarðhæð.
Rýmið er mjög
snyrtilegt. Hentar t.d
vel fyrir heildsölu og
ýmsa aðra starfsemi.
**Gott leiguverð**
LAU
ST S
TRA
X
LAU
ST S
TRA
X
LAU
ST S
TRA
X
LAU
ST S
TRA
X
www.atvinnueign.is