Morgunblaðið - 20.02.2020, Qupperneq 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Getur nefið á þér verið rang-
stætt? Þá á ég ekki við að þú haf-
ir gengið á hurð eða fengið einn
„gúmoren“ – kannski „að sjó-
mannasið“.
Tæknilega séð getur nefið á
þér verið rangstætt í nútímafót-
bolta þar sem hin umdeilda
myndbandadómgæsla (VAR)
kemur við sögu. Líka stóratáin,
vinstra eyrað og hægri hnéskelin
ef því er að skipta.
Í ensku úrvalsdeildinni hefur
VAR-dómgæslan lent á miklum
villigötum þar sem elt hafa verið
uppi smáatriði varðandi rang-
stöðu í stað þess að nýta hana
betur þar sem það skiptir máli.
Arsene Wenger, sá mæti
maður og fyrrverandi stjóri Ars-
enal, er nú í forystuhlutverki hjá
FIFA og hefur beitt sér fyrir
endurskoðun á rangstöðuregl-
unum. Hann vill að sóknarmaður
þurfi að vera allur fyrir innan
varnarmann til að teljast rang-
stæður. Það var Wenger sem
hafði á orði að það væri alveg
galið að hægt væri að dæma
rangstöðu á nef, svo því sé haldið
til haga.
Tillaga hans verður lögð fyrir
alþjóðlegu fótboltareglunefnd-
ina, IFAB, á hlaupársdag. Fróð-
legt verður að fylgjast með af-
greiðslunni.
Annars er það þessi IFAB-
nefnd sem er áhugaverður kapít-
uli út af fyrir sig en hún viðheldur
íhaldssemi í fótboltanum sem af
mörgum er talin nauðsynleg.
Hún var stofnuð fyrir 134 ár-
um og er enn borin uppi af
fulltrúum Englands, Skotlands,
Wales og Norður-Írlands sem
skipa 80 prósent nefndarinnar,
en fimmti fulltrúinn kemur frá
FIFA. Fótboltinn er fyrir löngu
orðinn alheimseign en á þessu
sviði stendur breska heimsveldið
enn undir nafni!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þrátt fyrir að Ísland kæmist í loka-
keppni Evrópumóts karla í körfu-
bolta tvisvar í röð, 2015 í Berlín og
2017 í Helsinki, er landsliðið nú í
þeirri stöðu að þurfa að brjóta sér
leið í gegnum tvö stig í forkeppni til
þess að vinna sér sæti í sjálfri
undankeppni heimsmeistaramótsins
2023.
Fyrsti áfanginn á fyrsta stiginu er
í kvöld þegar Ísland sækir lið Kó-
sóvó heim til Prishtina, en viðureign
þjóðanna hefst þar klukkan 18 að ís-
lenskum tíma.
Dýrkeypt tap í Sviss
Tapið slæma í Sviss í forkeppni
EM í ágúst 2019 var íslenska liðinu
dýrkeypt. Það mátti tapa með 19
stigum en missti leikinn niður í 24
stiga ósigur, 109:85, í hræðilegum
fjórða leikhluta í Montreaux. Fyrir
vikið missti Ísland af því að leika í
undanriðli EM 2021 með Finnlandi,
Georgíu og Serbíu og gerði sér um
leið næstu undankeppni HM enn
erfiðari en ella.
Sú undankeppni hefst í kvöld og
heldur áfram í Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöldið kemur þegar
Slóvakía kemur í heimsókn en Sló-
vakía fær Lúxemborg í heimsókn í
kvöld í hinum leik fyrstu umferðar.
Langt í hina fjóra leikina
Langt er hins vegar í hina fjóra
leikina í riðlinum því Ísland mætir
Lúxemborg og Kósóvó í heima-
leikjum í lok nóvember á þessu ári.
Tveir þeir síðustu eru síðan á útivöll-
um gegn Slóvakíu og Lúxemborg
eftir heilt ár, eða í febrúar 2021.
Þá fyrst kemur í ljós hvort Ísland
kemst á annað stig forkeppninnar.
Tvö efstu lið riðilsins ásamt tveimur
efstu úr hinum riðlinum þar, sem
eru Portúgal, Kýpur, Hvíta-
Rússland og Albanía, fara á annað
stigið, sem er leikið sumarið 2021.
Þar leika tólf þjóðir um átta sæti í
undankeppni HM. Liðin átta sem
bætast við verða þau sem ekki ná að
tryggja sér sæti í lokakeppni EM.
HM í austurhluta Asíu 2023
Undankeppni HM fer fram árið
2022 og þar verða liðin 24 sem leika í
lokakeppni EM 2021 ásamt þessum
átta úr forkeppninni. Þar verður
spilað um sæti í lokakeppni HM sem
fer fram í Japan, Indónesíu og á Fil-
ippseyjum árið 2023. Leiðin er svo
sannarlega löng.
Ísland var í fyrsta styrkleikaflokki
þegar dregið var í riðlana fyrir
fyrsta stigið og á því að vera með
sterkara lið en Slóvakía, Kósóvó og
Lúxemborg sem komu úr hinum
þremur flokkunum. En í Prishtina í
kvöld vantar menn eins og Martin
Hermannsson, Hauk Helga Pálsson,
Elvar Már Friðriksson, Kristófer
Acox, Ægi Þór Steinarsson, Pavel
Ermolinskij, Jón Axel Guðmunds-
son, Jón Arnór Stefánsson og Hlyn
Bæringsson, sem allir hafa sett svip
sinn á landsliðið á undanförnum ár-
um. Þeir eru ýmist hættir, meiddir
eða uppteknir eins og áður hefur
verið fjallað um. Óhætt er að segja
að öflugt byrjunarlið Íslands sé
fjarri góðu gamni og nú þurfa aðrir
að stíga fram og fylla í skörðin.
Fyrsti áfanginn á langri leið
Leiðin í átt að HM 2023 hefst þegar
Ísland mætir Kósóvó í Prishtina í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðið Tryggvi Snær Hlinason verður í lykilhlutverki í leiknum í Pris-
htina í kvöld en Kósóvó er með tvo miðherja í sama stærðarflokki og hann.
Íslandsmeistarar KR í knattspyrnu
karla biðu í fyrrinótt lægri hlut fyr-
ir bandaríska MLS-deildarliðinu
Orlando City í æfingaleik á Flórída.
Orlando, sem leikur fyrsta leik sinn
í MLS-deildinni á nýju tímabili ann-
an laugardag, sigraði 3:1 og voru
öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik.
Kristján Flóki Finnbogason gerði
mark KR-inga á 22. mínútu en
Portúgalinn Nani, fyrrverandi leik-
maður Manchester United, skoraði
tvö marka Orlando. KR mætir öðru
MLS-liði, Cincinnati, á Flórída ann-
að kvöld.
Flóki skoraði fyrir
KR á Flórída
Morgunblaðið/Hari
Skoraði Kristján Flóki Finn-
bogason gerði mark KR í Orlando.
Martin Hermannsson hefur verið
kjörinn besti leikmaðurinn í bikar-
úrslitaleiknum í þýska körfubolt-
anum en hann var í lykilhlutverki
þegar Alba Berlín lagði Oldenburg
að velli í úrslitaleiknum á sunnu-
dagskvöldið.
Þýska 1. deildin, BBL, birti þetta
á twitter í gær en Martin varð efst-
ur í kosningu á heimasíðu deildar-
innar. Martin var stigahæsti leik-
maður Alba í úrslitaleiknum,
skoraði 20 stig, og varð fyrstur Ís-
lendinga til að vinna stóran titil í
þýska körfuboltanum.
Martin bestur í
úrslitaleiknum
Ljósmynd/EuroLeague
Bikarmeistari Martin Hermanns-
son var í aðalhlutverki hjá Alba.
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Vestri ...... 19.15
Í KVÖLD!
Spænskar knattspyrnukonur hafa í
fyrsta skipti skrifað undir sam-
eiginlegt samkomulag um laun og
fríðindi, og þar með með náð sam-
komulagi við yfirstjórn íþróttamála
í landinu. Þær fóru í verkfall í
nóvember sem leiddi af sér frestun
á átta leikjum í efstu deild.
Í samkomulaginu sem birt var í
gær eru leikmönnum efstu deildar
tryggðar 16 þúsund evrur (um 2,2
milljónir íslenskra króna) í lág-
markslaun á ári, ásamt því að fá
sumarfrí og fæðingarorlof á laun-
um, ásamt fleiri fríðindum.
Upphæðin er ekki há ef miðað er
við almenn laun, hvað þá laun
knattspyrnukarla, en litið er á sam-
komulagið sem tímamótaáfanga
fyrir knattspyrnu kvenna á Spáni.
„Þetta er sögulegur dagur því
samkomulagið er afar mikilvægt
fyrir knattspyrnukonur sem hafa
haft áhyggjur af sinni framtíð. Þá
er þetta mikilvægt fyrir allar
spænskar konur því þegar einn
hópur kvenna tekur stórt skref þá
gera aðrar það líka,“ sagði Irene
Lozano, íþróttamálaráðherra Spán-
ar. vs@mbl.is
Spænskar
konur semja
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hafnfirðingurinn Kári Jónsson
mun í kvöld leika fyrsta landsleik
sinn í eitt og hálft ár þegar Ísland
mætir Kósóvó í forkeppni HM í
körfuknattleik eins og fjallað er
um í greininni hér fyrir ofan.
Kári lék síðast gegn Portúgal
síðsumars 2018 en eftir það tóku
við aðgerðir á hásin og fjarvera
vegna þeirra. „Ég er virkilega
spenntur og finnst svakalega
skemmtilegt að fara í landsliðs-
treyjuna aftur og að vera kominn
yfirhöfuð út á völl á ný. Ég ætla að
njóta þess,“ sagði Kári þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í
gær þar sem hann var í rútu á leið
á æfingu.
Miklar breytingar hafa orðið á
íslenska liðinu og ofan á það bætist
að nú eru einnig mikil forföll. Kári
leynir því ekki að erfitt sé að segja
til um hversu fljótir menn verða að
finna taktinn á vellinum. „Það gæti
pottþétt tekið tíma. Margar breyt-
ingar hafa orðið á hópnum og
stuttur tími til undirbúnings. En
við þekkjum hins vegar vel hver til
annars og þekkjum styrkleikana og
veikleikana. Við vitum hvernig við
viljum spila og við verðum bara að
hafa gaman af þessu. Vonandi
náum við í stigin.“
Erfitt að lesa andstæðinginn
Kósóvó er að sumu leyti svolítið
sérstakur andstæðingur að mæta.
Tiltölulega stutt er síðan ríkið fór
að tefla fram eigin liðum eftir að
það lýsti yfir sjálfstæði árið 2008.
Landsliðin eru þar af leiðandi
skammt á veg komin í uppbygg-
ingu sinni en á móti kemur að
þekkingin á íþróttinni og bolta-
greinum almennt er geysilega mik-
il á þessum slóðum.
„Við höfum stúderað liðið eins
og hægt er en landsliðið er með
nýjan þjálfara og verða þetta
fyrstu leikirnir undir hans stjórn.
Þess vegna er erfitt að skoða liðið
en við höfum skoðað einstak-
lingana nokkuð vel og reynum að
undirbúa okkur eins vel og við get-
um. Þetta eru hörkugóðir leikmenn
og við erum spenntir að mæta
þeim. Þeir eru með bakvörð sem
virðist vera þeirra aðalmaður í
sókninni og við þurfum að stöðva
hann. Auk þess eru þeir með há-
vaxinn mann sem er frá Bandaríkj-
unum og þetta verður spennandi
verkefni.“
Mannvirki í minni kantinum
Kári segir ekki hægt að tala um
keppnishöll í hefðbundnum skiln-
ingi í Kósóvó. Þar urðu menn fyrir
því að þeirra helsta keppnismann-
virki brann fyrir einhverjum árum
og keppt verður í íþróttahúsi þar
sem íburður er lítill.
„Já við höfum náð nokkrum æf-
ingum í húsinu. Þetta er fínt og það
er bara krefjandi að venjast gólfinu
og fleiru,“ sagði Kári ennfremur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann hefur leikið 10 A-landsleiki
en síðast þegar hann lék með
landsliðinu skoraði Kári ellefu stig
í röð í þriðja leikhluta og verður
vonandi við sama heygarðshornið í
kvöld.
Fyrsti landsleikur Kára í 17 mánuði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snýr aftur Kári Jónsson klæðist landsliðstreyjunni á ný í kvöld.