Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir Ís- landssjóða högnuðust um 10,4 millj- arða króna á árinu 2019 sem er um 5,1 milljarði meira en árið 2018 og hefur hagnaður sjóðanna því hækk- að um 97% milli ára, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Þar segir að allir verðbréfa- og fjárfestingra- sjóðir skiluðu jákvæðri raunávöxtun í fyrra. Jafnframt skilaði hlutabréfasjóð- urinn IS EQUUS Hlutabréf bestu ávöxtun slíkra sjóða á landinu og voru fleiri sjóðir Íslandssjóða í efsta sæti í sínum flokki á landsvísu sam- kvæmt flokkun Keldunnar. Verð- mæti í eignastýringu Íslandssjóða, sem eru dótturfélag Íslandsbanka, námu 309,1 milljarði króna við árslok 2019 sem er 42,6 milljörðum meira en við árslok 2018. Nam hagnaður Íslandssjóða 436 milljónum króna í fyrra sem er 57% meiri hagnaður en árið 2018. Hreinar rekstrartekjur jukust um 17% milli ára og voru þær 1,7 millj- arðar í fyrra og voru rekstrargjöld svipuð milli ára eða rúmlega millj- arður króna. „Árið 2020 fer einnig vel af stað en margt bendir til að ávöxtun skulda- bréfa verði lægri í ár en hún hefur verið undanfarið. Því eru viðskipta- vinir að dreifa sparnaði sínum á milli eignaflokka og velja bæði erlenda og innlenda hlutabréfasjóði í bland við skuldabréf og innlán. Eignadreifing er alltaf skynsamlegur kostur í sparnaði sem hugsaður er til lengri tíma,“ segir Kjartan Smári Hösk- uldsson, framkvæmdastjóri Íslands- sjóða, í tilkynningunni. Morgunblaðið/Hari Vöxtur Kjartan Smári Höskuldsson kveðst ánægður með árangurinn. Hagnaður Íslands- sjóða jókst um 97%  Um 309 millj- arðar í eignastýr- ingu hjá sjóðunum BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Gagnaversfyrirtækið Etix Every- where Borealis hefur verið í umfangs- mikilli uppbyggingu á síðustu miss- erum og lauk félagið framkvæmdum á síðasta ári á Blönduósi og á Fitjum í Reykja- nesbæ. Sam- kvæmt samtali Morgunblaðsins við Björn Brynj- úlfsson, fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, þá reisti félagið sex gagnaversbygg- ingar á Blönduósi auk skrifstofu- og aðstöðuhúsnæðis, en á meðfylgjandi mynd má virða fyr- ir sér uppbygginguna. Samhliða uppbyggingunni lauk fé- lagið jafnframt á síðasta ári við um tveggja milljarða króna fjármögnun vegna hennar. Björn segir að fjár- mögnunin sé jafnframt liður í áfram- haldandi vexti á báðum þeim stöðum þar sem félagið er með starfsemi, og hafi að mestu leyti farið fram í gegn- um erlenda fjárfesta. Etix Everywhere Borealis er hluti af alþjóðlega gagnaversfyrirtækinu Etix Everywhere sem hannar, byggir og rekur gagnaver í fremstu röð í heiminum. Næsti áfangi hafinn Björn segir að undirbúningur að næsta áfanga á Blönduósi sé nú þegar hafinn og fyrsta fasa í þeirri upp- byggingu sé nú að ljúka. Þar verði lögð áhersla á gagnageymslu og ofur- tölvurekstur. Hann segir að bæjar- félagið sé ákjósanlegur staður fyrir gagnaver. Svæðið búi við örugga af- hendingu orku, jarðfræðileg skilyrði séu góð og hættan á umhverfisvá mjög lítil. Fyrstir á tveimur stöðum Í kynningarmyndbandi fyrir gagnaverið má sjá að það, sem tók að- eins fjóra mánuði að reisa frá því að fyrsta skóflustunga var tekin og þar til það var fullreist, er m.a. búið full- komnu kælikerfi og sömuleiðis vönd- uðu eftirlitskerfi allan sólarhringinn. Þá kemur fram í myndbandinu að í gagnaverinu séu staðsettir tuttugu og fimm þúsund miðlarar (e. Servers). Björn segir að Etix Everywhere Borealis hafi á síðasta ári orðið fyrsti stórnotandinn sem tengdist flutn- ingskerfi Landsnets á tveimur stöð- um og hafi einnig gert orkukaupa- samninga við Landsvirkjun, Orku náttúrunnar og HS Orku. Etix Everywhere var nýlega keypt af Vantage Data Centers sem er leið- andi fyrirtæki í gagnaverslausnum fyrir vel þekkt stór alþjóðleg tölvu- fyrirtæki (e. Hyperscalers), skýja- þjónustuaðila og alþjóðleg stórfyrir- tæki. Vantage áformar í framhaldinu að fjárfesta fyrir um tvo milljarða Bandaríkjadala í verkefnum í Evr- ópu. Uppbygging næsta áfanga er hafin á Blönduósi Upplýsingatækni Gagnavershúsin sex á Blönduósi auk skrifstofubyggingar og tengigangs. Uppbygging » Etix Everywhere var nýlega keypt af Vantage Data Centers sem er leiðandi fyrirtæki í gagnaverslausnum fyrir vel þekkt stór alþjóðleg tölvufyrir- tæki (e. Hyperscalers), skýja- þjónustuaðila og alþjóðleg stórfyrirtæki. » Blönduós þykir ákjósanlegur staður fyrir gagnaver. » Sömdu í fyrra við Lands- virkjun, ON og HS Orku  Etix Everywhere Borealis stækkar enn  Tveggja milljarða króna fjármögnun Björn Brynjúlfsson ● „Þetta liggur nánast fyrir og það er ver- ið að slátra á fullu og gengur ljómandi vel. Heildartölur frá áramótum verða vænt- anlega yfir 500 tonn,“ segir Gísli Jónsson, sérgreinadýralæknir hjá MAST, spurður um heildarmagn þess lax sem hefur þurft að fara með í skyndi í slátrun vegna laxa- dauða í kvíum Arnarlax í Arnarfirði. Hann segir að nú sé farið að sjá fyrir endann á aðgerðum og mun slátrun standa fram í mars. Þorri tjónsins varð í einni kví, númer fjögur, og drápust í henni yfir 300 tonn af laxi, að sögn Gísla sem segir að klárað hafi verið upp úr henni í gær. Leiða má líkur að því að megnið af um- ræddum 500 tonnum séu laxar að þyngd fimm til sex kíló og er meðalverð þeirra samkvæmt vísitölu Nasdaq nú 62,94 norskar krónur á kíló, jafnvirði 890 ís- lenskra króna. Markaðsvirði laxins sem drapst er því tæpar 435 milljónir króna. Ekki reiknast þessi upphæð sem tap í bókum félagsins þar sem einhverjar tekjur fást fyrir laxinn. gso@mbl.is Virði laxins sem drapst um 435 milljónir króna 20. febrúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.81 127.41 127.11 Sterlingspund 165.29 166.09 165.69 Kanadadalur 95.62 96.18 95.9 Dönsk króna 18.379 18.487 18.433 Norsk króna 13.613 13.693 13.653 Sænsk króna 13.013 13.089 13.051 Svissn. franki 129.21 129.93 129.57 Japanskt jen 1.1551 1.1619 1.1585 SDR 173.27 174.31 173.79 Evra 137.32 138.08 137.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.297 Hrávöruverð Gull 1588.2 ($/únsa) Ál 1678.0 ($/tonn) LME Hráolía 57.35 ($/fatið) Brent www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra ICQC 2020-2022 STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.