Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 37

Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 37
FRÉTTIR 37Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Horfur eru á að langvinnustu og um- fangsmestu sakamálarannsókn í sögu Svíþjóðar ljúki á sumri kom- anda, þeirri sem snúist hefur um það í 34 ár hver skaut sænska forsætis- ráðherrann Sven Olof Joachim Palme til bana á gatnamótum Sveavägen og Tunnelgatan í höfuð- borginni Stokkhólmi að kvöldi 28. febrúar 1986. „Ég reikna með að geta greint frá atburðarás þessa máls og hver var ábyrgur,“ sagði Krister Petersson, stjórnandi fimm manna rannsóknar- teymis sænsku lögreglunnar, í þætt- inum Veckans brott í sænska ríkis- útvarpinu SVT á þriðjudag. Krister Petersson rannsóknarlög- reglumaður er býsna nálægt því að vera alnafni Christer Pettersson, manns sem Lisbet Palme, ekkja ráð- herrans, taldi sig, ásamt fleiri sjónarvottum, hafa séð á vettvangi ódæðisins. Pettersson þessi, sem lést árið 2004, var þekktur óreglumaður sem áður hafði hlotið dóm fyrir að stinga mann til bana með byssusting árið 1970. Sýknaður á efra dómstigi Pettersson var sakfelldur í hér- aðsdómi sumarið 1989 fyrir að skjóta Palme til bana en var sýknaður á efra dómstigi í nóvember sama ár vegna skorts á sönnunargögnum og mistaka við sakbendingu. Sjálfur neitaði Pettersson að hafa verið staddur fyrir utan kvikmyndahúsið Grand kino kvöldið örlagaríka, þar sem mörg vitni sáu hann engu að síður. Lögreglan var þar með aftur á byrjunarreit og enduðu ótal vísbend- ingar frá almenningi í sífelldum blindgötum. Grunurinn gagnvart Pettersson varð kveikjan að einu ákærunni sem enn hefur litið dags- ins ljós í málinu. Látinn maður undir grun Petersson rannsóknarlögreglu- maður, sem farið hefur með rann- sóknina síðan 2017, telur þó að nú rofi til. „Ég er bjartsýnn. Við höfum unnið sleitulaust. Við höfum vísbend- ingar sem við teljum áreiðanlegar,“ sagði hann í þættinum. Sænska dagblaðið Aftonbladet fjallar um málið og segir böndin nú berast að manni sem er látinn. Sá hafi vakið athygli rannsakenda á fyrri stigum málsins en ekkert orðið úr. Þessu vildi Petersson hvorki játa né neita í samtali sínu við SVT. Hvað sem verður munu fimm- menningarnir, Palme-hópurinn svo- kallaði, að öllum líkindum loka rann- sókninni á þessu ári. „Vel má vera að við séum komnir eins langt og kom- ist verður og að frekari rannsóknir færi okkur ekki neitt. Við eygjum einn möguleika, en ég vil ekki spá neinu um hvað það verður sem við leggjum fram áður en árið er hálfnað,“ sagði Petersson að lokum. Hillir undir lausn Palme-gátunnar  Reikna með að loka málinu í sumar  Rannsóknarhópurinn segist hafa áreiðanlegar vísbendingar AFP Minning Þessi skjöldur markar staðinn þar sem Palme var myrtur. Yfirvöld í Japan hófu í gær rýmingu skemmti- ferðaskipsins Diamond Princess, er verið hefur í sóttkví frá 3. febrúar síðastliðnum. Fengu 500 af þeim 3.711 manns sem um borð 621 í heildina. Japönsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir það hvernig þau héldu á málum skipsins, en gert er ráð fyrir að rýmingin muni taka um þrjá daga í viðbót. voru að yfirgefa skipið eftir að búið var að stað- festa að þeir hefðu ekki smitast af kórónuveir- unni. Hins vegar var einnig tilkynnt að 79 tilfelli til viðbótar hefðu greinst um borð, en þau eru AFP Fá loks að yfirgefa skemmtiferðaskipið Rússar höfnuðu í gærkvöldi tillögu sem bera átti fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, þar sem kallað var eftir því að allar stríð- andi fylkingar legðu niður vopn. Ákvörðun Rússa kom í kjölfar þess að stjórn- völd í Tyrklandi og Rússlandi skiptust á hót- unum vegna ástandsins í landinu. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hótaði m.a. „yfirvofandi“ hernaðaraðgerðum Tyrkja í Sýrlandi til þess að stemma stigu við stórsókn sýr- lenska stjórnarhersins gegn Idlib- héraði, síðasta vígi uppreisnar- manna í landinu. Sögðu rússnesk stjórnvöld á móti að aðgerðir gegn stjórnarher Sýr- lands myndu hafa alvarlegar afleið- ingar. Höfnuðu vopnahléi ör- yggisráðsins Recep Tayyip Erdogan Stefaan de Rynck, einn helsti ráðgjafi Michels Barniers, samningamanns Evrópusambandsins, sagði í gær að sambandið ætti von á enn erfiðari við- ræðum við Breta um fríverslunar- samning við sambandið en þeim sem leiddu til útgöngu Breta úr því um síðustu mánaðamót. Sagði de Rynck að Bretar yrðu að fylgja sumum af reglugerðum sam- bandsins ef þeir vildu tryggja sér samning fyrir næstu áramót, sem er sá tímafrestur sem Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur sett. Ummæli De Rynck féllu á fyrir- lestri hans við London School of Economics, og sagði hann þar vand- kvæðin meðal annars stafa af því að lagalegar hliðar fríverslunarsamn- ings væru mun fleiri en þær sem þurfti að leysa við skilnað Breta frá sambandinu. Breyti forsendum eftir á Reglur Evrópusambandsins munu gilda í Bretlandi fram til næstu ára- móta, og hefur Johnson þvertekið fyrir að sá tímarammi verði fram- lengdur. Þá gaf Johnson í skyn á sam- félagsmiðlinum Twitter að sambandið væri að reyna að breyta forsendum viðræðnanna eftir á, með því að reyna að tengja fríverslunarsamninginn við fylgispekt Breta gagnvart reglum Evrópusambandsins, þrátt fyrir að Barnier hefði sjálfur lýst því yfir að eini valkostur Breta væri fríversl- unarsamningur á borð við þann sem Kanada fékk við sambandið. Barnier mótmælti „tísti“ Johnsons hástöfum, en aðalsamningamaður Breta, David Frost, lýsti því yfir fyrr í vikunni að tilgangur útgöngunnar væri sá að losa Breta undan reglu- gerðafargani ESB, og að frá því yrði ekki vikið. Segir viðræður verða erfiðar  Barnier kvartar undan „tísti“ frá Boris Johnson AFP Brexit Fram undan eru erfiðar frí- verslunarviðræður vegna Brexit.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.