Morgunblaðið - 20.02.2020, Page 42

Morgunblaðið - 20.02.2020, Page 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu Gæða kjötvörur Gefðu elskunni þinni gott að borða á konudaginn Á árum áður voru vöru- og fólksflutn- ingar með skipum oft eini kosturinn sökum lélegra vega og erf- iðleika við að halda þeim opnum. Strand- siglingar voru þess vegna burðarás allra flutninga umhverfis landið í marga ára- tugi. Lengst af var þeim sinnt af Skipaútgerð ríkisins sem var stofnuð 1929. Starfsemi hennar var hins vegar lögð niður 1992, og í kjölfarið (1994) var verð- lag á flutningaþjónustu gefið frjálst. Það leiddi af sér, að margir hófu flutninga með stórum flutn- ingabílum eftir vegakerfinu, og stóru skipafélögin, Eimskip og Samskip, tóku upp takmarkaðar strandsiglingar. Þeim var hins veg- ar hætt upp úr aldamótum 2000. Takmarkaðar strandsiglingar hóf- ust að nýju 2013, og eru nú fluttir um 10 til 12 þúsund 40 feta gámar árlega. Það eru margar ástæður fyrir því, að strandflutningar eru mun betri kostur heldur en flutningar á landi. Það á þó aðallega við um þann farm sem ekki er háður þröngum tímatakmörkunum. Flutningur sjóleiðina á matvælum, allskonar smávöru og póstsend- ingum getur verið heppilegur, en aðeins að mjög takmörkuðu leyti. Fiskur til vinnslu eða útflutnings þolir ekki langan flutningstíma og verður sennilega að mestu leyti fluttur landleiðina. Þegar litið er á heildarmagn flutninga, er engu að síður ljóst, að stærsti hluti vöru- flutninga getur farið sjóleiðina. Þegar mengun frá skipum og flutningabílum er borin saman má segja að út frá sjónarmiðum olíu- notkunar og losunar á koltvíoxíði, sé 8 til 10 sinnum hagkvæmara að flytja eitt tonn af varningi um einn kílómetra með skipi. Nýr vörubíll kostar 25 miljónir króna og getur flutt einn 40 feta gám. Nýtt 100 m skip kostar um 2.500 miljónir, en getur flutt 200 stk. 40 feta gáma. Skipið flytur þannig tvöfalt meira miðað við fjárfestingu. Viðhalds- kostnaður sem hlutfall af fjárfestingu er mun lægri fyrir skipin, líf- tími miðað við fjár- festingu mun lengri og launakostnaður er einnig talsvert minni. Áhugamannahópur hefur unnið að þessu verkefni, er lýtur að því að koma á öflugum strandsiglingum aftur, og hefur valið að nota til þess tvö skip. Eitt 100 m skip sem kemur við á 7 til 8 höfnum í vikulegum siglingum umhverfis landið. Annað 80 m skip sem siglir norður fyrir land (réttsælis) frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði, snýr við og siglir til baka til Reykjavíkur (rangsælis). Það skip gæti haft við- komu á 20 til 25 höfnum eftir þörf- um, og myndi hver ferð taka um tvær vikur. Þetta yrðu afar vel útbúin skip og sjálfbjarga að langmestu leyti. Skipin þurfa að hafa mikið vélarafl, vera búin tvöföldum skrúfubúnaði og hafa fullkomna stjórnhæfni við erfiðar aðstæður í slæmum veðr- um. Þessi skip gætu einnig verið liður í því að tryggja öryggi sjófar- enda, ekki síst vegna þess að þau eru alltaf á ferðinni meðfram allri strandlengjunni. Þau gætu komið sér afar vel til þess að koma alls- konar varningi til staða, þegar færð og veður hamla landflutn- ingum. Mögulegt er að haga hönn- un og búnaði skips þannig, að það geti aðstoðað vélarvana skip, jafn- vel mun stærri skip eins og far- þegaskip, hafa þyrlupall aftast á skipinu er tekur stærstu þyrlur sem mætti hafa tilbúnar á 2 til 3 tímum og vera með eldsneytis- birgðir. Skýrslur hafa verið gerðar um hagkvæmni og áhrif strandsigl- inga. Hópurinn vil benda á tvær þeirra sem umtalsverð vinna var lögð í. Annars vegar skýrsla frá nemendum í flutningafræðum við HR, unnin fyrir samgöngu- ráðuneytið og birtist 25. maí 2010. Niðurstaða þeirrar skýrslu var þessi: Strandsiglingar eru álitlegur kostur miðað við þær forsendur sem nemendur gefa sér, og nægj- anlegt flutningsmagn virðist vera til staðar. Þá vann VSO Ráðgjöf skýrslu um álag á vegakerfið fyrir Vegagerðina , sem skilað var í ágúst 2016. Helstu niðurstöður hennar eru: Eftir að strandsigl- ingar hófust 2013 varð greinilegur samdráttur í fjölda þungra bíla í vegakerfinu. Í þessu sambandi má taka það fram, að slitálag á vegum er metið þannig, að álag vex í fjórða veldi miðað við öxulþunga. Það merkir að tíu tonna öxull slítur á við 10.000 eins tonns öxla. Þetta þýðir að verulegar upphæðir gætu sparast í viðhaldi vegakerfisins. Sú áætlunargerð sem nú er unn- ið að er byggð á enn víðtækari möguleikum en hingað til hafa ver- ið skoðaðir. Vilji skipafélaganna til samstarfs hefur verið kannaður, þá aðallega að þau nýti sér skipin til að sinna vöruflutningum innan- lands. Bæði stóru skipafélögin hafa sýnt jákvæð viðbrögð og eru þau aðalforsenda þess að reksturinn geti gengið upp. Mikið magn af sorpi er flutt um vegakerfið. Þetta er sorp til urðunar eða til hafnar í skip til útflutnings. Eitt olíufélag- anna hefur sýnt þessu verkefni áhuga og tjáð að það myndi vilja flytja alla sína olíu til landsbyggð- arinnar með skipi, væri það í boði. Þetta kallar hinns vegar á sér- stakar ráðstafanir þar sem víðast er búið að fjarlægja olíugeyma við hafnir. Jafnframt er umtalsvert magn af öðrum varningi sem hent- ar til sjóflutninga, eins og áður er sagt. Allur varningur sem þolir lengri flutningstíma. Strandflutningar Eftir Stefán Guðsteinsson » Þegar mengun frá skipum og flutn- ingabílum er borin sam- an má segja að út frá sjónarmiðum olíu- notkunar og losunar á koltvíoxíði sé 8 til 10 sinnum hagkvæmara að flytja eitt tonn af varn- ingi um einn kílómetra með skipi. Stefán Guðsteinsson Höfundur er skipatæknifræðingur og áhugamaður um strandsiglingar. Nýlega vakti Árni Stefán Árnason dýra- lögfræðingur athygli á því, að hér á Íslandi er stunduð starfsemi, sem undirritaður vildi kalla „óiðju“, en hún snýst um það, að 95 bændur halda um 5.000 hryssur, svokall- aðar blóðmerar, sem blóði er tappað af í slíkum mæli, að saman koma um 170.000 lítrar. Við höfum skoðað þetta mál og fengið heimildir og upplýsingar víða að, auk umfangsmikilla upplýsinga frá Matvælastofnun, MAST. Þetta blóðmerahald fer einkum fram í Suður-Ameríku, en þar er dýravernd takmörkuð. Í flestum ríkjum Evrópu fyrirbyggja reglur og lög um dýravernd þessa blóðmeraiðju. Hér virðist Ísland því hryggileg undantekning; hér fer þessi starf- semi fram, og það í þessum ótrúlega mæli, og hefur gert í 40 ár, þó að hér gildi lög, í síðasta lagi frá 2013 (nr. 55/2013), sem hefðu átt að fyrir- byggja þessa óiðju. Blóðmerastarfsemin hér byggist á því, að bændur halda að 50-60 hryssur, allt hálfvillt útigangshross, sem gerðar eru fylfullar í byrjun sumars, svo hefst blóðtaka af dýr- unum, með því að opnuð er æð á hálsinum, í lok júlí. Blóði er síðan tappað af hryss- unum vikulega, 5 lítrum í senn, 7-8 sinnum, fram í lok september. Er þá búið að tappa jafnmiklu blóði af hverri hryssu og nemur heildar- blóðmagni dýrsins. Ef t.a.m. „Blutfarmen“ eða „Blutstuten“ er slegið inn á Google, koma ýmis myndbönd sem hafa ver- ið gerð af þessari starfsemi í Suður- Ameríku. Aðfarirnar – ofbeldi og fantaskapur við dýrin – eru oft á slíku stigi að manni verður illt af áhorfi, enda eru þetta oftast hálfvillt eða villt dýr sem eru stygg, fælin og hrædd í eðli sínu. Fyrst þarf að koma hryssunum í svokallaða blóðtökubása. Streitast dýrin auðvitað á móti og er þá beitt raflosti og bareflum, að ótöldum höggum og spörkum, til að koma hryssunum í bás, eins og mynd- böndin sýna. Þá þarf að tryggja, að dýrið sé grafkyrrt, svo að hægt sé að opna hálsæð og tappa blóði af. Sum dýrin reyna að slá frá sér með afturfót- unum. Er þá (í Suður-Ameríku, sennilega líka hér), járnslá skotið þvert fyrir dýrið aftanvert, til að festa það. Sum dýr reyna samt að slá og geta þá stórskaðað sig á slánni. Sumar hryssur reyna að prjóna upp úr básnum. Er þá slá skotið þétt yfir bakið eða dýrið reyrt niður með reipum. Líka hér. Sum dýr reyna að forða sér með því að leggjast niður. Er þá prikum eða stöngum beitt, jafnvel á kynfæri dýranna, til að knýja þau á fætur. Nú þarf að reyra höfuð dýrsins svo rækilega, að það geti ekki hreyft það. Þarf ekki að fjölyrða um, hvílíkt andlegt og líkamlegt ofbeldi þetta allt er gagnvart dýrunum. Hér á Íslandi er húð hryssa stað- deyfð fyrir blóðtöku. Það munu vera eiðsvarnir dýralæknar sem fram- kvæma aðgerðina. Okkur finnst það lítil sjálfsvirðing, starfsvirðing og virðing við dýrin! Og til hvers er svo öll þessi gegndarlausa blótaka af lifandi dýr- um? Hryssurnar framleiða hormónið PMSG (Pregnant Mare‘s Serum Gonadotropin), sem fer að mælast 35-40 dögum eftir að merin var gerð fylfull og styrkist horm- ónið fram að 60. degi. Er fylgst með styrk hormóns með því að blóð er tekið endurtekið úr flipa hryssunnar, sem varla er þægilegt fyrir dýrið, og þegar hormónið er orðið nógu sterkt, hefst vikuleg blóðtaka. Fer hún yf- irleitt fram frá 50. degi meðgöngu til 100. dags. Merar ganga með fol- aldið í tæplega 340 daga og fer því bóðtakan aðeins fram fyrsta þriðj- ung meðgöngu, en eftir það minnkar styrkur hormónsins, þannig að blóð- taka borgar sig ekki lengur. Fullyrt er að í Suður-Ameríku séu oft framkvæmdar fóstureyðingar hjá hryssunum eftir 100 daga, oft með heiftarlegu ofbeldi, þar sem fylgjan er rifin með handafli, til þess að hægt sé að gera hryssuna aftur fylfulla. MAST staðhæfir að blóðmera- bændur hér framkvæmi ekki fóstur- eyðingu til að auka meðgöngutíðni og blóðframleiðslu. Fylgifiskur blóðmerahaldsins er „offramleiðsla“ á folöldum, sem fara þá í sláturhús að hausti. 4.500 folöld- um var slátrað að hausti í hittifyrra. PMSG-hormónið er svo notað í frjósemislyf fyrir fjöldadýrahald og fjöldaframleiðslu kjöts. Er það eink- um gefið svínagyltum, til að gera þær frjósamari; náttúrulegur tíða- hringur gyltu er rofinn og þannig hægt að sæða hana aftur og aftur, með minnsta mögulegu millibili, sem tryggir tíðari meðgöngu gylta og fleiri grísi; stuðlar frjósemislyfið þannig að stóraukinni kjötfram- leiðslu og auknum hagnaði þess iðn- aðar. Fyrir gylturnar þýðir þetta hins vegar stóraukið andlegt og lík- amlegt álag; þær fá ekki nátt- úrulegan hvíldartíma milli með- gangna. MAST veitir grunnleyfið fyrir blóðmerastarfseminni og byggir leyfisveitinguna á „reglugerð um dýratilraunir“ nr. 279/2002. Í augum okkar Jarðarvina er þetta fáránleg útlegging á þessari reglugerð, alveg út í hött, en hér er um fjöldafram- leiðslu á blóði, 170 tonn á ári, að ræða, en tilgangur reglugerðarinnar hljóðar: „Markmið reglugerðarinnar er að tryggja velferð dýra sem notuð eru í tilrauna- og vísindaskyni eða alin í þeim tilgangi“. Reglugerðin gildir semsagt aðeins um dýratilraunir og velferð þeirra dýra sem í slíkri ógæfu lenda. MAST þurfti að leita til „Fagráðs um dýravelferð“ til að geta veitt þetta leyfi. Fagráðið gegnir því meg- inhlutverki, lögum samkvæmt, að tryggja velferð dýra. Hvernig gat ráðið þá gefið grænt ljós á það aug- ljósa dýraníð sem blóðmeraiðjan er!? Ruglaðist ráðið kannski á til- gangi sínum og hlutverki; taldi, að það væri fagráð um bændavelferð; ekki dýravelferð? Fyrir okkur eru þetta forkastan- leg vinnubrögð – svik við skyldur og ábyrgð auk brota á reglugerðum og lögum – sem við munum leitast við að láta reyna á. 170.000 lítrum af blóði tappað af hryssum Eftir Ole Anton Bieltvedt Ole Anton Bieltvedt »Markmið laganna er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hung- ur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma. Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.