Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 • Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að mikið álag sé á lifrinni. • Lifrin er allt í senn; vinnslustöð, geymsla og dreifingarmiðstöð því allt sem við látum í okkur eða á, fer í vinnsluferli í lifrinni. • Lifrin sinner yfir 100 mismunandi störfum í líkamanum og tengist hún beint eða óbeint allri líkamsstarfseminni. • Active Liver inniheldur kólín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar og eðlilegum efnaskiptum. Auk þess inniheldur það ekstrakt frá mjólkurþistil, túrmerik, þistilhjörtum og svörtum pipar. Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Léttu lifrinni lífið Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Það er endalaust hægt að fara inn í tónlistina hans á mismunandi þroskaskeiðum og upp- götva eitthvað nýtt,“ segir tónlistarkonan Magga Stína um tónlist Megasar - Magnúsar Þórs Jónssonar - sem hún flytur í Eldborg næstkomandi laugardag. Um er að ræða sann- kallaða stórtónleika sem hefjast kl. 20. Á tónleikunum mun heyrast þverskurður af tónlistararfi Megasar en Magga Stína hefur áður flutt lög hans og er tónlist hans henni mjög kær. Hún minnist þess að hafa hlustað á tónlist Megasar frá því að hún man eftir sér og í raun segist Magga Stína hafa lært eitt og annað um þessa veröld sem við búum í í gegn- um tónlist Megasar. „Vegna þess að hann neyðir mann til þess að hugsa út frá öðrum víddum eða sjónarhornum. Jafnvel að horfast í augu við sjálfan sig þar sem hann er alveg ofboðslega óhræddur við að lýsa brestum. Hann hefur verið úthrópaður einkum og sér í lagi fyrir það að hann speglar svo brestina í samfélagi sínu. Það er mjög óþægilegt fyrir samfélög,“ segir hún. Súrrealískir textar Magga Stína minnist þess að hafa jafnvel fundið hjá sér fyrsta vísinn að skilningi á sam- bandi orsaka og afleiðinga í gegnum lag Meg- asar um minni Ingólfs Arnarsonar. Lagið ætl- ar hún að flytja á tónleikunum. „Tónlist Megasar var mikið spiluð heima hjá mér, allt frá upphafi ferils hans og minnar æsku. Ég man skýrt eftir einu mögnuðu augnabliki þegar ég var mjög ung, kannski fimm, sex ára og heyrði einu sinni sem oftar lagið „Um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnar- sonar“ og allt í einu átta ég mig á því sem mað- urinn er raunverulega að segja í lok lagsins. „Við minnumst Ingólfs Arnarsonar í veislum en óskum þess að skipið hans það hefði sokkið.“ Þetta var staða sem ég hafði ekki get- að séð fyrir, að skip Ingólfs Arnarsonar land- námsmanns hefði vel getað sokkið og hvað þá? Þetta vakti verulega skelfingu innra með mér.“ Sem dæmi um fleiri lög sem flutt verða á tónleikunum má nefna tvo af Passíusálmum Hallgríms Péturssonar en Megas hefur samið lög við sálmana og flutt þá með viðhöfn, þó nokkrum sinnum í gegnum tíðina. „Við munum flytja lög vítt og breitt af hans höfundarferli,“ segir Magga Stína. „Megas er hreint út sagt ótrúlega flinkur í textum sínum og tónlist og þá einkum og sér í lagi í eigin túlkun á þeim, við að staðsetja mann óvænt, láta manni bregða, hvar sem maður er staddur í tilverunni og neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig á annan hátt en maður jafnvel kýs og skoða alveg sérstaklega vel litlu núansana. Hann setur hluti í annað samhengi, hvort sem hann fjallar um mann- lega kosti eða bresti, Íslandssöguna, gildismat eða samfélagslegan veruleika.“ Nýir fletir skjóta upp kollum Spurð hvort hún eigi sér einhver uppáhalds- lög eftir Megas segir Magga Stína: „Í raun og veru verður alltaf eitthvað nýtt og nýtt að uppáhaldi. Það sem er svo einkennandi við tón- list Megasar er að uppáhaldslögin manns lifna alltaf aftur við. Þau koma aftur upp á öðrum tíma og maður finnur nýjan flöt á þeim. Maður getur uppgötvað lög eftir hann upp á nýtt á hvaða þroskaskeiði sem maður er staddur á. Ég skil tónlistina hans á annan hátt nú en þeg- ar ég var barn. Hún hefur aðra þýðingu vegna þess að maður er búinn að ganga í gegnum eitthvað.“ Tónlistarfólk úr ýmsum áttum mun troða upp ásamt Möggu Stínu. „Þetta er dásamlegt, nánast ógnvekjandi. Það er náttúrulega alveg stórkostlegur hópur fólks sem ætlar að koma að þessu með mér,“ segir hún um þann mikla fjölda fólks sem mun mæta með henni í Eld- borg. Hljómsveit Möggu Stínu verður skipuð þeim Tómasi Jónssyni, Matthíasi Hemstock, Jakobi Smára Magnússyni og Daníel Friðrik Böðvarssyni. Didda mun svo syngja við hlið Möggu Stínu, Sigrún Eðvaldsdóttir mun leika á fiðluna sína og Bjöggi Gísla á hljóðfærið sitt leyndardómsfulla, sítar. Hvorki meira né minna en þrír kórar munu taka þátt í herleg- heitunum, Vox Populi, Söngfélagið og Kammerkór Suðurlands. Hilmar Örn Agnars- son fer með kórstjórn þeirra allra. Sömuleiðis treður brasssveitin Látún upp á tónleikunum en hún er sjö hljóðfæra brasssveit sem flokka mætti sem jaðarsveit og segir Magga að ekk- ert eigi betur við þegar verk eftir Megas eru flutt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tónlist Megasar abstrakt málverk  Magga Stína og hljómsveit flytja þverskurð af tónlistararfi Megasar í Eldborg  Þrír kórar og fjöldi tónlistarfólks  „Ég skil tónlistina hans á annan hátt nú en þegar ég var barn,“ segir hún Á æfingu Magga Stína með Tómasi Jónssyni, Diddu, Daníel Friðrik Böðvarssyni, Jakobi Smára Magnússyni og Matthíasi Hemstock á æfingu. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna fagnar á þessu ári 30 ára afmæli sínu með margvíslegum hætti. Fyrstu tónleikar ársins verða haldn- ir í Seltjarnarneskirkju laugar- daginn 22. febrúar kl. 16. „Þar verð- ur fagnað velgengni íslenskra kventónskálda með því að rifja upp nokkrar perlur fyrri alda sem konur hafa lagt til tónbókmenntanna en legið hafa í þagnargildi mestallan tímann síðan þau voru samin,“ segir í tilkynningu frá sveitinni. Á efnisskránni er forleikur eftir Fanny Mendelssohn (1805-1847), fiðlukonsert eftir Joseph Bologne, Chevalier de St. Georges (1745- 1799), Andante fyrir klarínett og hljómsveit eftir Alice Mary Smith (1839-1884) og Sinfóníu nr. 7 eftir Emilie Mayer (1812-1883). „Allt gull- falleg verk sem eiga fullt erindi á tónleikaskrár hljómsveita nútímans. Þrjú verkanna hafa aldrei verið flutt á Íslandi fyrr.“ Einleikari í fiðlukonsertinum er Guðbjartur Hákonarson og í verki Alice Mary Smith leikur Ármann Helgason einleik á klarínett. „Stjórnandi á tónleikunum er Hall- fríður Ólafsdóttir en hún er einmitt ein af tónlistarkonum Íslands sem hafa getið sér gott orð í hinum al- þjóðlega heimi tónlistarinnar. Þjóðarhljómsveitin í Úrúgvæ hefur boðið henni að koma og stjórna, fyrst og fremst verkum kvenna, meðal annars eftir Jórunni Viðar sem Hallfríður stjórnaði nýverið með Sinfóníuhljómsveit Norður- lands. Hluti efnisskrárinnar hljómar nú með Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni. Týndar gersemar í Seltjarnarneskirkju  Hljómsveitin fagnar 30 ára afmæli Gleði Stjórnandinn Hallfríður Ólafsdóttir ásamt einleikaranum Guðbjarti Hákonarsyni fiðluleikara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.