Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 Nú loks kom ég því í verk.Ég var rétt kominn afunglingsaldri þegar ég sagði mig úr þjóðkirkjunni. Ekki vegna þess að ég hefði á henni andúð. Ég vildi einfaldlega standa utan allra trúarstofnana. Til að skýra hughvarf mitt þarf að gera grein fyrir nokkrum þráð- um sem síðan koma saman í þess- ari ákvörðun. Eins mótsagnakennt og það kann að hljóma sem skýring á því að ganga í kirkjuna, þá hef ég varað við því að trúvæða þjóðlífið um of. Á heimsvísu hefur það einmitt ver- ið að gerast, ekki til að sameina fólk heldur til að sundra því! Á ráð- stefnu um mann- réttindamál hlust- aði ég á breskan mann segja frá því að í æsku hans hefðu menn iðu- lega vikið að pak- istönskum uppruna hans ef menn vildu segja eitthvað ljótt og niðrandi um hann. Í seinni tíð fengi hann hins vegar að heyra ónot um að hann væri íslamisti og ætti ekkert gott skilið. „Mikið rétt,“ sagði ræðumaður, „fjölskylda mín telst vera múhameðstrúar en aldrei hafa trúarbrögð verið ráð- andi þáttur í okkar lífi að öðru leyti en því að við höfum fylgt ýmsum almennum siðum og venjum en meira hefur það ekki verið. Það er fyrst nú í seinni tíð að við finnum fyrir því að reynt er að draga okk- ur í dilk eftir meintum trúarskoð- unum, við séum öðruvísi og vara- söm fyrir vikið.“ Samkvæmt mínum skilningi geymir kjarni flestra þróaðra trúarbragða svipuð gildi og lífs- sannindi, og ef vilji er fyrir hendi gætum við auðveldlega sameinast um þau hverju nafni sem þau nefn- ast. Þannig er margt fagurt í flest- um trúarbrögðum en manneskjunni hefur engu að síður tekist að af- skræma þau eins og margt annað. Það er ofstækið, nái það að skjóta rótum, sem getur gert trúarbrögðin ill eins og dæmin sanna. Auðvitað á hver maður að geta iðkað þá trú eða stundað þá lífs- skoðun sem hann vill. Sjálfur hef ég hins vegar viljað hafa fyrir- komulag sem dregur úr vægi trúar- stofnana í hinu veraldlega lífi en styrkir jafnframt hin hófsömu og velviljuðu öfl innan trúarbragð- anna. Og ekki er það til að styrkja hina hófsömu að gera þeim að eiga í stöðugu samkeppnisstríði um sál- irnar við harðdræga upphróp- unarsöfnuði. Þorgeir Ljósvetn- ingagoði bauð ekki upp á fjöltrúarlausn í tillögum sínum á Alþingi árið eitt þúsund þegar hann kom í veg fyrir blóðugt upp- gjör á milli kristinna manna og heiðinna, en hann var foringi hinna síðarnefndu. Hann vildi hafa okkur öll undir sama þaki. Við skulum hafa ein lög og einn sið, annars brjótum við friðinn, var inntakið í salómonsdómi hans. Sá dómur var barn síns tíma nema að því leyti að í honum var þráður umburð- arlyndis, við skyldum vera kristin en hver maður átti að geta gert það sem hugur hans stæði til – að vísu í leyni. Nú eru bönn og leynd að baki. Þess vegna hef ég alltaf með góðri samvisku sagst vera í söfnuði Þorgeirs Ljósvetningagoða. Á Íslandi hefur þetta verið hið almenna viðhorf, fólk vill um- burðarlyndi og þá einnig umburðarlyndan sið svo við notum orðfæri goðans. Í hinni marglofuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn- arskrárdrögin árið 2012 vildi meiri- hlutinn halda þjóðkirkjunni við lýði. Á Alþingi hefur þessi vilji verið hunsaður sem kunnugt er, nú síð- ast með lagabreyt- ingu um áramótin, og þau sem líta á niðurstöður um- ræddrar þjóðar- atkvæðagreiðslu sem heilaga ritn- ingu virðast sam- mála um að gleyma þessum þætti í þjóðarvilj- anum. Ástæður þess að flestir lands- menn hafa verið í þjóðkirkjunni og hafa viljað halda í það fyrirkomulag eru af ýmsum toga, sumir af trúar- legum ástæðum, aðrir félagslegum – þarna erum við flest undir sama þaki! Kirkjan giftir og grefur og flest nýtum við þjónustu hennar óháð trúarhita. En þar nálgumst við ástæðu þess að ég ákvað í vik- unni að láta verða af því að ganga í þjóðkirkjuna. Þá hafði ég verið viðstaddur fimm jarðarfarir á litlu fleiri dög- um. Kirkjurnar voru hlýjar og notalegar, hljómur orgelanna góð- ur, kórarnir afbragð og fögur bless- unarorð. Ekki er þetta þó einhlítt. Víða hefur meira að segja reynst erfitt að halda kirkjuhúsnæðinu í sæmilegu ásigkomulagi eftir að fólk tók að segja sig úr kirkjunni fyrir nær stöðuga hvatningu í ýmsum fjölmiðlum. Hefur í mínum huga þar jaðrað við einelti. Svo er hitt að sóknargjöldin, þau gjöld sem við greiðum til viðhalds kirknanna, hafa rýrnað að verðgildi eftir að ríkið tók að hlaupast frá lagalegum skuldbindingum sínum hvað þau varðar. Sú saga teygir sig til hrunsins og hefur þetta aldrei verið leiðrétt. „Ég vil ekki borga til kirkju,“ sagði góðvinur minn við mig á dög- unum. „Það vildi ég ekki heldur,“ svaraði ég. „En svo deyr mamma manns, þá vill maður að orgelið sé í lagi. Þetta er eins og að borga til verkalýðsfélagsins,“ bætti ég við, „maður er ekki alltaf sáttur, en fé- lagið þarf að vera þarna og þá er um að gera að styrkja það og styðja til góðra verka“. Og þegar allt kemur til alls, þá er markmiðið með boðun kirkjunnar að styðja hið góða innra með okkur. Varla er það til ills í viðsjárverðum heimi. Ég gekk í þjóð- kirkjuna í vikunni ’Auðvitað á hvermaður að geta iðk-að þá trú eða stundaðþá lífsskoðun sem hann vill. Sjálfur hef ég hins vegar viljað hafa fyrirkomulag sem dregur úr vægi trúar- stofnana í hinu ver- aldlega lífi en styrkir jafnframt hin hófsömu og velviljuðu öfl innan trúarbragðanna. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 Holme 3ja sæta sófi kr.136.500 Holme stóll 79.900 nú kr. 95.550 nú kr. 55.930 Janúarútsala 10 - 50% afsláttur af öllum vörum -30% Síðustu vikur hefur gengið yfir aldafrásagna um hvað Ísland sé ömurlegtþegar kemur að því að draga fram lífið. Fram hafa komið alls kyns sögur frá fólki sem býr erlendis sem segir að við séum að gera gamla fólkinu algjörlega ómögulegt að draga fram lífið. Ísland sé dýrasta land í heimi. Engu skiptir þótt endalausar rannsóknir sýni að fá lönd hafi meiri kaupmátt og betri lífsskilyrði. Það er allt miklu betra í útlöndum. Og rökin eru sannfærandi. Við heyrum margar sögur af fólki á Íslandi sem hefur það skítt og það efast enginn um þær. Og ég veit ekki hvað ég hef heyrt margar sög- ur um fólk í útlöndum sem er bara alltaf úti að borða og það kostar nánast ekki neitt á meðan það er rándýrt á Íslandi. Flestar koma frá Spáni en líka frá Ungverjalandi. Við skulum taka þessi tvö lönd sem dæmi. Það er klárlega rétt að verðlag er mjög hátt á Íslandi og miklu lægra á Spáni. Sér- staklega þegar kemur að matvælum. Og að það er jafnvel enn ódýrara að búa í Ung- verjalandi. Skýringin liggur kannski í laun- unum. Meðallaun á Íslandi eru 5.192 evrur, á Spáni 2.244 og Ungverjalandi 1.151. Það segir okkur að laun á Íslandi séu hátt í fimm sinnum hærri en í Ungverjalandi. Nú gæti einhver sagt (og ekki í fyrsta sinn): Það er ekkert að marka meðaltöl. Við skulum þá skoða lágmarkslaunin. Lágmarkslaun á Íslandi eru 2.330 evrur (hækka í 2.438 1. apríl). Á Spáni 1.050 evr- ur, í Ungverjalandi 309. Hlutföll ellilífeyris eru svipuð. Mér segir svo hugur að það sé ekkert sérstakt að lifa af þessum launum. Svo má nefna að á Spáni eru um 14% íbúa án vinnu en 3,5% á Íslandi og Ungverja- landi. Ef við skoðum samhengi hlutanna virðist ákveðin regla vera nokkuð ljós. Þar sem laun eru hærri er dýrara að lifa. Það hefur líka verið litið á það sem eitt af lögmálum markaðarins. Einhverjir hafa brugðið á það ráð að flytja til láglaunasvæða til að hafa það aðeins betra í ellinni. Auðvitað er það skiljanlegt. Jafnvel þótt ekki væri nema bara til að losna við endalausar lægðir í janúar. Síðustu ár höfum við reynt að bregðast við því þegar erlendir ríkisborgarar, sem flytjast hingað til að vinna, fá lægri laun en Íslendingar. Það er sanngirnismál því þeir búa hér, jafnvel þótt þessi lágu laun þeirra séu miklu hærri en þeir gætu nokkru sinni fengið í heimalandinu. Ef við myndum til dæmis borga Hvítrússa laun samkvæmt lágmarkslaunum heimalands hans fengi hann 129 evrur á mánuði. Það eru tæpar 18 þúsund krónur. Það viljum við ekki. En er þá ekki líka eitthvað rangt við að fólk flytji með íslenskar tekjur sínar og lifi á afrakstri lág- launamanna í öðrum löndum? Er ekki eitthvað siðferðis- lega rangt við það? Einhvers konar arðrán, svo notað sé orð sem virðist vera að skjóta upp kollinum aftur. Er það bara alveg eðli- legt að valsa með snjallsímann sinn, á ís- lenskum ráðstöfunartekjum, um útlenskar kjörbúðir með starfsfólk á lúsarlaunum, að mynda lága verðið? Deila því svo út um allt og tala um að allt sé hræðilegt á Íslandi? Hittir þetta sama fólk einhvern tímann spænskan eða portúgalskan ellilífeyrisþega sem dásamar hversu gott er að lifa af elli- lífeyrinum í heimalandinu? Það má örugglega segja ýmislegt um verðlag á Íslandi. Jafnvel samkeppni líka, áfengisverð og skatta. En það verður að hafa í huga að laun eru yfirleitt það sem hefur mest áhrif á verðlag. Því hærri sem launin eru – því dýrara er að lifa. Og varla getum við öll flutt til Spánar. ’Einhverjir hafa brugðið á þaðráð að flytja til láglauna-svæða til að hafa það aðeinsbetra í ellinni. Auðvitað er það skiljanlegt. Jafnvel þótt ekki væri nema bara til að losna við enda- lausar lægðir í janúar. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Epli og appelsínur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.