Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Blaðsíða 24
Gaultier lauk aldreiformlegri menntuní hönnun eða fata- saumi en kom sér á fram- færi með því að senda teikningar sínar til þekktra fatahönnuða í París. Árið 1970 var það Pierre Cardin sem réð hann sem aðstoðar- mann sinn og sex ár- um síðar leit fyrsta fatalína Gaultier dags- ins ljós. Götutíska og poppmenning einkenndu hefðbundnar fatalínur hans en hátískuhönnun hans var mun fágaðri en í senn óvenju- leg. Gaultier ögraði tískuheim- inum gjarnan með vali sínu á fyrirsætum en á tískusýningum hans mátti sjá íturvaxnar konur, eldri karlmenn, fyrirsætur með húðflúr og lék hann sér gjarnan með hin hefðbundnu kynja- hlutverk. Dæmi um eitt slíkt er þegar hann hannaði pils fyrir karlmenn um miðjan níunda áratuginn. Ilmurinn sem lofar sælu Margir tengja ilmvötn við Gaultier en árið 1993 kom dömuilmurinn Classi- que á markað og vakti líkamslögun ilmvatnsflöskunnar mikla athygli. Sumir sáu einfaldlega fyrir sér Mad- onnu sjálfa í keilubrjóstahaldaranum. Gaultier sagði að þetta væri ilmur sem lofaði sælu, ilmur sem fólk þekk- ir þig af með lokuð augun. Ilmvatnið einkennist af vanillu, munúðarfullu ambri og appelsínublómum en það er enn jafnvinsælt í dag og þegar það kom fyrst á markað. Í tilefni af 50 ára afmæli tískuveldis Jean Paul Gaultier voru hannaðar tvær hátíðarútgáfur af hinum klassísku dömu- og herrailmi tískuhússins. Bæði ilmvötnin koma í takmörkuðu upplagi. Jean Paul Gaultier Classique Pin Up sækir innblástur í hina kvenlegu og skemmtanaglöðu dömu sem ein- kennist af glamúr og glæsileika. Lík- amslöguð ilmvatnsflaskan er umvafin bleiku og glitrandi korseletti en hún myndi sóma sér vel á hverju snyrtiborði. Ilmnóturnar byggjast á vanillu og amber í bland við heit- ar nótur engifers og eldpipars. Gamalt verður nýtt Óhætt er að segja að síðasta hátísku- sýning Gaultier hafi verið stórfengleg en hún fór fram í Théâtre du Châtelet í París fyrir framan 2.500 áhorfendur. Yfir 200 flíkur voru sýndar og gengu ofurfyrirsætur fram á sýningarpall- inn í bland við listamenn, kvikmynda- stjörnur og annað áhrifafólk sam- félagsins af öllum stærðum og gerðum. „Í þessari síðustu sýningu minni vildi ég endurspegla þráhyggju mína: gallabuxur, korselett og sjóara- skyrtur,“ sagði Gaultier. Hann er þekktur fyrir að tala gegn fatasóun. „Það eru of margar flíkur til í heim- inum og allt of miklu af fatnaði er hent,“ sagði Gaultier en margar flík- ur þessarar sýningar voru unnar úr gömlum og notuðum fatnaði. „Þegar ég var yngri sýndi mamma mér hvernig hún saumaði sér pils úr göml- um buxum af pabba. Þetta hefur alla tíð fylgt mér á mínum ferli,“ útskýrði hann. AFP AFP Noemie Lenoir sýnir hér áhugaverða flík. AFP AFP AFP Með þráhyggju gagnvart korseletti Jean Paul Gaultier, franski fatahönnuðurinn sem hannaði hinn eina og sanna keilubrjóstahaldara Madonnu í byrjun tíunda áratugarins, kom öllum að óvörum þegar hann ákvað að hátískusýning sín í ár yrði sú síðasta. Glæstur ferill hans spannar hálfa öld þar sem gleði, dirfska og jafnvel húmor einkenndu hönnun hans. Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Jean Paul Gaultier Classi- que Pin Up sækir inn- blástur í hina kvenlegu og skemmtanaglöðu dömu sem einkennist af glamúr og glæsileika. Líkamslöguð ilm- vatnsflaskan er umvafin bleiku og glitrandi korseletti en hún myndi sóma sér vel á hverju snyrtiborði. Ilmnóturnar byggjast á vanillu og amber í bland við heitar nótur engifers og eldpipars. Karlie Kloss tók sig vel út í þessum kjól. AFPAFP Jean Paul Gaultier kveður tískuheim- inn eftir glæstan feril síðustu 50 árin. Dita Von Teese. Bella Hadid var á meðal fyrirsætanna sem sýndu hönnun Jean Paul Gaultier. AFP Irina Shayk sýndi á sýn- ingu Jean Paul Gaultier. AFP Joan Smalls var flott- ust á sýningunni. Winnie Harlow sýndi á sýningunni. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 LÍFSSTÍLL SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.