Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 Elsku Ljónið mitt, ég ætla að staðhæfa það að fallegasta fólkið býr í þessu merki, það er alveg með ólíkindum hvað þið standið alltaf upp úr, þið eruð svo tindrandi og tignarleg. Það hefur svo sannarlega mikið verið að ganga á hjá þér í tilfinningum, umhverfi og líðan sem helst að sjálfsögðu allt í hendur, en þú hefur svo innilega kraftinn til að berjast og það er svo skemmtilega absúrd setning sem ég sendi þér, að þú þarft stundum að feika það þangað til þú meikar það. Þú skalt bera þig vel sama hverjar kringumstæðurnar eru, það er mikill sprengikraftur í kringum þig sem gæti þeytt þér langar leiðir án þess að þú ætlaðir þér það og þessar sérkennilegu aðstæður verða þér gjöfular og endurreisa þig í þeirri mynd sem þú vilt vera. Það eru allir að nálgast þig með svo mikilli umhyggju, svo leyfðu fólki að klappa þér og færa þér gjaf- ir. Þú ert að rísa upp úr öskustónni eins og ný og endurbætt manneskja, þú sérð fortíðina renna hratt fyrir augunum á þér og sérð eftir mörgu, en þú hefur ennþá tíma og möguleika til að breyta stöðunni, þó þú sért þreyttur í vinnu eða lífsins verkefnum þá er það andartak að líða. Dagarnir þínir hafa verið svo- lítið köflóttir, hafa rokkað á milli svartsýni og bjartsýni, og þó það sé ekki í eðli þínu að fara auðveldustu leiðina þá bendi ég þér á að fara stystu leiðina og taka fyrsta skrefið núna, það mun margborga sig. Friður, ró og kyrrð munu magna upp kraftinn þinn og hreinsa úr þér pirringinn af smáatriðum sem skipta engu máli. Stóru vandamálin verða þér auðveldari en þú heldur og þú skalt ekki hika við að ráðast á eða í þau, því þú ferð í gegnum fjallið sama hversu stórt eða þykkt það er. Það er svo merkilegt fyrir þig að næsta fulla tungl sem verður þann 9. febrúar er í Ljónsmerkinu og þess vegna segi ég að febrúar hefur meiri þýðingu fyrir þig en þú getur gert þér grein fyrir, sem þýðir að þessi mánuður þýðir að þú sért kamelljón sem getur aðlagað sig að öllu. Tindrandi og tignarleg LJÓNIÐ | 21. JÚLÍ 21. ÁGÚST Láttu ekki aðra hafa áhrif á þig, þú ert með réttu svörin. Elsku Meyjan mín, þú ert eitthvað að halda þér í skefjum og að passa of mikið upp á að allt sé rétt og í lagi. Undirstöðurnar þínar eru góðar og þú ert vel metin, en það er ekki langt síðan þú braust sjálfa þig niður eða einhver atburður bugaði þig andlega og stoppaði þig í að blómstra sem þú sannarlega hefur kraft og atorku til að gera, en það getur læðst að þér gamall kvíði sem á ekkert erindi til þín í dag. Febrúarmánuður gefur þér eldspúandi kraft til að sinna sjálfri þér og raða öllu fullkomlega rétt saman og þú færð meiri ábyrgð, þú munt elska það og þú færð boð um ný spennandi verkefni eða álíka. Þú skilur á þessum tíma að þú getur sjálf gert miklu meira, því þegar þú sérð að þú þarft ekki hjálp eða aðstoð þá tvöfaldast afl þitt og þú ert huguð, svo nýttu þér hugrekkið sem er kraftur sem svífur yfir þér næstu mánuði. Þú ert að skapa nýja hluti, en þér finnst kannski að það gangi hægt en það er svo mikill kraftur og uppbygging í því sem þú ert að gera, mundu elskan mín að góðir hlutir gerast hægt eða hratt og örugglega, allt eftir því hversu miklu hugrekki þú stráir yfir þennan kafla. Þetta verður tímabilið sem sýnir hvaða mann þú hefur að geyma og færir þér tækifæri til að laga, breyta eða að byggja upp fjárhag þinn og allar árstíðir eru í raun þinn tími því þú finnur alltaf réttan flöt, þess vegna væri það hálfömurlegt líf að hafa enga Meyju með sér í liði! Eftir því sem mánuðirnir líða sérðu hvaða merkingu þessi tími hefur, gefðu ástinni og lífinu meiri séns því að í kringum þig eru töfrar sem færa þér máttinn og dýrðina til að skapa, breyta og bæta hvern einasta dag. Eldspúandi kraftur MEYJAN | 22. ÁGÚST 22. SEPTEMBER Elsku Vogin mín, þú ert svo dásamlega gjafmild og heillandi og allt verður alveg fullkomið ef þú lærir að útiloka sífelld vandamál, erfiðleika eða hávaða annarra, þú þarft að segja nei þegar hugurinn heltekur og lamar þig af neikvæðri orku annarra. Þú þarft kerfisbundið að segja nei við hugann og æfa þig í þessu eins og þú sért að fara í próf, þetta er það eina sem stöðvar að líf þitt sé fullkomið. Þú hefur óbilandi dug til að takast á við stóra og strembna hluti, þetta er mánuður skipu- lags og þú þarft að setja þér það fyrir hvernig þú ætlar að útfæra næstu mánuði í þínu lífi og febrúar færir þér öll þau verkfæri sem þig vantar, og þú hefur nægan tíma þótt þú sért alltaf á fartinni. Þú heldur áfram að laga og bæta það sem þú hefur verið að gera því þú ert með allt á hárréttri leið, og þarft bara að tímasetja, klukkan hvað er þetta, hvenær byrjar þetta? Því þá fer leiðtoga- hæfni þín í að stimpla það inn í frumurnar og þú ríst eins þitt eigið eldfjall. Það kemur nefnilega fyrir að hugur þinn frýs og þú týnir tímanum, en núna hefur þú tímann í hendi þér og setur allt í dagbók. Þú ferð að uppskera svo miklu meira og nærð árangri í öllu sem þú setur þér fyrir, því þannig vinnurðu. Það býr í þér ofboðsleg keppnismanneskja og þess vegna þegar þú tekur þér eitthvað fyrir hendur þá mun keppnisskap þitt margfaldast, það er málið og þú klappar, það er sigurinn. Þú munt nýta tímann þinn vel í ástinni og ef eitthvað er að angra þig í þeim málum þá þarftu svolítið að horfa framhjá því sem pirrar þig mest til að sjá heildarmyndina betur. Þegar líða tekur á þennan sérstaka tíma sem þú ert að fara inn í er eins og þú takir við verð- launum, viðurkenningu eða vinnir einhver málaferli, þú verður allavega sæl með útkomuna hvort sem þú ert að bíða eftir einhverju eður ei. Þú tekur úr sjálfri þér orku indíánans, setur liti í kring- um þig og byrjar að næra þig með réttum athöfnum, sem færa þér orku, ró og gleði. Sjáðu fyrir þér regndans indíánanna og finndu orkuna streyma til þín. Mánuður skipulags VOGIN | 23. SEPTEMBER - 22. OKTÓBER Elsku Sporðdrekinn minn, það er búið að vera ýmislegt að gerast í kringum þig sem þú ert ekki alveg viss um hvernig þú átt að leysa eða hvernig þú átt að haga þér. Vertu alveg ró- legur, notaðu þrjóskuna þér til hjálpar og þetta gengur allt saman framar öllum vonum. Erfiðleikar eða álag innan fjölskyldunnar hjálpar ykkur að þéttast saman og eiga betri stundir, það er svo skrýtið að af erfiðleikunum verður útkoman oftast meiri kærleikur og þó það sé streita í kringum þig í starfinu, er það eitthvað sem þú átt að leiða hjá þér. Þú ert með svo yndislega orku og hefur svo góð áhrif í kringum þig, þó að þér líði ekki alltaf sem best. Þessi mánuður sem er að koma núna eflir þig andlega, fær þig til að taka eftir hinu merkilega í líf- inu, gefur heiðarleika, betri samskipti og stútfyllir hjarta þitt af hamingju. Ekki deyfa huga þinn með misómerkilegum efnum, því það seinkar hamingjunni og þú verður svo ósáttur við sjálfan þig. Þú nærð svoleiðis framúrskarandi árangri ef þú kærir þig um það, en það koma stundum tímabil þar sem þú vilt láta fara lítið fyrir þér og vera ósýnilegur, en það fer þér bara illa, hjartað mitt. Leyfðu orkunni að umfaðma þig þó ekki sé nema klukkutíma í einu og gerðu eitthvað nýtt í hverri viku sem breytir mynstrinu þínu, því þegar þú niðurnjörvar þig og skrúfar þig fastan þá færðu ekk- ert súrefni úr orkunni. Svo hér er tákn um að endurskipuleggja margt í kringum þig og leyfa þér að vera óhefðbundinn. Það er svo sem ekkert merkilegt nýtt að gerast í ástamálunum og það verður ekki fyrr en líða tek- ur á árið, en þið sem hafið fundið sálufélaga, reynið þá ekki að breyta honum né hafa nokkur áhrif, þá gengur allt miklu betur hjá þér. Peningar koma inn, ekki bara tengt vinnu, svo það verður sko aldeilis fjör hjá þér í febrúar, settu eitthvað í þinn persónulega sjóð og láttu engan vita af því. Orka þín og kraftur rís með hverjum mánuði sem kemur, svo þetta er allt saman bara rétt að byrja. Þetta er allt rétt að byrja SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 22. NÓVEMBER Elsku Bogmaðurinn minn, það er búið að ganga á ýmsu, en þú ert bú- inn að ákveða að þetta ár verði margfalt betra en í fyrra og ég get alveg skrifað undir það. Febrúar gefur þér útkomur og sýnir þér hvar þú stendur í lífinu, því síðustu þrír mánuðir eru aldeilis búnir að marka líf þitt. Núna er komið að uppgjöri og með svolitlum tilfærslum þá lítur þessi mánuður af- skaplega vel út, sjötta skilningarvitið þitt er eitthvað svo kraftmikið og tengt við mik- inn árangur og að slaka á er lykillinn að framhaldinu. Ástin er góð því stressið er að hverfa og ef þú ert nýlega kominn í tengingu við ástarguð eða -gyðju, ertu líklega búinn að finna framtíðarmakann. Trygglyndið ein- kennir þig og traustið til að allt gangi vel færir þér enn meiri kraft og ef þér finnst peningarnir ekki vera að koma til þín í stríðum straumum þá er eitthvað að opnast og annað að lokast tengt því flæði. Þú átt eftir að nota þennan mánuð vel, byggja upp betri tilveru og vera ánægður með sjálfan þig og það sem þú hefur afrekað. Þér líður betur og betur því þú tengist þinni innri ró, ekkert getur haggað þér sama hvaða stormur veitist að þér, þá tekurðu varla eftir honum og þessi stóíska ró kemur þér á óvart svo þú verður hissa á sjálfum þér. Þú spáir kannski meira í lífið en hin merkin og verður svo dásamlega heillaður af því sem hinir láta framhjá sér fara. Orkan þín er svo mögnuð, þú sérð alltaf hið jákvæða og aðrar hliðar á hlutunum og þú munt nýta þér þessa undrasýn til að styrkja þig. Undrasýn veitir styrk BOGMAÐURINN | 23. NÓVEMBER 20. DESEMBER Elsku Steingeitin mín, það er ekkert í lífinu sem kallast að eiga við ofurefli að etja þegar þú átt í hlut, þú ert eins og danska hafmeyjan, það skiptir engu máli hvaða áföll hafa dunið á henni, hún er alltaf á sínum stað og verður til eilífðar. Það taka kannski ekki allir eftir því hversu margbreytileg manneskja þú ert, líkt og hafmeyjan er bara lítil stytta, en þegar þú þarft að byggja brýr og hreyfa við lífinu þá stoppar þig enginn. Réttlætiskennd þín getur verið aðeins dælduð því það er eitur í þínum beinum ef réttlæti er ekki framfylgt, oft er betra að þegja en segja og bíða frekar eftir rétta tímanum til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það þyrlast upp á yfirborðið eitthvað úr fortíðinni sem þú getur nýtt þér til betri hluta. Þú ert að klæða þig í nýja yfirhöfn og sú myndlíking þýðir að þú sérð þig í nýju ljósi og verður miklu ánægðari með karakterinn þinn. Þá hefurðu kraft Steingeitarinnar og sjálfstraustið sem þú þarft að blessa og bæta og þú klárar svo margt sem hefur verið að angra þig og eftir það andarðu að þér ferskara súrefni. Í ástamálunum þarftu að vera skýr, láta þann sem þú ert hrifin af vita hvað þér finnst, hvort sem þú ert laus og liðug eða í sambandi. Ástin er sterk yfir merkinu þínu, svo vertu bjartsýn og tilbúin að leika við hana, því þú gefur ástinni, fjölskyldunni og atvinnu allar þínar tilfinningar og hugsar stundum ekki alveg nógu vel um sjálfa þig. En þetta skiptir engu því á örskammri stund geturðu breytt aðstæðum, algjörlega hér og nú, ekki í fortíðinni eða framtíðinni. Nýtt húsnæði gæti verið að birtast þér, hvort sem það er heimili eða nýr staður tengt vinnu eða slíku, þetta er mjög sterkt yfir kortunum þínum og hamingja og heppni fylgir þessu. Þú sérð þig í nýju ljósi STEINGEITIN | 21. DESEMBER 19. JANÚAR Knús og kossar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.