Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Síða 22
munum. Ekki verður þverfótað
fyrir fallegri hönnun eftir helstu
meistara samtímans og er ekkert í
umhverfi þessara kvenna sem
truflar fegurðarskyn sem búið er
að forrita eftir viðurkenndum
fegrunarstöðlum.
Útlit eiginkvennanna er óaðfinn-
anlegt án þess að vera sérstaklega
frumlegt. Hárið er vandlega blásið
og er með hæfilegri lyftingu og til
að augnsvæðið virki stærra og
opnara eru þær með vandlega
ásett gerviaugnhár. Létt áferð af
brúnkukremi er heldur ekki langt
undan. Fataskápar eiginkvenn-
anna eru fullir af fínum fötum úr
silki og satíni og inn á milli glittir
í flíkur í anda Coco Chanel. Þess-
ar drottningar fara ekki út úr húsi
án þess að vera skreyttar demönt-
um og eðalsteinum. Og allar eiga
það sameiginlegt að eiga fínirís-
töskur fyrir hvert tilefni.
Klæðaburður auðmannanna
samanstendur af vel sniðnum bux-
um og jökkum, hæfilega þröngum
skyrtum í ljósbláum tónum. Þegar
vel liggur á þeim klæðast þeir
hvítum buxum og eru berfættir í
mokkasínum frá dýrum tísku-
húsum. Ekki má gleyma vönduð-
um og góðum sólgleraugum enda
eru þau hið mesta þarfaþing þegar
kókaín og kampavín hefur verið
tekið inn í of miklu magni í of
marga daga í röð. Það er nefnilega
erfitt að fela langtímaáhrif slíkrar
neyslu eins og sést svo glögglega í
þessum þáttum þegar allt fer úr
böndunum.
Í þáttunum er borið á borð líf í
fullkomnum umbúðum en alger-
lega án innihalds heilbrigðra gilda,
tilfinninga og annars sem gerir líf
allra annarra en siðblindra manna
þess virði að lifa því.
Hægt er að sjá fyrstu seríuna í
sarpi RÚV undir flokknum nor-
rænt efni.
Fyrir þá sem eru búnir að horfa
á fyrstu seríu af Exit má koma því
á framfæri að búið er að mynda
seríu tvö og verður hún sýnd á
þessu ári.
Móðir Hermine er líka hrifin af Chanel.
Auðmennirnir eru mikið í mokkasínum.
Hér má sjá slíkar frá Gucci og Tods.
Adam er hér í ljósri skyrtu og gallabuxum með hárið greitt aftur.
Henrik, Jeppe, Adam og William í brúðkaupi þess fyrstnefnda. Allir klæddir
í sitt fínasta púss nema brúðguminn sem er í munstruðum smóking-jakka.
Þessir eyrna-
lokkar eru frá
Roxanne
Assoulin.
Hermine er eiginkona Adam. Hún hætti í sálfræði
þegar hún byrjaði með honum. Á daginn fer hún í
ræktina og stundum til sálfræðings.
Þessi jakki er
úr sumarlínu
Chanel.
AFP
Hér eru auðmennirnir
að leggja á ráðin.
Þessi hring-
ur er frá
Mateo.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020
LÍFSSTÍLL
veita náttúrulega vörn
gegn bakteríum í munninum
Tvíþætt sink
og arginín
Dregur úr
tannskán
Styrkir
glerunginn
Dregur úr
tannskemmdum
Frískari
andardráttur
Dregur úr
blettamyndun
Dregur úr
viðkvæmni
Dregur úr
tannsteini
Fyrirbyggir
tannholdsbólgu
NÝTT
Veruleg fækkun baktería á
tönnum, tungu, kinnum og
gómi eftir samfellda notkun
í fjórar vikur.
BYLTING FYRIR
ALLANMUNNINN
Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold
Frábær
vörn í
12
tíma