Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 LESBÓK ALDUR David Coverdale, söngvari Whitesnake, rifjar upp í viðtali við ástralska rokktímaritið Heavy að hann hafi ekki gert ráð fyrir því að málmbandið kunna, sem hann setti á laggirnar árið 1978, myndi lifa lengi. Hann var að nálgast þrítugsafmælið á þeim tíma og sá ekki fyrir sér að þenja lungun mikið lengur enda fá dæmi um slíkt, það er rokkara á fertugsaldri. „Þetta er að verða búið,“ hugsaði hann með sér meðan hann samdi lög á borð við Here I Go Again og Crying In The Rain, nýskilinn við fyrstu eiginkonu sína. 42 árum síð- ar er Coverdale enn í fullu fjöri, á 69. aldursári, og White- snake sprelllifandi. Og þykir ekki merkilegt í dag. „Sjáðu bara Stones og The Who, þessir gaurar eru á áttræðisaldri,“ segir Coverdale en bætir þó við að hann viti ekki hvort hann komi til með að ráða við Still Of The Night á þeim aldri. Bjóst við að hætta þrítugur Hinn síungi David Coverdale. AFP ÁHRIF Fyrir um áratug, meðan þættirnir The L Word, sem fjölluðu um samkyn- hneigðar konur, gengu sem best í sjónvarpi, komu tvær konur á sjötugsaldri að máli við aðalleikkonuna, Jennifer Beals, á götu og þökkuðu henni fyrir innblásturinn. Þær hefðu verið par lengi en ekki þorað að koma út úr skápnum gagnvart fjölskyldum sínum fyrr en þær sáu þættina. Í samtali við breska blaðið The Independent segir Beals þetta samtal hafa haft djúpstæð áhrif á sig, gagn- kynhneigða konuna, og staðfesta að aldrei sé nóg af hinseginsögum. „Að hitta þessar kon- ur staðfesti fyrir mér mátt frásagnarinnar.“ Aldrei nóg af hinseginsögum Jennifer Beals trúir á mátt frásagnarinnar. AFP Claire Danes leikur Carrie Mathison. Kveðjusería hjá Carrie SJÓNVARP Senn líður að lokum hinnar vinsælu sjónvarpsþátta- raðar Homeland en áttunda og síð- asta serían hefur göngu sína á Showtime um næstu helgi. Claire Danes er enn í hlutverki leyniþjón- ustukonunnar ráðagóðu Carrie Mathison og nú er hún að jafna sig eftir að hafa sloppið úr rússneskum fangabúðum. Gegn læknisráði ákveður lærimeistari hennar Saul (Mandy Patinkin) að senda Mathi- son í eitt lokaverkefni – sem hverf- ist um að binda enda á stríðið í Afg- anistan. Krökkt er af stríðsherrum, málaliðum og njósnurum í Kabúl en stóra spurningin er sem fyrr: Er hægt að treysta hinni óútreiknan- legu Carrie Mathison? „Ingvar skipuleggur heimsóknina frá A til Ö; ég stari bara á landslagið og reyni að fá innblástur,“ bætir Andreas við brosandi. „Ingvar býr að margþættum hæfi- leikum,“ heldur hann áfram. „Hann er framleiðandinn minn, gestgjafi, blaðafulltrúi og ég veit ekki hvað. Hann er ótrúlega vel tengdur, ekki bara hér á landi, heldur um allan heim. Ég er bara búinn að vera hérna í tvo daga en finnst það vera tvær vik- ur; ég er búinn að hitta svo margt áhugavert fólk.“ Andreas viðurkennir að það sé kannski klisja en að hann hafi orðið fyrir einskonar andlegri uppljómun á Íslandi. „Landslagið og birtan eru göldrum líkust og hafi maður áhuga á Ég kynntist Ingvari Þórðarsyni ákvikmyndahátíð í PalmSprings fyrir nokkrum árum og við höfum haldið sambandi síðan. Fyrir fjórum árum hjálpaði hann mér að skipuleggja frí með fjölskyldunni hérna á Íslandi og til að gera langa sögu stutta þá kolféll ég fyrir landinu. Það fyrsta sem ég sagði við Ingvar eftir þessa fyrstu heimsókn var að ég vildi ólmur gera kvikmynd á Íslandi,“ segir austurríski kvikmyndaleikstjór- inn Andreas Prochaska, sem staddur var á landinu í vikunni til að hitta skapandi fólk í kvikmyndabransanum og skoða hugsanlega tökustaði. Ingv- ar Þórðarson var með í för en hann er búsettur í Berlín, þar sem hann starf- ar sem kvikmyndaframleiðandi. hinu sjónræna hlýtur maður að heillast af Íslandi. Ég gekk að vísu al- veg fram af konunni minni þegar við komum hingað fyrst enda nam ég staðar á fimmtíu metra fresti til að taka myndir,“ rifjar hann upp bros- andi. „Birtan og litirnir breytast svo hratt hérna. Eina mínútuna er allt grátt en litadýrð þá næstu sem myndavélin nær varla að höndla.“ Vestri/tryllir/hasarmynd Myndin sem Andreas er með á teikni- borðinu og er að svipast um eftir heppilegum tökustöðum fyrir núna hefur vinnuheitið Dead End. „Þetta er svona vestri/tryllir/hasarmynd um konu á flótta sem leitað hefur skjóls í litlu þorpi á Íslandi ásamt börnum sínum. Lengra kemst hún ekki,“ seg- ir Andreas en handritið skrifa Íslend- ingarnir Ottó Geir Borg og Gunnar Örn Arnórsson. Andreas hlakkar til að sýna áhorf- endum Ísland í því sem hann kallar „rétt ljós“. „Ísland hefur oft verið vettvangur alþjóðlegra verkefna en ekki sem Ísland. Þá er ég að tala um Star Wars, Prometheus, Game of Thrones og þess háttar verkefni. Mér finnst miklu meira spennandi að sýna Ísland sem Ísland og finna sögur sem tengjast þessu fallega landi og fólkinu sem býr hérna.“ Hann segir undirbúning vel á veg kominn og gerir ráð fyrir að koma aftur eftir páska til að skoða fleiri hugsanlega tökustaði, einkum fyrir norðan. „Okkur miðar vel; allir eru á sömu blaðsíðu og nú bíðum við bara eftir að handritið verði endanlega klárt og fjármögnun ljúki. Ég veit ekki hversu margar milljónir evra við þurfum. Mætti ég biðja jólasveininn um eitthvað þá yrði efst á listanum að hefja tökur á næsta ári.“ Spurður um leikaravalið segir Andreas hugmyndina að ráða bæði íslenska og enskumælandi leikara að myndinni. „Auk öflugra atvinnuleik- ara væri gaman að finna einhverja ís- lenska áhugaleikara til að auka á raunsæið. Mér finnst líka mikilvægt að Íslendingarnir í myndinni tali ís- lensku; það hefur engan tilgang að koma til lands og láta innfædda tala allt annað tungumál.“ Annað verkefni sem Andreas vinn- ur með Íslendingum er saga sem nefnist Kane, þar sem villta vestrið mætir film noir-stílnum, að sögn leik- stjórans, en handritið er eftir Sjón. „Söguhetjan á sér forsögu í vestrinu en í samtímanum þarf hún að fást við Hollywood, gangstera, mafíuna og sitthvað fleira enda komið fram á tuttugustu öldina. Konseptið er mjög spennandi,“ segir Andreas sem ber Sjón afar vel söguna. „Hann er mjög heillandi maður og hugmyndaríkur.“ Kalifornía ekki á Íslandi Andreas segir Sjón hafa skrifað handritið fyrir átján árum og að sjálf- ur hafi hann fallið marflatur fyrir því þegar Ingvar sendi honum það. „Upphaflega stóð til að gera kvik- mynd en sagan er svo rík að erfitt verður að ná utan um hana á tveimur tímum. Þess vegna erum að við velta fyrir okkur að hafa þetta míníseríu fyrir sjónvarp í staðinn.“ Eðli málsins samkvæmt verður Kane ekki tekin upp á Íslandi enda er sögusviðið Kalifornía. „Hægt er að gera margt á Íslandi en ekki líkja eft- ir Kaliforníu,“ segir Andreas sposk- ur. Andreas ólst upp í litlu þorpi í Austurríki og var ungur gefinn kvik- myndum. „Það voru tvö kvikmynda- hús í þorpinu og þau voru mitt annað heimili í æsku. Það hvarflaði þó aldrei að austurríska sveitapiltinum að hann ætti eftir að gera kvikmyndir sjálfur. Það var fjarlægur draumur.“ Andreas lagði stund á háskólanám í Vínarborg en hætti og fékk sér vinnu sem aðstoðarmaður við auglýs- ingagerð fyrir sjónvarp. Eftir það varð ekki aftur snúið. Skömmu síðar gerði hann sína fyrstu stuttmynd sem Vill sýna heiminum Ísland sem Ísland Austurríski kvikmyndaleikstjórinn Andreas Prochaska er hugfanginn að Íslandi og ætlar að gera hér kvikmynd, þar sem landið verður sýnt í réttu ljósi. Þá er hann í samstarfi við Sjón um gerð myndar, þar sem villta vestrið mætir film noir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.