Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 14
Þ
að berast stundum sérkennileg
erindi inn á borð blaðamanna. Í
síðustu viku hafði samband hol-
lenskur maður sem kom til Ís-
lands 1986 til að vinna að tísku-
verkefni fyrir þá vel þekkt barnatísku-
fyrirtæki, Barbara Farber og Pointer.
Dekkers rak þá lítið auglýsingafyrirtæki
og var fenginn til að stjórna þessu tísku-
verkefni. Hann sá um að velja íslensk ung-
menni sem áttu að sitja fyrir fyrir auglýs-
ingar sem birtust seinna í tískutímariti og
bæklingum sem fóru víða um Evrópu. Til-
gangurinn var að kynna nýju vetrartískuna
1986-1987 og hvar var betra að mynda
hana, en einmitt á Íslandi!
Dekkers kolféll fyrir Íslandi og kom
nokkrum sinnum til landsins eftir þessa
fyrstu heimsókn en hafði ekkert komið síð-
an 2012. Sonur hans ákvað að bjóða honum
óvænt í helgarferð til Íslands og í þetta
sinn ákvað hann að rifja upp gamlar minn-
ingar úr fyrstu ferðinni.
Dekkers mundi enn glöggt eftir ferð sinni
árið 1986 en heimsókn hans og hans teymis
vakti töluverða athygli í fjölmiðlum.
Skrifaðar voru greinar í helstu dagblöð
landsins með myndum af Dekkers og hinum
ungu íslensku fyrirsætum að störfum.
Ein þeirra sem valin voru er hin kunna
leikkona Elma Lísa Gunnarsdóttir. Ein-
hverra hluta vegna mundi Dekkers sérlega
vel eftir henni en hún var aðeins tólf ára
vorið 1986. Dekkers hringdi í blaðamann og
bað hann um að hafa uppi á Elmu Lísu;
hann langaði svo að hitta hana aftur. Hann
hafði ekki hugmynd um að hún væri lands-
þekkt leikkona en var ekki hissa á að hún
hefði náð langt á sínu sviði.
Blaðamaður hringdi í Elmu Lísu og bar
upp erindið sem henni þótti að vonum frek-
ar skondið. Hún var til í endurfundina og
mættum við því upp á hestabúgarðinn Lax-
nes, þar sem Dekkers var staddur hjá vin-
um.
Stúlka með metnað
Það blés hressilega þegar við stigum út úr
bílnum við Laxnes og rigningin barði á okk-
ur. Reffilegur maður á sjötugsaldri, með
hrokkið hár og gleraugu, rauk út á hlað á
móti okkur.
„Ert þetta þú, Elma Lísa! Má ég fá að
faðma þig?“ segir Dekkers og Elma Lísa,
hálfringluð yfir þessum endurfundum, tók á
móti stóru faðmlagi.
Dekkers ljómaði af gleði að hitta Elmu
Lísu aftur eftir meira en þrjá áratugi.
Við drifum okkur inn úr rigningunni og
settumst niður í kaffistofu sem er samtengd
hesthúsinu. Í loftinu var ilmandi hrossalykt
sem sumum þykir víst góð. Við vöndumst
henni fljótt yfir kaffibolla og blaðamaður lét
lítið fara fyrir sér á meðan þau endurnýj-
uðu kynnin.
„Þú hefur ekkert breyst!“ segir Dekkers
við Elmu Lísu.
„Ekki þú heldur,“ svarar hún brosandi.
„Ég frétti að þú værir þekkt á Íslandi.
Ég er þekktur í Hollandi en ekki eins og
þú,“ segir hann og hlær.
„Ég elska Ísland og er alltaf með
„heimþrá“ hingað.“
„Manstu hvar við vorum við tökur?“ spyr
Elma Lísa og þau leggjast yfir gamla bækl-
inga og myndir frá tískumyndatökunum.
„Já, það var við Hafnarfjörð eða einhvers
staðar á milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur,
við vatn,“ rifjar Dekkers upp.
„Í mínum huga var það langt uppi í
sveit!“ segir Elma Lísa.
„Við tókum fullt af myndum á mörgum
stöðum. Ég man mjög vel eftir þér frá
okkar fyrstu kynnum. Þegar krakkarnir
komu á Hótel Sögu að sækja um þá sá ég
hvernig þú fylgdist með mér allan tímann,
með vökulu auga. Ég ákvað að velja þig og
það var vel valið,“ segir Dekkers og brosir.
„Já og litla systir mín var þar líka; hún
var líka valin. Hún var yngst allra, bara níu
ára,“ segir Elma Lísa og á við Nínu Björk
Gunnarsdóttur, nú ljósmyndara.
„Ég man svo vel eftir þér; þú varst svo
opin og alls ekki feimin. Ég man að ég
hugsaði; „þarna er stúlka með metnað, hún
mun ná langt“. Þetta var mín fyrsta upp-
lifun af þér, ég get svarið það! Hvað finnst
þér um það?“ spyr hann Elmu Lísu.
„Það er gaman að heyra. Ég man að mér
fannst mjög gaman að taka þátt í þessu; ég
skemmti mér vel.“
Fyrirsætuferillinn hófst
Dekkers dregur fram myndir og sýnir
Elmu Lísu. „Þetta var fyrir tískumerkið
Barbara Farber, sem var hágæðatíska á
þessum tíma. Ég tók allar myndir og hann-
aði allt saman, en á þessum tíma var ekkert
photoshop,“ segir hann.
„Hérna er systir mín; hún var lang-
minnst!“ segir Elma Lísa og bendir á mynd
af Nínu Björk.
Blaðamaður skýtur inn í að báðar syst-
urnar hafi töluvert setið fyrir á sínum yngri
árum.
„Minn ferill sem fyrirsæta hófst þarna.
Ert þetta þú, Elma Lísa!
Morgunblaðið/Ásdís
Hollenski listhönnuðurinn, kvikmyndagerðarmaðurinn og ljósmyndarinn Martie Dekkers kom hingað fyrst árið 1986 til að
mynda íslensk ungmenni fyrir evrópska vetrartísku. Ein fyrirsætanna var Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem þá var tólf ára.
Dekkers kom til landsins um daginn og bað Morgunblaðið að hafa uppi á Elmu Lísu sem hann mundi vel eftir. Það var auðsótt
mál og hittust þau á ný, 34 árum eftir tískuverkefnið mikla. Svo sannarlega urðu það skemmtilegir endurfundir.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Elma Lísa Gunnarsdóttir og Martie
Dekkers hittust aftur 34 árum eft-
ir að hún sat fyrir hjá honum árið
1986. Þá var Elma Lísa aðeins tólf
ára og man hún vel eftir þessu
skemmtilega ævintýri.
ENDURFUNDIR
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020