Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 29
Kristín. „Þess vegna er frábært hvað
hún hefur verið dugleg að gefa af sér
og miðla af reynslu sinni. Sönn fyr-
irmynd.“
Í næsta þætti seríunnar ræðir
Kristín við skylmingakappann Jason
Rogers, sem vann meðal annars silfur
á Ólympíuleikunum í Peking árið
2008. „Jason er mjög myndarlegur
maður og varð snemma á ferlinum
kyntákn sem fólk var sannfært um að
gæti allt. Hann var hreystin holdi
klædd. Ekki var þó allt sem sýndist;
Jason rogaðist í þrettán ár með
leyndarmál. Hann átti við risvanda-
mál að stríða og gat ekki verið með
konum. Það er mjög erfitt fyrir karla
í íþróttum að sýna að þeir séu ekki
fullkomnir en á endanum rauf Jason
þögnina og nú er hann að skrifa bók
um reynslu sína.“
Vonast til að ræða við Vonn
Ekki er bara rætt við íþróttamenn;
einn af viðmælendum Kristínar í nýju
seríunni er Dan Churchill, einka-
kokkur skíðadrottningarinnar Lind-
sey Vonn, en mataræði skiptir vita-
skuld sköpum ætli íþróttamenn sér
að ná árangri. Hann hefur einnig leið-
beint íþróttafólki með mataræðið eft-
ir að ferlinum lýkur, en þá breytist
gjarnan margt í hinni daglegu rútínu
og fólki hættir til að þyngjast hratt.
„Það var mjög fróðlegt að tala við
kokkinn,“ segir Kristín. Vonir standa
til þess að Lindsey Vonn verði sjálf
viðmælandi í einum af síðustu þáttum
seríunnar, en Kristín á ennþá eftir að
taka upp fjóra þætti. Vonn lauk sem
kunnugt er keppni í fyrra eftir langan
og glæsilegan feril í skíðabrekkunum.
Spurð um áhuga sinn á viðfangs-
efninu kemur í ljós að Kristín var
sjálf efnilegur íþróttamaður á sínum
tíma. „Ég flutti til Bandaríkjunum
sem barn, en faðir minn er læknir og
starfar hér. Ég var mikið í íþróttum í
æsku og eitt af því sem ég prófaði var
róður. Ég er hávaxin og sterk og varð
strax mjög góð; komst til dæmis inn í
Princeton vegna getu minnar sem
ræðari og var þar í fjögur ár. Mér
gekk vel, fékk mikla athygli og ætlaði
að leggja róðurinn fyrir mig. Ég var
hins vegar enn íslensku ríkisborgari,
sem þýddi að ég var ekki gjaldgeng í
landsliðið. Það varð til þess að ég
hætti í róðrinum.“
Þá stóð hún frammi fyrir áleitinni
spurningu: Hver er ég?
Hún flutti til New York en lagði
síðar stund á framhaldsnám í Wis-
consin og Yale, þaðan sem hún lauk
doktorsprófi í hreyfingarfræði árið
2018. „Keppnisskapið gerði það að
verkum að ég elti allt það flottasta í
náminu til þess að reyna að vera ein-
hver. Af hverju var sjálfsmynd mín
svona tengd íþróttum? Eftir á að
hyggja var ég bara að reyna að skilja
hver ég er. Og er enn, þannig lagað.
Þess vegna réðist ég í að gera þetta
hlaðvarp og það hefur hjálpað mér
heilmikið – og vonandi öðrum. Mér
leið á sínum tíma eins og ég væri eina
manneskjan sem leið svona. Það er
öðru nær.“
Burt með skömmina!
Að sögn Kristínar eru um 100 millj-
ónir núverandi og fyrrverandi
íþróttamanna í Bandaríkjunum,
þannig að snertiflöturinn er breiður
og margir ættu að geta tengt við
efnið. Spurð um viðbrögð segir hún
þau hafa verið mjög góð. „Ég hef
heyrt frá mörgum sem eru þakklátir
fyrir þættina mína og hafa haft gagn
af þeim. Einn íþróttamaður skrifaði
mér og kvaðst vera mjög þakklátur
enda hefði hann alla tíð átt erfitt með
að ræða um sjálfsmynd sína eftir að
ferlinum lauk af ótta við að gert yrði
grín að honum. Mig grunar að þetta
sé býsna algengt, sérstaklega hjá
körlunum, og því þurfum við að
breyta. Það er mikilvægt að tala opið
um þessar tilfinningar og fólkið sem
hefur komið í hlaðvarpið til mín hefur
allt verið mjög fegið á eftir.“
Kristín er fljót til svars þegar spurt
er hvort hún hafi áhuga á að vinna
sambærilega þætti á Íslandi. „Hvort
ég hef. Mig dauðlangar að vinna á Ís-
landi og veit um marga áhugaverða
viðmælendur þar. Ég nefni sem
dæmi Eika Helgason brettamann og
Crossfit-stelpurnar okkar. Vonandi
getur orðið af því í náinni framtíð.“
Þeir sem vilja kynna sér málið bet-
ur geta haft samband við Kristínu á
netfangið: haraldsdottir.krist-
in@gmail.com.
Kristín Haraldsdóttir
við gerð Hlaðvarps-
þátta sinna, Auðmjúk
eða Humbled.
16.2. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
MÁLMUR Steve Harris, bassaleik-
ari Iron Maiden, viðurkennir í við-
tali við hlaðvarpið SiriusXM að
breska bárujárnsbandið hafi verið
undir miklu álagi þegar það gerði
sína þriðju breiðskífu, The Number
of the Beast, árið 1982. Ekkert efni
var þá til öfugt við fyrstu tvær plöt-
urnar en bandið hafði túrað og
samið í fjögur ár áður en það komst
á plötusamning. Þær áhyggjur
reyndust ástæðulausar enda The
Number of the Beast af mörgum
talin besta plata Iron Maiden.
Ástæðulaus skepnuskjálfti
Bruce Dickinson og Steve Harris.
Reuters
BÓKSALA 5.-11. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen
2 Selta kilja Sölvi Björn Sigurðsson
3 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl
4 Arfur Stiegs Larsson Jan Stocklassa
5 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
6 Svínshöfuð kilja Bergþóra Snæbjörnsdóttir
7
Why We Sleep: The New
Science
Matthew Walker
8 Valdimarsdagur Kim Leine
9 Brennuvargar Mons Kallentoft
10 Ég mun sakna þín á morgun Heine Bakkeid
1 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
2 Frosnu tærnar Sigrún Eldjárn
3 Gréta og risarnir Zoë Tucker/Zoe Persico
4
Dagbók Kidda klaufa 11
– allt á hvolfi
Jeff Kinney
5
Hulduheimar 8
– sykursæta bakaríið
Rosie Banks
6
Kjarval málarinn sem fór
sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
7 Sjáðu mig sumar! Bergrún Íris Sævarsdóttir
8
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
9 Langelstur í bekknum Bergrún Íris Sævarsdóttir
10
Hulduheimar 7
– sápukúlutindur
Rosie Banks
Allar bækur
Barnabækur
Þar sem Forlagið bauð mér sæti í
dómnefnd Íslensku barnabóka-
verðlaunanna annað árið í röð er
ég aðallega að lesa handrit að
barna- og ungmennabókum þessa
dagana. Þar sveiflast maður milli
krúttlegra sveitasagna, flókinna
menntaskólaásta, dularfullra
hulduheima og blóðugra vampýru-
bardaga. Afar vandasamt en kær-
komið verkefni.
Nokkrar af jólabókum og ann-
arri útgáfu haustsins hafa legið á
náttborðinu og smám saman sax-
ast á ólesinn bunkann, sem hefur
þó aðallega tilhneig-
ingu til að hækka
stöðugt. Þar ber
hæst hinn hljóðláta
en áleitna hversdags-
leika í afar fallega
skrifaðri bók Guð-
rúnar Evu Aðferðir
til að lifa af og hina stórmerku stú-
díu Andra Snæs Um tímann og
vatnið. Hann hefur einstakt lag á
að blanda saman skáldlegum til-
þrifum og samfélagslegri herhvöt
svo úr verður ljóðrænt en áhrifa-
ríkt neyðaróp.
Ég hef síðan smám saman verið
að taka hljóðbókina meira og
meira í mína þjónustu. Það er al-
gjörlega frábært að
geta verið á hlaup-
um og þönum í alls
kyns verkum bæði
úti og inni, málað,
skúrað, múrað, ryk-
sugað og sett í vél en
notið samt bók-
mennta á meðan. Það slær á
lessamviskubitið í báðar áttir. Þar
hef ég aðallega verið að dæla inn
ævisögum tónlistar- og bransafólks
undanfarið: Með sumt á hreinu Jak-
obs Frímanns og Þórunnar Valdi-
mars, Egils sögur Egils Ólafssonar
og Páls Valssonar, Hemmi Gunn –
sonur þjóðar eftir Orra Pál
Ormarsson, Reyndu aftur Magn-
úsar Eiríkssonar og Tómasar Her-
mannssonar – en einnig merkilegar
kvennasögur: Tvísaga og Horn-
auga Ásdísar Höllu Bragadóttur og
Brynhildi Georgíu Björnsson eftir
Ragnhildi Thorlacius, sem fékk mig
reyndar til að endurglugga lítillega
í skáldverk Hallgríms Helgasonar
sem sótti innblástur í það stór-
merka lífshlaup, Konuna við 1000°.
Ég renndi líka í gegnum smá-
sagnasafn Karls Ágústs Úlfssonar
um daginn, Átta sár á samviskunni.
Það var svo sem auðvitað að sú
fjölhæfa þjóðargersemi hefði smá-
sagnaformið full-
komlega á valdi sínu
eins og flest annað.
Stórskemmtilegar
sögur og frábærlega
fluttar af höfundi. Í
sérstöku uppáhaldi
er sagan um það hvernig jólaplatt-
ar frá Bing & Gröndal grönduðu
áhöfninni á Jóni forseta.
Þessa stundina – þegar hlé er
gert á barnabókahandritunum –
mallar í eyrunum Ævisaga Jónasar
Hallgrímssonar eftir Pál Valsson,
sem ég las nú reyndar á sínum
tíma, en Hjalti Rögnvaldsson er
bara svo magnaður lesari.
SÆVAR SIGURGEIRSSON ER AÐ LESA
Skúrað, múrað og lesið
Sævar Sigur-
geirsson er
texta- og hug-
myndasmiður.
ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM
ÖRYGGISHNAPPUR
SECURITAS
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
SAMSTARFSAÐILI
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
09:41 100%
ICQC 2020-2022