Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020
LÍFSSTÍLL
Gígja er að gera það gott þessa dagana með ljósmyndirnarsínar sem birst hafa m.a. í Urban Outfitters, H&M, OldNavy, Target og fleiri stöðum. Gígja hefur víðtæka
menntun, bæði í markþjálfun, hestafræðum frá Háskólanum á Hól-
um og í ljósmyndun. Hún bjó um árabil í Bandaríkjunum þar sem
hún vann við markaðssetningu, tamningar og þjálfun á íslenska
hestinum.
„Ég er bóndadóttir af Mýrunum og var hálfgerður indíanakrakki
í bernsku. Alin upp á hestbaki og meira og minna í sveitinni.
Tenging mín við náttúruna og sveitina er því mjög sterk. Ég hef
alltaf haft mikla þörf fyrir að vera úti í náttúrunni og í kringum dýr.
Sem barn þá fór ég alltaf í langa göngutúra í sveitinni og oftar en
ekki út í stóð, þar sem ég gleymdi mér alveg. Það er eitthvað svo
yndislegt við það að bara sitja og fá vera með þessum fallegu
skepnum eða kúra hjá þeim.“
Allir vissu að hún kæmi aftur heim
Gígja segir mikil forréttindi að alast upp á þennan hátt. Þá sér í lagi
þar sem enginn var að kippa sér upp við það þó hún væri horfin.
„Allir á heimilinu vissu hvar ég var og að ég myndi að lokum
koma heim. Mér skilst að ég hafi verið mjög svo einrænt og utan-
gátta barn, enda til nokkrar skemmtilegar sögur af mér úr sveit-
inni. Svo fór ég að taka með mér myndavél í þessar gönguferðir
þegar ég varð unglingur og fann mig algjörlega. Ég held að í raun-
inni sé þetta mín leið til að hreinsa hugann, að vera með hestunum,
úti í náttúrunni og í núinu.“
Gígja segir sjónarhorn
knapans einstakt.
„Það er sem dæmi algjör
heppni að ná góðri ljós-
mynd á mikilli ferð, en svo
skemmtilegt þegar það
tekst.
Svo er líka mjög spenn-
andi að mynda í sérstökum
aðstæðum eins og brjáluðu
veðri, eins að sameina hesta
og fallega náttúru á mynd.
Ég fékk t.d. að fara ríðandi
inn í Jökulgil í Landmanna-
laugum í haust í fylgd með
leitarmönnum. Ég held að
ég hafi aldrei á ævi minni
komið á svona fallegt
svæði.“
Margt hægt að læra
af hestinum
Þegar kemur að hestunum
og innsæi þeirra segir Gígja
að til séu margar sögur af
hestum sem hafa bjargað eigendum sínum frá því að verða úti í ill-
viðrum með því að rata á óskiljanlegan hátt heim.
„Einnig eiga þeir það til að standa í höm (stilla sér upp í röð) fyrir
óveður þó að enn sé logn úti. Þá veit maður að það er von á smá
hvessingi. Ég hef reynt þetta sjálf með ratvísina þar sem ég hef
villst í svartaþoku, þá létum við hestana gjörsamlega ráða ferðinni
þar sem við fórum framhjá keldum, yfir á og leirur og enduðum á
bæjarhlaðinu þrátt fyrir að hafa villst af leið.“
Gígja leggur áherslu á að vera eins sönn og hún getur í lífinu.
Hún reynir að setja athyglina á það sem veitir henni hamingju
hverju sinni.
„Án allra hindrana væri ég að ferðast um heiminn og skapa sturl-
að skemmtilegar minningar með börnunum mínum og láta eitthvað
gott af mér leiða á sama tíma. Fjallamennska, skíði og hestaferðir
væru í hámæli. Reyndar hefur mig alltaf langað til að læra chi
gong, ég myndi pottþétt vera í útlegð einhvers staðar í svoleiðis at-
hvarfi með einhverju svaka gúrúi. Jógaferð til Balí er líka ofarlega
á lista í mínu lífi.“
Gígja er mikil fjölskyldukona og er umkringd fjölskyldu og vin-
um daglega. Kærleikur, tryggð, ást og fjölskyldan eru einkunnar-
orð hennar og til að halda í hamingjuna reynir hún að velta sér ekki
upp úr hlutum sem skipta engu máli í stóra samhenginu.
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir er bóndadóttir af Mýrunum. Hún er alin upp eins og indíánastelpa og segir
það mikil forréttindi að geta týnt sér í náttúrunni án þess að fólk væri að spá í hvar hún væri niðurkomin.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Ljósmyndir/Gígja Einarsdóttir
„Var hálfgert indíánabarn í æsku“
Ljósmyndir eftir Gígju Einarsdóttur eru á hótelherbergjum víða um heiminn.
Hestar geta
ratað heim við
ólíklegustu
aðstæður.
Gígja segir innsæi hesta
einstaklega mikið.
Ljósmyndir Gígju
vekja athygli víða.
Gígja Einars-
dóttir er mikið
náttúrubarn.