Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 24
anu. Æfingin hefst á því að leikmenn-
irnir eiga að halda boltanum en um
leið og þeir missa hann þurfa þeir að
aðlagast.“
Og þjálfarateymið hamrar á þess-
um skilningi, aftur og aftur. „Um leið
og liðið missir boltann þá heyrið þið
mig, Jürgen eða Pete hrópa: Hey!!
Vinnið hann til baka!! Ekki hætta!!
Það heyrist alla leið til Manchester,“
segir hann hlæjandi. „Þeir verða að
skilja hvers vegna þetta er svona
mikilvægt. Að leikur okkar gangi út á
kraft og tilfinningu. Ákafi er okkar
kennimark. Við komum aftur að
þessu á hverri einustu æfingu og það
er það sem heillar mig við þjálfunina;
með þessum hætti má hvetja til
hjarðhegðunar og efla liðsheildina.
Fyrir það lifi ég.“
Hætti sjálfur sautján ára
Jafnvel þó að Lijnders sé aðeins 36
ára býr hann að talsverðri reynslu
sem þjálfari. Sjálfur neyddist hann til
að leggja skóna á hilluna sautján ára
gamall vegna hnémeiðsla og sneri sér
þá að þjálfun. Ferillinn hófst hjá
áhugamannaliðinu SVEB í Hollandi
en þaðan lá leiðin til PSV, þar sem
hann þjálfaði ungmenni. Árið 2007
hélt Lijnders til Porto, þar sem hann
þjálfaði unglingaliðið og stýrði þró-
unarmálum. Eftir nokkur ár í Portú-
gal sýndi Manchester United honum
mikinn áhuga en ekki varð af þeim
vistaskiptum eftir að Sir Alex Fergu-
son settist í helgan stein. Ajax sá
Lijnders líka sem heppilegan fulltrúa
akademíunnar sinnar en í staðinn fór
hann til Liverpool og tók við 15 og 16
ára liðum félagsins. Ári síðar var
hann orðinn þjálfari hjá aðalliðinu.
Lijnders býr að margra ára
reynslu en eigi að síður hafa leik-
menn hans oftar en ekki áhrif þegar
hann hannar nýjar æfingar. „5 gegn
2-reiturinn er gott dæmi. Við köllum
hann raunar Milly-reitinn núna, eftir
að ég fékk innblástur frá James Mil-
ner, vegna þess að hann náði knett-
inum alltaf eftir örfáar sendingar.
Hann var ótrúlega snöggur og lyfti
einbeitingunni á æfingunni upp í nýj-
ar hæðir. Ég hugsaði með mér:
Hvernig get ég bryddað upp á reglu
þar sem allir framkvæma þessa æf-
ingu með sama ákafa? Þannig varð til
hvatinn fyrir þessa tvo í miðjunni að
ná boltanum innan sex sendinga.
Þetta er þín hugmynd, sagði ég við
Milly, og hinir leikmennirnir fíluðu
það í botn.“
Lijnders hefur tröllatrú á fyr-
irmyndum og að knattspyrnustjórinn
og fyrirliðarnir endurspegli félagið.
„Hjarta liðsins er hjarta þjálfarans.
Þannig að karakter þjálfarans verður
karakter liðsins til lengri tíma litið.
Þannig er það vegna þess að ekkert
vopn er sterkara en þitt eigið for-
dæmi. Sé ég agaður þjálfari þarf ég
ekki að aga leikmennina. Fyrirlið-
arnir okkar Hendo [Jordan Hend-
erson] og Milly, ásamt Virgil [van
Dijk] eru mjög agaðir sem aftur þýð-
ir að ekki þarf að aga hópinn í heild.
Til er gamalt spakmæli eignað Theo-
dore Roosevelt: „Öllum er sama hvað
þú veist þangað til þeir vita hversu
miklu máli það skiptir þig.“ Jürgen
þykir mjög vænt um leikmannahóp-
inn og starfsmennina í kringum hann
og leikmenn drekka mun meira af
speki manns í sig þegar þeir finna
hversu kærir þeir eru manni. Þannig
að þetta snýst fyrst og síðast um
sambandið milli þjálfarans og liðs-
ins.“
Viljum stjórna ferðinni
Lijnders er sannfærður um að sterkt
gagnkvæmt samband geri leikmönn-
unum hægara um vik að tileinka sér
heimspeki félagsins. Og sú sýn hverf-
ist um að leika knattspyrnu í sinni
sókndjörfustu mynd. „Við einblínum
iðulega á okkur sjálfa og að gera at-
lögu að andstæðingnum með bolta en
þó sérstaklega án bolta; þetta er elt-
ingaleikur í 95 mínútur. Við viljum
stjórna ferðinni gegn öllum liðum og
leikinn út í gegn. Þess vegna viljum
við leika á vallarhelmingi andstæð-
ingsins, negla hann niður og spila
sjálfir með fjölbreyttum hætti frá
öftustu línu. Við þurfum að vera mjög
ágengir þegar við missum boltann.
Þau augnablik kalla á mikla ákefð, án
þess að menn tapi einbeitingunni.
Þannig viljum við spila gegn Bör-
sungum úti, gegn Börsungum heima,
hvar sem er, gegn hverjum sem er.“
Þeirra eigin áherslur, þeirra eigin
leikur er vitaskuld miðlægur á
hverri einustu æfingu Liverpool en
þess utan þurfa þjálfararnir að huga
að hinum smæstu atriðum í leik and-
stæðingsins hverju sinni og finna
þannig leiðir til að ná frumkvæðinu.
Má þar nefna svæði sem andstæð-
ingurinn kann að skilja eftir ber-
skjölduð eða aðra veikleika sem
hægt er að færa sér í nyt. „Ég reyni
iðulega að flétta þessa þætti inn í æf-
ingarnar án þess að leikmennirnir
gefi því sérstakan gaum. Mörg lið
aðlaga leik sinn þegar þau mæta
Liverpool; þau fórna til dæmis mið-
herja til að valda sexuna okkar,
þannig að kerfið þeirra breytist úr 4-
4-2 í 4-5-1. Eða þau tefla fram fimm
mönnum aftast. Ég hygg að 75%
andstæðinga okkar í úrvalsdeildinni
breyti einhverju í uppstillingu sinni
fyrir leiki gegn okkur.“
Fyrsta veturinn sem hann var hjá
Liverpool, að þjálfa í akademíunni í
Kirkby, var Lijnders annað veifið
boðið til Melwood af þáverandi knatt-
spyrnustjóra, Brendan Rodgers, til
að ræða um hápressu og túlkun hans
á 3-4-3-leikkerfinu. „Það er ósvikið
hollenskt „total football“-kerfi, sem
að mínu mati gefur manni besta
möguleika á að geirnegla andstæð-
inginn á hans eigin vallarhelmingi.
Það hvetur leikmenn til að taka
meira frumkvæði.“
Lijnders heillaði Rodgers með
taktísku innsæi sínu og eftir aðeins
eitt tímabil hjá Liverpool var honum
boðið að vinna með aðalliðinu. Lijnd-
ers þáði boðið en hélt áfram góðum
tengslum við unglingastarfið og bjó
meðal annars til hóp hæfileikamanna
úr ýmsum árgöngum. Einn af þeim
sem komið hafa gegnum það starf er
Trent Alexander-Arnold, sem hefur
fest sig í sessi sem lykilmaður í aðal-
liðinu.
Klopp sótti hann aftur
Skömmu eftir að Lijnders hafði verið
hækkaður í tign þurfti Rodgers að
yfirgefa félagið en Jürgen Klopp átt-
aði sig fljótt á því, þegar hann tók við
keflinu, að hann hafði erft ungan og
efnilegan þjálfara í Lijnders og hélt
honum sem aðalliðsþjálfara. Svo virt-
ist sem að þeir bættu hvor annan upp
með nálgun sinni og taktískri kunn-
áttu. Fyrir vikið sá Klopp eftir Lijnd-
ers þegar hollenski þjálfarinn þáði
starf hjá annarrar deildar liðinu
NEC í heimalandi sínu veturinn
2017-18. En merkilegt nokk, þá var
Klopp fljótur að gera félaga sínum
nýtt tilboð. „Hann vildi að ég kæmi
aftur og gerðist aðstoðarþjálfari hans
og hafði á orði að við myndum í sam-
einingu bera ábyrgð á starfinu innan
félagsins. Það fór ekkert á milli mála
hvað hann vildi. Hann var sann-
færður um að geta stuðlað að enn
meiri framförum hjá liðinu og að við
gætum unnið frækilega sigra saman.
Sjálfur var ég með skýra mynd af því
í höfðinu hvernig þetta yrði útfært; á
þessu tiltekna augnabliki rann það
upp fyrir mér,“ segir Lijnders.
Hann ákvað að ganga að tilboði
Klopps enda þótt hann hefði rétt haf-
ið störf í Hollandi. „Jürgen á auðvelt
með að hreyfa við fólki. Hann veit ná-
kvæmlega hvað hann vill og þetta
símtal sannfærði mig.“
Og Liverpool hefur bara bætt sig
síðan; taktíkin er sveigjanlegri og
ákefðin meiri, sem leiddi til sigurs í
Meistaradeild Evrópu og HM fé-
lagsliða og nú blasir Englandsmeist-
aratitillinn við liðinu eftir þrjátíu ára
hlé. Klopp hefur margoft lýst aðdáun
sinni á Lijnders og sá síðarnefndi
sparar ekki stóru orðin þegar talið
berst að hinum þýska félaga hans.
„Hæfnin til að skilja og breyta leikn-
um er ekki öllum gefin. Maður getur
verið leiðtogi, haft æfingarnar á
hreinu, en þegar öllu er á botninn
hvolft þarf þjálfari að geta breytt
leikjum og það getur Jürgen svo
sannarlega gert. Leikaðferð hans er
mjög skýr og það tekur hann ekki
nema nokkrar mínútur að lesa í ólík-
ustu aðstæður sem kunna að koma
upp.“
Leysir vandamál áður
en þau koma upp
Lijnders nefnir útileikinn gegn
Barcelona í fyrra sem dæmi. „Við
töpuðum 3:0 en eftir leikinn hafði
Jürgen þetta að segja í klefanum:
„Eina liðið í heiminum sem getur
snúið þessari stöðu gegn Barcelona
sér í vil erum við.“ Þessi fullyrðing
lyfti mannskapnum, ekki síst vegna
þess hvernig við höfðum spilað þetta
kvöld. Leikmennirnir þurftu bara að
ganga í áttina að þjálfaranum til að
líða betur.“
Að sögn Lijnders er þetta af-
bragðsdæmi um mælsku Klopps.
„Hann leysir vandamál áður en þau
koma upp. Sér hluti fyrir. Í upphafi
vikunnar á hann til að nefna hvað
gæti mögulega farið úrskeiðis og
tryggir síðan að það gerist ekki.
Hvað varðar leiðtogahæfileika og
hvatningu þá er hann einn sá besti í
heiminum.“
Lijnders viðurkennir að tengslin á
milli þeirra Klopps séu meira en bara
fagleg. „Þegar maður starfar á svona
háu getustigi þá þarf mikið traust að
vera til staðar milli manna. Þetta er
miklu meira en faglegt samband,
þetta er ákveðin tenging. Við tölum
mikið saman og rökræðum.“
Stundum hittast þeir heima hjá
hvor öðrum en oftast fara þessir
fundir fram á Melwood. Þeir eyða
jafnvel frítíma sínum saman en á æf-
ingasvæðinu er paddle-tennisvöllur í
glerbúri sem er sérhannaður fyrir
Lijnders og Klopp. Þeir eru miklir
aðdáendur þeirrar íþróttar. „Þetta er
blanda af tennis og skvassi og út af
glerbúrinu er boltinn alltaf í leik.
Völlurinn er gerður fyrir tvo gegn
tveimur og maður glímir ekki aðeins
við andstæðinginn, heldur líka við
sjálfan sig.“
Upphaflega stóð til að reisa völlinn
við heimili þeirra en þeir bjuggu á
þeim tíma nálægt hvor öðrum en
þeim þótti betra að hafa hann á æf-
ingasvæðinu. „Þetta er geggjað. Við
leikum að jafnaði tvisvar eða þrisvar í
viku, stundum oftar,“ segir Lijnders.
Þessir æsispennandi leikir eru
kærkomin hvíld frá amstri dagsins.
„Að grípa í spaðann milli funda og
æfinga er frábær leið til að slaka á.
Hægt er að spila þennan leik án
100% einbeitingar. Best er að hugsa
um alls ekki neitt á meðan við spilum;
við slíkar aðstæður fær maður stund-
um hugmynd að frábærum lausnum
á tilteknum vanda.“
Horfir fram en ekki aftur
Í huga Lijnders snýst knattspyrna
um að horfa fram á veginn, ekki til
baka. „Ég segi gjarnan að menn séu
ekki eins góðir og síðasti leikur, held-
ur sá næsti. Það er út af því að maður
getur haft áhrif á þann leik.“
Í öllu sem Hollendingurinn tekur
sér fyrir hendur er undirbúningur
lykilatriðið. Og hann hefur lært að
minnstu smáatriði geta skipt mestum
sköpum. Daginn sem Barcelona kom
í heimsókn í fyrra sendi hann starfs-
fólki á Anfield skilaboð um að gefa
boltakrökkunum fyrirmæli um að
skila boltunum eins hratt og unnt er
til leikmanna. „Þau geta ráðið úrslit-
um í kvöld; hver einasti maður þarf
að vera uppi á táberginu,“ skrifaði
Lijnders.
Og það borgaði sig. Fjórða og síð-
asta markið sem réði úrslitum kom
eftir að Trent Alexander-Arnold fékk
boltann hratt frá boltadreng og gat
tekið hornspyrnuna strax á Divock
Origi sem renndi knettinum í markið.
Þannig að úrslitaleikurinn, sem
margir héldu að væri fokinn út í veð-
ur og vind, varð að veruleika sem
gerði Lijnders kleift að halda áfram
vinnunni sem hann var þegar byrj-
aður á vegna uppgjörsins í Madríd.
Það var ekki nema 21 sekúnda liðin
af úrslitaleiknum þegar hann gerði
sér grein fyrir því að sú vinna hafði
borgað sig. Púslið var gengið upp.
Leikmenn Liverpool
hampa Evrópubikarnum
í Madríd síðasta vor.
Mikið mæðir á knattspyrnustjóra og fyrirliða Liverpool og Lijnders segir að
Jürgen Klopp og Jordan Henderson séu innilega starfi sínu vaxnir.
AFP
Arthur Renard er sjálfstætt
starfandi blaðamaður í Hollandi
AFP
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020
KNATTSPYRNA