Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2020
STILLANLEGT RÚM
C&J Platinium botnar með
Serta Therapyst dýnum
2 x 100 x 200
Aðeins 435.000 kr.
Fullt verð 619.800 kr.
DÚNDUR
LOKATILBOÐ
184.800 KR.
ÞÚ SPARAR
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚMOG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
60%AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
ÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
UNDRI
HEILSUINNISKÓR
DÚNVÖRUR Í
MIKLU ÚRVALI
SÆNGURFÖT
MIKIÐ ÚRVAL
TIME OUT
HÆGINDASTÓLAR
LOKAHELGIN
LÝKUR Á LAUGARDAGINN 15. FEB.
Í þáttaröðinni Andrar á flandri leggja nafnarnir og
sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þátt-
unum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr
Með okkar augum land undir fót og er ferðinni heitið
til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta
átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean.
Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í
samband við leikarann Rowan Atkinson nota
nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
Kristófer Dignus leikstýrir þáttunum sem framleiddir
eru af HD productions í samstarfi við RÚV.
Í fyrsta þættinum heimsækja nafnarnir þekktan töku-
stað úr þáttunum Mr. Bean við suðurströnd Englands,
berja Stonehenge augum, biðja drottin um styrk í sögu-
frægri kirkju og fylgjast með fólki hlaupa niður brekku á
eftir osti.
Andri Freyr og
Andri Freyr hress-
ir á Bretlandi.
Ljósmynd/RÚV
And(r)a að sér Bretlandi
Andrar á flandri og leitin að Mr. Bean nefnist ný þáttaröð í sex hlutum sem
hefur göngu sína fimmtudaginn 20. febrúar næstkomandi á RÚV.
Morgunblaðið spurði áleit-
innar spurningar um miðjan
febrúar 1960: Eru íslenskar
stúlkur þrælar tískunnar? Til
að leita svara sneri blaðið sér
til þriggja „blómarósa í höf-
uðborginni“.
Þegar Anna Þrúður Þor-
kelsdóttir flugfreyja heyrði
fyrstu fréttirnar af tískunni
þetta árið datt henni í hug
þessi vísa eftir Hannes Haf-
stein:
Fegurð hrífur hugann meira,
ef hjúpuð er.
Svo andann gruni ennþá fleira
en augað sér.
„En það verður víst að við-
urkennast að ég er eins og
flest annað kvenfólk – þótt ótrú-
lega margar hér á landi vilji ekki
viðurkenna það – ákaflega veik
fyrir tízkunni, og nýju tízkuna for-
dæmi ég ekki að óséðu. – Að vísu
fer ég fyrst að hlæja, þegar ég sé
konu klædda samkvæmt
nýjustu tízku, en næsti
kjóll, sem ég fæ mér, er, við
skulum segja „ófullkomin“
eftirlíking af nýju tízkunni,“
sagði Anna Þrúður. Einn
kost hafði hún þegar komið
auga á í hinni nýju tísku.
„Það er að engin takmörk
virðast fyrir því, hvað kven-
fólkið á að vera langt og
mjótt og þar af leiðandi
hækka að líkindum hæl-
arnir á skónum. Mér finnst
skór ekki vera skór nema
með háum hæl og það
örmjóum. Og skór skipta
ekki svo litlu máli í heildar-
klæðaburðinum. Mér virð-
ist íslenzkar stúlkur um of
gleyma því,“ bætti Anna Þrúður
við.
GAMLA FRÉTTIN
Eru stúlkur þrælar tískunnar?
„Það er ekki nóg að vel sé vandað til ytri klæðn-
aðar ef það sem fyrir innan er er eintómt hismi,“
sagði Anna Þrúður Þorkelsdóttir árið 1960.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Ben Kingsley
leikari
Jón Sveinsson, Nonni
rithöfundur
Egill Ólafsson
tónlistarmaður