Morgunblaðið - 09.03.2020, Page 1
M Á N U D A G U R 9. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 58. tölublað 108. árgangur
HEIÐRUÐ AF
KIRKJUNNI FYRIR
ÁRATUGA STARF
FYRSTA
TVENNAN Í
ÁRATUG
NÝR VETTVANGUR
FYRIR ÍSLENSKA
FRUMKVÖÐLA
MANCHESTER UNITED 26 FRÆÐSLA OG TENGSL 12EINSTAKT FRAMLAG 10
Skíða- og sleðakappar á öllum aldri
renndu sér saman í brekkunni við
Jafnasel í Breiðholti í gær og nutu
sólarinnar á meðan. Lyftan sá um
að toga skíðafólkið upp en sleða-
fólkið þurfti aftur á móti að sjá um
togið sjálft. Það spillti þó vitanlega
ekki fjörinu og þustu börn upp og
niður brekkuna fram eftir degi.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Á bæði sleðum og skíðum í Breiðholti
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stíft var fundað hjá ríkissáttasemjara
í allan gærdag en óvíst var um út-
komu viðræðnanna þegar Morgun-
blaðið fór í prentun á tólfta tímanum.
Sex fundir voru haldnir í gær. Þar
ræddust við Sameyki og samninga-
nefnd ríkisins (SNR), Sjúkraliðafélag
Íslands og samninganefnd Sambands
íslenskra sveitarfélaga (SNS),
Sjúkraliðafélagið og SNR, Samflot og
SNS. Fundir þeirra hófust kl. 10 í
gærmorgun. Samninganefndir Efl-
ingar og Reykjavíkurborgar (RVK)
og eins Sameykis og RVK mættu til
viðræðna kl. 14.
Aðildarfélög BSRB ákváðu í gær
að hætta við baráttufund í Austur-
bæjarbíói í dag vegna neyðarstigs al-
mannavarna. Þorri félagsmanna
BSRB fer í verkfall í dag og á morgun
ef ekki semst. Veittar voru undan-
þágur vegna sjúkraliða og annars
starfsfólks á Landspítalanum og hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
frestuðu verkfalli.
Ótímabundið verkfall hefst í dag
hjá félagsmönnum BSRB í sumum
grunnskólum og frístundaheimilum á
höfuðborgarsvæðinu, hjá Skattinum,
sýslumönnum, þjónustu- og nýsköp-
unarsviði Reykjavíkurborgar og hjá
Akranesbæ.
Sáttafundir stóðu fram á nótt
Stíft fundað en óvíst um útkomuna Verkfall BSRB boðað í dag ef ekki semst
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Verkfall Þessi miði var kominn upp
í Vínbúðinni í Skeifunni í gærkvöldi.
„Ég fer að ráðum sóttvarnalæknis
og það er hans að gera tillögu til mín
í samráði við almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra og meta þessa
þætti – það hefur ekki gerst enn,“
segir Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra spurð að því á hvaða
tímapunkti þurfi að huga að því að
leggja á samkomubann vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar sem veld-
ur COVID-19 sjúkdómnum.
Til skoðunar er hjá stjórnvöldum
að leggja á bann við samkomum þar
sem fjöldi gesta er umfram tiltekið
viðmið. Ákvörðun um slíkt bann
ræðst af því hversu hröð útbreiðsla
kórónuveirunnar er og hver geta
heilbrigðiskerfisins er til að sinna
sjúklingum á hverjum tíma.
Sums staðar talað um þúsund
„Við höfum verið að ræða það okk-
ar á milli að það kunni að vera rétt að
byrja á almennum tilmælum þar sem
þessi innanlandssmit eru enn sem
komið er að koma beint frá fólki sem
hefur verið á þessum skíðasvæðum.
Við erum ekki með víðtæk sam-
félagssmit enn.“
Spurð um fjöldann sem slíkt bann
myndi miða við segir Svandís að ým-
is viðmið hafi verið rædd og verið sé
að horfa til framkvæmdar í ná-
grannalöndum.
„Sums staðar er talað um eitt þús-
und en á öðrum stöðum er talan
lægri. Það kæmi einnig til skoðunar
hvort það yrði gert í skrefum,“ bætir
hún við.
Heildarfjöldi þeirra sem eru smit-
aðir af kórónuveirunni var í gær-
kvöldi orðinn 58 eftir að þrjú ný smit
greindust í þeim sýnum sem tekin
voru úr farþegum sem komu heim
með flugi frá Veróna á Ítalíu á
laugardag. Tíu af þessum smitum
eru innanlandssmit. Fjöldi fólks í
sóttkví er 461, þar af eru 410 á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fimm hjúkrunarfræðingar sem
starfa á gjörgæsludeild Landspítal-
ans í Fossvogi eru smitaðir af veir-
unni og eru þeir nú allir í sóttkví.
Ákveðið var að grípa til þeirra að-
gerða að skipta upp gjörgæsludeild-
inni og fækka opnum rúmum. Mönn-
un á deildinni hefur jafnframt verið
tryggð.
Umspilsleikur Íslands og Rúmen-
íu í undankeppni EM karla í knatt-
spyrnu gæti verið leikinn fyrir lukt-
um dyrum komi til samkomubanns.
Háskólar munu hefja fjarkennslu ef
samkomubann hindrar hefðbundna
kennslu.
Samkomu-
bann verði út-
breiðsla hröð
Ekki með víðtæk samfélagssmit
enn, segir Svandís heilbrigðisráðherra
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Fundað Haldinn var fundur í gær.
Kórónuveiran
» Fjöldi kórónuveirusmita er
orðinn 58. Þrjú ný smit greind-
ust í gær.
» Innanlandssmit eru 10. Öll
koma beint frá fólki sem hefur
verið á skíðasvæðum erlendis.
» 461 eru í sóttkví. Af þeim eru
410 á höfuðborgarsvæðinu.
MKÓRÓNUVEIRA»4, 6, 8, 9, 10, 13, 14
Formaður Slysavarnafélagsins
Landsbjargar segir tillögur starfs-
hóps um hvernig draga megi úr nei-
kvæðum áhrifum mengunar frá flug-
eldum herða að flugeldasölum.
„Við erum svolítið uggandi yfir
þessari þróun sem er að eiga sér stað.
Þetta skiptir okkur alveg ofboðslega
miklu máli. Þetta er hryggjarstykkið
í fjármögnun okkar,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið og vísar til
flugeldasölu.
Þá segir hann sveitirnar ekki hafa
fundið neitt annað sem komið geti í
stað sölu á flugeldum. »11
Landsbjörg uggandi
yfir tillögunum