Morgunblaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 ✝ MálmfríðurÞórhallsdóttir fæddist í Hafnar- firði 31. ágúst 1944. Hún lést á Sólvangi 20. febr- úar 2020. For- eldrar hennar voru Þórhallur Hálfdán- arson, f. 30. októ- ber 1916, d. 6. október 2001 og Guðmunda Hall- dórsdóttir, f. 14. júlí 1919, d. 26. apríl 2001. Systkini Málmfríðar eru: 1) Bjarni Þórhallsson, f. 30. janúar 1943, eiginkona María Olga Traustadóttir, f. 6. maí 1946, d. 6. júní 2008. 2) Auður Þórhallsdóttir, f. 22. janúar 1946, eiginmaður Valtýr Björg- vin Grímsson, f. 26. maí 1947, d. 8. desember 2018. 3) Ingibjörg Margrét Þórhallsdóttir, f. 28. ágúst 1947, sambýlismaður Pét- ur Guðmundsson, f. 18. ágúst 1945. 4) Hálfdán Þórhallsson, f. 29. febrúar 1952. Hinn 26. mars 1967 giftist Málmfríður Þórði J. Karlssyni, f. 1. ágúst 1944, d. 8. desember 2019. Foreldrar hans voru Klara Guðrún Þórðar- dóttir, f. 1. júní 1923, d. 4. júlí 2008 og Karl Jóhann Magnús- son, f. 7. september 1916, d. 26. ágúst 1989. Börn þeirra Þórðar og Málmfríðar eru: 1) Þórhild- ur, f. 4. júní 1962, eiginmaður Þór Jóhannsson, f. 20. ágúst 1961, börn þeirra eru Þórdís Lilja, f. 27. desem- ber 1987, Arndís Sara, f. 22. mars 1990, Steinar Páll, f. 11. apríl 1999 og Kári Freyr, f. 11. apríl 1999. 2) Hálf- dán Karl, f. 17. des- ember 1966, eigin- kona Freyja Árnadóttir, f. 13. september 1969, börn Hálfdáns með fyrrverandi eiginkonu, Elínu Margréti Guðmundsdóttur, f. 25. apríl 1969, eru Guðmundur Birkir, f. 16. júní 1994 og Thelma Rós, f. 11. janúar 2002. 3) Jökull Ingvi, f. 5. janúar 1976, eiginkona Snædís Ögn Flosadóttir, f. 1. mars 1983, börn þeirra eru Dagur Snær, f. 25. september 2001, Hekla Mjöll, f. 19. október 2005 og Logi Fannar, f. 9. nóvember 2006. Málmfríður hóf störf í bæjar- útgerðinni í Hafnarfirði. Seinna vann hún á Hótel Holti og var á tímabili heimavinnandi hús- móðir. Árið 1983 hóf hún störf á Hrafnistu í Hafnarfirði í ræst- ingum, þar lauk hún starfsævi sinni árið 2013 en seinustu árin starfaði Málmfríður sem ræst- ingastjóri. Útför Málmfríðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. mars 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku amma, í dag kveðjum við systkinin þig. Við eigum einna helst eftir að sakna þess að heyra þig hlæja en það gerðir þú ósjald- an. Það eru ófáar minningar sem við systkinin eigum um þig allt frá áramótagleði heima á Hraun- tungu í að vera uppi í bústað í Hraunborgum. Við systurnar gleymum því aldrei þegar við fór- um í fyrstu utanlandsferðina okk- ar með þér og mömmu til Dan- merkur. Sú ferð skapaði óteljandi minningar sem við munum geyma í hjarta okkar. Þegar við vorum orðnar eldri fórum við að vinna með skóla á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem þú varst ræstingastjóri. Við erum þakk- látar fyrir þennan tíma en þar fengum við að kynnast þér fyrir utan fjölskylduna og sjá hversu mikill gleðigjafi þú varst. Strák- arnir muna eftir bústaðarferðum þar sem þú varst alltaf tilbúin með grillaðar samlokur fyrir þá þegar þeir mættu á svæðið. Sama hvað við vorum að gera með þér, amma, var alltaf gaman og ekki langt í hláturinn. Þú varst sann- kallaður gleðigjafi enda var aldr- ei dauð stund með þér. Við eigum eftir að sakna þín. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Hvíl í friði, elsku Malla amma. Þórdís Lilja, Arndís Sara, Steinar Páll og Kári Freyr. Málmfríður Þórhallsdóttir ✝ Þórey Önund-ardóttir fædd- ist í Neskaupstað 29. febrúar 1932. Hún lést á Land- spítalanum í Reykjavík 26. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Önundur Steindórsson, f. 1896 í Hruna- mannahreppi, Ár- nessýslu, d. 1979, og Guðrún Kristjana Sigurðardóttir, f. 1897 í Eyjum í Breiðdal, S- Múlasýslu, d. 1964. Þórey var næstyngst sex systkina, en þau eru: a) Er- lingur Önundarson sjómaður, f. 1922, d. 1996; b) Steindór Önundarson verkstjóri, f. 1923, d. 1996; c) Kristín Önundardóttir húsmóðir, f. 1925, d. 2019; c) Sigurður Önundarson sjómaður, f. 1927, d. 2002; d) Stefanía Bergþóra Ön- undardóttir húsmóðir, f. 1935. Eftirlifandi eiginmaður Þóreyjar er Baldur Bjarnason rafeindavirki, f. 27.3. 1932 á Húsavík. Foreldrar hans voru Bjarni Benediktsson, kaup- maður o.fl., f. 1877, d. 1964, og Þórdís Ásgeirsdóttir, f. 1889, d. 1965. Þau gengu í hjónaband í Húsavíkurkirkju 30.6. 1954 og eignuðust fjórar dætur: 1) Ásdís Rósa Baldursdóttir, þar sem leiðir þeirra Baldurs lágu saman. Á þessum árum vann Þórey ýmis störf, s.s. í Skálanum (Hressingarskál- anum), og á Hótel Valhöll á Þingvöllum. Um skeið vann hún hjá Rönning. Á árunum 1953-1954 stund- aði Þórey nám við Hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði og þar eignaðist hún vinkonur sem héldu hóp- inn lengi vel og voru í sauma- klúbbi saman. Fyrstu búskaparárin bjuggu Þórey og Baldur í Reykjavík en vorið 1958 fluttu þau að Eiðum á Fljóts- dalshéraði þar sem Baldur var starfsmaður Ríkis- útvarpsins og vann við endur- varpsstöðina á staðnum ásamt því að sinna almennum viðgerðum fyrir íbúa héraðs- ins og þjónusta fiskveiðiflot- ann á Austfjörðum. Eftir 8 ára búsetu á Eiðum fluttu þau aftur til Reykjavíkur og settust að í Vesturbænum, á Framnesvegi 63. Fyrir einum 30 árum fluttu þau á Klapparstíg 1. Eftir að börnin komu til sögunnar var Þórey fyrst og fremst húsmóðir en vann þó um um nokkurra ára skeið í fjölskyldufyrirtækinu Radio- miðun ehf. eftir að dæturnar voru komar á legg. Einnig vann hún um árabil sem sjálf- boðaliði fyrir Rauða krossinn. Um tíma áttu þau hjón sinn sælureit í Fljótshlíðinni, sem hét Höfði og er í landi Torfa- staða. Útför Þóreyjar fer fram frá Neskirkju í dag, 9. mars 2020, klukkan 13. f. 1956, maki Kristján Gíslason, f. 1956. Synir þeirra eru: Gísli Kristjánsson, f. 1981, kvæntur Tinnu Jónsdóttur Molphy og eiga þau þrjú börn, Baldur Krist- jánsson, f. 1983, í sambúð með Birnu Einars- dóttur og eiga þau einn son og Árni, f. 1989. 2) Guðrún Baldursdóttir, f. 1959, maki Gísli Sverrir Árna- son, f. 1959. Börn þeirra eru: Þórey Gísladóttir, f. 1984, hennar maki er Vésteinn Fjölnisson og eiga þau einn son, Árni Gíslason, f. 1986, í sambúð með Bergþóru Bald- ursdóttur, Helga Gísladóttir, f. 1989, í sambúð með Atla Kristinssyni og eiga þau tvö börn. Yngstur er Sævar, f. 1994. 3) Björg Baldursdóttir, f. 1963. Hún á soninn Daníel, f. 1993, faðir hans er Ingvar Garðarsson, f. 1967. Daníel er í sambúð með Viktoríu Ein- arsdóttur, f. 1994. 4) Kristjana Baldursdóttir, f. 1971, d. sama dag. Þórey ólst upp í foreldra- húsum í Neskaupstað og hlaut hefðbundna menntun þess tíma. Hún fluttist til Reykja- víkur kringum tvítugsaldurinn Það er einu sinni þannig að sumir samferðamenn hafa meiri áhrif á mann en aðrir. Þeir hafa ekki endilega verið að leggja manni lífsreglurnar heldur hef- ur atgervi þeirra og framkoma við aðra sett eitthvert viðmið sem maður hefur tekið sér til fyrirmyndar. Maður sér þetta ekki á meðan á lífsleiknum stendur heldur fyrst þegar leik er lokið. Þannig er það með tengdamóður mína, hana Þór- eyju. Sjö árum eftir brúðkaup okk- ar Ásdísar deildum við Þórey skrifstofu í fjölskyldufyrirtæk- inu sem þau hjónin treystu tengdasyninum fyrir. Ég man hvað ég varð heillaður af sam- tölum hennar þegar hún sinnti innheimtustörfunum: „Já vinur, þú kemur bara þegar betur stendur á...“ Engin leiðindi, að- eins elskulegheit sem stuðluðu að tryggð viðskiptavinarins við fyrirtækið. Þegar tengdasonurinn setti tölvu á borðið sitt þá opnaði Þórey færsludagbókina sína, stóran kladda sem náði yfir hálft borðið, og byrjaði að skrá færslur dagsins. Þegar búið var að ganga úr skugga um að allt stemmdi var reglustikan tekin upp og lokatalan tvíundirstrik- uð. Þó að við værum búin að vera saman allan daginn þá tók hún alltaf á móti tengdasyn- inum með vænum kossi og faðmlagi þegar við t.d. hittumst á heimili þeirra Baldurs um kvöldið. Það eru allar þessar stundir sem koma núna upp í hugann, þessar einföldu og hversdagslegu athafnir sem ég skilgreini í dag sem gæða- stundir. Fallegt bros og blik í augum var svo mildandi þegar henni fannst full djúpt í árina tekið og ósjaldan fékk Baldur þess notið. Hjónabandið var ástríkt og gott að finna hversu vel þau héldu utan um hvort annað. Ég varð strax heillaður af ferðalög- um þeirra um heiminn og fannst þau alltaf lifa hverja stund rækilega. Þegar við Ás- dís þurftum pössun voru þau alltaf boðin og búin og gleymi ég ekki þegar Baldur sagði eitt sinn við mig: „mér finnst OKKUR hafi tekist vel með uppeldi drengjanna“. Þórey fékk sinn skerf af óblíðum sjúkdómum en alltaf komst hún yfir veikindin, nema þau síðustu. Þegar krabbamein- ið lét á sér kræla og var fjar- lægt kom í ljós úr hverju hjóna- bandið var gert. Hjörtu þeirra slógu sem eitt allan tímann sem Þórey glímdi við vágestinn. Öllu þessu tók Þórey af einstakri yfirvegun og auðmýkt og kveinkaði sér aldrei. Brosið kom fljótt á andlit hennar og maður nánast gleymdi öllu því sem hún hafði gengið í gegnum. Eitt var þó það atvik sem ég held að hafi setið sterkt í Þór- eyju og Baldri, en var ekki mik- ið rætt. Það var andlát Krist- jönu, dóttur þeirra. Hvort sem það er rétt hjá mér eða ekki, þá finnst mér að fjögur málverk af mismunandi stúlkum sem eru á veggjum heimilis þeirra, hafi alltaf verið tileinkuð minning- unni um Kristjönu, sem lifði að- eins einn sólarhring. Hvert mál- verk prýddi falleg stúlka en á mismunandi aldursskeiði. Hér að leikslokum, þegar bókhaldið er gert upp og ég dreg fram gömlu færslubókina sem Þórey notaði á sínum tíma við ritun dagbókarfærslna, þá þakka ég henni fyrir lífsgæðin sem hún færði mér. Blessuð sé minning hennar. Kristján. Orðtakið „Að taka manni opnum örmum“ hefur sérstaka þýðingu í íslensku máli. Lát- bragðið sjálft er þó ekki nema hluti athafnarinnar því það hug- arþel sem býr að baki því að fagna manni á þennan hátt er dýrmætt og jafnvel ógleyman- legt undir ákveðnum kringum- stæðum. Þannig er það í mínu tilfelli. Ég upplifði fyrstu heim- sókn mína á heimili verðandi tengdaforeldra á þennan hátt. Um leið og ég steig inn úr dyr- unum á Framnesveginum, nokkru eftir að ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir heimasætunni Guðrúnu, bauð Þórey mig velkominn með út- breiddan faðminn og í rauninni hefur maður verið umvafinn hlýju og væntumþykju hennar alla tíð síðan. Þórey var alin upp í sjávar- plássi, undir bröttum fjöllum, en hleypti ung heimdraganum og bjó mestalla ævi í Reykjavík. Hún unni fjölbreytileika þétt- býlisins en auðvelt var að finna að taugarnar lágu austur á bernskuslóðir og sérstaklega var henni annt um minningu foreldra sinna. Pabba sem sótti sjóinn af harðfylgi, oft með löngum fjarvistum á vetrarver- tíð, mömmu sem hélt heimilinu saman og vann myrkranna á milli. En það var fyrst og fremst hið rólega yfirbragð og hlýja sem við sóttum í hjá Þóreyju. Ég naut oft gestrisni þeirra Baldurs þegar ég átti erindi til Reykjavíkur og stækkandi fjöl- skylda okkar Guðrúnar heim- sótti þau í sveit og borg. Þórey hafði mikið jafnaðargeð en var þó ákveðin í skoðunum og til- mælum þegar það átti við, og hafði gaman af því að fræðast og ræða málin. Hún leiðbeindi manni gjarnan um víðerni ís- lensks máls og bjó hverjum og einum gott og hollt veganesti í þeim efnum. Þau Baldur voru vinamörg og þekktu fólk um allt land. Þau höfðu ánægju af ferðalögum og heimsóttu fjar- lægar heimsálfur jafnt sem fal- lega staði innanlands. Við Guðrún eignuðumst litla Þóreyju sem amman var mjög stolt af og hún unni öllum átta ömmubörnunum sínum af ein- lægni. Hún fylgdist með þeim vaxa úr grasi og eignast sjálf maka og börn og á sinn hátt hélt hún utan um allan hópinn sinn. Ég kveð Þóreyju tengda- móður mína með kveðjunni sem hún viðhafði svo oft sjálf, hvort sem maður átti langa ferð fyrir höndum eða var bara á leiðinni í næsta bæjarhverfi. „Vertu blessuð, Þórey mín, góða ferð og farðu nú varlega.“ Gísli Sverrir Árnason. Elsku amma, eða nafna mín eins og þú kallaðir mig alltaf. Mikið þykir mér vænt um allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum árin. Fyrst á Framnesveginum þar sem þið afi bjugguð, mér fannst svo gaman að skoða allt fína dótið þitt. Í Höfða, sumarbústaðnum ykkar afa, þangað var alltaf gaman að koma og mikið að sjá og gera. Svo alla föstudaga þeg- ar ég var í námi í Reykjavík. Mikið var gott að koma til ykk- ar og spjalla um daginn og veg- inn. Þær stundir gáfu mér alveg ótrúlega mikið. Þú varst alltaf að hrósa mér, það þótti mér svo vænt um. Ég er þakklát fyrir allar góðu minningarnar. Elsku amma, þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði. Þórey Gísladóttir Ótal bjartar og fallegar minningar koma upp í hugann þegar ég minnist Þóreyjar Ön- undardóttur sem kvödd er í dag. Þær tengjast aðallega æsku- og unglingsárunum því vart leið sá dagur að ég kæmi ekki í heimsókn á Framnesveg- inn á heimili Þóreyjar, Baldurs og dætranna þriggja. Það var alltaf jafn notalegt og tilfinningin var að maður væri innilega velkominn. Gest- kvæmt var á heimilinu enda stórar fjölskyldur sem stóðu að hjónunum og mikil samheldni ríkjandi. Þórey var fyrirmynd- arhúsmóðir enda húsmæðra- skólagengin sem þótti góð menntun í þá daga. Hún var umhyggjusöm og hlý og tók alltaf vel á móti mér, vinkonu elstu dótturinnar, Ásdísar Rósu. Við kynntumst þegar fjölskyld- an flutti í bæinn frá Eiðum en leiðir okkar lágu saman í níu ára bekk í Melaskóla sem var mikil gæfa fyrir mig. Frá deg- inum sem við hittumst urðum við Ásdís perluvinkonur og vor- um saman öllum stundum. Ég eignaðist að nokkru leyti auka- fjölskyldu og leið ávallt vel í ná- vist hennar. Ég leit sérstaklega upp til Þóreyjar sem alltaf var til staðar og var mér fyrirmynd í mörgu og ég hét því að feta í hennar fótspor þegar ég yrði fullorðin. Hún bakaði á hverjum föstudegi svo mikið „bakkelsi“ að það var hlaðborð alla daga sem beið okkar á eftirmiðdög- unum þegar við komum svangar heim úr skólanum. Ég man líka hvað ég dáðist að því hvað hún var flink að strauja og hún straujaði bók- staflega allt, ekki einungis skyrtur, blússur og sængurföt eins og tíðkaðist heldur líka handklæði, viskastykki og jafn- vel tuskur. Ég hef nú því miður ekki staðið við fyrirheitið, hvorki um að baka á hverjum föstudegi né strauja allt milli himins og jarðar en ég hef oft hugsað til hennar þegar þessi störf eru viðhöfð. Segja má að Þórey og Baldur hafi verið á undan sinni samtíð í svo mörgu. Þau voru einstak- lega samhent hjón sem kunnu að njóta stundarinnar og lifa í núinu. Þau voru ekki að flýta sér að stækka við sig þótt þrengdist um fjölskylduna á tímabili heldur bættust við fjöl- skyldumeðlimir utan af landi sem voru við nám í Reykjavík og bjuggu hjá þeim veturlangt. Það var nóg pláss á Framnes- veginum fyrir alla. Þórey og Baldur lögðu áherslu á samverustundir með fólkinu sínu og fóru oft í utan- landsferðir með dætur sínar á sjöunda áratugnum sem var harla óvenjulegt á þeim tíma. Þau fóru líka oft út að borða á fínustu veitingastaðina í bænum og þá gjarnan á sunnudögum. Þau tóku okkur Ásdísi stundum með og mun ég aldrei gleyma því þegar þau buðu okkur á Grillið á Hótel Sögu og við tólf ára gamlar gæddum okkur á humri og öðrum fínheitum og upplifðum okkur sem sannar prinsessur. Hildur Einarsdóttir. Þórey Önundardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGBJÖRT GUÐMUNDSDÓTTIR, sem lést 23. febrúar, verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi fimmtudaginn 12. mars klukkan 13. Guðmundur Unnarsson Kristín Sveinsdóttir Guðfinna Eyjólfsdóttir Sigurður G. Marteinsson Jón Þór Eyjólfsson Kolbrún Ögmundsdóttir Emil Þór Eyjólfsson Jónína Valtýsdóttir Erla Eyjólfsdóttir Ingi Gunnlaugsson Eydís Eyjólfsdóttir Stefán G. Einarsson Ómar Þór Eyjólfsson Þórey S. Þórðardóttir barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI EYJÓLFSSON húsasmíðameistari, Kristnibraut 2, áður Byggðarenda 3, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 11. mars klukkan 13. Sigríður Ragnheiður Guðnadóttir Elísabet Gísladóttir Arnór Valdimarsson Sigríður Gísladóttir Gísli Ólafsson Eyjólfur Gíslason Þórey Guðlaugsdóttir barnabörn, makar og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.