Morgunblaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.03.2020, Blaðsíða 6
KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is Trommur Fyrir byrjen dur og leng ra komna meiriháttar úrval Guðni Einarsson gudni@mbl.is Líkur á alvarlegum sjúkdómi af völd- um nýju kórónuveirunnar aukast með hækkandi aldri, sérstaklega eft- ir 50 ára aldur. Þetta kemur fram í leiðbeiningum sóttvarnalæknis fyrir fólk með áhættuþætti vegna COVID-19 sjúkdómsins. Fólk með ákveðin undirliggjandi vandamál er einnig í hættu á alvar- legri sýkingu ef það smitast af COV- ID-19 sjúkdómi. Þegar borin eru saman væg og alvarleg tilfelli er greinilegt að ákveðin vandamál voru til staðar hjá mun fleirum með alvar- legan sjúkdóm en vægan. Þau eru hár blóðþrýstingur/hjartasjúk- dómar, sykursýki, langvinn lungna- teppa, langvinn nýrnabilun og krabbamein. Þeir eldri og fólk með undirliggj- andi vandamál eru ekki talin vera næmari fyrir smiti en aðrir. Ráð til að forðast smit í umgengni við aðra og utan heimilis eru þau sömu fyrir við- kvæma einstaklinga og almenning. „Takmörkun á umgengni við aðra er mikilvægasta viðbótin fyrir ein- staklinga með áhættuþætti alvar- legrar sýkingar,“ segir í leiðbeining- unum. Annað heimilisfólk þar sem viðkvæmir einstaklingar búa þarf að huga vel að eigin hreinlæti og hegð- un, innan og utan heimilis. Mjög mikilvægt er að takmarka líkur á að smit berist til viðkvæmra. Fáar alvarlegar sýkingar barna Reykingar virðast auka hættu á al- varlegum sjúkdómi. Ekki er hægt að útiloka að þar sé í raun langvinn lungnateppa undirliggjandi vanda- mál sem eykur alvarleika sjúkdóms- ins. Nú er ekki ljóst hvort ónæmis- bælandi meðferð eykur líkur á alvarlegri kórónuveirusýkingu. Lítið virðist vera um alvarlegar sýkingar á meðal barna, en upplýs- ingar um gang sjúkdómsins hjá börnum eru takmarkaðar enn sem komið er. Engar upplýsingar hafa komið fram um sérstaka hættu fyrir barnshafandi konur eða hættu á fylgikvillum meðgöngu vegna CO- VID-19. Veiran virðist ekki berast til fósturs á síðasta þriðjungi með- göngu. Bent er á að aðeins séu þrír mánuðir frá því að veiran komst á kreik í Kína og meðgöngu því ekki lokið hjá þeim konum sem sýktust á fyrsta eða öðrum þriðjungi með- göngu. Ný viðbragðsáætlun Kjartan Þorkelsson, settur ríkis- lögreglustjóri, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir undirrituðu á föstu- dag nýja viðbragðsáætlun almanna- varna sem tók þegar gildi. Hún segir fyrir um skipulag og stjórn aðgerða vegna hvers kyns heimsfaraldurs. Áætlunin heitir Heimsfaraldur – Landsáætlun. Hlutverk áætlunar- innar hefur verið víkkað út frá fyrri áætlun og nær hún yfir viðbrögð vegna hvers kyns heimsfaraldurs. Í inngangi nýju áætlunarinnar kemur m.a. fram að við heimsfarald- ur sé gert ráð fyrir því að atvinnulíf í landinu geti skerst í tiltekinn tíma, hluti þjóðarinnar orðið rúmfastur vegna veikinda og að dánartíðni verði umfram það sem búast má við í venjulegu árferði. Nánari upplýsingar um áhættu- þættina og viðbragðsáætlunina eru á heimasíðu Embættis landlæknis (landlaeknir.is). Hætta á miklum veik- indum vex með aldri  Leiðbeiningar gefnar út vegna kórónuveirufaraldursins Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Blaðamannafundur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir fóru yfir stöðuna í gær. Skemmtiferðaskipið Magellan, sem leggst að bryggju í Reykjavík klukk- an sjö í dag, mun fá afgreiðslu með hefðbundnum hætti að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Fyrirhugað var áður að hafa meiri viðbúnað en venjulega við komu skipsins, til að stemma stigu við út- breiðslu kórónuveirunnar. Gæslunni hafði í gær borist heilsufarsskýrsla frá skipstjóra skipsins. Var hún athugasemdalaus og engin veikindi því talin vera á meðal farþega um borð. Um borð í skipinu eru 1.452 far- þegar og 660 í áhöfn, alls 2.112 manns, samkvæmt upplýsingum á vef Faxaflóahafna. Skipið kemur frá Englandi og hefur komið fyrst skemmtiferðaskipa til landsins ár hvert undanfarin ár. Samkvæmt áætlun siglir skipið héðan klukkan 19 annað kvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg Magellan Skemmtiferðaskipið er jafnan það fyrsta til Íslands á hverju ári. Ekki aukinn viðbúnað- ur vegna komu skipsins Sveitarfélögin Hafnarfjörður og Garðabær hafa ákveðið að loka starfsstöðvum sem halda úti þjón- ustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undir- liggjandi sjúkdóma. Þá hefur neyðarstjórn Hrafnistu tekið þá ákvörðun að loka öllum hjúkrunar- heimilum Hrafnistu fyrir heim- sóknum ættingja og annarra gesta þangað til annað verður tilkynnt. Er þetta gert í ljósi þess að ríkislög- reglustjóri lýsti yfir neyðarstigi al- mannavarna á föstudaginn síðast- liðinn. „Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svona stóra ákvörðun, en þetta er gert með velferð íbúanna okkar að leiðarljósi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virð- ingu og skilning,“ segir í tilkynn- ingu frá neyðarstjórn Hrafnistu. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðar- bæ kemur fram að önnur þjónusta fjölskyldu- og barnamálasviðs, s.s. heimaþjónusta, stuðningsþjónusta og þjónusta í íbúðakjörnum og á heimilum, muni haldast órofin. Heimsóknarbann verður í gildi á Hrafnistuheimilinu í Hafnarfirði sem og á hjúkrunarheimilinu á Sól- vangi, þar sem dagdvölinni verður einnig lokað. Dagdvölin á Hrafnistu verður opin, sem og dagþjálfunin í Drafnarhúsi. Í Garðabæ verður öll önnur þjón- usta en þjónusta og starfsemi fyrir aldraða og fatlaða áfram órofin, þ.m.t. heimaþjónusta og stuðnings- þjónusta. Stuðnings- og öldrunar- þjónusta Garðabæjar sem er í hús- næði Ísafoldar verður áfram opin. Staðan verður endurmetin daglega bæði í Hafnarfirði og Garðabæ og munu bæjaryfirvöld halda hlutað- eigandi aðilum upplýstum. Framkvæmdastjórn hjúkrunar- heimilanna Eirar, Skjóls og Hamra hefur einnig tekið þá ákvörðun að loka heimilunum fyrir heimsóknum ættingja og annarra þar til annað verður formlega tilkynnt. Banna heimsóknir á hjúkrunarheimili Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr- ar erfðagreiningar, dró í gær til baka ummæli sín um að það væri endanleg ákvörðun að ekkert yrði af framlagi hans við skimanir fyr- ir kórónuveir- unni eftir að vís- indasiðanefnd og Persónuvernd hefðu sagt skim- anir og rann- sóknir á stökk- breytingu veirunnar leyfisskyldar. „Og það er, skal ég segja þér, ekki uppá- halds sunnudagsmaturinn minn, að éta orðin mín,“ sagði hann í sam- tali við mbl.is í gær. Eins og greint var frá fyrir helgi bauðst Kári til að skima fyrir kór- ónuveirunni en í kjölfarið skapað- ist vafi um hvort það væri leyfis- skylt. Sagðist Kári þá ekki ætla að sækja um slíkt leyfi, en eftir að hann hafði sest niður með vísinda- siðanefnd og farið yfir málið kom í ljós að ekki væri um leyfisskylda aðgerð að ræða. Kári ætlar því að framkvæma skimanir fyrir kór- ónuveirunni og jafnframt rannsaka mögulegar stökkbreytingar veir- unnar. „Nú er bara að keyra þetta í gang,“ sagði Kári og sagðist von- ast til að skimanirnar gætu hafist strax um miðja þessa viku enda stæðum við frammi fyrir óhugnan- legum faraldri. Sagði hann alla verða að leggjast á eitt í barátt- unni gegn veirunni og þetta væri hans framlag. Tók hann einnig fram að hann bæri mikla virðingu fyrir því fólki sem starfaði hjá vísindasiðanefnd þótt stundum hefði kastast í kekki á milli hans og þess. solrun@mbl.is Kári mun skima Kári Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.