Morgunblaðið - 09.03.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð við myglu-gróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr.
18.890
Verð kr.
49.920
Verð kr.
35.850Verð kr.15.960
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjögur af sextán sem bjóða sig fram
til setu í stjórn Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni (FEB) sitja í
stjórnum eða nefndum Sósíalista-
flokksins. Aðalfundur FEB fer fram
fimmtudaginn 12. mars og þar verður
m.a. kosinn nýr formaður auk fimm
stjórnarmanna í sjö manna stjórn og
þriggja varamanna.
Haukur Arnþórsson stjórnsýslu-
fræðingur er í framboði til formanns
FEB og einnig til stjórnar. Ingibjörg
H. Sverrisdóttir og Borgþór Kjærne-
sted bjóða sig einnig fram til for-
mennsku. Haukur á sæti í fram-
kvæmdastjórn Sósíalistaflokksins.
Hann var spurður hvort Sósíalista-
flokkurinn væri með framboðunum að
seilast til áhrifa í FEB?
„Framboð mitt er algjörlega á fag-
legum nótum og mér er mjög illa við
flokksframboð í
þessu efni,“ sagði
Haukur. „Ég hef
starfað fyrir eldri
borgara í tvö ár og
unnið að málefnum
þeirra. Ég er fræði-
maður í Reykja-
víkurAkademíunni
og byrjaði á að gera
skýrslu um málefni
eldri borgara. Ég
hef áhuga á málefnum þeirra og hef
eingöngu skilað frá mér útreikningum
og fræðilegu efni um kjör aldraðra.“
Aðspurður taldi Haukur það vera
tilviljun að þrír aðrir sem gegna stöð-
um í Sósíalistaflokknum væru í fram-
boði til stjórnar FEB. Hann benti á að
keppinautur hans um formannssætið,
Ingibjörg H. Sverrisdóttir, væri
flokksbundin sjálfstæðiskona, virkur
félagi í Sjálfstæðisflokknum og bar-
áttukona gegn þriðja orkupakkanum.
Haukur sagði að fólk úr stjórnmála-
flokkunum hefði lengi tekið þátt í
störfum fyrir FEB. Hann telur að á
stundum hafi stjórnmálatengsl verið
slæm fyrir hagsmunabaráttu aldr-
aðra þegar stjórnarmenn FEB hafi
verið samflokksmenn ráðherrans
sem fer með málaflokkinn. Þá hafi
flokkshollustan stundum orðið hags-
munabaráttunni yfirsterkari. Hann
benti á að Sósíalistaflokkurinn færi
ekki með neitt ráðuneyti og hefði því
enga möguleika á að fegra ímynd sína
eða fagráðherra á þennan hátt.
Haukur sagði að þeir frambjóð-
endur til formannssætisins sem ekki
næðu kjöri yrðu sjálfkrafa í framboði
til stjórnar FEB. gudni@mbl.is
Fjórir sósíalistar í framboði
Aðalfundur Félags eldri borgara haldinn á fimmtudag
Þar verður kosinn nýr formaður og fimm stjórnarmenn
Haukur
Arnþórsson
Landinn verður sífellt flinkari við að flokka
sorpið sem fellur til á heimilinu í réttar tunnur,
svo hægt sé að vinna úr því með sem bestum
hætti. Þessi kona er greinilega búin að kynna sér
málin, enda setti hún pítsukassann hvorki í plast-
gáminn né fatagáminn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Pítsukassinn í pappagáminn
Starfsmönnum tölvuleikjaframleið-
andans CCP brá heldur betur í
brún um helgina þegar gríðarstór
ormur fannst í fiskabúrinu á skrif-
stofunni þar, þegar hreinsa átti
búrið. Virðist ormurinn hafa dvalið
í búrinu um árabil. „Við höldum að
ormurinn hafi sennilega verið
þarna í allavega átta ár því það var
síðast þá sem einhverju var bætt við
búrið,“ sagði Dan Crone, framleið-
andi hjá CCP, í samtali við mbl.is í
gær. Fiskabúrið sem um ræðir er
sennilega eitt það stærsta á Íslandi
og því gat ormurinn athafnað sig
án þess að nokkur yrði hans var í
öll þessi ár. „Það hefur verið talað
um að fiskunum í búrinu hafi fækk-
að eitthvað síðustu árin, og nú er
sennilega komin skýring á því.“
Metralang-
ur ormur
í búrinu
Líklega um átta
ára löng dvöl
Skjáskot/Dan Crone
Skepna Höfuðið á ormi CCP.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Útgerðir loðnuskipa skoðuðu það um
helgina hvort senda ætti eitt skip til
loðnurannsókna með suðurströnd-
inni. Yrði það fimm daga leiðangur
síðar í þessari viku. Fulltrúar út-
gerðanna funduðu með fulltrúum
Hafrannsóknastofnunar fyrir
helgina. Hugmyndin er að stofnunin
leggi til vísindamenn í leiðangurinn.
Ákvörðun um leiðangurinn gæti leg-
ið fyrir í dag.
„Okkur finnst óforsvaranlegt ann-
að en að skoða þetta betur. Við höf-
um áhuga á því að senda skip og
skoða þetta,“ sagði Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar hf. í Nes-
kaupstað. Hann
sagði að menn
væru orðnir von-
daufir um að það
væri raunhæft að
fara í mælingu á
loðnustofninum
úr þessu. Það
hefði aldrei geng-
ið vel að mæla
loðnuna uppi í
fjörum, þar sem hún héldi sig nú
vegna hrygningar.
„Okkur finnst óábyrgt annað en að
fá upplýsingar um hvað er að gerast
varðandi hrygninguna og hvar hún
er að hrygna. Það er ómögulegt að
skilja við þetta án þess,“ sagði Gunn-
þór. Hann sagði menn almennt vera
á því að rannsaka þyrfti loðnuna enn
betur. Hins vegar væri það ljóst að
lítið væri til af peningum í það verk-
efni. Menn kysu hugsanlega að ráð-
stafa þeim í eitthvað annað.
Útgerðirnar hafa lagt fram skip
og mannskap til loðnuleitar og mæl-
inga. Gunnþór taldi að þegar fyrir-
huguðum leiðangri lyki yrðu útgerð-
irnar búnar að leggja um 110
milljónir í þetta í vetur.
„Við þurfum ekkert að örvænta
með loðnuna,“ sagði Gunnþór.
Fréttir af loðnu berast nú víða að.
Heyrst hefur af loðnu t.d. á Stranda-
grunni, í Þistilfirði og víða við Suður-
land. Gunnþór sagði tilganginn með
leiðangrinum að afla nauðsynlegra
upplýsinga með framtíðarnýtingu á
loðnustofninum í huga. Mikilvægt
væri að vita hvað væri að gerast.
Ekki er útlit fyrir að gefinn verði út
loðnukvóti úr þessu, þótt menn vildu
gjarnan fá einhvern kvóta.
Skoða að senda skip í vikunni
Útgerðir ræða það að senda skip í leiðangur með suðurströndinni til að rannsaka hrygningu loðnu
Víða hefur frést af loðnu Útgerðin hefur lagt um 110 milljónir í loðnuleit og rannsóknir í vetur
Morgunblaðið/Golli
Loðnuveiðar Ekki hafa verið loðnuveiðar tvær vertíðir í röð. Mynd úr safni.
Gunnþór
Ingvason