Morgunblaðið - 09.03.2020, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.03.2020, Qupperneq 9
9 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 Árlegri byssusýningu Veiðisafnsins á Stokkseyri hefur verið frestað til haustsins. Nýr sýningartími verður auglýstur síðar. Allir sem koma að þessum árlega viðburði tóku sameiginlega ákvörð- un um frestunina og axla með því samfélagslega ábyrgð, að því er segir í tilkynningu. Halda átti árlega byssusýningu Veiðisafnsins dagana 14. og 15. mars og hefur hún verið haldin á þessum árstíma árum saman. Veiðisafnið verður opið allar helgar í mars klukkan 11-18. Einnig er boðið upp á bókanir fyrir hópa alla daga. Safnið var opnað árið 2004 og þar má sjá uppstoppuð dýr víða að úr heiminum og byssur af ýmsu tagi. gudni@mbl.is Ljósmynd/Veiðisafnið Veiðisafnið Byssusýningin verður haldin í haust. Á safninu er fjöldi uppsettra dýra. Byssusýningunni frestað til hausts Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Borgaraþjónusta danska utanríkis- ráðuneytisins biðlaði í gær til allra Dana á Norður-Ítalíu að koma heim eins fljótt og mögulegt væri. Voru tilmæli þessi gefin út eftir að ríkis- stjórnin á Ítalíu gaf út tilskipun um að 16 milljónir Ítala yrðu settar í sóttkví til að reyna að hefta út- breiðslu kórónuveirunnar. Í samtali við dönsku fréttastofuna TV2 sagði Erik Brøgger Rasmussen, fram- kvæmdastjóri dönsku borgaraþjón- ustunnar, að útlendingum á Ítalíu yrði leyft að yfirgefa svæðið en ekki væri vitað hversu lengi sá gluggi myndi standa opinn. „Við mælumst því til þess að fólk komi heim. Við vitum ekki hversu lengi glugginn verður opinn, svo farið frá Norður-Ítalíu. Annars er hætt við því að fólk festist þar,“ sagði Rasmussen. Ekki sömu fyrirmæli Í samtali við Morgunblaðið segir María Mjöll Jónsdóttir, deildar- stjóri upplýsinga- og greiningar- deildar utanríkisráðuneytisins, að ekki hafi verið gefin út tilmæli hér- lendis til Íslendinga á Norður-Ítalíu viðlíka þeim sem gefin voru út í Danmörku. Hins vegar séu Íslend- ingar í útlöndum beðnir að skrá sig í gagnagrunninn sem utanríkisráðu- neytið heldur úti á vefsíðu sinni. Gagnagrunnur sá er ætlaður fyr- ir Íslendinga erlendis sem óska eft- ir að vera upplýstir um ferðaráð meðan á dvöl þeirra stendur. Skrái fólk sig í hann sé frekar unnt að koma réttum upplýsingum til Ís- lendinga í útlöndum með öruggum hætti. María Mjöll tekur einnig fram að utanríkisráðuneytið sé í nánu sam- ráði við borgaraþjónustur hinna norrænu ríkjanna og þau séu sífellt að skoða þróun mála. Danir fari frá N-Ítalíu Morgunblaðið/Eggert Veira Mikill viðbúnaður er hérlendis vegna kórónuveirunnar. Sömu tilmæli og gefin voru út í Danmörku í gær hafa þó ekki verið gefin út hér á landi. Flokkur fólksins hefur aflýst öll- um samkomum sínum vegna kór- ónuveirunnar. Þetta tilkynnti Inga Sæland, formaður flokksins, í gær. Skoraði hún í kjölfarið á aðra stjórnmálaflokka að gera slíkt hið sama. Í samtali við mbl.is í gær sagði Inga að viðburðum á vegum flokksins yrði aflýst eins lengi og þörf krefði. Hætt var við bingó á vegum flokksins þarsíðasta sunnu- dag og síðan var ákveðið að engin mannamót yrðu undir formerkjum flokksins á næstunni. „Ekki á með- an við erum að reka þessa óværu á bak og burt. Við viljum losna við hana fyrst,“ sagði hún. Þá bætti hún við: „Markhópur- inn okkar er að miklu leyti full- orðið fólk og við sitjum þétt sam- an í ekkert svo stóru rými þannig að við göngum bara á undan með góðu fordæmi og gerum okkar besta.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Formaðurinn Inga Sæland skorar á aðra flokka að aflýsa viðburðum. Öllum viðburðum aflýst KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.