Morgunblaðið - 09.03.2020, Page 28

Morgunblaðið - 09.03.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020 Hér segir frá örlagaríku síðdegi á Heiðarfjalli á Langanesi, þar sem Sigmar vann við byggingu ratsjár- stöðvarinnar. 6. nóvember 1956 - slysið á fjallinu Laugardaginn 6. nóvember var ég við störf í turninum þar sem aðal- djásnið, sjálf radarkúlan, átti að vera. Þá kemur að máli við mig einn af vinnufélög- unum, Trausti Björnsson frá Norðfirði. Hann hafði komið gagn- gert að austan til að vinna á fjallinu og með honum eiginkonan, Sigurveig Hall- dóra Björns- dóttir. Hún er ættuð frá bænum Ár- túni og hélt þar til á meðan hann sinnti verkum sínum. Svo færu þau aftur heim. Erindi Trausta var að biðja mig að skjótast undir kvöldið eftir eiginkon- unni og var það auðsótt mál af minni hálfu. Ég átti þá orðið Willys-jeppa, árgerð 4́7, og það var ekki langt að Ártúni, einungis örfáir kílómetrar. Við Sigurveig lögðum af stað það- an um sexleytið. Úti var svarta- myrkur, en veðrið var gott og jörðin var alauð. Betra gat þetta ekki verið miðað við árstíma. Þegar við erum á leið upp fjallið tek ég eftir því að það rýkur úr vatnskassanum á jeppanum. Hann átti það til að ofhitna og var ég þessu viðbúinn. Undir bílstjórasætinu geymdi ég slöngubút. Þannig var um fleiri jeppaeigendur á þessum tíma. Búturinn tók minna pláss en brúsi og var hægt að smeygja honum und- ir annað hvort framsætið. Hann kom oft í góðar þarfir, bæði hjá mér og öðrum. Fyrir annan endann hafði ég svo límt til að hægt væri að fylla hann af vatni. Á þessum tíma var vinstri umferð á Íslandi. Ég vissi af lítilli lækjar- sprænu hægra megin við veginn. Ek ég því yfir á þann vegarhelming til að vera nær henni og stöðva jeppann þar. Síðan fer ég og fylli slöngubút- inn af vatni. Jeppinn var í gangi og það var kveikt á ljósunum þegar ég opnaði húddið og bjó mig undir að hella á vatnskassann. Ég hafði séð bílljós í fjarska um leið og ég klöngraðist aft- ur upp á veginn, en leiddi hugann ekkert frekar að þeim. Það gat varla verið vandamál fyrir tvo bíla að mætast á þessum breiðasta vegi landsins. Þetta var Willys-jeppi, svipaður mínum. Í honum voru tveir starfs- menn af Heiðarfjalli á leið í helgar- leyfi, þótt aðeins væri um sunnudag- inn að ræða. Ég þekkti vel til þeirra, báðir voru frændur mínir. Ökumað- urinn var Þórhallur Jóhannesson frá Flögu og við hlið hans sat Hermund- ur Kjartansson frá Kúðá, en báðir þessir bæir eru í Þistilfirði. Í fréttum af því sem gerðist næst og eins í spjalli manna á meðal hefur iðulega verið látið að því liggja að Þórhallur hafi ekið glannalega. Svo var þó ekki. Alls ekki. Ég stóð í vetrardimmu fyrir framan bíl á röngum vegarhelmingi og þess utan má vel vera að ég hafi að skyggt á annað ljósið, jafnvel hitt líka að hluta til. Það var mjótt á milli þeirra. Kannski var þetta ástæðan fyrir því að svo fór sem fór. Ég hef alltént aldrei viljað skella skuldinni á frænda minn. Ég tel hreinlega að hann hafi ekki áttað sig á aðstæð- unum og eigi þar enga sök. Ég varð á milli jeppanna. Svo þungt var höggið að jeppinn minn, sem þó var í handbremsu, hentist átta metra aftur á bak. Sigurveig, farþegi minn, var barnshafandi og komin nokkuð á leið. Henni varð ekki meint af, þótt engin væru ör- yggisbeltin og bökin í framsætunum í Willysnum næðu bara upp að herðablöðum. Þau veittu mænunni enga vörn í árekstri og gátu frekar aukið við skaðann ef eitthvað var. Stuðararnir lentu neðanvert við hnén á mér og ég kastaðist í malar- drulluna á götunni. Vinstri fóturinn fór nánast strax af. Hann hékk á nokkrum taugum, en hinn mölbrotn- aði. Þórhallur og Hermundur ruku út úr jeppanum. Ég hélt meðvitund, þótt ég væri sárkvalinn og hefði misst mikið blóð. Ég kalla til þeirra hvað skuli gera. Þeir taka af sér buxnabeltin og reyna að stöðva blóð- rásina niður í fæturna, eða það sem eftir var af þeim, með því að vefja þau fyrir ofan hnén á mér og herða að. Síðan bera þeir mig yfir í jepp- ann hjá sér og leggja á milli fram- sætanna, þannig að herðarnar á mér og höfuðið hvíldu í aftursætinu. Sködduðu útlimirnir lágu aftur á móti á trékassa sem í voru verkfæri og eftir smástund verð ég þess var að hann er orðinn fullur af blóði. Útlitið var sannarlega dökkt. Haldið á lífi Akureyringurinn Baldur Jónsson var héraðslæknir á Þórshöfn á þess- um tíma, indæliskarl og mikið ljúf- menni. Þangað var ekið með mig í loftköstum. Til allrar hamingju var hann heima í Brimborg. Þar var bæði læknisbústaður og sjúkraskýli með aðstöðu til aðgerða. Mér var dröslað þangað inn. Allt var gert á yfirsnúningi. Það mátti engan tíma missa. Ég var orðinn mjög máttfar- inn og kominn með suð fyrir eyrun af blóðmissi. Þetta stóð tæpt. Líf mitt hékk á bláþræði. Baldur svæfði mig og stöðvaði síð- an blóðrásina. Hann fór svo að leita að blóðgjafa. Ég hef ekki hugmynd um hvort eða hvernig honum tókst að finna út blóðflokkinn minn, hvað þá hvernig hann fann hentugan blóð- gjafa. Um þetta hef ég einskis spurt, en mér var gefið blóð úr frænda mín- um, Lárusi Jóhannssyni vörubíl- stjóra. Örið eftir blóðgjöfina sést ennþá, um sex og hálfum áratug síð- ar, og hverfur varla úr þessu. Annar vörubílstjóri, Friðjón Jóns- son, kom þarna líka að. Baldur kall- aði hann stundum sér til liðsinnis þegar hann þarfnaðist aðstoðar við. Snúa þurfti sjúklingum, færa þá til, halda við hér og þar – allt þetta og ýmislegt fleira kom í hlut aðstoð- armannsins að gera svo að læknirinn gæti enn frekar einbeitt sér að því sem sneri að sérþekkingu hans. Eftir að blóðgjöfin var komin í réttan farveg beið Baldur ekki boð- anna og tók af mér vinstri fótinn við hné. Honum var ekki hægt að bjarga, en það var smuga með þann hægri. Hann var settur í gifs og ein- ungis tærnar stóðu fram undan því. Með snarræði sínu og fumlausum vinnubrögðum tókst Baldri lækni að halda mér á lífi. Það var kraftaverki líkast. Geri ég þó ekki lítið úr að- komu þeirra Lárusar og Friðjóns. Hún var ómetanleg. [...] Veðrið setur strik í reikninginn Til stóð að koma mér undir eins á sjúkrahús í Reykjavík, væntanlega Landspítalann, frekar en Landa- kotsspítala. Pöntuð var sjúkra- flugvél þaðan og hinn landskunni flugmaður og frumkvöðull í sjúkra- flugi á Íslandi, Björn Pálsson frá Ánastöðum í Hjaltastaðaþinghá, lagði þegar af stað á vél sinni, Cessna 180TF-HIS, sem hann hafði nýverið keypt frá Ameríku ásamt Slysavarnafélagi Íslands. Hún var blá og hvít að lit og tveggja ára gömul. Svo óheppilega vildi hins vegar til að veður gekk upp og á skall norðan- stórhríð. Björn komst því ekki lengra en norður til Akureyrar. Þar varð hann að bíða fram á mánudags- morgun. Þá loksins gat hann haldið áfram austur til Þórshafnar og sótt mig, tæpum tveimur sólarhringum eftir slysið. Búið var að taka fram- sætið úr flugvélinni til að koma sjúkrakörfunni fyrir og miðað við aðstæður fór ágætlega um mig við hliðina á flugmanninum. Aðrir voru ekki um borð. En veðrið var enn vont. Björn gat því ekki flogið með mig suður, held- ur varð hann að lenda flugvélinni á Akureyri og þar var ég lagður inn á Fjórðungssjúkrahúsið. Sjálfur reyndi hann svo aftur, síðar um dag- inn, að fljúga til höfuðborgarinnar, en það var á sömu bókina lært. Þangað var ófært og þurfti hann nú að lenda í Búðardal. Þaðan hreyfði hann ekki vélina í tvo daga. Þá gekk veðrið niður og fært varð í allar áttir. Þetta ferðalag hans tók því fimm sól- arhringa, frá laugardagskvöldi og fram á miðvikudag. Hinn fóturinn af – hjá frábæru heilbrigðisstarfsfólki Það var liðinn einn og hálfur sólarhringur frá slysinu þegar mér var ekið inn á slysamóttöku Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Þar tók á móti mér Elsa Þorsteinsdóttir, yfirhjúkrunarkona á handlækninga- deildinni. Ég man greinilega þegar hún kom og heilsaði mér. Þessi stóru, grænu augu hennar, brúnt hárið og fallegi búningurinn virkuðu traustvekjandi og fylltu mig þeirri von, að allt færi þetta að lokum eins vel og mögulegt væri. Elsa fylgdi mér inn á skurðstof- una. Þar beið Guðmundur Karl Pét- ursson yfirlæknir og hafði snör handtök. Tærnar, sem stóðu fram undan gifsinu á hægri fæti, voru nú orðnar svarbláar og það boðaði ekki gott. Drep var komið í fótinn og þá var ekki að sökum að spyrja. Ég var svæfður og þegar ég vaknaði á ný hafði hann verið tekinn af við hné, líkt og sá vinstri tveimur dögum áð- ur. Það var mér mikil gæfa í þessari annars ógæfu minni að lenda í hönd- unum á Guðmundi Karli. Hann var ekki einungis frábær læknir, heldur stórkostlegur persónuleiki, mikill gleðigjafi og létti lund allra sem ná- lægt honum voru. [...] Slysið á fjallinu Bókarkafli | Bókin Siddi gull hefur að geyma ævi- minningar Sigmars Ó. Maríussonar gullsmiðs og tengist útgáfa hennar 85 ára afmæli hans. Margt hefur á daga Þistilfirðingsins Sigmars drifið, en hann hefur aldrei gefist upp þótt á móti hafi blás- ið og leikur hin létta lund sem honum var gefin þar stórt hlutverk. Guðjón Ingi Eiríksson skráði minningar Sigmars. Ljósmynd/Úr einkamyndasafni Örlagadagur Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður varð á milli tveggja sams konar Willys-jeppa af þessari gerð. Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu. FERMINGAVEIsluR Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. 3ja rétta sTEIKARhlaðborð Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl. PINNAMatur Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal. Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500 kaffihlaðborð Ferming Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.