Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Þjóðverjar loka í dag landamærum
sínum að Austurríki, Frakklandi,
Sviss og Danmörku. Vöruflutningar
verða þó óraskaðir auk þess sem
fólki, sem ferðast yfir landamærin
vegna starfa sinna, verður það
áfram heimilt.
Þýska dagblaðið Bild greindi frá
lokununum í gær og enn fremur því
að ráðstöfunin væri ekki eingöngu í
því augnamiði að hemja útbreiðslu
kórónuveirunnar heldur einnig til að
koma í veg fyrir að matvöruversl-
anir á landamærasvæðunum tæmd-
ust ítrekað þegar fólk frá nágranna-
löndunum ferðaðist til Þýskalands
til að birgja sig upp af matvælum.
Í borgunum Berlín og Köln var
ákveðið um helgina að loka öllum
börum, kvikmyndahúsum, leikhús-
um og tónleikastöðum til að draga
úr smiti en staðfest tilfelli í Þýska-
landi voru um 5.500 í gær. Angela
Merkel kanslari sagði í gær að allt
að 70 prósent Þjóðverja gætu smit-
ast af kórónuveirunni. Hvatti kansl-
arinn fólk til að draga eftir megni
úr félagslegu samneyti og biðlaði
enn fremur til foreldra að leyfa
börnum ekki að heimsækja afa og
ömmur.
Tæplega 300 látnir á Spáni
Dauðsföll á Spáni af völdum kór-
ónuveirunnar voru komin upp undir
300 um miðjan dag í gær, en þar til-
kynnti heilbrigðisráðuneytið um 97
dauðsföll og 2.000 ný smittilfelli á
einum sólarhring. Útgöngubann
hefur tekið gildi á Spáni, samkvæmt
tilkynningu Pedro Sánchez forsætis-
ráðherra, þó með þeim undantekn-
ingum að fólki er leyfilegt að fara út
úr húsi til vinnu og innkaupa á lífs-
nauðsynjum.
Í Austurríki tekur samkomubann
gildi í dag sem bannar fleiri mann-
eskjum en fimm að koma saman.
Sebastian Kurz, kanslari landsins,
tilkynnti þetta í gær auk þess sem
hann lagði á útgöngubann með
sama sniði og bannið á Spáni, aðeins
ferðir vegna vinnu og innkaupa leyf-
ast.
Íþróttavöruframleiðandinn Nike
tilkynnti í gær að frá og með deg-
inum í dag yrðu allar verslanir keðj-
unnar lokaðar í Bandaríkjunum,
Kanada, Vestur-Evrópu, Ástralíu og
á Nýja-Sjálandi. Stendur það fram
til 27. mars og var starfsfólki Nike í
Bandaríkjunum tilkynnt sérstaklega
að full laun yrðu greidd þrátt fyrir
að fólk mætti ekki til vinnu.
Norðmaðurinn heill heilsu
Frá Ítalíu, sem hefur orðið verst
úti allra Evrópulanda í kórónuvei-
rufaraldrinum, bárust þær fréttir í
gær að fyrsti Norðmaðurinn sem
smitaðist af veirunni, námsmaður í
Firenze, væri orðinn heill heilsu.
Tilkynnt var um smit hans í lok
febrúar og greindu norskir fjöl-
miðlar frá þessu sem fyrsta kórón-
utilfelli hjá Norðmanni sem vitað
var um Sama dag greindist fyrsta
tilfelli í Noregi.
Í gær sagði ítalska dagblaðið La
Nazione frá því að maðurinn væri
einkennalaus og veirupróf á laug-
ardaginn hefði slegið því föstu að
hann væri laus við óværuna. Sam-
kvæmt því sem stendur í blaðinu er
Norðmaðurinn fyrsti kórónuveiru-
sjúklingurinn í Firenze, sem er höf-
uðstaður Toscana-héraðsins á Norð-
ur-Ítalíu, sem losnar við veiruna.
Breski heilbrigðisráðherrann
Matt Hancock boðaði í gær út-
göngubann sem tæki til allra íbúa
landsins eldri en 70 ára. Breska rík-
isútvarpið BBC greindi frá útgöngu-
banninu sem tekur þó ekki gildi
strax, að sögn ráðherrans, heldur „á
næstu vikum“. Í Bretlandi voru
dauðsföll af völdum kórónuveirunn-
ar orðin 35 miðað við tölur í gær og
höfðu 40.279 manns þá gengist und-
ir veirupróf.
Forgangsraða prófunum
Allir þeir sem látist hafa af völd-
um veirunnar í Bretlandi voru á
aldrinum 60 til 90 ára og flestir
höfðu aðra sjúkdóma fyrir, sem
gerðu þá berskjaldaðri fyrir kórón-
uveirusmiti. Bresk stjórnvöld hafa
gefið það út að fólk, sem þegar er í
einangrun og með væg einkenni,
verði ekki prófað, heilbrigðisstarfs-
fólk muni forgangsraða prófunum
og fyrst og fremst prófa fólk sem
þjáist af lungnabólgu eða öðrum
öndunarfærasjúkdómum og fólk
með fasta búsetu á stöðum á borð
við umönnunarheimili og fangelsi,
hafi smittilfelli komið upp á stöð-
unum.
Skoska ríkisstjórnin segist ekki
vilja ganga svo langt að einangra
eldri borgara á heimilum sínum
heldur verði þeim eingöngu gert að
„draga úr félagslegu samneyti“.
Hvatti til skynsemi við innkaup
Í Ástralíu hafa stjórnvöld lagt
bann við öllum komum skemmti-
ferðaskipa næstu 30 dagana. Starf-
semi skóla landsins er enn sem kom-
ið er óröskuð, þrír eru látnir af
völdum veirunnar í Ástralíu og tæp-
lega 250 smitaðir.
Scott Morrison forsætisráðherra
tilkynnti í gær að frá miðnætti í
gærkvöldi skyldu allir sem kæmu til
Ástralíu sæta 14 daga einangrun,
sem er sama ráðstöfun og stjórnvöld
á Nýja-Sjálandi hafa fyrirskipað.
„Við vitum að við getum ekki
stöðvað veiruna algjörlega, engum
tekst það en við getum hægt á út-
breiðslu hennar,“ sagði Morrison í
ávarpi í gær, það yrði verkefni
næstu sex mánaða. Brendan
Murphy, landlæknir Ástralíu,
ávarpaði þjóðina með Morrison og
hvatti fólk eindregið til að sýna
skynsemi við innkaup, engin ástæða
væri til að hamstra matvörur.
Mikil örtröð hefur verið á banda-
rískum flugvöllum um helgina vegna
veiruprófana á ferðalöngum á leið
heim frá Evrópu. Hefur fólk þurft
að bíða margar klukkustundir í röð-
um áður en það kemst leiðar sinnar.
Donald Trump forseti baðst afsök-
unar á óþægindunum í færslu á
Twitter og sagði prófanirnar fram-
kvæmdar svo hratt sem verða
mætti. „Við verðum að gera þetta
rétt. Öryggið fyrst!“ skrifaði Trump.
Daglegt líf Evrópubúa úr skorðum
Þjóðverjar loka landamærum sínum í dag Samkomubann í Austurríki miðast við fimm manns
Aðeins ferðir til vinnu og nauðsynjainnkaupa leyfðar á Spáni Nike lokað í Vestur-Evrópu
Ráðstafanir um
alla Evrópu
» Tugir milljóna í útgöngu-
banni
» Yfir 1.800 dauðsföll á Ítalíu
» Ferrari-verksmiðjurnar á
Ítalíu lokaðar í tvær vikur
» Frakkar halda kosningar
þrátt fyrir faraldurinn
AFP
Lokanir Þýskur lögreglumaður stendur vörð við landamæri Þýskalands og Frakklands. Þeim verður lokað í dag.
AFP
Fámennt Larnaca-flugvöllurinn á Kýpur var nær mannlaus síðdegis í gær.
Norska ríkis-
stjórnin ætlar að
veita allt að 100
milljarða
norskra króna,
jafnvirði rúm-
lega 1.340 millj-
arða íslenskra
króna, í lán til
norskra fyrir-
tækja sem eiga á
brattann að
sækja vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Erna Solberg forsætisráðherra
og Jan Tore Sanner fjármálaráð-
herra tilkynntu þetta á blaða-
mannafundi í gærkvöldi.
„Við hyggjumst grípa til aðgerða
sem hjálpa fyrirtækjum að halda
sér á floti þar til ástandið verður
eðlilegt á ný,“ sagði fjármálaráð-
herra þegar hann kynnti björg-
unarpakkann. Áætlunin verður
lögð fyrir Stórþingið svo fljótt sem
verða má, tilkynnti Sanner enn
fremur.
NOREGUR
100 milljarðar til
fyrirtækja í vanda
Erna
Solberg