Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.03.2020, Blaðsíða 18
manninn C.S. Lewis. Í bók sinni, Með kveðju frá Kölska, lætur Lewis reyndan djöfsa skrifa ungum ára og nemanda sínum bréf í því skyni að fræða hann um helstu aðferðir, er að gagni megi koma til þess að vinna gegn kristinni trú, og helst að ganga af henni dauðri. Báðir eru þessir vand- ræðagripir þegnar Gamla í Niðurkoti. Lewis skrifar: „Við leggjum allt kapp á að innprenta mönnum þá af- stöðu, sem ég hefi leyft mér að kalla „kristindómur og eitthvað annað“. Þú veist, hvað ég á við: kristindómur og kreppan, kristindómur og nýja sálfræðin, kristindómur og þjóð- félagsskipanin, kristindómur og huglækningar, kristindómur og sál- arrannsóknir, kristindómur og grænmetisát, kristindómur og sam- ræmd stafsetning forn.“ Í staðinn fyrir trúna, hreina og klára, setjum við einhvern tíðaranda með kristnu ívafi. Og gerum menn umfram allt logandi hrædda við Sömu Gömlu Tugguna.“ Páll postuli ritar á einum stað: „Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, einn Guð og faðir allra, sem er yfir öllum, með öllum og í öllum.“ (Ef. 4,5.) Trúverðugur dreng- ur skrifar grein í Morgunblaðið hinn 9. mars síðastliðinn og ber yfirskriftina „Dásamleg forréttindi að eiga kristna trú“. Fyrirsögnin berg- málar orð úr ræðu fyrrverandi forseta Ís- lands. Undir þau munu margir geta tek- ið, eins og fyrrverandi dóm- kirkjuprestur í Reykjavík gerði í prédikun. Höfundur ofannefndrar greinar, sem er andvígur því eins og fleiri, að kristin trú skuli nánast horfin úr námskrá grunn- og framhaldsskóla, spyr réttilega „hvort þekking á kristinfræði geti skipt máli fyrir skilning okkar á íslenskunni og þeirri menningararfleifð sem við byggjum á. Hvort það geti verið að þekking á kristinfræði sé nauðsyn- leg forsenda til skilnings á tungu okkar, vestrænni menningu, sam- félagi og gildismati“. Þá vitnar hann í grein sinni til eft- irfarandi ummæla eins hins virtasta íslenskufræðings, sem nú er á dög- um: „Ekkert eitt rit hefur haft jafn mikil áhrif á íslenska tungu og menningu og Biblían, en myndmál Biblíunnar brenglast fljótt ef það hverfur úr námsefni grunnskólanna því það læra börnin sem fyrir þeim er haft.“ Ég undirritaður, sem er minnstur djákn í Guðs kristni, leyfi mér í allri auðmýkt að bæta hér við tilvitnun í enska prófessorinn og trúvarnar- Dásamleg forréttindi Eftir Gunnar Björnsson Gunnar Björnsson » Afstaðan „kristin- dómur og eitthvað annað“. Höfundur er pastor emeritus. 18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020 Umræða um sam- einingu sveitarfélaga hefur verið nokkuð mikil að undanförnu. Kynnt hefur verið frumvarp um lög- þvingaða sameiningu sveitarfélaga. Þar er markmiðið að lág- marksíbúafjöldi sveit- arfélaga verði færður upp í 250 íbúa og þar á eftir upp í 1.000 íbúa. Ýmis sjónarmið hafa komið fram í þessu sambandi. Í fyrsta lagi eru ýmis sveitarfélög, sem eru með íbúafjölda undir fyrrgreindum íbúamörkum, ósátt við að ráða ekki sinni eigin vegferð í þessum efnum. Í öðru lagi eru ýmsir á þeirri skoðun að 1.000 íbúa lág- mark sé of lágt, þar sem stjórn- sýsla sveitarfélaga sé orðin svo flókin. Nú er það ekki einfalt verkefni að sameina tvö eða fleiri sveit- arfélög. Í fyrsta lagi er það mikið verk og flókið að sameina form- lega stjórnsýslu hinna sameinuðu sveitarfélaga. Þar má fyrst nefna bókhald, fjárhagsáætlanir og árs- uppgjör. Svo má nefna skjalasöfn og skjalastjórnun, bygginga- og skipulagsmál, teikningar, upplýs- ingagrunna og fleira í þeim dúr. Ekki má gleyma stórum og vand- meðförnum málaflokkum eins og fræðslumálum og félagsþjónustu. Síðast en ekki síst eru það starfs- mannamálin. Sameining sveitarfé- laga kallar oft á endurskipulagn- ingu stjórnsýslunnar, sem getur verið flókið, viðkvæmt og tíma- frekt verk. Annar flötur er síðan á samein- ingu sveitarfélaga sem ekki má gleyma. Hann er ekki síður mik- ilvægur en sá fyrri en hefur hins vegar mjög oft eða jafnvel yfirleitt verið vanmetinn. Það er það vandasama verkefni að sameina samfélögin sem mynda hið nýja sveitarfélag. Markmið með sam- einingu tveggja eða fleiri sveitar- félaga hlýtur að vera að hið nýja sveitarfélag verði eitt heilsteypt samfélag þar sem íbúarnir upplifi sig sem hluta af einni heild. Sveitarfélag er stjórnsýslan, samfélag er fólkið. Stór sam- einuð sveitarfélög ná iðulega yfir mjög stór landsvæði eins og mörg dæmi eru um. Innan þeirra býr fólk iðulega við mjög mis- munandi aðstæður og ólíkar forsendur. Mjög víða þekkist fólk takmarkað í þeim sveitarfélögum sem hafa verið sameinuð eða á að fara að sameina. Grunur minn er sá að það hafi oft (jafnvel oftast) verið stórlega vanmetið hvað það tekur langan tíma og hvað það er flókið að sameina þau samfélög sem mynda hið nýja sveitarfélag. Það er langt í frá að það gerist af sjálfu sér. Grundvall- aratriði í því sambandi er að þeir sem eru í forsvari fyrir hið nýja sameinaða sveitarfélag séu sýni- legir meðal íbúanna við sem flest tækifæri. Þannig upplifa íbúarnir um allt sveitarfélagið einna helst að þeir séu hluti af einni heild og þeir skipti máli ekki síður en aðrir. Forsvarsmenn hins nýja samein- aða sveitarfélags þurfa að geta fjallað um margbreytilegar hliðar og ólíka staðhætti hins nýja sveit- arfélags af þekkingu og af eigin upplifun. Þeir verða t.d. að taka þátt í gleði íbúanna en einnig í andstreymi þeirra og erfiðleikum. Þeir verða að kynnast íbúunum eftir því sem það er mögulegt. Þeir verða að vinna að hag at- vinnulífs og mannlífs um allt sveit- arfélagið, hverju nafni sem það nefnist. Það er ekki gert af þunga nema að þekkja vel til mála í margbreytileika tilveru hins nýja sameinaða sveitarfélags. Þá er komið að ákveðinni þver- sögn í þeirri vegferð að sameina sveitarfélög og samfélög svo vel heppnist. Greiðslur til kjörinna fulltrúa eru í flestum tilvikum það lágar að þeim eru sett ákveðin takmörk um hvað þeir geta lagt mikla vinnu í að sinna störfum fyr- ir sveitarfélagið. Þegar kjörnir fulltrúar þurfa að verulegu leyti að sinna hefðbundnum ábyrgð- arstörfum fyrir sveitarfélagið utan hefðbundins vinnutíma verður lítill tími eftir fyrir annað. Vinnuálag á starfsfólk, s.s. sveitarstjóra og helstu embættismenn, er einnig yfirleitt það mikið að hjá þeim er lítill tími aflögu til að sinna því sem er kannski einna mikilvægast í sameiningarferli sveitarfélaga, samskiptum við íbúana. Það er í fæstum tilvikum reiknað með þeim tíma og þeim kostnaði sem liggur þar að baki þegar sameining sveit- arfélaga er undirbúin og kostn- aðarmetin. Þessi atriði eru að mati undirritaðs ákveðin forsenda þess að samfélögin sameinist í eina heild í nýju sveitarfélagi. Til að sameining sveitarfélaga gangi eftir eins og til er ætlast verður að nálgast verklýsingu og kostn- aðarmat á því sem við tekur, þeg- ar hinni formlegu sameiningu er lokið, á annan hátt en víðast hvar hefur verið gert til þessa. Á þann hátt væri hægt að koma í veg fyrir þá tilfinningu íbúanna, sem víða er að finna, að þeir hlutar hins nýja sveitarfélags sem fjærst liggja að- setri stjórnsýslunnar séu afskiptir. Enda þótt það sé góðra gjalda vert að nærsamfélagið fari með fjall- skilamál, félagsheimili, bókasöfn og önnur áþekk verkefni eftir að sameiningu er lokið er mótun nýs samfélags svo miklu flóknara en að veikleikar fjarlægðarinnar verði leystir á þennan hátt. Hér er til staðar ákveðin þversögn sem verð- ur að viðurkenna og takast á við ef vel á að takast við sameiningu sveitarfélaga og mótun nýrra sam- félaga. Sýnileiki, þátttaka og virð- ing eru nokkur lykilatriði á þeirri vegferð sem hefur að markmiði að skapa traust til hins nýja sveitar- félags og forsvarsmanna þess meðal íbúanna. Sameining sveitarfélaga, sameining samfélaga Eftir Gunnlaug A. Júlíusson » Sameining sveitarfé- laga og sameining samfélaga eru tvær greinar af sama meiði. Gunnlaugur A. Júlíusson Höfundur er fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar gunnlaugura@gmail.com Fyrir réttum þrem- ur árum kom út rit- gerð eftir mig í Skóg- ræktarritinu þar sem varpað var fram þessari spurningu: Hvers vegna fjárfesta lífeyrissjóðir ekki í skógrækt? (Skóg- ræktarritið 2016, 2. tbl., útgefandi: Skóg- ræktarfélag Íslands). Í ritgerðinni greini eg m.a. muninn á borgaralegum og náttúrulegum arði sem og sögu hvoru tveggja í grófum dráttum. Borgaralegi arðurinn er nær nú- tímanum og byggist á þeim vænt- ingum sem gerðar eru til peninga að „þeir vinni fyrir sér“ – en þá er oft byggt á væntingum jafnvel fjárglæfra og brasks. Náttúrulegi arðurinn kemur þegar fram í fornöld og efldist mikið á miðöldum gegnum kaþ- ólsku kirkjuna og var efnahags- legur grundvöllur samfélagsins fyrrum. Hann byggist eins og nafnið gefur í skyn á þeim vænt- ingum sem við getum búist við af arðinum með því að yrkja jörðina. Þessi arður skilar sér yfirleitt jafnt og þétt á löngum tíma en er í raun ekki eins sveiflu- kenndur og þekkist á hlutabréfamarkaði. Hlutabréf eru oft háð miklum sveiflum og dæmi eru um að fjár- festingar hafi glatast með öllu. Munu ís- lenskir lífeyrissjóðir hafa tapað um 500 milljörðum í banka- hruninu 2008. Skógrækt er til- tölulega einföld við hagstæðar aðstæður þar sem faglega er staðið að verki. Er undarlegt að fjársterkir aðilar eins og lífeyris- sjóðir hafi ekki séð þennan aug- ljósa möguleika að ávaxta fé sitt ríkulega. Mér vitanlega hefur eng- inn íslenskur lífeyrissjóður snúið sér með sínar fjárfestingar í skóg- rækt. Það verður að teljast miður. Við verðum að leita til útlanda til að sjá þetta gerast. Í Danmörku hefir danska kennarasambandið stundað skógrækt um allanga hríð með mjög góðum árangri. Mætti geta þess að danska kennarasam- bandið á töluverðan þátt í að fram- leiða jólatré fyrir markað í Evr- ópu, m.a. hér á landi. Þetta gætum við einnig. Það þarf ekki að flytja jólatré til Ís- lands. Þau geta vaxið hér! Skóg- ræktina skortir fjármagn til að ná betri árangri. Sveitarfélög, bændur og einstaklingar eiga víða nægt og heppilegt land til skógræktar. Og ekki síst er fyrir hendi næg þekk- ing og reynsla til staðar hérlendis m.a. með starfsfólki Skógræktar- innar og fjölda skógræktarfélaga í öllum landshlutum. En lífeyrissjóð- irnir hafa fjármagnið, peningana sem eiga afar brýnt erindi að „komast í vinnu“ í þágu lífeyris- þega framtíðarinnar. Vonandi opnast brátt augu sem flestra stjórnenda lífeyrissjóða fyr- ir gildi aukinnar skógræktar á Ís- landi. Við erum nokkurn veginn í miðju barrskógabeltisins og hér getum við náð mjög góðum og sambærilegum árangri og í löndum á svipuðum breiddargráðum og Ís- land er og þar sem er áþekkt lofts- lag. Lífeyrissjóðirnir og skógrækt Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson » Vonandi opnast brátt augu sem flestra stjórnenda lífeyrissjóða fyrir gildi aukinnar skógræktar á Íslandi. Höfundur er eldri borgari og leið- sögumaður, búsettur í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Það var fyrir ekki alltof löngu að net- heimar loguðu vegna illdeilna vegna þess að ráða átti í útvarps- stjórastöðuna hjá RÚV. Hægrimenn voru fúlir vegna þess að þeir vildu ekki fá vinstrimann í stöðuna og vinstrimenn vildu ekki hægrimann. Loks var fundin leið sem enginn af þeim sem létu sig málið al- varlega varða var sáttur við, en flest- ir ypptu öxlum og hugsuðu ekki meira út í það, enda hefur ráðning útvarpsstjóra tiltölulega lítil áhrif á daglegt líf meðaljónsins. Hins vegar átti önnur lausn ekki upp á pallborðið hjá mörgum, en sú lausn væri einfaldlega sú að losna við pólitíkina úr RÚV með því einfald- lega að brjóta upp fyrirtækið og selja. Það að fjölmiðill á fjárlögum og nefskatti keppi við aðra fjölmiðla á auglýsingamarkaði er auðvitað stórfurðulegt, en RÚV hrósaði sér oft um árið fyrir stærstu hlutdeild á auglýsingamarkaðnum. Þegar fyrir- tækið væri í einkaeign varðaði engan nema hluthafa um hver væri skip- aður útvarpsstjóri. Burtséð frá allri umræðu um pólitíska stöðu RÚV er engin ástæða fyrir því í dag að halda uppi RÚV á kostnað skattgreiðenda þegar lang- stærsti hluti þeirra notar þjónustu RÚV lítið sem ekkert. Í raun og veru finnst mér ekkert áhugavert sem frá RÚV kemur núna nema einstaka þættir á Rás 1. Sem almennings- þjónusta hefur RÚV ekki miklu hlut- verki að gegna lengur. Ef eitthvað skelfilegt kæmi upp á yrði sent SMS í farsíma Íslendinga til að láta vita, frekar en að rjúfa útsendingu eins og áður var gert. Rofin útsending myndi ekki ná til margra eyrna í dag er ég hræddur um. Þá má spyrja hvort RÚV sé ekki nauðsyn- legt til að styðja og styrkja íslenskuna. Fjarri fer því! Hægt er að svala stofnanafýsn bjúrókrata, og styðja ís- lenskuna, með því að láta einhvern embættis- mann úthluta styrkjum til streymisveitna, t.d. Símans premium og Netflix, fyrir að texta og talsetja efni á ís- lensku. Þá eru ef til vill margir sem telja að þættir eins og Kiljan séu ómissandi, en í raun og veru er lítið þar á ferðinni sem ekki rúmast á bloggsíðu. Spjallþættir eru líka best komnir í útvarpinu enda er það töluvert ódýrari framleiðsla. Þeir sem ómögulega geta verið án spjallþátta og bókadóma geta orðið sér úti um gamlar upptökur af sjón- varpsþætti Oprah Winfrey sem hafa verið textaðir á íslensku einhvern tímann í fyrndinni, magnið er slíkt þar að fæstum ætti að endast ævin til að klára þá þætti. Þættirnir sem ég hef gaman af á Rás 1 myndu hins vegar auðveldlega rúmast á hlað- varpi. Hægt væri að færa fjárlögin sem fara til RÚV eitthvað annað, t.d. í styrki til þáttagerðar sem væri hægt að hafa á hlaðvörpum og streymis- veitum. Hæglega mætti búa svo um hnútana að allt íslenskt efni yrði varðveitt og geymt án tilkomu RÚV. Á streymisveitum er loks auðveldara að hafa teljara til að sjá hvaða efni á upp á pallborðið hjá Íslendingum svo að styrkjum verði ekki ítrekað út- hlutað til einhverra leiðindaverkefna eins og íþróttafrétta. Stöð eitt Eftir Arngrím Stefánsson Arngrímur Stefánsson »Hægt væri að færa fjárlögin sem fara til RÚV eitthvert annað. Höfundur er guðfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.