Morgunblaðið - 16.03.2020, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Þeim fækkar
öldnu þingeysku
höfðingjunum. Með
Vigfúsi B. Jónssyni
er genginn einn af þeim og leitt
þótti mér að geta ekki fylgt hon-
um síðasta spölinn.
Hann var tíður gestur í Árnesi,
mínu æskuheimili, ekki síst á tím-
um Laxárdeilunnar og ávallt
fylgdi honum glaðværð, hlýtt við-
mót og ferskur andblær. Þeir
stóðu þétt saman stofnendur og
forystumenn Landeigendafélags
Laxár og Mývatns og er hann síð-
astur þeirra til að hverfa yfir
móðuna miklu. Samstaða þeirra
var einstök hvar í flokki sem þeir
stóðu, allt frá alþýðubandalags-
manninum Starra í Garði til hins
gallharða sjálfstæðismanns Vig-
fúsar. Ef til vill hefur það ekki
verið auðvelt fyrir Fúsa að
standa svo vel í ístaðinu þar sem
hann er á þeim tíma þingmanns-
efni og flokksræðið sterkt, Sjálf-
stæðisflokkurinn réð ferðinni um
virkjunarleyfi í Laxá sem fé-
lagarnir börðust gegn. Raunar
kom liðsstyrkur úr óvæntri átt
þegar Morgunblaðið tók afstöðu
með bændum, fyrst og fremst
Matthías Johannessen, þáver-
andi ritstjóri, sem gekk þar með
gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Hermóður, faðir minn, varð vitni
að því þegar Jóhann Hafstein for-
sætisráðherra hringdi í Matthías
á ritstjórnarskrifstofuna og sagð-
Vigfús Bjarni
Jónsson
✝ Vigfús BjarniJónsson fædd-
ist 8. ágúst 1929.
Hann lést 27. febr-
úar 2020.
Útför Vigfúsar
fór fram 7. mars
2020.
ist ekki vera
ánægður með skrif
Moggans um Lax-
árdeiluna, svar
Matthíasar var
stutt: „Morgun-
blaðinu er ekki
stýrt úr Stjórnar-
ráðinu.“ Stuðning-
ur Morgunblaðsins
í deilunni var ómet-
anlegt lóð á vogar-
skálarnar.
Vigfús rak myndarbú á Laxa-
mýri og er ætíð glæsilegt þangað
heim að líta, hann tók virkan þátt í
ýmsum félagsmálum, var liðtæk-
ur á ritvellinum og skrifaði bæði í
blöð og tímarit auk þess að gefa út
smásagnasafn. Um félaga sinn
Hermóð skrifaði hann ítarlega og
vandaða grein í bókina Bóndi er
bústólpi árið 1983 og kemst þar
svo að orði: „Laxárdeila var tíma-
mótaatburður og fyrst og fremst
uppgjör á milli náttúruverndar-
stefnunnar annars vegar og hins
vegar hinnar gömlu og fyrir-
hyggjulausu landnýtingarstefnu
okkar Íslendinga. Til slíks upp-
gjörs hlaut að koma fyrr eða síðar.
Það bara vildi svo til að þingeyskir
bændur og stjórn Laxárvirkjunar
stóðu á taflborðinu þegar til kast-
anna kom.“ Í þessum orðum Fúsa
felst mikill sannleikur. Félagarnir
við Laxá og Mývatn tóku slaginn,
lögðu allt í sölurnar, ómældan
tíma og fjármuni – og með ein-
stöku harðfylgi vann Davíð Golíat.
Fyrir það ber okkur náttúru-
verndarsinnum að þakka.
Um leið og ég þakka Fúsa ára-
löng kynni og einstaka vináttu við
foreldra mína sendi ég fjölskyld-
unni á Laxamýri einlæga samúð-
arkveðju.
Hildur Hermóðsdóttir.
✝ Rúnar Matt-hías fæddist í
Reykjavík 2. ágúst
1939. Hann lést 25.
febrúar 2020 á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Foreldrar hans
voru Sigurborg
Sveinsdóttir hús-
móðir og Matthías
Sigfússon listmál-
ari.
Systkini: Sveinn Matthíasson,
f. 23. okt. 1936, kvæntur Marín
Ingibjörgu Guðveigsdóttur, f.
24. sept. 1940.
Rúnar kvæntist Maríu Ein-
arsdóttur, f. 13.
febrúar 1941.
Börn þeira eru
Matthías Rún-
arsson, f. 31. júlí
1959, og Kristrún
Rúnarsdóttir, f. 21.
ágúst 1961.
Barnabörnin eru
sex og langafabörn-
in tvö.
Rúnar og María
slitu samvistun.
Sambýliskona Rúnars síðustu
árin var Kristín Herbertsdóttir,
f. 13. janúar 1944.
Útför Rúnars fór fram í kyrr-
þey að ósk hans.
Elsku pabbi.
Það sem ég er þakklát fyrir
síðasta skiptið sem ég hitti þig
vikuna áður en þú lést.
Þú gast grínast svolítið eins og
þú gerðir svo oft, varst glaður og
tókst nokkur dansskref við lyft-
una þegar við sögðum bless.
Það hefur verið langt á milli
okkar lengi, ég Kristrún í Svíþjóð
og Matti í Danmörku og nú þegar
þú ert farinn í Sumarlandið er
það enn lengra. Þú hefur samt
alltaf verið í huga okkar og minn-
ingarnar verða það áfram.
Við elskum þig.
Pabbi
Söknuður um æðar rennur,
horfi til baka
á liðnar stundir
sem ekki voru.
Aðeins ósk í mínu hjarta,
ég finn til.
Nú okkar tími
liðinn er,
aðeins minningar
eftir standa.
Þína hönd í mína set,
þakka fyrir
það sem var.
Nú ég veit
en kannski of seint
að mér gafstu allt
sem þér var unnt.
Elsku pabbi
nú tími kominn
til að kveðja,
þakka fyrir
þínar gjafir
sem gafstu mér.
(Hulda Ólafsdóttir)
Kristrún,
Matthías og
fjölskyldur.
Rúnar
Matthíasson
Föðursystir mín
Steinvör, eða
Steinka eins og hún
var jafnan kölluð,
er nú látin. Einungis Már er eft-
ir af stóra systkinahópnum á
Bergþórugötu 12. Bjarni, elsta
barn Steinku, var jafnaldri minn
og á fyrstu uppvaxtarárum okk-
ar bjuggum við báðir á Berg-
þórugötunni. Það var gott að
búa í litla húsinu hennar Ellu-
ömmu þótt þröng hafi verið á
þingi því þar ríkti gleði og kær-
leikur. Skólavörðuholtið var
okkar leiksvæði og þar var okk-
ar ævintýraheimur innan um
hálfbyggða veggi væntanlegrar
höfuðkirkju landsmanna. Við
Bjarni þvældumst víða um ná-
grennið ásamt Ingibjörgu systur
enda margt að sjá fyrir litlar
mannverur sem voru að upp-
götva heiminn. Í þá daga áttu
ekki margir bíla og umferð því
ekki mikil og ekki sömu hættur
og í dag. Þessar ferðir vildu hins
vegar dragast á langinn og því
urðu mamma og Steinka óróleg-
ar og fóru að leita okkar.
Við Bjarni fermdumst sama
árið og var sameiginleg veisla
okkar haldin í Rafvirkjasalnum
enda að mestu leyti sama fólkið
sem stóð að okkur. Í fjöldamörg
ár héldu systkinin á Bergþóru-
götu sameiginlegt jólaball þar
sem stórfjölskyldan hittist og
einnig hittist fólk reglulega í af-
mælisboðum því flest systkinin
áttu mörg börn. Samgangur var
því mikill framan af en þegar
hópurinn stækkaði og barna-
börnin komu í heiminn var fjöld-
Steinvör
Bjarnadóttir
✝ SteinvörBjarnadóttir
fæddist 2. ágúst
1930. Hún lést 5.
mars 2020.
Útför Steinvarar
fór fram 12. mars
2020.
inn orðinn of mikill
og því fækkaði
samverustundunum
eins og gerist og
gengur. Steinka var
hrókur alls fagnað-
ar hvar sem hún
kom og fannst gam-
an að skemmta sér
í góðra vina hópi.
Hún var afar söng-
elsk og naut þess
að syngja með öðr-
um.
Steinka var listhneigð sem
kom fljótt í ljós því hún var ekki
gömul þegar hún nældi sér í
aura með því að mála myndir af
dömum á bindi bandarískra her-
manna. Hún var einnig flink í
höndunum og saumaði föt og
hannaði. Þegar börnin uxu úr
grasi varð meiri tími aflögu fyrir
málaralistina. Steinka nýtti tím-
ann vel og varð öflugur listmál-
ari og verk hennar eftirsótt,
m.a. prýða nokkur verk eftir
hana veggi á heimili okkar Ey-
rúnar sem eru okkur mjög kær.
Síðastliðið sumar hittumst við
Steinka nokkrum sinnum á
Hrafnistu í Hafnarfirði þegar
mamma dvaldi þar í hvíldarinn-
lögn. Það var einstaklega gaman
að spjalla við hana um gamla
tíma og minnið óbrigðult eins og
hjá pabba alla tíð. Sérstaklega
þótti mér vænt um að hlusta á
sögur af okkur Bjarna frá Berg-
þórugötuárunum, ekki síst uppá-
tækjum okkar, og greinilegt að
við vorum ekki alltaf auðveldir.
Nú er komið að leiðarlokum eft-
ir löng og erfið veikindi. Leiðir
skilur um tíma en minningin um
þig lifir og er mér afar dýrmæt.
Hafðu þökk fyrir allt kæra
frænka. Fjölskylda mín, ásamt
ættleggnum hans Guðmundar
bróður þíns og móður minni
Brynhildi, vottar afkomendum
sína dýpstu samúð.
Sturla.
✝ Rannveig Hans-ína Jónasdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 26.
september 1935.
Hún lést 13. febrúar
2020 á hjúkrunar-
heimilinu Sólvöllum
á Eyrarbakka.
Foreldrar hennar
voru Jónas Sigurðs-
son, útvegsbóndi á
Suðureyri, f. 17. des-
ember 1904, d. 28. nóvember
1967, og Kristmanía Soffía Odds-
dóttir húsmóðir, f. 4. ágúst 1909,
d. 16. maí 1940.
Alsystkini Hansínu voru Guð-
mundur Guðni Jónasson, f. 31.
júlí 1928, d. 26. apríl 1943. Jóna
Ólsen, f. 29. maí 1930, d. 13. júní
1930. Indiana Sigríður Jón-
asdóttir Grossman, f. 3. mars
1932, d. 27. mars 2016. Hálfsystk-
ini Hansínu voru Pétur Jónasson,
f. 23. ágúst 1941. Friðbert Jón-
asson, f. 25. janúnar 1945. Sigríð-
ur Jónasdóttir, f. 10. júní 1947, d.
7. júlí 2013. Kristmundur Jónas-
son, f. 13. júní 1951.
Hansína eignaðist dóttur,
Hrafnhildi Þorleifsdóttur, f. 20.
apríl 1955. Hrafnhildur var gift
Davíð Þór Guðmundssyni, f. 7.
maí 1959, d. 7. janúar 2012, og
eignuðust þau Þórhildi Söndru
Davíðsdóttur, f. 24. júlí 1972,
Rakel Báru Davíðsdóttur, f. 2.
september 1974, d. 18. mars
1990, og Sunnu Rannveigu Dav-
íðsdóttur, f. 21. júní 1985.
Hansína giftist Gunnþóri P.
Péturssyni, d. 24. apríl 2005.
Börn þeirra: Guðrún Jóna Gísla-
dóttir, f. 12. ágúst 1957, d. 2.
febrúar 2014, maki Gunnar Guð-
jónsson og eru börn þeirra Þur-
íður Dagný Gunnarsdóttir, f. 10.
október 1980, Gísli Rúnar Gunn-
arsson, f. 6. apríl 1983, Gunnar
Örn Gunnarsson, f. 31. október
1984, og Kolbrún Klara Gunn-
arsdóttir, f. 13. maí 1992. Hall-
grímur Þór Gunnþórsson, f. 22.
júní 1960, maki Susana Rabanes
Gunnþórsson, f. 21.
september 1982.
Börn þeirra eru Hel-
ens Rut Hallgríms-
dóttir, f. 12. janúar
2005, og Veigar Þór
Hallgrímsson. f. 1.
júlí 2009. Soffía
Gunnþórsdóttir, f.
29. október 1961.
Soffía eignaðist
Guðnýju Benedikts-
dóttur, f. 3. sept-
ember 1978. Árnýju Evu Sig-
urvinsdóttur, f. 18. janúar 1985.
Sigurður Haukur William Guð-
laugarson,f. 30. desember 1990.
Sólrún Anna Óskarsdóttir og
Sindri Már Óskarsson, f. 26, maí
1996. Gunnþór Sigurgeirsson, f. 2.
ágúst 1999. Núverandi maki
Soffíu er Sigurgeir Svavarsson.
Elsa Kolbrún Gunnþórsdóttir,
f. 2. febrúar 1963. Maki Jón
Jónsson, f. 10. júlí 1961. Börn
Agnes Lind Jónsdóttir, f. 25. jan-
úar 1980, Ásgerður Tinna Jóns-
dóttir, f. 2. apríl 1985, Rakel
Marín Jónsdóttir, f. 11. ágúst
1990, og Arnþór Jónsson, f. 23.
nóv. 1991.
Inga Jóna Gunnþórsdóttir, f.
26. júní 1966. Maki Guðlaugur
Þorbjörn Kárason, f. 10. október
1972, börn: Thelma Rut Gunn-
laugsdóttir, f. 9. júní 1994, Kári
Þór Gunnlaugsson, f. 7. ágúst
1995, og Arnar Friðrik Gunn-
laugsson, f. 15. ágúst 2001. Jónas
Sigurður Gunnþórsson, f. 14. nóv-
ember 1969. Dóttir Steinunn
Anna Jóhannsdóttir, f. 29. apríl
1999. Árið 1976 giftist Hansína
Jóni Friðriki Zóphoníassyni skip-
stjóra á Stokkseyri, f. 1. nóvember
1933, d. 14. febrúar 2018. Þau áttu
ekki börn saman en nutu samvista
við sameiginleg barna- og barn-
barnabörn á Stokkseyri þar sem
að Elsa, dóttir Hansínu, og Jón
Jónsson giftu sig og eignuðust 4
börn auk 11 barnabarna. Þau búa
öll á Stokkseyri.
Útförin fór fram frá Stokks-
eyrarkirkju 29. febrúar 2020.
Elsku mamma mín. Nú hefur
þú kvatt okkur hin södd lífdaga.
Það voru forréttindi að fá að vera
sonur þinn og er ég lít yfir líf okk-
ar saman þá er aðeins ein tilfinn-
ing sem yfirtekur allar aðrar til-
finningar, meira að segja sorgina
og það er þakklætið. Þakklæti yf-
ir að þú varst mamma mín og
stóðst alltaf með mér í gegnum
súrt og sætt. Þakklæti yfir því að
þú kastaðir líflínu til mín á myrk-
ustu stundum lífs míns sem varð
til þess að mér tókst með Guðs
hjálp að snúa lífi mínu til betri
vegar og lifa sólamegin í lífinu.
Einnig studdir þú mig óspart
þegar ég tók upp á því að fara í
háskóla á gamals aldri. Og síðast
en ekki síst þakklæti fyrir að ég
fékk að vera til staðar fyrir þig
síðustu 20 ár ævi þinnar, bæta
fyrir brot mín með því að sýna
þér þann kærleika sem þú gerðir
þitt besta í að innræta mér sem
barni og rækta gott og kærleiks-
ríkt samband við þig. Ein af
grunnstoðum kærleikans er jú
þakklætið og í þakklátu hjarta er
ekkert pláss fyrir gremju og ótta.
Alltaf tókstu vel á móti okkur í
heimsókn, mér, konunni minni
Súsönu sem þú tókst strax ást-
fóstri við og hún við þig og börn-
unum okkar Helenu Rut sem var
jafnframt guðdóttir þín og Veig-
ari Þór sem var skírður í höfuðið
á þér af virðingu og ást á þér. Við
munum sakna heimsóknanna til
þín með blóm og nammi. Við elsk-
um þig öll, mamma mín, og sökn-
um þín og minning þín mun ávallt
búa í hjarta okkar. Einn vinur
minn segir stundum að hann trúi
því að Guð sé kona. Sé svo þá hef-
ur hann svo sannarlega skapað
þig í sinni mynd sem sást á því
hvernig þú tókst alltaf svo vel á
móti öllum með brosinu þínu og
kærleiksfaðminum þínum sem
var öllum opinn.
Þinn sonur
Hallgrímur Þór, Súsana,
Helena Rut og Veigar Þór.
Rannveig Hansína
Jónasdóttir
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR ÞÓR KRISTJÁNSSON
vélfræðingur,
Torfufelli 40, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild
LSH mánudaginn 9. mars og verður
jarðsunginn þriðjudaginn 17. mars klukkan
15 í Neskirkju.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk LSH sem annaðist hann fyrir
umönnun og hlýju í garð Gunnars.
Ingunn Jónsdóttir
Anton Pétur Gunnarsson Elsa Inga Konráðsdóttir
Anna Catarina Tågmark
Andri Jóhannesson Ragnheiður Birgisdóttir
Anna Fanney Gunnarsdóttir Haraldur Helgi Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, sonur, bróðir og mágur,
BENEDIKT BRAGASON,
lést á Landspítalanum Fossvogi
laugardaginn 14. mars 2020.
Vegna þjóðfélagsaðstæðna fer jarðarförin
fram í kyrrþey.
Minningarathöfn verður haldin þegar þjóðfélagsaðstæður leyfa
og verður auglýst síðar.
Benóný Orri Benediktsson
Bergljót Sveinsdóttir
Sveinn Magnús Bragason Björk Gunnarsdóttir
Soffía Emelía Bragadóttir
Lilja Bragadóttir Michael Sigþórsson
Guðrún Björg Bragadóttir
Trausti Bragason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar