Morgunblaðið - 16.03.2020, Page 22

Morgunblaðið - 16.03.2020, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020 Smáauglýsingar Húsnæði óskast 2-3ja herbergja íbúð óskast Ungt og reglusamt reyklaust par óskar eftir 2ja-3ja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Skilvísum greiðslum heitið. Meðmæli, trygging og allt að 3ja mánaða fyrirframgreiðsla. Sími 845 5926 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Þjónusta Málningarþjónusta Upplýsingar í síma 782 6034. Húsviðhald Tek að mér ýmiskonar húsaviðhald og fl. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Lýst hefur verið yfir neyðarstigi almannavarna vegna COVID-19 smits innanlands. Félagsmiðstöðin í Hæðargarði er því lokuð um óákveðinn tíma Garðabæ Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti, íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið. Starfsemi hjá FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið. Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Qigong 10-11. Leikfimi Maríu 10.30-11.15 Leikfimi Helgu Ben 11.15-11.45. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9. í Borgum, ganga kl. 10. frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilhsöll. Skartgripagerð í Borgum kl. 13. í dag og félagsvist kl. 13. í Borgum. Tréútskurður í umsjón Gylfa kl. 13. á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpusystkina kl. 16. í Borgum, Kristín kórstjóri og Jóhann undirleikari. Allir hjartanlega velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, trésmiðja kl.13-16, Gönguhópurinn kl.13.30, bíó í betri stofunni kl.15 .Uppl í s.4112760. Seltjarnarnes Því miður liggur allt auglýst félags og tómstundastarf eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi niðri vegna COVID 19, en þetta er ákvörðun í samráði við Landlækni og Ríkislögreglustjóra. Allar fyrir- hugaðar og áður auglýstar ferðir og samkomur frestast um óákveðinn tíma. Sléttuvegur 11-13 Mánudagur Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Vantar þig smið? FINNA.is Ég kynnist Garðari Ingvarssyni fyrst að marki sum- arið 1973, þegar vinna að stofnun kísiljárnsverksmiðju að Grundar- tanga í félagi við erlent stórfyr- irtæki, þar sem íslenska ríkið væri meirihlutaeigandi, hafði náð því að tímabært væri að ráðast í ritun samningstexta. Málið hafði frá 1971 verið í höndum viðræðu- nefndar um orkufrekan iðnað, sem skipuð var einvalaliði undir forystu Jóhannesar Nordal, og hafði Garðar starfað sem ritari hennar og ráðunautur ásamt öð- lingnum Jóni Steingrímssyni verkfræðingi. Var skýrsla frá Jóni og Garðari um hagkvæmni slíkrar verksmiðju meðal þess sem kom viðræðum við erlenda aðilann á skrið. Gerð samninga um verksmiðj- una og höfn að Grundartanga varð upphafið að löngu samstarfi milli mín og Garðars að hliðstæð- um verkefnum, sem síðar komu til. Gekk það með ágætum okkar í milli, m.a. þegar af þeirri ástæðu að við vorum báðir barnfæddir á Ísafirði og stoltir af þeim upp- runa. Þessi fyrsta lota samstarfs- ins varð reyndar alllöng, og feng- um við að kynnast því áþreifanlega hve tíminn og að- stæður dagsins á alþjóðavísu skiptu miklu máli um möguleika á eflingu orkufreks iðnaðar á Ís- landi. Þannig var í öndverðu stefnt að samningum við Union Carbide Corporation, og lágu drög að þeim fljótlega fyrir. Vegna efasemda hér heima þurfti þó að fresta frágangi málsins, og voru samningar teknir upp ári síðar. Var þeim lokið vorið 1975 Garðar Ingvarsson ✝ Garðar Ingv-arsson fæddist 10. apríl 1937. Hann lést 25. febr- úar 2020. Útför Garðars fór fram 10. mars 2020. og félagið stofnað eins og um var mælt. Um haustið var svo óvænt til- kynnt að UCC yrði að draga sig til baka, þar sem yfir- stjórn félagsins hefði tekið þá stefnumótandi ákvörðun að hætta allri aðild að fram- leiðslu kísiljárns. Í kjölfarið reyndist unnt að ná samningum við Elkem í Noregi, auk þess sem UCC féllst á að greiða bætur vegna röskunar af sínum völdum. Þannig stóðst það að hefja þá uppbyggingu atvinnu- starfsemi að Grundartanga, sem síðan hefur litið dagsins ljós. Á samstarfi okkar Garðars varð 11 ára hlé meðan ég gegndi dómarastarfi, og á því tímabili bar vinna hans og annarra á veg- um iðnaðarráðuneytis og Lands- virkjunar stórbrotinn árangur, þegar unnt varð að efna til ál- vinnslu að Grundartanga með stofnun Norðuráls. Þegar mér reyndist tímabært að hætta því starfi í ársbyrjun 2001 kom óvænt í ljós að Landsvirkjun þurfti á manni að halda til að ljúka samningsgerð við Norsk Hydro um byggingu álvers við Reyðarfjörð og orkukaup frá Kárahnúkavirkjun. Að því verk- efni gekk ég fegins hendi, og var þannig snögglega aftur kominn í fangið á Garðari og félögum hans. Árangurinn varð ekki síðri en ánægjan af endurfundunum, þannig að samningar tókust á út- mánuðum 2003. En ekki við Norsk Hydro, þar sem yfirstjórn þeirra hafði breytt um stefnu í málinu, heldur við risann Alcoa, sem hafði ekki byggt nýtt álver um langt skeið. Frá samvinnunni við Garðar er margs góðs að minnast, en sjálf- um þykir mér einna vænst um ár- in 1983-1985, þegar við unnum að endurskoðun samninganna frá 1966 við Alusuisse í framhaldi af deilum um starfsgrundvöll ÍS- ALs í Straumsvík. Þar náðist góður árangur frá sjónarmiði beggja aðila og jafnvægi sem miklu skiptir. Það var alla tíð keppikefli Garðars Ingvarssonar að vinna að málum þar sem hann gat látið gott af sér leiða, og það gerði hann einnig á mörgum sviðum öðrum en þeim sem ég þekkti best til. Jafnframt var hann fjöl- skyldumaður svo af bar, og miss- ir hans var mikill við fráfall Unn- ar fyrir aldur fram. Ég sendi börnum þeirra og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Hjörtur Torfason. Það er aldrei réttur tími eða réttur staður til að fá fréttir af andláti náins vinar og félaga. Missirinn og sorgin er ætíð mikil. Staðurinn aldrei réttur. Þegar ég fékk hringingu um að Garðar Ingvarsson, fyrrverandi tengda- faðir og vinur minn til næstum hálfrar aldar, væri fallinn frá var ég staddur á skíðum í Austurríki. Það helltist yfir mig ómæld sorg og söknuður þar sem ég stóð í miðri brekkunni með símann í hendinni og vissi ekki hvað ég átti að gera. Skömmu síðar komu fram minningar um svo margt sem við höfum gert saman. Minn- ingar, sem fylltu mig tregafullri gleði og þakklæti fyrir að eiga. Margar þeirra tengdar okkar sameiginlegu áhugamálum, ekki síst skíðum og annarri útiveru. Minningar um mann sem var allt- af til staðar fyrir mig og alltaf var hægt að leita til með hvað sem var. Mann sem alltaf fann lausnir. Það rann upp fyrir mér hversu mikil áhrif Garðar hafði á líf mitt og hversu mikið ég á honum að þakka. Allan stuðninginn og ráð- leggingarnar, í blíðu og stríðu. Hann var fyrirmynd mín í svo mörgu. Hvatti mig áfram í námi og starfi, huggaði í sorg og studdi þegar ég á þurfti að halda. Ekki síst öll umhyggja hans og Unnar, meðan hennar naut við, fyrir dætrum mínum. Hann var þeim einnig frábær fyrirmynd og sinnti hlutverki sínu sem afi með ómældri ást og umhyggju. Margir eiga þeim hjónum mik- ið að þakka. Nærtækt er að minn- ast þeirrar fórnfýsi og hjálpar sem þau veittu móður minni á hennar erfiðu tímum. Ég minnist margra stunda með Garðari og Unni. Útileg- anna, skíðaferðanna, veiðiferð- anna, jeppaferðanna, stjórnmála- vafstursins, samverunnar á Kirkjuteignum, heimsókna til Svíþjóðar og svo mætti lengi upp telja. Þegar ég stóð í skíðabrekk- unni, varð mér sérstaklega hugs- að til allra þeirra daga sem við eyddum saman á skíðum, í Blá- fjöllum eða erlendis. Allra okkar heitu umræðna um ágæti okkar skíðafélaga. Hann eldheitur Ár- menningur og ég sjóðheitur Bliki. Báðum fannst sitt félag „best“ og þreyttumst ekki á að rökræða það. Og þannig var það bara. Mér er einnig minnisstætt þegar ég, rétt rúmlega 17 ára, ástfanginn af dóttur hans, var kynntur fyrir honum. Eitt það fyrsta sem hann spurði um var hvort ég hefði áhuga á stjórnmál- um. Þegar ég sagðist vinna fyrir Sjálfstæðisflokkinn, kom stórt bros, sem fylgdi mér æ síðan. Garðar var mikill persónuleiki sem mótaði og hafði áhrif á um- hverfi sitt hvar sem hann kom við. Hann trúði á betra samfélag og lagði sitt af mörkum að til að svo gæti orðið. Sennilega var hvergi til betri staður til að heyra um andlát Garðars en í skíðabrekkunni. Það var engu líkara en að hann og all- ar fallegu minningarnar, væru að faðma mig í fjalladýrðinni og minna mig á hversu dýrmætt líf- inu er að eiga góðan vin. Takk fyrir öll þessi ár, elsku Garðar. Ég votta, Karen, Siggu, Ingv- ari, Böggu, fjölskyldum þeirra og ekki síst dætrum mínum, innileg- ustu samúð. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Ólafur Hafsteinsson. ✝ Guðbjörg Guð-mundsdóttir fæddist á Skálum á Langanesi 25. maí 1932. Hún lést á Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn, 15. ágúst 2019. Foreldrar Guð- bjargar voru Guð- mundur Guð- brandsson, útvegsbóndi á Skálum, f. í Skoruvík á Langa- nesi 23. apríl 1884, d. 25. ágúst 1966, og seinni kona hans, Kristín Daníelsdóttir húsfreyja, f. á Hofi í Vopnafirði 22. febr- úar 1895, d. 5. febrúar 1976. Hálfsystkini Guðbjargar, samfeðra: Margrét, f. 3. októ- ber 1907, d. 20. september 1989; Þórunn Þorbjörg, f. 31. október 1910, d. 6. nóvember 2005; Óli Jóhannes, f. 10. nóv- ember 1912, d. 13. janúar 1932 og Indriði, f. 7. nóvember 1914, d. 18. júlí 1976. Alsystkini Guðbjargar: Al- freð, f. 19. október 1919, d. 20. desember 1975; Guðbrandur, f. 28. apríl 1921, dáinn 19. apríl Dætur Huldu og Ragnars Indr- iðasonar eru: Harpa og Karen. Guðbjörg ólst upp í foreldra- húsum á Skálum til níu ára ald- urs, er hún fór í Skóga í Öx- arfirði til Margrétar systur sinnar og sótti skóla í Lundi þar til hún var fermd. Eftir að skólagöngu lauk gegndi Guð- björg hinum ýmsu störfum, m.a. við mötuneyti á Keflavík- urflugvelli, var undirverkstjóri í Hraðfrystihúsi Þórshafnar og ráðskona á Gunnólfsvíkurfjalli, svo eitthvað sé nefnt. Guðbjörg og Jóhann bjuggu á Þórshöfn nánast allan sinn búskap. Þau gerðu út bátinn Seif, sem Jóhann reri á. Þau bjuggu m.a. í húsinu Braut- arholti, sem varð eldi að bráð árið 1979. Þá byggðu þau sér hús í Pálmholti 4 á Þórshöfn. Eftir að Jóhann lést hélt Guð- björg þar heimili ásamt börn- um sínum Elísabetu Magneu og Gunnari Hólm, þar til hún flutti í Pálmholt 13 og síðar Miðholt 10. Áhugamál Guðbjargar tengdust m.a. ýmiss konar handavinnu og föndri. Eftir hana liggja ófáir fallegir mun- ir. Síðustu æviárin dvaldi Guð- björg á Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn. Útför Guðbjargar fór fram í kyrrþey frá Þórshafnarkirkju 24. ágúst 2019. 2001, Gunnar Kristján, f. 17. september 1926, d. 4. september 2010 og Sigurður Hólm, f. 20. júní 1929, d. 6. mars 1953. Eiginmaður Guðbjargar var Jó- hann Guðmunds- son, f. 18. febrúar 1935, d. 5. apríl 1983. Börn Guð- bjargar og Jóhanns eru: 1) El- ísabet Magnea, f. 18. mars 1955, maki: Páll Brynjarsson, f. 27. febrúar 1959. Dóttir þeirra er Guðrún Ásta. 2) Sumarrós Kristín, f. 2. september 1958. Börn hennar og Magnúsar Benediktssonar: Guðbjörg Jó- hanna, Fjalar Örn og Magnea Dröfn. 3) Guðmundur, f. 19. janúar 1961, maki: Sigurrós Jónasdóttir, f. 28. júní 1967. Börn: Bergrún, Jóhann, Mar- grét, Björg og Alexander. 4) Gunnar Hólm, f. 17. desember 1966, í sambúð með Sigurborgu Huldu S. Söring, f. 19. desem- ber 1961. Þeirra dætur eru: Sonja Hólm og Dilana Hólm. Stórt skarð er höggvið í vina- hóp minn við fráfall Guðbjargar, eða Boggu Munda, eins og hún var gjarnan kölluð. Kynni okkar Boggu hófust fyrir tæpum 24 ár- um, er ég hóf samband með El- ísabetu dóttur hennar. Ég held henni hafi ekki litist alltof vel á væntanlegan tengdason sinn í fyrstu, en fljótlega tókst með okkur náin og djúp vinátta, sem ég er óendanlega þakklátur fyr- ir. Enn þakklátari er ég fyrir að hafa talist í hennar innsta vina- hring, þar sem hún tók ekkert endilega öllum. Þeim sem hún tók var hún tryggur vinur og traustur. Margs er að minnast frá okkar góðu stundum saman. Ég nefni ófáar stundir sem við sátum við spilaborðið, þegar hún var að reyna að kenna mér að spila hornafjarð- armanna, með alla vega árangri. Skemmtilegri stundir var varla hægt að hugsa sér. Hún kunni ótal orðatiltæki og tilsvörin í spilamennskunni voru oft æði skondin. Mikið vorum við búin að hlæja á þessum stundum. Henni fannst ekki leiðinlegt að skella tengdasyninum niður í nóló. Bogga var mjög hreinskilin. Ég vissi alltaf hvar ég hafði hana. Það fór aldrei á milli mála. Þetta tel ég góðan kost í fari hvers manns. Hún átti ekki til neina sýndarmennsku. Enda sagði hún ekki fyrir löngu: „Við Palli minn þurfum ekki að segja mikið; við skiljum hvort annað.“ Þannig var þetta bara. Hún hafði mjög gaman af því er ég settist við flygilinn. Ég heyrði hana stundum raula við eldhúsborðið það sem ég var að spila og áður en við vissum af vorum við bæði brostin í söng og lögin urðu fleiri. Hún kenndi mér margar gamlar tækifærisvísur og lög við þær, væntanlega ættað úr fá- menninu nyrðra. Barnabörnin voru mjög góðir vinir hennar og afar hænd að henni, enda gaf hún mikið af sér til þeirra. Þau syrgja öll góða ömmu. Bogga var mjög fróð. Hún las mikið þar til heilsan lét undan. Því var hægt að tala við hana um allt mögulegt. Ég lærði margt af kynnum mínum við hana. Hún sagði oft við mig að hún ætti fáa vini, en góða. Það var nú oft æði gestkvæmt hjá henni fannst mér alla tíð. Enda var hún svo skemmtileg að hún lað- aði til sín þá sem hana þekktu. Nú er komið að leiðarlokum. Bogga mín hefur fengið hvíldina, sem hún var búin að þrá í nokk- urn tíma, enda þrotin að heilsu og kröftum. Ég þakka henni innilega fyrir yndisleg kynni og að hafa viljað vera vinur minn og minnar fjölskyldu. Um leið og ég óska börnum hennar og fjölskyldum þeirra dýpstu samúð bið ég góðan Guð að blessa minningu hennar Boggu minnar og vona að við hittumst í sumarlandinu. Páll Brynjarsson. Guðbjörg Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.