Morgunblaðið - 16.03.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Skiltagerð
Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
40 ára Helga ólst upp í
Breiðholti en býr í
Kópavogi. Hún vinnur í
tollskjalagerð hjá Eim-
skip og gerir innflutn-
ingstollskýrslur.
Maki: Ragnar Frið-
bjarnarson, f. 1973,
sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Kópa-
vogs.
Synir: Róbert Örn Helgason, f. 2002, og
Bergvin Fannar Helgason, f. 2003.
Foreldrar: Kristín Helga Waage, f. 1939,
fyrrverandi starfsmaður Gunnars majó-
nes, búsett í Reykjavík, og Örn Pálmi
Aðalsteinsson, f. 1941, d. 1993, mjólkur-
bílstjóri.
Helga
Arnardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur ekki neitað að axla þinn
hluta ábyrgðarinnar þegar þú hefur stofnað
til samstarfs með öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að hafa augun hjá þér svo
áætlun þín fari ekki öll úr skorðum. Fáðu
þína nánustu í lið með þér og þá heppnast
allt vel.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er ekkert sem heitir, þú verður
að taka til á skrifborðinu þínu og klára öll
þau verk sem þú hefur tekið að þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Annríki setur sitt mark á daginn í
dag. Láttu öfund annarra sem vind um eyru
þjóta því þinn tími er kominn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft á öllum þínum kröftum að
halda nú þegar þér er falið óvenjuerfitt
verkefni. Líttu á jákvæðu hliðar málanna og
þá mun þér fara viðfangsefnið vel úr hendi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er kominn tími til að hlusta á sína
innri rödd og hræðast ekki að fylgja henni
eftir. Hafðu í huga að þú ert hluti af fjöl-
skyldu og að allir þrá ást og hamingju.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú væri ekki úr vegi að setjast niður og
gera áætlanir fyrir framtíðina. Ekki takast
eitthvað á hendur bara af því að það er
áhugavert.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það kallar á skipulag þegar
margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess.
Vertu á varðbergi gagnvart orkusugum og
hleyptu þeim ekki nálægt þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú stendur frammi fyrir ákaf-
lega erfiðri ákvörðun en staðfesta þín mun
afla þér virðingar samstarfsmanna þinna.
Láttu kyrrt liggja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er eitthvað að en þér finnst
þú ekki geta fest hendur á neinu. Leyfðu
öðrum að njóta bjartsýni þinnar og fástu
ekki um það þótt einhverjar úrtöluraddir
heyrist.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekkert markmið verður að veru-
leika nema með stuðningi. Taktu vandamál-
unum af kæruleysi, þú hefur bæði fag-
mennsku og reynslu og svona ákvarðanir
tilheyra ferlinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gefðu voninni byr undir báða vængi
og láttu ekkert aftra þér frá því að láta
draum þinn rætast.
Moniku Abendroth hörpuleikara.
Hann gerði plöturnar Milljón á mann
(1994) og Þetta er nú meiri vitleysan
(2001) ásamt Milljónamæringunum,
Stereo (1998) ásamt hljómsveitinni
Casino og umturnaði Eurovision árið
1997 með laginu „Minn hinsti dans“.
Þegar dansplatan Allt fyrir ástina
kom út árið 2007 sló hún öll hans
fyrri met. Platan gat af sér hvorki
fleiri né færri en fimm smáskíf-
ur:„Allt fyrir ástina“, „Inter-
national“, „Betra líf“, „Er þetta ást?“
og útgáfa hljómsveitarinnar Hjaltal-
ín af laginu „Þú komst við hjartað í
mér“ eftir Togga, Bjarka og Palla
færði þeim Íslensku tónlistar-
verðlaunin 2008 fyrir lag ársins. Árið
2008 gaf Páll Óskar svo út safnplöt-
una Silfursafnið sem sömuleiðis náði
metsölu. Síðan hafa komið út plöt-
urnar Páll Óskar og Sinfó 2011, Páll
Óskar – Box (6 plötur í kassa) 2014,
Kristalsplatan 2017 og tónlist úr
Rocky Horror úr Borgarleikhúsinu
2018.
„Það er óvíst að ég geri aftur stóra
plötu, það er hreinlega skyn-
samlegra að gera smáskífur í dag.
Núna er ég með tvær smáskífur í
hljómsveitinni Milljónamæring-
unum, útvarpsþættirnir Sætt og
sóðalegt, og svo loks fyrsta sólóplat-
an hans, diskóplatan Stuð sem kom
út árið 1993. Af öðrum sólóplötum
hans má nefna Palli (1995), Seif
(1996), Deep Inside (1999), og Ef ég
sofna ekki í nótt (2001) og Ljósin
heima (2003), sem hann gerði ásamt
P
áll Óskar Hjálmtýsson
fæddist 16. mars 1970 í
Reykjavík og ólst upp í
Vesturbænum og dvaldi
á mölinni mestalla æsk-
una. „Fjölskyldan mín var bíllaus til
ársins 1987 svo það var ekki mikið
um bíltúra upp í sveit með 7 börn. Ég
fékk ekki að sjá hvernig landið mitt
lítur út fyrr en ég fór með Millj-
ónamæringunum á sveitaböll, þá
orðinn 24 ára gamall. Núna þekki ég
landið eins og lófann á mér og passa
upp á að ég nái að spila í öllum helstu
kaupstöðum landsins allavega einu
sinni á ári.“
Páll Óskar gekk í Vesturbæjar-
skólann 1976-82, Hagaskóla 1983-86
og MH 1986-1990 en kláraði ekki
stúdentinn. „Ég vissi alltaf hvað ég
ætlaði að verða þegar ég yrði stór og
það þurfti próf úr skóla lífsins til
þess.“
Óhætt er að segja að Páll Óskar
hafi náð markmiðum sínum. Hann er
ein skærasta poppstjarna þjóð-
arinnar og höfðar til breiðs hóps
hlustenda. Hann var einnig barna-
stjarna en árið 1980 kom út hljóm-
platan „Söngævintýrið“ þar sem
Gylfi Ægisson samdi litla söngleiki
kringum sígild ævintýri. Páll Óskar,
10 ára, var valinn til að syngja Hans í
„Hans og Grétu“. Þetta var upphafið
á mikilli vinnutörn Páls Óskars sem
barnasöngvara, sem leiddi af sér-
fjölmargar upptökur á hljómplötum
og í leiknum eða sungnum auglýs-
ingum. Barnavinnan náði svo há-
marki þegar hann fór með aðal-
hlutverkið í söngleiknum
Gúmmí-Tarzan eftir Ole Lund Kir-
kegaard, við tónlist Kjartans Ólafs-
sonar. Um leið og sýningum lauk fór
Palli í mútur og söng lítið sem ekkert
í fimm ár, fyrir utan bassarödd í Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Loks tók Páll Óskar þátt í fyrstu
Söngkeppni framhaldsskólanna árið
1990 með laginu „Til eru fræ“ og
lenti þar í þriðja sæti. Þegar leik-
félag Menntaskólans við Hamrahlíð
setti upp söngleikinn „Rocky
Horror“ með Pál Óskar í hlutverki
Frank ’N’ Furters, byrjuðu lætin
fyrst fyrir alvöru. Við tóku fjölmarg-
ar drag-sýningar, uppákomur í sjón-
varpi og útvarpi, samstarf með latín-
ofninum sem ég held að séu báðar
mjög sterkar og þær fara í spilun
fljótlega.“ Páll Óskar ætlaði að vera
með afmælistónleika en þeim hefur
verið frestað fram á haust. „Árið
2019 var kærkomið hvíldarár en það
hafði verið brjálað að gera hjá mér
2017 og 2018. Svo ætlaði ég að snúa
aftur með þessa tónleika en þá greip
COVID-19 inn í.“
Sem dagskrárgerðarmaður stýrði
Páll Óskar útvarpsþáttunum „Dr.
Love“ á Mono, og Eurovision-
þættinum „Alla leið“ á RÚV. Einnig
vakti hann athygli fyrir dómgæslu
sína í „Idol Stjörnuleit“ og „X-
Factor“ á Stöð 2. Ómælt er það starf
sem hann hefur sinnt í þágu rétt-
indabaráttu samkynhneigðra, en
hann hefur meðal annars setið í und-
irbúningsnefnd Hinsegin daga allt
frá upphafi til ársins 2006.
Áhugamál Páls Óskars eru listir af
öllum toga. „Ég tek allt saman inn og
er stöðugt að leita að einhverjum
sannleika og einhverri orku. Ef mér
líður eins og verið sé að plata mig þá
missi ég fljótt áhugann en um leið og
ég finn fyrir einhverjum heilindum
þá get ég sokkið í hvaða bók sem er
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður – 50 ára
Systkinin Frá vinstri: Addi Gunni, Páll Óskar, Diddú, Hanna Steina, Ásdís, Matti og Linda.
Ein skærasta poppstjarna Íslands
Poppstjarnan Páll Óskar.
30 ára Heiða er fædd
á Skáni í Svíþjóð en
flutti til Íslands 7 ára
og býr í Garðabæ.
Hún er með BS-gráðu
bæði í tölvunarfræði
og heilbrigðisverk-
fræði frá HR. Heiða er
eigandi sprotafyrirtækisins Costner.
Maki: Adam Erik Bauer, f. 1989, rétt-
arefnafræðingur hjá Rannsóknastofu í
lyfja- og eiturefnafræði hjá HÍ.
Foreldrar: Hreinn Stefánsson, f. 1964,
dr. í lífefnafræði og vinnur hjá Decode, og
Sveinbjörg Pálmarsdóttir, f. 1962, dr. í
lyfjafræði og vinnur hjá Coripharma. Þau
eru búsett í Garðabæ.
Aðalheiður
Hreinsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is