Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Íslenskt leikhús hefur á umliðn-um árum notið þeirrar gæfuað brúðumeistarinn BerndOgrodnik frá Þýskalandi valdi að búa hér og starfa. Með sýningum á borð við Aladdín, sem frumsýnd var 2013, og Íslenska fílinn, sem frum- sýnd var 2016, hefur hann boðið íslenskum áhorfendum á öllum aldri upp á leikhústöfra á heimsmæli- kvarða og verið lifandi sönnun þess hversu jákvæð og auðgandi áhrif að- fluttir íbúar geta haft á íslenskt sam- félag – gefist þeim til þess tækifæri. Í viðtölum við Bernd í aðdraganda frumsýningar nýjustu sýningar lista- mannsins fór hann ekki dult með að Brúðumeistarinn, í góðri leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar og ljómandi þýðingu Maríu Helgu Guðmunds- dóttur, væri persónulegasta sýning hans til þessa, en hún hefur verið í undirbúningi í um 15 ár. Ólíkt mörg- um fyrri sýningum Bernds er Brúðu- meistarinn ekki ætluð allri fjölskyld- unni heldur aðeins fullorðnum, enda er umfjöllunarefnið ekkert léttmeti. Í verkinu bregður Bernd sér í hlut- verk þýska brúðumeistarans Günt- her sem fluttist til Íslands fyrir nokkrum áratugum til að flýja fortíð- ina, fjölskylduna, samfélagið og ætt- jörðina. Þegar sýningin hefst hefur Günther komið sér fyrir í sjálfsskip- aðri einangrun frá umheiminum, sem kallast óvænt á við samkomubann og sóttkví samtímans. Ástæða þess að Günther hefur valið að loka sig inni bak við marglæstar dyr er að til stendur að bera hann út þar sem hús- næði hans á að víkja fyrir enn einu lúxushótelinu. Fljótlega kemur þó í ljós að Günther er ekki síður að reyna að loka fortíðina, með öllum sínum draugum, úti – en eins og vatn finnur hún sér alltaf leið. Áhrifamikil lýsing Ólafs Ágústs Stefánssonar og flott hljóðmynd Elvars Geirs Sævarssonar gefa snemma í uppfærslunni tilfinn- ingu fyrir því að Günther sé staddur í stríðshrjáðu landi með tilheyrandi sprengingum. Það kallast áþreifan- lega á við það óveðursský sem ríkir í höfði brúðugerðarmannsins í tengslum við óuppgerða fortíð og skýrir að stórum hluta ótta og tauga- spennu persónunnar. Snjallt er að láta ólík tímaskeið renna saman með þessum hætti, enda undirbýr það áhorfendur fyrir framhaldið. Eva Signý Berger hannar bæði leikmynd og búninga. Rýmið er listi- lega vel nýtt og leikmunir luma iðu- lega á leyndum flötum sem kallast á við leyndarmálin sem Günther þarf sjálfur að afhjúpa til að vinda ofan af vanlíðan sinni. Í fyrsta hluta sýn- ingarinnar fá áhorfendur að kynnast Günther á vinnustofu sinni í samtím- anum. Þar vinnur hann ötullega að því að útfæra vængi fyrir eina brúð- una svo hún geti flogið frjáls, en út- færslan vefst fyrir honum. Í ljós á eft- ir að koma að brúðan, sem er ein af mörgum hliðarsjálfum Günthers í sýningunni, reynist ófær um að fljúga þar til uppgjörinu við fortíðina er lok- ið. Á vinnustofu brúðumeistarans leynist fjöldinn allur af brúðum sem kvikna bókstaflega til lífsins í hönd- um skapara síns. Við sjáum Günther rifja upp spakmæli afa síns sem brýndi fyrir afkomendum sínum að þolinmæði væri dyggð, en sjálfur beið hann vikum saman til að komast að því hvort dætur hans hefðu lifað af sprengjuárás. Áhrifamikill dauða- dans afans við eina dóttur sína snemma í sýningunni setur tóninn fyrir það sem koma skal þar sem dauði, útrýmingarbúðir, sorg og leyndarmál eru í forgrunni. Í leik- skránni er þeim spurningum réttilega velt upp hvort hægt sé að gera upp örvæntingu og sár heillar þjóðar í gegnum sögu eins manns; hvort hægt sé að vinna sig í gegnum kynferðis- lega misnotkun með því að búa til brúðu af ofbeldismanninum; hvort tímabært sé að varpa ljósi á samkyn- hneigð foreldris eftir að það fellur frá og hvort hægt sé að heila ævilanga leynd og þöggun. Þetta eru áhuga- verðar spurningar og þarfar. Öll burðumst við að einhverju leyti með fortíðina á bakinu og þurfum mörg hver að gera upp sára fortíð og reynslu til að geta fundið frið í sálinni, þó að uppgjörið sé sem betur fer ekki jafn dramatískt og hjá Günther. Bernd og Bergur nálgast vand- meðfarinn efniviðinn af nauðsynlegri virðingu og væntumþykju. Óhugnað- urinn er allsráðandi þegar minningar úr seinni heimsstyrjöldinni eru rifj- aðar upp. Skuggamyndir úr smiðju Katarínu Caková eru nýttar með áhrifaríkum hætti til að miðla dapur- legum örlögum ömmu Günthers, þær sýna okkur líka sprengjuflugvélar, hermenn og járnbrautarlestirnar sem fluttu milljónir í útrýmingar- búðir nasista. Þrátt fyrir erfitt um- fjöllunarefni er húmorinn sem betur fer aldrei langt undan. Þannig var gaman að fylgjast með því hvernig Günther sendi þá sem honum var illa við í útlegð á eyðieyju og beinlínis grátbroslegt að upplifa samtal Günthers við þýskan nasistaforingja þar sem sá síðarnefndi reynir að bera í bætifláka fyrir foringja sinn með takmörkuðum árangri. Sem mótvægi við allan óhugnaðinn er áhorfendum boðið upp á undur- fallegar senur, eins og þegar Günther afhjúpar yngri útgáfur foreldra sinna sem eiga fallegan endurfund um stund eða þegar afi hans hjálpar þýsku andspyrnukonunni Sophie Scholl. Fallegust er síðan lokasenan þar sem eldri brúðuútgáfan af Günt- her tekur yngri útgáfu af sjálfum sér í faðm sinn og kemst loks á langþráð flug – laus undan byrðum sínum að loknu sársaukafullu en hreinsandi uppgjöri. Falleg tónlist Péturs Ben leikur stórt hlutverk í sýningunni og bætir miklu við heildarupplifunina. Nokkur ár líða yfirleitt milli frum- sýninga hjá Bernd, sem skýrist ekki síst af því að það tekur tíma að vinna allar brúðurnar frá grunni. Biðin er þó ávallt þess virði, því Bernd býður upp á sannkallaða leikhústöfra sem láta engan ósnortinn. Brúðumeistar- inn er mikilvæg sýning sem minnir okkur á nauðsyn þess að horfast í augu við fortíðina og gera hana upp. Á sama tíma er hún brýn áminning um þá viðsjárverðu tíma sem við lif- um með vaxandi þjóðernishyggju og útlendingahatri. Eftir því sem fækk- ar í hópi þeirra sem lifðu af hörmung- ar seinni heimsstyrjaldar fækkar því miður jafnframt í hópi þeirra sem minna okkur á að við megum aldrei sofna á verðinum gagnvart öfgaöfl- um. Allt sem má ekki segja Ljósmynd/Eddi Frelsi undan oki fortíðar „Brúðumeistarinn er mikilvæg sýning sem minnir okkur á nauðsyn þess að horfast í augu við fortíðina og gera hana upp,“ segir í leikdómi um nýjustu leiksýninguna úr smiðju Bernds Ogrodnik. Þjóðleikhúsið Brúðumeistarinn bbbbn Eftir Bernd Ogrodnik. Þýðing á handriti: María Helga Guðmundsdóttir. Leik- stjórn: Bergur Þór Ingólfsson. Hönnun og gerð leikbrúða: Bernd Ogrodnik. Hönnun leikmyndar og búninga: Eva Signý Berger. Tónlist og upptökustjórn: Pétur Ben. Hljóðmynd: Elvar Geir Sæv- arsson. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefáns- son. Yfirumsjón: Hildur M. Jónsdóttir. Grímugerð: Katarína Caková. Skugga- sena: Anne Rombach. Hljóðfæraleikur og söngur: Pétur Ben, María Huld Mark- an Sigfúsdóttir, Júlía Mogensen, Óttar Sæmundsen og Jelena Ciric. Leikari og brúðustjóri: Bernd Ogrodnik. Leik- hópurinn Brúðuheimar frumsýndi á Brúðulofti Þjóðleikhússins laugardag- inn 7. mars 2020, en rýnt í 2. sýningu á sama stað mánudaginn 9. mars 2020. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell ADifferent Kind of Disaster Movie. m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN ÓSKARSTILNEFNINGAR2 BESTA ERLENDA MYNDINBESTA LE IKARI : ANTONIO BANDERAS SÝND MEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI ★★★★ San Francisco Chronicle ★★★★ Indiewire ★★★★ Hollywood reporter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.