Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Klippt og beygt fyrirminni og stærri verk ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ VANTAR TAPPANN Í BAÐIÐ Í HERBERGI 1708.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem gerir það þess virði. ÉG FINN EKKI LYKLANA MÍNA NÉ SKÓNA MÍNA NÉ BUXURNAR OOOG ÞAR FÓR ÖLL ÞÍN MANN- LEGA REISN MAMMA, FÉKKSTU FIÐRILDI Í MAGANN ÞEGAR ÞÚ HITTIR PABBA FYRST? ÉG FÉKK FLÆR! Í ÞÁ DAGA HATAÐI PABBI ÞINN LÍKA AÐ FARA Í BAÐ! „EINN Í EINU. ÉG SKIL EKKI ORÐ ÞEGAR ÞIÐ TALIÐ BÁÐIR SAMTÍMIS.” Fjölskylda Eiginmaður Steinunnar er Páll Hjalti Hjaltason, f. 7.8. 1959 í Reykjavík, arkitekt og fyrrverandi borgarfulltrúi. Þau kynntust í New York í nóvember 1986 þegar þau voru þar við nám en þau giftust 17.11. 2006. Þau búa í Reykjavík. Foreldrar Páls voru hjónin Ingigerð- ur Karlsdóttir, f. 21.6. 1927, d. 28.3. 2013, flugfreyja og húsmóðir í Reykjavík, og Hjalti Pálsson, f. 1.11. 1922, d. 24.10. 2002, framkvæmda- stjóri í Reykjavík. Sonur Páls og Steinunnar er Alex- ander Viðar Pálsson, f. 3.5. 1995. Um hann var gerð heimildarmyndin „Al- exander“ eftir Mary Ellen Mark árið 2007. Hann er búsettur í Reykjavík. Bræður Steinunnar eru Þorvaldur Sigurðsson, (hálfbróðir), f. 30.9. 1951, forstjóri í Reykjavík; Jón Viðar Sig- urðsson, 21.6. 1958, prófessor í Ósló; Magnús Viðar Sigurðsson, f. 6.1. 1966, framleiðandi í Reykjavík. Foreldrar Steinunnar eru hjónin Halldóra Edda Jónsdóttir, f. 8.7. 1933, húsmóðir og verslunarmaður, og Sigurður Þ. Árnason, f. 15.3. 1928, fyrrverandi skipherra hjá Land- helgisgæslunni. Þau búa í Reykjavík. Steinunn Sigurðardóttir Halldóra Steinþórsdóttir ljósmóðir á Auðkúlu Magnús Gíslason bóndi áAuðkúlu íArnarfirði Margrét Magnúsdóttir húsfreyja og saumakona í Rvík Jón Ottó Magnússon skipstjóri í Reykjavík Halldóra Edda Jónsdóttir fv. húsmóðir og verslunarkona í Reykjavík Sigrún Ólafsdóttir ljósmóðir á Bíldudal Magnús Kristjánsson bóndi á Bíldudal Theodór Jónsson skipstjóri í Rvík Sigurbergur Árnason eftirlitsmaður hjá ÍAV Margrét Theodórsdóttir skólastjóri Tjarnarskóla í Reykjavík Anna Rósa Árnadóttir rak Efnalaug Hafnarfjarðar Sigurður Steinar Ketilsson skipherra hjá Landhelgis- gæslunni Guðrún Kristjánsdóttir fv. bóndi á Dunk í Hörðudal Jóna Jónsdóttir fv. útibússtjóri í Rvík Ásdís Árnadóttir húsfreyja í Rvík Magnús Eyjólfsson bóndi í Krókskoti á Miðnesi Vilborg Berentsdóttir húsfreyja í Krókskoti Steinunn Sigríður Magnúsdóttir útgerðarkona og húsfreyja í Rvík Árni Steindór Þorkelsson skipstjóri í Reykjavík Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja í Lambhaga Þorkell Árnason bóndi í Lambhaga á Álftanesi Úr frændgarði Steinunnar Sigurðardóttur Sigurður Þorkell Árnason fv. skipherra hjá Landhelgisgæslunni Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönnskrifaði í Fésbók á mánudag og kallaði „Snjór á snjó ofan“: Jafnt og þétt hefur bætt á snjóinn þessa síðustu viku. Mokað niður í logni, skafið saman úr vestri og rifið af úr austri. Nú er aftaka stórhríð og ekki fjárhúsafært. Hér í Skjaldfann- ardal er ekkert landslag lengur, öll kennileiti horfin undir fönn og stutt í að þurfi að fara að moka ofan af húsaþökum. Fjallsbrúnin hér ofan bæjar er á löngum kafla horfin bak við himingnæfandi skafl. Þessi ósköp ógna mér yfir brúnir kletta hengja brött við himin ber. Hvenær leysir þetta? Á Boðnarmiði hefur Pétur Stef- ánsson orð á því að tveggja metra fjarlægð sé ráðlögð: Njóta ástar ekki má, enda á lofti blikur. Held ég mig í fjarlægð frá frúnni næstu vikur. Þótt hrjái oss kórónukrísan sem kveikir í mannfólki hroll, mun ástkæra íslenska vísan áhyggjum velta um koll. Hallmundur Kristinsson er lífs- reyndur maður og veit sitt af hverju: Mitt líf er töluvert meira en hálft. Marga ég lífsgildru þekki. Veröldin þykist oft sakleysið sjálft sem hún í raun er þó ekki. Guðmundur Beck bætir við: Fráleitt hann fari með gjálfur þó fiski á lóðin tvenn. Hallmundur meira en hálfur en heldur í sakleysið enn. Og Guðrún Bjarnadóttir: Hálfnað líf er harla flott, helst til stutt að deyja, en lifa fullu lífi gott, langvitringar segja. Kötturinn Jósefína Meulengracht Dietrich segir að „við sem erum í stjórnmálunum höfum ærinn starfa um þessar mundir“: Talsvert miklar tarnirnar og tekur á að sinna því að mannfjárveikivarnirnar verði ekkert bríarí. Gömul vísa í lokin: Áin Blanda ofan í sjó öllu hefur rutt af sér. Sú er ei landa milli mjó mér ofbjóða jakarnir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Tveir metrarnir og ekkert landslag lengur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.