Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 2
2 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is Kórónuveiran er farin að hafa áhrif á starfshætti Alþingis og fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Til að tryggja nauðsyn- lega tveggja metra fjarlægð milli manna sitja nokkrir borg- arfulltrúar á áhorfendapöllum á meðan aðrir eru í sal borgar- stjórnar. Pallarnir eru ekki opnir almenningi á meðan. Í þingsal er aðeins setið í öðru hverju sæti og verða því líklega ekki fleiri en tuttugu þingmenn þar í einu og þá þeir sem taka þátt í umræðum hverju sinni. Aðrir þingmenn verða í hliðar- herbergjum og skrifstofum sínum. Við atkvæðagreiðslur verður þingmönnum hleypt inn í þremur hópum. Þingfundum verður fækkað. Upplýst var í gær að einn starfsmaður Alþingis, sem verið hefur í sóttkví, hefði reynst vera smitaður af veirunni. Hann er sagður á batavegi. Tveir aðrir starfsmenn eru í fyrirskip- aðri sóttkví vegna samskipta við smitaða einstaklinga, en eru báðir frískir. Þá eru einhverjir þingmenn og starfsfólk í sjálf- skipaðri sóttkví eða smitvari vegna aðstæðna, ýmist af per- sónulegum heilsufarsástæðum eða vegna einhvers nákomins. Í þeim hópi er Ásmundur Friðriksson alþingismaður en gest- ur á heimili hans greindist með veiruna. Ásmundur hefur ver- ið lasinn að undanförnu en er ekki með veiruna. Mótar starfshætti Vegna fyrirskipaðra fjarlægðarmarka milli manna þarf hluti borgarfulltrúa að sitja á áhorfendapöllum og aðeins hluti alþingismanna má vera samtímis í þingsalnum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veiran mótar braginn á Alþingi og í borgarstjórn Teitur Gissurarson Þórunn Kristjánsdóttir „Við tökum að okkur að vera útvörð- ur áfram. Það held ég að sé heppi- legast fyrir okkur.“ Þetta sagði Sig- ríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður ut- anríkismálanefndar, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Sam- þykkt var á fundi leiðtoga Evrópu- sambandsríkjanna í gær að loka landamærum þess til næstu 30 daga. Tilkynnti Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ákvörðunina í gær- kvöld. Höfum ekki áhuga Ferðabannið nær þó ekki til rík- isborgara EFTA-ríkjanna, þar á meðal Íslands, og Stóra Bretlands og segir Sigríður þetta vera fýsileg- asta kostinn fyrir okkur Íslendinga eins og er. „Að mínu mati, að minnsta kosti, þyrfti frekari skoð- anir hér á landi ef við ætluðum að loka landamærum Íslands fyrir öll- um utan Schengen-svæðisins. Við höfum ekki áhuga á því að mínu mati, enn sem komið er.“ Sigríður segist telja að tilgangur- inn með lokun landamæranna sé að draga úr lokunum einstakra ríkja. „Ástæðan fyrir því að fram- kvæmdastjórnin er að gera þessa til- lögu er að þau eru örugglega að reyna að fá einstök ríki Evrópusam- bandsins til hverfa frá ákvörðun um að loka sínum landamærum sjálf- stætt. Ég veit ekki hvort þeim tekst það. Hvort þeir ætli að selja Dönum, Norðmönnum, Ítölum og Spánverj- um þá hugmynd, en ég veit ekki hvort þeim tekst það.“ Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra ræddi í gær símleiðis við Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um bann við ferðum ferðamanna af Schengen-svæðinu, sem nær einnig til íslenskra ríkis- borgara. „Við ræddum um mikil- vægi þess að viðhalda áfram góðum samskiptum þegar þessum heims- faraldri lyki. Ég lagði líka áherslu á mikilvægi þess að viðhalda flugi milli landa út af sérstakri stöðu landsins,“ sagði Guðlaugur í samtali við mbl.is í gærkvöld. Sagði Guðlaugur að þeir hefðu einnig orðið ásáttir um að undirbúa samráð á sérfræðingastigi um þessi mál, hugsanlega í tengslum við efna- hagssamráð ríkjanna í stærra sam- hengi. Sagði Guðlaugur brýnt að nú væri unnið að því að takmarka tjónið sem og að undirbúa að nýta sem best sóknarfæri sem skapast þegar kór- ónuveirufaraldrinum lýkur. Leysist ekki alveg á næstunni „Þó að hlutirnir gerist mjög hratt verðum við að horfast í augu við það að þetta leysist ekki alveg á næst- unni. Þetta snýst í rauninni um að þegar um hægist, hvenær sem það verður, getum við nýtt tækifærin. Bæði með þessum fundum og öðrum erum við að vinna að því að tak- marka tjónið,“ sagði Guðlaugur. Fýsilegasti kosturinn fyrir okkur  Leiðtogar ESB tóku ákvörðun um lokun landamæra en bannið nær ekki til EFTA-ríkjanna  Utanríkisráðherra segir brýnt að takmarka tjónið af kórónuveirufaraldri og undirbúa sóknarfæri Morgunblaðið/Eggert Sigríður Á. Andersen Guðlaugur Þór Þórðarson Leifsstöð Ferðabann ESB nær ekki yfir ríkisborgara EFTA-ríkja. KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Landris er hafið að nýju við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi en það er hægara nú en það sem mældist í lok janúar. Þetta staðfesta bæði gps-mælingar á svæðinu og einnig gögn frá gervihnöttum. Vísinda- menn á Veðurstofu Íslands, Jarð- vísindastofnun Háskólans og Ísor funduðu í morgun og rýndu nýj- ustu mælingar og gögn. Líklegast er að kvikusöfnun hafi tekið sig upp að nýju á sama stað. Engin merki eru þó um gosóróa. Þetta kemur fram á vef Veður- stofu Íslands en vísindaráð Al- mannavarna kemur saman í næstu viku. Landrisið er á sömu slóðum og það var í lok janúar. Verulega hafði dregið úr því í lok febrúar og virtist það hafa stöðvast tímabund- ið. Nýjustu gögn sýna að frá byrj- un mars hefur land risið rétt innan við 20 mm. „Landrisið núna virðist mjög hægt og mun hægara en í lok jan- úar. 20 mm er í raun sáralítið landris og mjög erfitt að greina svo litla breytingu með þeirri tækni sem fyrir hendi er. Oft þarf því að safna gögnum í nokkra daga til að fá það staðfest að landris hafi orðið eða eigi sér stað,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarð- eðlisfræðingur á Veðurstofu Ís- lands. „Nú erum við farin að sjá merki um landris og benda okkar út- reikningar til þess að það eigi sér svipaðan uppruna og landrisið í janúar,“ segir Benedikt. Landris við Grindavík  Hægara en það sem mældist í janúar  Líklega kvikusöfn- un á sama stað og áður  Sérfræðingar funda um stöðuna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landris Hreyfingarnar eru við fjall- ið Þorbjörn skammt frá Grindavík. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.