Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 16

Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Ég hef áður ritað grein í þetta blað um hugsanleg úrræði í húsnæðismálum í tengslum við „lífs- kjarasamningana“ og það má spyrja hvort það sé ekki tækifæri núna á tímum ástands- ins varðandi CO- VID-19-veiruna til að setja af stað aðgerðir? Aðgerðirnar sem hér er lagt upp með eru að ríkið kaupi eignir á móti þeim sem uppfylla skilyrði, þ.e. geta ekki keypt eignir, ná ekki greiðslu- getumati eða eiga þess ekki kost að öðrum gildum ástæðum að eignast fasteignir að fullu. Ríkið kaupir þá og greiðir fyrir nauðsynlegt hlutfall eignanna á móti viðkomandi kaupanda, eignast hlut- fall í fasteigninni miðað við framlagið og ef hún verður seld fær ríkið greitt fyrr sinn eignarhluta. Ákvörðun um kaup og sölu liggi hjá kaupandanum. A. Viðskipti með fasteignir á þess- um forsendum fari fram á frjálsum markaði og hafa því ekki áhrif á markaðsverð fasteigna, eða verð- myndun á fasteignamarkaði. B. Engir félagslegir íbúðaklasar („gettó“) verða til með neikvæðum áhrifum sem reynslan hefur sýnt að geti orðið. C. Ekki er um lánveitingu af hálfu ríkisins að ræða, hvorki styrkveitingu né víkjandi lán sem hefur áhrif á greiðslugetu eða markaðskjör, hvorki kaupenda né seljenda. D. Einungis er um hluta kaupenda að ræða. E. Fjármögnun ríkisins er ein- greiðsla. Hún verður að öllum lík- indum mjög takmörkuð í ljósi þess sem segir í C-lið hér á undan. F. Endurgreiðsla ríkisframlagsins verður við sölu á við- komandi fasteign. Fast- eignir hafa í ljósi sög- unnar verið helsti hvatinn að verðbólgu undanfarna áratugi og undanfarinn áratug hefði neysluverðs- vísitala farið lækkandi oft og tíðum á milli mán- aða ef húsnæðisliðurinn hefði ekki verið inni í vísitölugrunninum. G. Þannig kemur rík- ið til með að hagnast á þessari aðferð þegar fram líða stundir, eða alla vega tryggja verðgildi framlagðra fjár- muna. Það má því búast við því að að- gerðin verði sjálfbær. H. Eignarhald kaupenda verður hvati að betri umgengni og viðhaldi fasteigna en ef um leiguíbúðir er að ræða, enda á kaupandi ríkra hags- muna að gæta varðandi sinn eign- arhlut. Endursöluverð betra á góðum eignum en þeim sem lakari eru. I. Aðgerðin mun styrkja atvinnulíf á byggingarmarkaði, sem er full þörf á. Alla vega í augnablikinu þegar margs konar aðrar aðgerðir rík- isstjórnarinnar eru á döfinni varðandi atvinnulífið í heild sinni vegna hinna óvenjulegu kringumstæðna sem ríkja í tengslum við COVID-19-veiruna. Því er spurt: Er tækifæri núna? Eftir Magnús Axelsson Magnús Axelsson » Aðgerðirnar sem hér er lagt upp með eru að ríkið kaupi eignir á móti þeim sem geta ekki eignast fasteignir að fullu. Höfundur er fasteignasali með yfir 40 ára reynslu í starfi. maxfasteignir@gmail.com Er tækifæri núna til að koma með úrræði í húsnæðismálum? Krabbamein í blöðruhálskirtli er al- gengasta krabbamein karla. Ekki er skimað kerfisbundið fyrir þessu krabbameini, eins og brjósta- krabbameini kvenna. Það er þó hægt að mæla mótefni, kallað PSA (protate specific antigen), sem myndast þegar líkaminn bregst við óeðlilegri stækkun á blöðruhálskirtli. Hækkun á þessu mótefni getur bent til krabbameins í kirtlinum, en það getur líka verið vegna bólgna. Jafn- vel þótt það greinist krabbamein í kirtlinum er ekki endilega best að fara í meðferð sem miðar að því að reyna að útrýma krabbameininu, sé það staðbundið inni í kirtlinum. Það eru nefnilega talsverðar líkur á því að meinið haldi sig innan kirtilsins. Þá er oft valin meðferð sem nefnist virkt eftirlit. Ekki er reynt að fjar- lægja meinið heldur fylgst vandlega með því. Aukaverkanir Öll meðferð sem miðar að því að útrýma meininu hefur aukaverkanir í för með sér. Þær algengustu eru minnkuð limstífni og þvagleki. Skurðaðgerð þar sem kirtillinn er fjarlægður leiðir oft til minnkaðrar nautnar við fullnægingu. Þú getur látið meta PSA á heilsugæslustöð, en áður en sú ákvörðun er tekin er ráð að velta því aðeins fyrir sér hvort það sé æskilegt í þínu tilviki. Til dæmis: Ef þú reynist vera með staðbundið krabbamein í kirtl- inum, hvað viltu þá gera? Það eru yf- irgnæfandi líkur á að þú lifir í minnst 10 ár, þrátt fyrir grein- inguna, með eða án meðferðar. Veljir þú að fara ekki í meðferð sem miðar að því að reyna að uppræta meinið, til að forðast aukaverkanir, tekur þú ákveðna áhættu sem fylgir því að lifa með krabbamein- inu. Er það ásættanlegt fyrir þig? Eða myndir þú alltaf velja að láta fjarlægja meinið þrátt fyrir hættuna á aukaverkunum? Þetta eru spurn- ingar sem hver og einn verður að gera upp við sig ef um er að ræða staðbundið krabbamein í blöðru- hálskirtli. Karlaklefinn Til að hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun um PSA-mælingu hefur Krabbameinsfélagið látið þýða og staðfæra gagnvirkt hjálpartæki í samvinnu við Háskólann í Reykja- vík, þar sem upplýst er um kosti og vandkvæði ólíkra leiða út frá þínum forsendum. Farðu inn á karlaklef- inn.is og kannaðu málið. Á ég að láta mæla PSA? Eftir Ásgeir R. Helgason » Farðu inn á karla- klefinn.is og kann- aðu málið Ásgeir R. Helgason Höfundur er dósent í sálfræði við Há- skólann í Reykjavík og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. asgeir@krabb.is Enn er of mörgum spurningum ósvarað eftir að síðasta haftið var sprengt 17 apríl sl. í Dýrafjarðargöngum. Sunnan ganganna geta aurskriður, grjót- hrun og snjóflóð sem enginn sér fyrir sópað veginum í Mjólkárhlíð, fyrirvaralaust niður í fjörurnar og eyðilagt endanlega allar til- raunir til að byggja upp öruggan og hindrunarlausan heilsársveg í 500 m hæð á Dynjandisheiði, sem sleppur aldrei við of mikla veðurhæð á sek- úndu og 6-12 metra snjódýpt. Viðbúið er að þessi uppbyggði veg- ur á heiðinni tapi fljótlega gildi sínu þegar inngrip náttúruaflanna í Mjólkárhlíð kemst í fréttirnar og flækir strax málið stuðnings- mönnum heilsársvegar á Dynjand- isheiði til mikillar hrellingar. Lof- orðin sem samgönguráðherra gefur um að þar verði án jarðganga undir Meðalnesfjall, auðvelt í beinu fram- haldi af Dýrafjarðargöngum að byggja upp í 500 m hæð yfir sjáv- armáli á snjóléttu svæði hindr- unarlausan heilsársveg eru á skjön við raunveruleikann og vekja falsk- ar vonir heimamanna sem verða vonsviknir þegar það sannast að nú- verandi vegur í Mjólkárhlíð sleppur hvergi við hætturnar á aurskriðum, snjóflóðum og grjóthruni og síðan hvað? Ég spyr. Hvernig getur sam- gönguráðherra í stríðinu við nátt- úruöflin treyst því að vel upp- byggður vegur um Dynjandisheiði tryggi alla vetrarmánuðina öruggar heilsárssamgöngur milli Vesturbyggðar, Barðastrandar og byggðanna norðan Hrafnseyrarheiðar án jarðganga undir Með- alnesfjall, sem yrðu um 700-800 m löng. Fyrr hefðu þingmenn Norð- vesturkjördæmis átt að kynna sér vandlega þörfina á þessari gangalengd sunnan Dýrafjarðarganga áður en þau voru boðin út, í tíð Jóns Gunnarssonar, þáverandi samgönguráðherra. Fyrstu vik- urnar eftir að Alþingi samþykkti jarðgangaáætlun Vegagerðarinnar, sem eitt forgangsverkefni fyrir Vestfirði, Norður- og Austurland, höfðu fyrrverandi þingmenn Vest- firðinga engan áhuga á þessum jarðgöngum norðan Dynjand- isheiðar. Í tíð Sturlu Böðvarssonar, þáverandi samgönguráðherra, fór þessi samgönguáætlun illa í vinstri- flokkanna í Reykjavík, þegar þeir reyndu með upphrópunum, fals- rökum og tilefnislausum árásum á lífæð allra landsmanna í Vatnsmýri að fella ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar, þáverandi forsætisráðherra, árið 2000. Ögrun við allt höfuðborg- arsvæðið var þessi jarðgangaáætlun kölluð þetta sama ár, af andstæð- ingum Reykjavíkurflugvallar í tíð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þáverandi borgarstjóra, sem taldi fyrirhuguð jarðgöng á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi óþörf. Þar hafa þau síðustu árin tryggt heima- mönnum enn betra aðgengi að heil- brigðisþjónustunni og stytt vega- lengdina á milli sjávarplássanna, þvert á allar hrakspár sem stuðn- ingsmenn Ingibjargar Sólrúnar reyndu árangurslaust að tefla gegn þessum samgöngubótum. Til eru menn sem reyndu líka að skaða samgöngumál fjórðungsins, með öfgafullu og fjarstæðukenndu umtali um að stöðva öll þessi jarð- göng með lögbanni. Á næsta ári verður það mikill léttir fyrir Vest- firðinga að sjá á bak Hrafnseyrar- heiðinni sem býður upp á of mikla slysahættu í 560 m hæð næstu ára- tugina. Aurskriðurnar í Fagraskóg- arfjalli á Mýrum sem komust í frétt- irnar á síðasta ári vekja spurningar um hvaða landshlutar verði næstir í röðinni á meðan starfsmenn Vega- gerðarinnar á Ísafirði senda íbúum fjórðungsins fögur loforð um að vel uppbyggður heilsársvegur í 500 m hæð á Dynjandisheiði verði hindr- unarlaus og sleppi auðveldlega alla vetrarmánuðina við 80 metra veð- urhæð á sekúndu og meira en 8 metra snjódýpt. Án jarðganga inn í Geirþjófsfjörð sem leysa af hólmi Dynjandisheiði verða íbúar Barða- strandar, Vesturbyggðar- og Þing- eyrar aldrei nágrannar. Öll vetr- areinangrun byggðanna á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum hverfur aldrei end- anlega án jarðganga inn í Geirþjófs- fjörð og undir Meðalnesfjall sem leysa af hólmi vegina í Mjólkárhlíð og á Dynjandisheiði, í beinu fram- haldi af Dýrafjarðargöngum. Tímabært er að allir þingmenn Norðvesturkjördæmis standi saman og flytji þingsályktunartillögu um að öll göngin vestan Dynjand- isheiðar verði strax sett inn á sam- gönguáætlun áður en Dýrafjarð- argöng verða tekin í notkun á næsta ári. Án þeirra fá íbúar Barða- strandar og Vesturbyggðar aldrei öruggar heilsárssamgöngur við all- ar byggðirnar norðan Hrafnseyr- arheiðar. Göng undir Meðalnesfjall Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Loforðin sem sam- gönguráðherra gef- ur … eru á skjön við raunveruleikann og vekja falskar vonir heimamanna Höfundur er farandverkamaður. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.