Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikið fannfergi er nú í Hrafnkelsdal
og kveðst Aðalsteinn Sigurðarson,
bóndi á Vaðbrekku, varla muna eftir
öðru eins á síðari árum. Síðustu þrjá
vetur kom varla nokkur snjór. Í gær
voru um tíu dagar síðan vegurinn
um Hrafnkelsdal var síðast mok-
aður. Yfirleitt er mokað á viku fresti.
Búið er á tveimur bæjum í dalnum,
Vaðbrekku og Aðalbóli.
„Það er búið að vera rysjótt veður
í að verða mánuð eða meira,“ sagði
Aðalsteinn. Norðan- og austanáttir
hafa verið ríkjandi. Ef snjóar í aust-
anátt getur snjóað hroðalega mikið.
Alla jafna er snjólétt í Hrafnkelsdal
og úrkomulítið. Aðalsteinn mældi í
fyrradag ákomuna nóttina áður. Þá
höfðu bæst við um 40 sentimetrar of-
an á snjóinn sem fyrir var.
Aðalsteinn notar vélsleða eða sex-
hjól á beltum til að komast um. Í
gær fór hann á sleðanum að Eiríks-
stöðum á Jökuldal til að sækja póst
og vistir. Búið var að opna þangað.
Mikill snjór var fyrir innan Eiríks-
staði og vegurinn inn að Brú og
áfram inn Hrafnkelsdal lokaður. Að-
alsteinn sagði að ekki væsti um sig
og allar frystikistur fullar af kjöti!
Hann er með rétt um 400 kindur á
fóðrum. Veðrið hefur verið svo leið-
inlegt að varla hefur verið hægt að
opna glugga á fjárhúsunum hvað þá
að hleypa fénu út. Féð var rúið í
haust en vetrarrúningurinn bíður
þess að veðrið skáni og hægt verði
að lofta út. Hann er með um 100
kindur í fjárhúsum á Þórustöðum,
sem eru um tvo km innan við Vað-
brekku. Hugmyndin var að taka þær
heim eftir fengitímann en það hefur
ekki verið hægt. „Maður dregur
bara heyrúllur til þeirra á snjónum,“
sagði Aðalsteinn.
Töluvert hefur sést af hrein-
dýrum. „Þau koma niður í þessu
leiðindaveðri,“ sagði Aðalsteinn.
Hann er ekki viss um að það séu
jarðbönn hjá þeim. „Ég held að það
hafi verið svo hvasst uppi að það hafi
rifið af öllum hálsum svo þau komast
alveg í að kroppa.“
Kafsnjór á Norðurlandi
„Við mokum og mokum og mokum
en það bætist alltaf á,“ sagði Heimir
Gunnarsson, þjónustustjóri Vega-
gerðarinnar á Akureyri. Hann sagði
að mikið hefði snjóað síðustu daga.
Reynt hefur verið að sinna vegum
á aðalleiðum en ekki verið mikil tök
á að sinna sveitavegunum. Þeir hafa
margir verið opnaðir en ekki mok-
aðir almennilega. Svo skefur í og
fyllir um leið aftur.
„Menn hafa ekki séð svona snjó
lengi og eru að tala um veturinn
1995, að þetta sé af þeirri stærðar-
gráðu,“ sagði Heimir. Ástandið hef-
ur víða verið slæmt frá Botna-
staðabrekku, ofan við Húnaver, í
vestri og austur á Sandvíkurheiði
milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar.
Fljótin eru full af snjó og hefur ekki
náðst að moka almennilega inn að
Deplum. Mikill snjór er á Siglufirði.
Víkurskarð er lokað en fært um
Vaðlaheiðargöng. Mjög mikill snjór
er á Grenivík. Lítið þarf að blása til
að Ljósavatnsskarð lokist.
Sjóblásarar eru að störfum um
allt svæðið til að reyna að halda veg-
unum opnum. Tveir blásarar eru í
fullri vinnu 15-17 tíma á sólarhring
til að halda Norðausturvegi um
Hólaheiði og Hófaskarði opnum.
Heimir segir að eftir daginn í dag
eigi veðrið að snúast til hins betra
frá því sem það hefur verið. Horfur
séu á aðeins mildara veðri þótt ekki
sé nein hláka í kortunum.
Gríðarmikið fannfergi
fyrir norðan og austan
Annar eins snjór og nú hefur ekki sést árum saman
Ljósmynd/Aðsend
Fannbarinn Aðalsteinn Sigurðarson
segir að mikið hafi snjóað.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hef heyrt af þessu máli í fjöl-
miðlum og er undrandi yfir því. Ég
vil eðlilega heyra viðbrögð Matvæla-
stofnunar við því hvað þarna er að
gerast áður en ég tjái mig meira um
málið opinberlega,“ sagði Lilja Rafn-
ey Magnúsdóttir, alþingismaður og
formaður atvinnuveganefndar Al-
þingis.
Hún var spurð hvað henni þætti
um framgöngu Matvælastofnunar
(MAST) gagnvart Bjarna Óskars-
syni á Völlum í Svarfaðardal. Eins og
Morgunblaðið greindi fyrst frá 5.
mars síðastliðinn er Bjarni með
bleikjueldi sér til gamans og til eigin
nota í tjörn á landareign sinni.
MAST krafðist þess að Bjarni
greiddi tæplega 500 þúsund krónur í
leyfisgjöld vegna bleikjueldisins og
aflaði sér rekstrarleyfis. Ella yrði
hann að hætta eldinu. MAST bendir
á að engar sérreglur gildi um fiskeldi
í smáum stíl og telur sig vera að
sinna skyldum sínum og fara að lög-
um um fiskeldi.
Minnisblað kemur til greina
Lilja Rafney sagði að væri eðlilegt
ástand í þjóðfélaginu væri atvinnu-
veganefnd búin að kalla fulltrúa
MAST á sinn fund til að útskýra
þeirra hlið á málinu og þær aðgerðir
sem stofnunin hyggst ráðast í vegna
bleikjanna á Völlum. Ekki hefur gef-
ist tækifæri til þess vegna mikilla
anna við þingmál í tengslum við kór-
ónuveirufaraldurinn sem gengur nú
yfir. Auk þess eru fundahöld tak-
mörkuð og mál sem eru á leið í gegn-
um þingið látin ganga fyrir. Mál sem
tekin væru á dagskrá við eðlilegar
aðstæður eru því látin bíða. Lilja
Rafney sagði að við þessar aðstæður
kæmi til greina að óska eftir minn-
isblaði frá MAST um málið í stað
þess að kalla fulltrúa stofnunarinnar
fyrir atvinnuveganefnd.
Talar um „stofnanaofbeldi“
Bjarni skrifaði alþingismönnum
bréf og vakti athygli á málinu og því
sem hann kallar „stofnanaofbeldi“.
MAST krefst þess að Bjarni svari
því hvenær hann ætlar að tæma
tjörnina. Hann ætlar að gera það um
leið og snjóa og ísa leysir af tjörn-
inni.
Reynt var að ná tali af Kristjáni
Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra í gær, en án
árangurs.
Vill fá að heyra
viðbrögð MAST
Bleikjutjörnin á Völlum til umræðu
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Bjarni
Óskarsson