Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 1
Baldur Arnarson Guðmundur Magnússon Kristófer Oliversson, eigandi CenterHótela, segir fimm af sjö hót- elum keðjunnar verða lokað vegna gríðarlega afbókana síðustu daga. „Við þurftum að færa starfsfólk úr gestamóttöku og setja upp sér- staka bókunardeild til að taka á móti afbókunum því við höfðum ekki undan. Þetta er að deyja út næstu vikurnar,“ segir Kristófer. Páll L. Sigurjónsson, forstjóri KEA-hótela, sagði félagið hafa lok- að Hótel Apóteki tímabundið vegna fækkunar ferðamanna. Til skoðunar sé að sameina tíma- bundið rekstur fleiri KEA-hótela í Reykjavík en þau eru alls sjö þar. Hann segir KEA-hótelin munu standa þennan storm af sér. Hins vegar þurfi að koma til meiri að- gerða en nú hafa verið kynntar. Margt þarf að ganga upp „Það er engin launung að margt þarf að koma til svo þetta gangi upp. Það þurfa allir að gera sitt. Hvort sem það er ríkið, bankar, leigusalar, launþegar eða rekstrar- aðilar.“ Ólafur Torfason, stjórnarformað- ur Íslandshótela, segir þann mögu- leika að loka hótelum verða ræddan á stjórnarfundi í dag. Keðjan hefur þegar leigt Fosshótel Lind undir sóttkví vegna kórónufaraldursins. Munu þurfa meiri aðstoð Geir Gígja, sölu- og markaðsstjóri Hótel Cabin, Hótel Kletts og Hótel Arkar, segir stöðuna grafalvarlega. Óvíst sé hvort nýtingin á herbergj- um verði yfir 10% næstu tvo mán- uði. „Við bíðum eftir útspili ríkis- stjórnarinnar,“ segir Geir. Ferða- þjónustan muni „ekki þrauka þetta nema það komi eitthvað meira til“. Samkvæmt heimildarmönnum Morgunblaðsins úr bankakerfinu var tvísýnt um rekstur margra gististaða. Nú sé hætt við gjaldþrot- um. Þrýstingur verði á að bjarga ekki félögum sem eiga sér ekki lífs- von. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni störfuðu að meðaltali um sjö þúsund manns hjá hótelum í október og um 24 þúsund í fjórum greinum ferðaþjónustu. Fyrirhugaðir lokanir á hótelum Loka fimm hótelum af sjö  Varúðarráðstöfun CenterHótela  KEA-hótelin loka einu hóteli  Hótelin þurfa meiri frá stuðning frá ríkinu  Þúsundir starfa í hættu  Algjört samkomubann í Danmörku  Ytri landamæri ESB-ríkjanna lokuð í 30 daga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lokað Hótel Apótek hefur verið lokað vegna fjölda afbókana. snerta því þúsundir starfsmanna. Víða í nágrannalöndunum hefur verið gripið til róttækra ráðstafana, m.a. útgöngubanns og lokana landa- mæra, til að hefta útbreiðslu kór- ónuveirunnar. Þá eru víðtækar að- gerðir til að verja efnahagslífið. Allar samkomur 10 manna eða fleiri verða óheimilar í Danmörku frá og með klukkan 10 fyrir hádegi í dag. Kaffihúsum, veitingastöðum og verslunarmiðstöðvum verður lokað. Leiðtogar ESB-ríkjanna samþykktu í gær að loka ytri landamærum að- ildarlandanna til 30 daga. Ísland er meðal ríkja sem bannið nær ekki til. MKórónuveira »2, 4, 6, 8, 12-14 og ViðskiptaMogginn M I Ð V I K U D A G U R 1 8. M A R S 2 0 2 0 Stofnað 1913  66. tölublað  108. árgangur  FERÐAÞJÓN- USTA Á KROSSGÖTUM HORFST Í AUGU VIÐ FORTÍÐINA EM KARLA VERÐUR FRESTAÐ TIL NÆSTA ÁRS BRÚÐUMEISTARINN 29 ANNIR HJÁ FORYSTU KSÍ 27VIÐSKIPTAMOGGINN Morgunblaðið/Eggert Annir Bílstjórar Heimkaupa voru í óðaönn að ferma bílana í gærdag. Fyrirtæki sem bjóða upp á netversl- un með mat og fleiri vörur hafa vart undan að sinna eftirspurn eftir að samkomubann var sett á og kórónu- veirusmitum fjölgaði hér á landi. „Það hefur verið fjórfalt eða fimmfalt meiri sala í matvöru en var áður,“ segir Guðmundur Magnason, forstjóri Heimkaupa. Fyrirtækið bætti í gær við morgunvakt í út- keyrslu til að anna eftirspurn. Nettó varð að hætta að taka á móti pönt- unum um helgina vegna ásóknar. 10 tonn af lóðum seldust Sala á heilsuræktarvörum hjá versluninni Hreysti í Skeifunni tók mikinn kipp um síðustu helgi, eftir að samkomubann var sett á, og fólk sá fram á færri heimsóknir í líkams- ræktarstöðvar. Gunnar Emil Egg- ertsson, framkvæmdastjóri Hreysti, segir að tíu tonn af ketilbjöllum og handlóðum hafi selst á föstudag og laugardag. Von er á nýrri sendingu á næstunni. »4 og ViðskiptaMogginn Brjálað að gera í net- versluninni  Mikil sala á lík- amsræktartækjum Í gær greindust fleiri kórónuveirusmit hér á landi en nokkru sinni áður og voru alls orðin 247 í gærkvöldi. Skimanir sérfræðinga Íslenskrar erfðagreiningar benda þó ekki til þess farald- urinn sé að færast í aukana á Íslandi. Þeir hafa greint 2.640 sýni úr skimunum í Turninum í Kópavogi. Reyndust 22 vera jákvæð eða vel inn- an við eitt prósent. Flest smitin hefur verið hægt að rekja til skíðaferða Íslendinga til Ítalíu. Í gær höfðu rúmlega 185 þúsund smit verið staðfest víðs vegar um heiminn og 7.330 ein- staklingar látist, eða 3,8 prósent. Þá hafa rúm- lega 80 þúsund manns náð sér eftir veikindin. Mikil auking hefur verið í dreifingu veirunnar á meginlandi Evrópu, sérstaklega á Ítalíu, Spáni og í Þýskalandi. Morgunblaðið/Eggert KÓRÓNUVEIRU- FARALDUR 5 manns hafa náð sér og eru lausir úr einangrun 247 hafa smitast af kórónuveirunni hér á landi 2.282 hafa verið settir í sóttkví 2.278 sýni hafa verið tekin 1 andlát ferðamanns, sem var með smit, til rannsóknar hér Aldrei fleiri smit verið greind hér á einum degi MKórónuveira »2, 4, 6, 12 og ViðskiptaMogginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.