Morgunblaðið - 24.03.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Geðhjálp er að auka þjónustu við fé-
lagsmenn vegna kórónuveirufarald-
ursins, meðal annars vegna þess að
mörg úrræði hafa lokast í kjölfar að-
gerða yfirvalda í smitvörnum.
Starfshlutfall ráðgjafa samtakanna
hefur verið aukið og aukin þjónusta
er veitt á netinu og nú er verið að
leita að öðrum ráðgjafa til að auka
þjónustuna enn frekar.
Sem dæmi um þau úrræði sem
margir sem eru með geðraskanir
eða geðfötlun hafa notað en eru nú
lokuð eru Dagsetur, Hlutverka-
setur, Klúbburinn Geysir og göngu-
deildir spítala. Fleiri mætti nefna.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar, segir að þetta hafi tals-
verð áhrif. Fólk einangrist í enn
meiri mæli. Áhrifin geti komið fram
síðar.
Eldra fólk einangrast
Grímur segir að aldraðir sem hafi
einhverja greiningu á þessu sviði
hafi einangrast. Áður en úrræðin
lokuðu hafði fólkið búið við skerta
þjónustu vegna verkfalla. Þjónustu-
miðstöðvar hafi verið lokaðar um
tíma. Hópurinn hafi því verið ein-
angraður meginþorra ársins.
Hann nefnir einnig fólk sem er
með lítið stuðningsnet í kringum sig
og þurfi að leita
utanaðkomandi
aðstoðar. Það
einangrist hratt
eins og ástandið
er nú.
Aðstoð á neti
Geðhjálp ákvað
að fjölga tímum
hjá ráðgjafa sam-
takanna og einnig taka í notkun nýtt
samskiptaforrit sem gerir fólki
kleift að fá ráðgjöf í gegnum netið.
Grímur segir að þótt ekki sé ætlast
til að veitt sé meðferð í þessum tím-
um sé ráðgjöfin stundum svo um-
fangsmikil, sérstaklega þegar fólk
hefur ekki efni á að kaupa sér sál-
fræðiraðstoð, að hún sé meiri en
samtökin gefi sig út fyrir að veita.
Huga þarf að úrræðum í tíma
„Þetta bítur núna. Það er svo
margt að loka og fólk sem fengið
hefur áfallastreytu upplifir áföllin
aftur. Við finnum fyrir því í aukinni
eftirspurn eftir ráðgjöf og sáum fyr-
ir helgi að við þurfum að bæta við
okkur ráðgjafa,“ segir Grímur.
Hann segir einnig aðspurður að
margir sem veikir eru fyrir verði
kvíðnir í þeirri miklu umræðu sem
er um kórónuveiruna.
Hann leggur á það áherslu að
mikilvægt sé að huga strax að því
hvernig bregðast eigi við þegar
ástandið í samfélaginu fer aftur að
lagast. Margir munu þurfa á stuðn-
ingi að halda. „Ég tel að við ættum
að undirbúa okkur fyrir þetta og
vera með gott velferðarnet sem
ræður við málið þegar faraldurinn
verður genginn yfir,“ segir Grímur.
Virkniverkefni fyrir ungt fólk
Nefnir hann sem dæmi að Geð-
hjálp hafi verið að undirbúa virkni-
verkefni fyrir ungt fólk í samvinnu
við félagsmálaráðuneytið. Mikilvægt
sé að fara af stað með það sem fyrst.
Þótt ekki verði mikið að gera í upp-
hafi verði úrræðið tilbúið þegar
fjöldinn þurfi á því að halda.
Geðhjálp eykur þjónustu sína
Einangrun viðkvæmra hópa fólks með geðraskanir eða geðfötlun eykst Ýmis úrræði sem fólk
hefur nýtt sér er nú lokuð Geðhjálp fjölgar tímum hjá ráðgjafa og býður aðstoð á netinu
Grímur Atlason
ALVÖRUMATUR
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
Morgunblaðið/Eggert
Páskaegg Landsmenn fá páskaegg í ár og þau eru nú komin í verslanir.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Áhrifanna gætir auðvitað víða en
það er verið að reyna að grípa til ráð-
stafana þar sem það er sérstaklega
mikilvægt, til að halda samfélaginu
gangandi,“ segir Sigurður Hannes-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins.
Hertara samkomubann vegna
kórónuveirufaraldursins felur það í
sér að nú mega ekki fleiri en 20 koma
saman. Þetta hefur mikil áhrif á at-
vinnulíf í landinu, bæði á ýmsa þjón-
ustustarfsemi en einnig stór fram-
leiðslufyrirtæki.
Sigurður segir að Samtök iðnaðar-
ins hafi ásamt fulltrúum úr sjávar-
útvegi átt samtöl við ráðamenn til að
tryggja að ekkert hökt verði á mat-
vælaframleiðslu. „Þá erum við að
tala um undanþágur frá banninu eða
ráðstafanir þannig að hægt sé að
halda framleiðslunni gangandi. Því
hefur verið mjög vel tekið. Stjórn-
völd eru auðvitað öll af vilja gerð.
Þau vilja sjá til þess með okkur að
röskunin verði ekki meiri en þarf.“
Þurfa að breyta skipulagi
Auðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Nóa Siríuss, segir að hert samkomu-
bann raski skipulagi framleiðslu
fyrirtækisins. „Sérstaklega í páska-
eggjunum. Fjöldi starfsmanna í
þeim sal hefur verið yfir þessum
mörkum og nú þurfum við að hægja
verulega á þeirri framleiðslu.“
Páskaeggin eru komin í verslanir
og segir Auðjón að lagt hafi verið
upp með að vera með fyrra fallinu í
ár vegna ástandsins. „Framleiðslan
hefur verið á fullu því við vildum ná
upp sem mestri birgðastöðu. Það
hefur komið sér vel því bæði fyrir-
tæki og stofnanir hafa verið að kaupa
páskaegg til að verðlauna fólk sem
hefur verið að vinna undir óvenju
miklu álagi. Svo finnum við líka fyrir
aukinni netsölu.“
Samkvæmt upplýsingum frá Stef-
áni Magnússyni, markaðsstjóra
CCEP á Íslandi, hefur samkomu-
bannið og aðrar afleiðingar kórón-
uveirunnar sett talsvert strik í reikn-
ing fyrirtækisins. „Við erum með
framleiðslu bæði á Akureyri og í
Reykjavík og þar er nú unnið á tví-
skiptum vöktum. Eftir að hert var á
banninu neyðumst við til að loka
mötuneyti og hefta til að mynda
samgang á milli þeirra sem vinna í
vöruhúsi og þeirra sem eru í fram-
leiðslu. Nú erum við með aðskildar
kaffistofur, aðskilda innganga og að-
skilin salerni. Þetta eru víðtækar að-
gerðir til að tryggja framleiðsluna.
Ástandið kallar á meira skipulag.“
Stefán segir jafnframt að lokanir
skemmti- og veitingastaða þýði að
ekki sé framleitt eins mikið af bjór-
kútum og gosi fyrir vélar. „Eins er
talsvert síðan farið var í að forgangs-
raða hvað þarf að eiga og hvað má
vanta. Það getur verið að komi að því
að vörur sem minni eftirspurn er eft-
ir verði ekki til.“
Þurfa að hægja á
páskaeggjaframleiðslu
Hert samkomubann hefur áhrif á matvælaframleiðsluFélagsmenn Kjalar, stéttarfélags
starfsmanna í almannaþjónustu,
samþykktu nýgerða kjarasamninga
við Samband íslenskra sveitarfélaga
og við ríkið með 88% atkvæða. Á
kjörskrá vegna samnings við sveitar-
félögin voru 713 félagsmenn og kusu
405, eða 57%. Á kjörskrá vegna
kjarasamnings Kjalar við ríkissjóð
voru 230 og tóku 138 (60%) þátt. At-
kvæðagreiðslan var rafræn og lauk
henni kl. 10.00 í gærmorgun.
Yfirgnæfandi meirihluti félags-
manna í aðildarfélögum BSRB sem
lokið hafa atkvæðagreiðslu um
samningana frá 9. mars samþykkti
þá. Atkvæðagreiðslur standa yfir
eða eru að hefjast hjá öðrum.
Hjá þeim félögum sem lokið hafa
atkvæðagreiðslum samþykktu 58 til
88% samningana og er það afgerandi
meirihluti þeirra sem kusu. Þátttaka
var víðast hvar á bilinu 28 til 68%.
Niðurstöður má sjá á bsrb.is.
Kjarasamningur Félags starfs-
manna stjórnarráðsins var undirrit-
aður 20. mars. Hann verður nú
kynntur félagsmönnum og svo
greidd um hann atkvæði.
Efling bað um fund
Efling óskaði í gær eftir fundi í
viðræðunum við Hveragerði, Kópa-
vog, Mosfellsbæ, Seltjarnarnes og
Ölfus. Verður hann kl. 10.00 í dag.
Einnig verður fundur Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga og
samninganefndar ríkisins (SNR). Í
gær funduðu slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamenn og SNR.
Mál flugfreyja og Icelandair, flug-
freyja og Air Iceland Connect og Fé-
lags íslenskra leikara og Borgarleik-
hússins eru í biðstöðu um óákveðinn
tíma, samkvæmt upplýsingum frá
embætti ríkissáttasemjara.
Blaðamenn greiða atkvæði
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýj-
an kjarasamning milli Blaðamanna-
félags Íslands (BÍ) og Samtaka at-
vinnulífsins hefst á hádegi í dag og
stendur til hádegis á föstudag.
Samningur BÍ og Frjálsrar fjölmiðl-
unar, vegna DV og dv.is, var sam-
þykktur samhljóða. gudni@mbl.is
Margir samning-
ar samþykktir
Lokið hjá Kili og ýmsum í BSRB
Morgunblaðið/Eggert
Ríkissáttasemjari Samningafundir
eru nú fjarfundir vegna farsóttar.
Iðnaðarmenn unnum hörðum hönd-
um í gær við að standsetja húsið
Birkiborg á lóð Landspítalans í Foss-
vogi, en þar verður starfrækt sérstök
göngudeild þar sem fólki með kórón-
uveiruna verður sinnt. Samhliða
þessu hefur verið sett upp fjarheil-
brigðisþjónusta við sjúklinga í ein-
angrun heima fyrir. Ef nauðsynlegt
reynist að grípa til innlagna hefur
Landspítali helgað deild A7 í Foss-
vogi fyrir sjúklinga í COVID-19-ein-
angrun og mun bæta við rúmum í
samræmi við þörf.
Deild þessi var sett á fót fyrir
nokkrum dögum og fær nú fast aðset-
ur. Yfirlæknir deildarinnar er Ragnar
Freyr Ingvarsson og deildarstjóri er
Sólveig Sverrisdóttir. Á þriðja tug
starfsmanna Landspítalans, læknar
og hjúkrunarfræðingar, sinna nú ráð-
gjafarþjónustu og símaeftirliti hjá því
fólki sem greint hefur verið með
COVID-19. Fjölgað er í liðinu eftir því
sem fleiri greinast. Stærsti hluti síma-
þjónustu göngudeildar er í Fossvogi
en tök eru á stækkun á skrifstofum
spítalans í Skaftahlíð.
Göngudeild nú í Birkiborg
Sinna fólki með kórónuveiruna Deild A7 er frátekin
Birkiborg Iðnaðarmenn voru að
standsetja húsið í gærdag.