Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 32
Stjórnendur streymisveitunnar Netflix hafa stofnað styrktarsjóð fyrir listamenn sem misst hafa atvinnu vegna kórónuveirunnar og samkomubannsins sem nú gildir víða um lönd. 100 milljónir Bandaríkjadala eru í sjóðnum. Munu þeir einkum hljóta styrki sem koma að framleiðslu sjónvarpsefnis og kvikmynda fyrir veituna sem nú hefur verið stöðvuð og þeir fyrir vikið misst vinn- una. Má sem dæmi nefna tökulið annarrar þáttaraðar The Witcher en framleiðslu hennar var hætt eftir að einn leikaranna, Kristofer Hivju, greindist með kórónuveiruna. Netflix stofnar styrktarsjóð „Það hefur í raun alltaf verið hluti af plönum mínum að fara til Eyja þegar ég sneri heim úr atvinnumennskunni og ég er virkilega ánægð með að vera búin að klára þetta,“ segir Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handknattleik, sem er á heimleið eftir sjö ár í atvinnu- mennsku erlendis og er búin að semja við ÍBV til næstu tveggja ára ásamt sambýlismanni sínum sem er einnig þjálfari. »27 Eyjar alltaf í plönum mínum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sumir eru alltaf með eitthvað á prjón- unum og prjónahópur Elínar Bjarkar Jóhannsdóttur, verkefnastjóra hjá Háskóla Íslands, lætur samgöngu- bannið ekki trufla hefðina, þótt fé- lagar geti ekki hist, heldur prjónar saman í mynd og tali á netinu. Fyrsti prjónafundurinn með breyttu fyrir- komulagi var fyrir viku og annar verður í kvöld. „Þetta fyrir- komulag gekk prýðilega í fyrstu tilraun og við ætlum að hafa sama hátt á í kvöld,“ segir Elín. Hún leggur áherslu á að sami kjarninn hafi alltaf mætt í Bíó Paradís á þriðjudögum og prjónararnir séu allir spenntir fyrir því að halda áfram á netinu, þar til samgöngubanninu verði aflétt. Saumaklúbburinn varð að veru- leika í ársbyrjun, þegar Elín hóaði saman nokkrum vinkonum sínum. „Við ákváðum að hittast með prjón- ana í Bíó Paradís, því þar er svo af- slappað umhverfi, blanda af kaffihúsi, bar og bíói,“ segir hún. Bætir við að ekki hafi verið haft samráð við stjórn- endur bíósins að fyrra bragði en starfsmenn hafi tekið uppátækinu vel og hópurinn hafi hist þar á hverju þriðjudagskvöldi frá því í byrjun jan- úar þar til samgöngubannið setti strik í reikninginn í liðinni viku. Fyrirmynd í New York Eftir að hafa búið í New York í Bandaríkjunum vegna náms flutti El- ín aftur heim í júní í fyrra. Hún kynnt- ist vikulegum prjónaklúbbi á bar í East Village og hugsaði mikið um hvernig hún gæti skipulagt sambæri- legan prjónaklúbb á opinberum stað í Reykjavík. „Ég saknaði samveru- stundanna með prjónana, því ég fann strax hvað það var gott að hafa eitt- hvað á prjónunum í daglegri rútínu og skiptast á hugmyndum við aðra á meðan. Það tók mig tíma að finna út hvernig best væri að gera þetta hérna en eftir að ég sá að fleiri höfðu áhuga á prjónahittingi og að aðstæður í Bíó Paradís eru sem sniðnar fyrir svona klúbb var björninn unninn.“ Elín hefur um árabil verið iðin við að prjóna. Hún segist einkum prjóna sjöl og peysur á sjálfa sig en einnig flíkur á góða vini. Hún segir að vegna ástandsins og samgöngubannsins sé mannlífið eðlilega frekar tómlegt í HÍ, en mikilvægt sé að reyna að halda skipulagðri dagskrá og gott sé að geta gripið í prjónana eins og ekk- ert hafi í skorist. Hún prjóni oft á kvöldin á meðan hún horfi á sjónvarp en þriðjudagsfundurinn sé sérstakur. „Það er mjög afslappandi að prjóna og gaman að hitta aðra prjónara reglulega, líka á Skype, enda stund- aði ég Skype-samprjón með systur minni á meðan við bjuggum í sitt- hvoru landinu,“ segir Elín. Hún bætir við að heimilisfólk geti líka stundað mismunandi áhugamál í sama rými heima. „Kærasti einnar í hópnum var til dæmis á capoeira-æfingu í sama rými og hún á meðan hún var að prjóna með okkur.“ Samprjón í máli og mynd á netinu List Elín Björk Jóhannsdóttir prjónar mest sjöl og peysur.  Prjónahópur Elínar Bjarkar Jóhannsdóttur annars í Bíó Paradís Handavinna Prjónarnir leika í höndum Elínar með góðum árangri. ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 84. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.