Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.03.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020 Bandaríski kántrítónlistarmaður- inn Kenny Rogers er allur. Rogers lést á heimili sínu í Sandy Springs, 81 árs að aldri, en hann var meðal skærustu stjarna kántrítónlistarinnar í Bandaríkj- unum í yfir 40 ár og hlaut þrenn Grammy-verðlaun á ferli sínum. Af mörgum smellum hans má nefna „Lucille“ og „Islands in the Stream“ sem eru auk þess vinsæl karókílög, eins og bent er á í frétt dagblaðsins Guardian um andlát Rogers. Rogers ólst upp við mikla fá- tækt í Texas og lék í fjölda hljóm- sveita sem ungur maður, þeirra á meðal Kenny Rogers and the First Edition, en hóf sólóferil árið 1978. Rogers naut gífurlegra vinsælda í Bandaríkjunum og er tíundi sölu- hæsti karlkyns tónlistarmaðurinn þar í landi þegar kemur að plötu- sölu og átti hann auk þess farsælt samstarf við fjölda tónlistar- manna, þeirra á meðal Willie Nel- son og Dolly Parton. AFP Vinsæll Kenny Rogers var einn vinsælasti tónlistarmaður Bandaríkjanna. Kántrísöngvarinn Kenny Rogers látinn Arnar Tómas Valgeirsson blaða- maður mælir með eftirfarandi listaverkum og afþreyingu sem hægt er að njóta innan veggja heimilisins í samkomubanninu. „Áður en Denis Villeneuve heillar okkur eða floppar stór- fenglega með stórmyndinni Dune sem er væntanleg á árinu er vel þess virði að kynnast eða endurkynn- ast bókunum sem liggja að baki henni. Bókaröðin verð- ur seint kölluð aðgengileg en sjaldan hefur vísindaskáldskapur tvinnað jafnflóknu og heillandi viðfangsefni á jafn stórbrotinn hátt. Framandi trúarbrögð, furðu- legri menningarheimar og tækni á eyðimerkurplánetunni Arrakis – það er varla hægt að dýfa sér í kryddaðra sögusvið. Risavaxnir ormarnir gefa held- ur bróður sínum sem fannst í höfuðstöðvum CCP á dögunum ekkert eftir. Um að gera að leyfa ímyndunaraflinu að rissa upp sögusviðið áður en Jas- on Momoa mengar það með skorn- um líkama sínum á hvíta tjald- inu. Ef óskað er eftir virkari að- komu að ævintýrunum í óhóflegri skjánotkun í einangrun mæli ég eindregið með tölvuleiknum Hollow Knight. Gullfallegt, hand- teiknað ævintýri sem á sér stað í konungsdæmi skordýra – eins konar Dísa ljósálfur fyrir lengra komna. Leikurinn er unninn af mikilli natni og virðist hvert ein- asta skúmaskot útpælt. Tónlistin er gullfalleg og raddsetningin skemmtileg. Hann er temmilega aðgengilegur og spilast í tvívídd að hætti gamla skólans en verður hægt og bítandi mjög erfiður án þess þó að ergja mann. Ég get varla hlaðið nógu miklu hrósi á Hollow Knight sem á erindi til yngri og eldri leikmanna. Eins lengi og þeir eru ekki skor- dýrafælnir.“ Mælt með í samkomubanni Stingur Tónlistarmaðurinn Sting með stóran sting í kvikmyndinni Dune. Risaormar og fallegt ævintýri Arnar Tómas Valgeirsson Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í ljósi þeirra einstöku aðstæðna sem nú eru uppi mun Íslenska óperan leggja sitt af mörkum til að stytta fólki stundir,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri. Framlag Íslensku óperunnar felst annars veg- ar í aríu dagsins sem hleypt verður af stokkunum í dag og hins vegar „Einu sinni var“ sem er nokkurs konar faðmlag við fortíðina þar sem streymt verður völdum uppfærslum Íslensku óperunnar. „Mér fannst okkur renna blóðið til skyldunnar að gleðja landsmenn með fallegum söng. Við sjáum hvað er að gerast á Ítalíu þar sem fólk í ein- angrun kemur saman á kvöldin á svölum húsa sinna og syngur saman til þess að halda gleðinni, enda er Ítalía vagga söngsins og þar var óperulistformið upprunnið fyrir rúm- um 400 árum. Fólk grípur til tón- listarinnar á erfiðum tímum. Með því að bjóða upp á aríu dagsins erum við að auka lífsgæði þjóðarinnar og stytta þeim stundir sem lokaðir eru inni heima. Á sama tíma erum við að styðja við sjálfstæðu senuna og ein- yrkja í hópi listamanna sem eru að missa tekjur sínar vegna ástandsins, því allir sem fram koma hjá okkur fá auðvitað greitt fyrir vinnu sína,“ segir Steinunn Birna og bendir á að hlutverk listanna sé aldrei mikilvæg- ara en í krefjandi aðstæðum sem þessum. „Og þetta eru einhverjir erfiðustu aðstæður sem við höfum upplifað.“ Fyrsta aría dagsins verður send út í dag og er sungin af Dísellu Lárus- dóttur, sem nýverið fékk Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins. Aría dagsins mun verða flutt af fjölmörgum íslenskum söngvurum á ólíkum aldri. Aðspurð segir Stein- unn Birna lagavalið hafa verið í hönd- um söngvaranna sjálfra. „Þau völdu sínar uppáhaldsaríur til flutnings,“ segir Steinunn Birna. Aríurnar eru allar teknar upp í Eldborg Hörpu og sendar út á samfélagsmiðlum. „„Einu sinni var“ felur í sér að við opnum gullkistuna okkar sem býr yfir fjársjóðum fortíðarinnar,“ segir Steinunn Birna og vísar til þess að upptökur af eldri upp- færslum Íslensku óperunnar verði sendar út á netinu þannig að allir landsmenn geti notið góðs af. „Við munum til skiptis sýna nýrri og eldri uppfærslur. Þetta er einstakt tæki- færi fyrir þá sem eru fastir heima og fólk sem býr á landsbyggðinni og hef- ur lengra að sækja sýningar Íslensku óperunnar til þess að upplifa þær í stofunni heima hjá sér,“ segir Stein- unn Birna og tekur fram að miðað sé við að streyma einni óperu á viku á þriðjudögum á meðan samkomu- bannið er í gildi. Pagliacci ríður á vaðið „Í þessari viku munum við streyma upptöku af Pagliacci eftir Leonca- vallo sem Íslenska óperan setti upp í Gamla bíói 1990 þar sem Garðar Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir voru í aðalhlutverkum,“ segir Stein- unn Birna og rifjar upp að Pagliacci hafi verið fyrsta óperan sem Íslenska óperan setti upp fyrir 40 árum. Í framhaldinu verður sýnd upptaka af La Bohème eftir Puccini sem sett var upp í Hörpu árið 2012 í leikstjórn Jamie Hayes þar sem Daníel Bjarna- son hélt um tónsprotann. Því næst verður Aida eftir Verdi sýnd, en þar er um að ræða upptöku frá 1988. Leikstjóri var Bríet Héðinsdóttir og hljómsveitarstjóri Gerhard Deckert. Í aðalhlutverkum voru Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Garðar Cortes. Upp- færsla Íslensku óperunnar á Évgeni Onegin eftir Tsjajkovskíj í Hörpu 2016 er næst í röðinni. Leikstjóri var Anthony Pilavachi og hljómsveit- arstjóri Benjamin Levy, en í helstu hlutverkum voru Andrey Zhilikh- ovsky, Þóra Einarsdóttir og Elmar Gilbertsson. Af öðrum uppfærslum sem sýndar verða á næstu vikum eru Sardasfurstynjan eftir Kálmán sem sýnd var í Gamla bíói 1993 með Sig- nýju Sæmundsdóttur í aðalhlutverki; Otello eftir Verdi sem sýndur var í Gamla bíói 1992 með Garðari Cortes í titilhlutverkinu, Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart sem sýnt var í Gamla bíói 2006 og Tosca eftir Puccini frá 2017 með Claire Rutter, Kristjáni Jóhannssyni og Ólafi Kjart- ani Sigurðarsyni. Allar upptökur má nálgast á vef Íslensku óperunnar, opera.is og á Youtube-rás Íslensku óperunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sópran Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran flytur aríu dagsins sem hefst í dag. Faðmlag við fortíðina Steinunn Birna Ragnarsdóttir  Íslenska óperan býður upp á aríu dagsins og „Einu sinni var“ í samkomubanninu  Eykur lífsgæði þjóðarinnar SMÁRALIND www.skornirthinir.is VATNSHELDIR ÚTIVISTARSKÓR • Léttur og þægilegur útivistarskór frá ítalska LYTOS. •Waterproof filma gerir skóinn vatnsheldan. • Comfort innsóli. • Grófur stamur sóli. Braies Tech Tilboðsverð 9.998 Verð áður 19.995 Stærðir 36 - 47 Netverslun www.skornir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.